Þjóðviljinn - 01.10.1987, Blaðsíða 1
Fimtntudagur 1. október 1987 217. tðkiblað 52. órgangur
Listasafn íslands
íþróttir
Fjörugt í
gærkvöldi
Valur og ÍA voru nálægt því að
komast I 2. umferð Evrópumót-
anna í knattspyrnu í gærkvöldi,
en féllu bæði út við það að fá á sig
mark á lokamínútunum. Islands-
mótið í handknattleik hófst í gær-
kvöidi með heilli umferð i 1. deild
karla og einum leik í 1. deild
kvenna. Frá öllum þessum við-
burðum er sagt á þremur íþrótt-
asíðum í dag, bls. 7-9.
-VS/Ibe
Aætlanir hvellsprungnar
Enn vantar tug milljóna svo endar náistsaman í haust. Kostnaðaráœtlun frá því í maístenst
ekki. Fermetriaf gólfklœðninguá 6.000 krónur. Mistök við lýsingu
Enn vantar um tug milljóna
aukafjárveitingu í ár til að
hægt sé að opna Listasafn Islands
14. nóvember einsog áformað
var.
í maí sl. var gerð áætlun um
kostnað á árinu til þess að hægt
yrði að opna safnið í haust. Þá var
farið fram á tíu milljónir króna og
fékkst sú fjárveiting. Nú hefur
hinsvegar komið í ljós að um 8-12
milljónir vantar til viðbótar til
þess að endar nái saman, sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
Þjóðviljans.
Það er því ljóst að kostnaður
verður kominn upp í 220
milljónir króna þegar safnið opn-
ar og þá er eftir að ganga frá lóð-
inni að hluta og kaupa innan-
stokksmuni í húsið, en áformað
er að gera það á næsta ári.
Einsog fram hefur komið
blöskrar mörgum bruðlið í kring-
um húsið. Sem dæmi má nefna að
á gólfið eru lagðir harðviðark-
ubbar og kostar fermetrinn af
gólfklæðningunni 6.000 krónur.
Þá hafa ýmis mistök átt sér stað
við bygginguna, t.d. átti að nota
birtu frá bogadregnum gluggum á
þaki til lýsingar. Þegar búið var
að ganga frá gluggunum kom í
ljós að lýsingin var ekki nógu
góð. Þá var klætt undir gluggana
og sett upp raflýsing.
Til þess að gera sér einhverja
grein fyrir verðinu má geta þess
að tilboð ríkisins í hús Sambands-
ins við Sölvhólsgötu er um 210
milljónir króna. Þar er um að
ræða mun stærra hús auk þess
sem lóðin við Sölvhólsgötu er á
dýrasta og eftirsóttasta stað í
bænum.
-Sáf
Póstmenn
Ganga út
Fjöldi póstmanna í Reykjavík
og Akureyri hefur sagt upp störf-
um frá og meS 3. desember vegna
óánægju með kaup og kjör. - Ef
laun póstmanna verða ekki lag-
færð er fjóst að neyðarástand í
póstútburði skapast rétt fyrir jól-
avertíðina, sagði Kristín Jenný
Jakobsdóttir formaður Póst-
mannafélagsins.
- í síðustu samningum kostuð-
um við kapps að semja um
leiðréttingu fýrir ófaglært póst-
fólk sem skipar lægstu launastig-
ana. Faglært póstfólk og þeir sem
eru með lengri starfsaldur vilja
leiðréttingu sinna mála, en þeir
fengu minni hækkun síðast en
aðrir póstmenn, sagði Jenný.
Póstmenn telja að þeir þurfi
15-20.000 króna launahækkun
svo uppsagnirnar verði dregnar
til baka. Byrjunarlaun póst-
manna eru núna um 28.000 á
mánuoi, en þeir sem hafa lokið 4
ára námi í Póstmannaskólanum
Ef endilega verður að reisa ráðhúsið í Kvosinni, vil ég að það sé staðsett við þá son og benti á Miðbæjarskólann, en hann vill láta flytja skólann vestur í bæ og bera mánaðarlega úr býtum
götu sem Jóhannes Kjarval kallaði fegurstu götu í heimi, sagði Ómar Ragnars- reisa ráðhúsið á þeirri lóð. Mynd Sig. 35.00 krónur. -rk
Ráðhúsið
Vil ekki homkerlingu
Borgarstjórn afgreiðir ráðhúsið í dag. Kostnaður áœtlaður 750 milljónir. Þar af250 milljónir í
bílastæði. Ómar Ragnarsson: Ráðhúsið rísi á lóð Miðbœjarskólans en skólinn verði fluttur
Eg er alveg á móti því að Ráð-
húsið sé gert að hornkerlingu
með því að staðsetja það þarna á
horni Tjarnargötu og Vonar-
strætis, sagði Ómar Ragnarsson,
fréttamaður, við Þjóðviljann í
gær.
