Þjóðviljinn - 30.09.1987, Síða 6
VIÐHORF
---------ALÞÝÐUBANDALAGEÐ----------------------------
Alþýðubandalagsfélagið í Keflavík og Njarðvík
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í húsi Verslunarmannafélagsins Hafnargötu
28, næstkomandi miðvikudag 30. september kl. 20.30. Gestur fundarins
verður Ólafur Ragnar Grímsson prófessor. Allir velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir.
Stjórnin
Alþýðubandalagsfélag Selfoss og nágrennis
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn 30. september n.k. að Kirkjuvegi 7,
Selfossi kl. 20.30.
Dagskrá
1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Fulltrúi frá Varmalandsnefndinni gerir grein
fyrir starfi nefndarinnar.
Margrét Frímannsdóttir mætir á fundinn.
Nýir félagar sérstaklega boðnir velkomnir.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Félagsfundir
Fundir verða í Alþýðubandalagsfélögum á Norðurlandi eystra á eftirtöldum
stöðum:
Raufarhöfn - þriðjudaginn 29. september kl. 20.30.
Kópaskeri - miðvikudaginn 30. september kl. 20.30.
Ólafsfirði - fimmtudaginn 1. október kl. 21.30. Ath. Fundartími kl. 21.30.
Á dagskrá fundanna verður m.a. kosning fulltrúa á kjördæmisþing og á
Landsfund - Stjórnmálaumræður.
Steingrímur J. Sigfússon mætir á fundina.
Nánar auglýst á hverjum stað.
Alþýðubandalagið uppsveitum Árnessýslu
AÐALFUNDUR
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Árnesi mánudaginn 5. október kl.
21.00.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
3) Kosning fulltrúa á Landsfund. 4) Önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 30. september kl. 20.30 að
Selási 9 (kjallara).
Fundarefni: 1) Kosning fulltrúa á kjördæmisþing á Iðavöllum.
Hjörleifur Guttormsson alþm. kemur á fundinn og segir frá gangi
stjórnmálanna.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Alþýðubandalagið Austurlandi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn á Iðavöllum laugardaginn 3.
október kl. 4.00 og lýkur honum kl. 16.00 næsta dag.
Dagskrá fundarins verður samkv. lögum kjördæmisráðs.
Umræða:
Lífskjör á landsbyggðinni
Framsögu hafa: Kristinn V. Jóhannsson, Álfhildur Ólafsdóttir, Björn Grétar
Sveinsson og Hjörleifur Guttormsson.
Kvöldvaka verður á laugardagskvöldið á vegum Alþýðubandalags Héraðs-
manna. Helgi Seljan fyrrv. alþm. verður gestur kvöldvökunnar sem er öllum
opin.
Gistingu er hægt að fá í orlofshúsum ASA að Einarsstöðum.
Upplýsingar veita: Sveinn í síma 11681 og Sigurjón í síma 11375.
Stjórn kjördæmlsráðs
Alþýðubandalagið Höfn Hornafirði
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í A-Skaftafellssýslu heldur
félagsfund í Miðgarði í Höfn, miðvikudaginn 30. sept-
ember kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Kosning fulltrúa í kjördæmisráð. 2)
Hjörleifur Guttormsson alþm. situr fyrir svörum. 3)
Önnur mál. ,... . .,
Stjórnin Hjórleifur
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
ABH boðar til bæjarmálaráðsfundar laugardaginn 3. október kl. 10.00 í
Skálanum, Strandgötu 41.
Dagskrá: 1) Undirbúningur fyrir komandi bæjarstjórnarfund. 2) Kynntar
tillögur að breytingum á starfsreglum bæjarmálaráðs. 3) Starfsskipulagið í
vetur. 4) Önnur mál.
Nefndarmenn ABH eru hvattir til að mæta. Fundurinn opinn öllum flokks-
mönnum.
Stjórnln
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur
ABA boðar til bæjarmálaráðsfundar í Lárusarhúsi mánudaginn 5. október
kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Veitumál. 2) Fundargerð bæjarstjórnar. 3) Önnur mál.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Félagsfundur
verður haldinn fimmtudaginn 1. október í Lárusarhúsi klukkan 20.30. Dag-
skrá: 1) Starfið framundan. 2) Reikningar félagsins. 3) Kosningar á kjör-
dæmisþing. 4) Önnur mál.
Félagar fjölmennið!
öllum ráðum að eigna sér þessar
fjöldahreyfingar og ekki sparað
meðölin. Og vissulega hefur ver-
ið reynt að gera mannréttinda-
hópa í Austur-Evrópu að CIA
agentum í augum vinstrisinna á
Vesturlöndum. Sem dæmi um
samstarf óháðra friðarhreyfinga í
austri og vestri má nefna að 1.
desember 1985 birtist auglýsing í
New York Times þar sem skorað
er á Reaganstjórnina að hætta
íhlutun í málefni Nikaragva.