Á borgarstjómarfundi í dag
verður tekin endanleg ákvörðun
um byggingu ráðhússins og virð-
ist fátt geta komið í veg fýrir að
Davíð hafi sitt í gegn.
í grein eftir Guðrúnu Ágústs-
dóttur og Hildigunni Haralds-
dóttur í Þjóðviljanum í dag er
viðmð sú hugmynd að staðsetja
ráðhúsið niðri við höfn, þannig
að ýmsir aðrir kostir eru til en að
setia ráðhúsið í Tjörnina.
I greininni kemur fram að áætl-
Vísindi
Drykkja fækkar sveinum
Séu karlmenn áfram um að
geta börn og kjósa fremur að
eignast syni en dætur er eins gott
fyrir þá að hætta að drekka
brennivín og leggja niður störf ef
þau valda miklu álagi á taugar.
Tímarit Konunglegu bresku
læknasamtakanna bar þessi tíð-
indi á borð fyrir skömmu. Þetta
kvað vera niðurstaða vísinda-
legra athugana. Staðreyndin er
sú að kráareigendur, barþjónar
og aðrir vínhöldar eignast mun
færri syni en aðrir feður. Þar að
auki er fullyrt að flugmenn, blað-
amenn og aðrir er vinna streitu-
störf framleiði minna magn en
aðrir af karlkynhormónnum
Testosterone, og eignist því
fremur dætur en syni. -ks.
aður kostnaður við ráðhúsið em
750 milljónir króna, þar af fara
250 milljónir í bflageymslur undir
Tjöminni. Að rúmmetratali
nálgast það sem ofan jarðar er,
að vera jafn stórt og Hallgríms-
kirkja. Áætlaður byggingatími er
tvö ár.
Ýmsum blöskrar sá kostnaður
sem er í kringum bflageymslurn-
ar, en þar eiga að vera um 330
bílastæði á þremur hæðum undir
Tjöminni. Hvert stæði kostar því
nærri einni milljón króna.
Ómar sagðist vilja láta flytja
Miðbæjarskólann vestur á Bráð-
ræðisholt, eða á óbyggða lóð við
Ánanaust og reisa ráðhúsið þar
sem skólinn er nú.
„Þetta er gríðalega stór lóð og
þarna myndi ráðhúsið sóma sér
vel. Jóhannes Kjarval sagði ein-
hvemtímann að Lækjargatan
væri fegursta gata í heimi og eðli-
legt væri því að staðsetja ráðhús-
ið við Lækjargötuna. Ef þeir vilja
endilega láta Tjörnina gutla við
veggina má bara stækka hana upp
að húsinu. Þá yrði ráðhúsið til
þess að Tjörnin stækkaði í stað
þess að ganga á hana einsog nú er
áformað."
Að sögn Ómars er margt fleira
sem mælir með þvf að hafa ráð-
húsið þar sem Miðbæjarskólinn
er nú, við skólann er t.d. tilbúinn
ráðhúsgarður auk þess sem eng-
inn staður í Kvosinni sést eins
víða að.
„Þessi hugmynd miðast auðvit-
að við að ráðhúsið sé í Kvosinni,
en persónulega er ég þeirrar
skoðunar að ráðhúsið eigi að vera
uppi á Öskjuhlíð."
Framkvæmdir við ráðhúsið
hafa þegar verið undirbúnar og er
búist við að hafist verði handa um
leið og búið er að samþykkja hús-
ið í borgarstjórn.
-Sáf
Sjá bls. 5
Aukafjárveitingar
Fimm miljónir
í alhopinn
Hálfmiljón íauglýs-
ingar um sölu Útvegs-
bankans
Meðal þeirra aukafjárveitinga
sem Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaróðherra hefur veitt úr
rfkissjóði frá því að hann tók við
embætti sfnu í ágústbyrjun sl. eru
5 miljónir til starfshóps á vegum
iðnaðarráðuneytisins sem vinnur
að athugunum á hagkvæmni 200
þús. tonna álvers í Kapellu-
hrauni.
Alls hefur Jón Baldvin úthlut-
að nær 60 miljónum fyrsta hálfan
annan mánuðinn í embætti.
Stærsti hlutinn af því rúm 21 milj-
ón er uppgjör við embætti Skipu-
lagsstjóra og 10 miljónir til bygg-
ingar Listasafns íslands í gamla
Glaumbæ.
Af öðrum athyglisverðum
aukafjárveitingum Jóns Baldvins
síðustu vikur má nefna 509 þús.
krónur til að greiða auglýsingar
vegna sölu hlutabréfa í Utvegs-
bankanum. -Ig.