Jafnframt var hvatt til þess að
Bandaríkin hættu allri íhlutunar-
stefnu og að Sovétríkin gerðu
slíkt hið sama í Austur-Evrópu
og Afghanistan. Auglýsing þessi
var einstæð að því leyti að undir
hana skrifuðu einstaklingar bæði
frá Vesturlöndum og Austur-
Evrópu.
Aðstœður
óopinberra
friðarhreyfinga
í Austur-Evrópu
Það er að hluta til rétt hjá sov-
éska friðarnefndarfólkinu sem
vitnað var til hér að framan að
óopinberu hreyfingarnar hafa
ekki haft „mikið annað að segja“
en þær opinberu. Trúnaðarhóp-
urinn í Moskvu leggur t.d. mikla
áherslu á frystingu kjarnorkuvíg-
búnaðar líkt og „Freeze" hreyf-
ingin bandaríska og Sovéska
friðarnefndin hefur einnig tekið
undir þessar kröfur. Trúnaðar-
hópurinn telur hins vegar að vest-
rænar friðarhreyfingar hafi ein-
blínt um of á vopnakerfin í stað
þess að setja mannleg samskipti í
brennidepil: Það eru ekki vopnin
sem drepa heldur menn sem
stjórnast af hatri. Þess vegna hef-
ur hópurinn lagt áherslu á aukin
skoðanaskipti almennings í
löndum austurs og vesturs til að
skapa trúnað. Þessum hreyfing-
um eins og t.a.m. Viðræðuhópn-
um í Ungverjalandi hefur verið í
mun að afla sér viðurkenningar
stjórnvalda og því hafa þær oft
reynt að fara varlega í sakirnar til
að aðgreina sig frá andófshópum.
Þó er eitt grundvallaratriði sem
greinir á milli hinna opinberu
friðarnefnda og óopinberu hóp-
anna: Óopinberu hreyfingarnar
gera kröfur ekkert síður til So-
vétríkjanna en Bandaríkjanna.
Þær hafa reyndar bryddað upp á
kröfum um að Sovétherinn eigi
að fara úr löndum Austur-Evr-
ópu jafnframt sem Bandaríkja-
her fari úr Vestur-Evrópu.
í starfi þeirra felst krafa um að
menn hafi aðgang að upplýsing-
um, fái að móta skoðanir sínar
sjálfir og láta þær í ljós þegar
þeim þóknast. Þess vegna hafa
félagar í þessum samtökum orðið
að sæta kúgun og ofsóknum. La-
dislav Lis, talsmaður Charta 77 í
Tékkóslóvakíu, var handtekinn í
janúar 1983 fyrir að hafa sam-
skipti við fulltrúa vestrænna
friðarhreyfinga. Snemma árs
1984 voru Barbel Bohley og Ur-
ikke Poppe í óháðri friðarhreyf-
ingu kvenna í Austur-Þýskalandi
handteknar ásamt Barböru Ein-
horn, fulltrúa bresku friðarsam-
takanna END. Barböru var síðan
vísað úr landi og austurþýsku
konunum var sleppt eftir tiltölu-
lega stuttan tíma. Irina Pankrato-
va og Anetta Fadayeva, 17 ára
gamlir menntaskólanemar, voru
lokaðar inni á geðsjúkrahúsi í
ársbyrjun 1986, skömmu eftir að
þær höfðu tekið þátt í fundi Trún-
aðarhópsins í Moskvu sem hald-
inn var til að minnast Johns Len-
nons. Félagar úr Trúnaðarhópn-
um voru handteknir sl. vetur fyrir
að halda fram sjónarmiðum sín-
um á sama tíma og friðarráð-
stefna Gorbatsjofs var haldin.
Það er hægt að hafa þennan lista
miklu lengri.
Fulltrúar 7 íslenskra friðar-
hreyfinga ættu að hafa örlög
þessa fólks í huga þegar þeir
bjóða sendiboða Heimsfriðar-
ráðsins velkomna hingað til
lands.
íslenskir friðar-
sinnar hugsi
sig vel um
Að framansögðu er ljóst að ég
tel að íslenskar friðarhreyfingar
geti ekki með nokkru móti tekið
á móti Heimsfriðarráðinu sem
systurhreyfingu - mig varðar ekki
um hvað íslenska friðarnefndin
og MFÍK gera í því sambandi.
Það er allt annað mál hvort full-
trúar íslenskra friðarhreyfinga
geta, undir sömu formerkjum og
fulltrúar stjómmálaflokkanna og
aðilar vinnumarkaðarins, tekið
þátt í ráðstefnu sem haldin er í
nafni „International Liaison For-
um of Peace Forces" eða Heims-
friðarráðsins þannig að ekkert
fari milli mála hver gestgjafinn
er. Undir flestum kringumstæð-
um hefði ég talið það sjálfsagt.
Margir í hinum óopinberu friðar-
og mannréttindahópum í Austur-
Evrópu hafa einmitt hvatt vest-
rænar friðarhreyfingar til gagn-
rýnna viðræðna við opinberu
friðarnefndirnar.
Allur aðdragandi þessarar ráð-
stefnu gerir það hins vegar að
verkum að ég tel vafamál hvort
fulltrúum íslenskra friðarhreyf-
inga sé sæmandi að sitja hana:
I fyrsta lagi hef ég rökstuddan
grun um að Steingrímur Herm-
ansson, utanríkisráðherra ís-
Iands, hafi verið blekktur þegar
hann var fenginn til að ávarpa
„Alþjóðleg samtök friðarhreyf-
inga“.
I öðra lagi var því einnig haldið
leyndu fyrir íslenskum friðar-
hreyfingum lengi vel hvaða
samtök stæðu í raun og vera að
þessari ráðstefnu.
í þriðja lagi tel ég það móðgun
við íslenskar friðarhreyfingar að
bjóða þeim gestgjafahlutverk í
ráðstefnu þar sem umræðuefnin,
ráðstefnustaðurinn og gestirnir
eru löngu ákveðin án nokkurs
samráðs. Slíkt lýsir ekki öðru en
fyrirlitningu á okkur sem smá-
þjóð.
í fjórða lagi er Reykjavíkur-
fundur þeirra Reagans og Gor-
batsjofs ekkert sérstakt tilefni til
árlegra hátíðarhalda friðarhreyf-
inga þótt sjálfsagt sé að fagna
hverju skrefi sem þeir ná í átt til
afvopnunar og bættra samskipta,
hversu lítið sem það er. Friðar-
hreyfingar eiga engu að síður að
gæta þess að láta ekki nota sig í
áróðursstríði risaveldanna.
Af þessari ástæðu bið ég hvern
einasta íslenskan friðarsinna að
hugsa sig vandlega um áður en
hann þiggur boð um að sitja ráð-
stefnu „Alþjóðlegra samtaka
friðarhreyfinga“. Það er í sjálfu
sér ekkert að því að hitta hr.
handra og félaga að máli, svo
emi að það sé á jafnréttisgrand-
velli. Við skulum þá eiga þátt í að
ákveða umræðuefnin. Við kynn-
um t.d. að hafa áhuga á að ræða
fækkun bandarískra og sovéskra
kjarnorkuvopna á Norður-
höfum. Við kynnum að hafa
áhuga á að ræða sjálfsákvörðun-
arrétt smáþjóða og íhlutunar-
stefnu risaveldanna. Við skulum
ákveða sjálf hverja við viljum
hitta og ræða við. Við kynnum
t.d. að hafa áhuga á að fá til fund-
ar við okkar hernámsandstæð-
inga í Austur-Evrópu, fólk frá
Trúnaðarhópnum í Moskvu,
Viðræðuhópnum í Ungverja-
landi, Samtöðu í Póllandi,
Charta 77 í Tékkóslóvakíu,
Sverðum og plógjárnum í Aust-
ur-Þýskalandi.
Flest okkar sem starfað hafa í
íslenskum friðarhreyfingum hafa
hvatt til sjálfstæðrar íslenskrar
stefnu í utanríkismálum. Við
þurfum einnig að halda uppi
sjálfstæðri stefnu íslenskra friðar-
hreyfinga í alþjóðlegum sam-
skiptum og gæta þess að ekki sé
troðið á sjálfsforræði okkar. Síð-
ast en ekki síst ættu hr. Chandra
og Heimsfriðarráðið að læra bet-
ur þær reglur sem hafa skal í
heiðri í samskiptum þjóða, stórra
og smárra.
Auglýsing
um styrkveitingar
til kvikmyndagerðar
Kvikmyndasjóður íslands auglýsir
eftir umsóknum um styrki til kvik-
myndagerðar.
Sérstök eyðublöð fást á skrifstofu Kvikmynda-
sjóðs, Laugavegi 24, III. hæð, 101 Reykjavík, og í
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Kvikmynda-
sjóðs fyrir 1. desember 1987.
Reykjavík, 30. september 1987
Stjórn Kvikmyndasjóðs íslands
W Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
byggingadeildar, óskar eftir tilboðum í efni í
brunaviðvörunarkerfi fyrir Borgarleikhúsið.
Helstu magntölur:
Skynjarar 360 stk.
Strengur 3600 metrar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, gegn kr. 5.000.- skilatryggingu. Til-
boðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 20.
október n.k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Stjórnin
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN