Þjóðviljinn - 01.10.1987, Blaðsíða 10
FLOAMARKAÐURINN
íbúð Herbergi til leigu
Bráðvantar litla íbúð. Fyrirfram- Herbergi til leigu fyrir geymslu á
greiðsla ef óskað er. Reglusemi í húsgögnum eða hreinlegri vöru.
hávegum höfð. Birna Björnsdóttir Rakalaust, bjart og upphitað. Upp-
sími 76847. lýsingar í síma 681455.
Til sölu Lada
1200 árg. '80. Selst ódýrt. Upplýs-
ingar í síma 41099 eftir kl. 18.
Einstaklingsíbúð - herbergi
Eldri maður óskar eftir einstaklings-
íbúð eða einu herbergi og eldhúsi til
leigu strax. Er að missa húsnæði
vegna sölu þess. Vinsamlegast ef
þið getið hjálpað þá hringið í síma
28461.
Herbergi
nóvember-desember
Ungur líffræðingur leitar eftir her-
bergi í nóvember og desember
(með eða án húsagagna), helst í
Voga- eða Heimahverfi. Upplýsing-
ar í síma 34856.
Karlmannsreiðhjól
Óska efir að kaupa ódýrt en sæmi-
lega gott karlmannsreiðhjól. Ef þú
átt eitt slíkt sem þú vilt selja, þá
vinsamlegast hringdu í síma 15785.
Bíll til sölu
Til sölu er Fíat 127, '85 árgerð. Bíll-
inn er i toppstandi og lítur vel út, 5
gíra, vetrardekk fylgja. Möguleiki á
að taka ódýrari bíl uppí. Upplýsing-
ar í síma 681310 kl. 9-5.
Kettlingur
Lítill kettlingur fæst gefins. Sími
41481 á kvöldin.
Úrvals - kartöflur
Lífrænt ræktuðu kartöflunar komn-
ar aftur (án arfaeyðisefna o.þ.h.) 4
tegundir. Hámarksgæði. Sama
verð og í fyrra. Kr. 1.000.- 20 kg.
poki. Upplýsingar í síma 10282 eftir
kl. 17.
Hótel- og veltinga
húsaeigendur
Vanar saumakonur óska eftir verk-
efnum. Tökum að okkur að sauma
dúka, munnþurrkur, gardínur og
rúmföt. Vanar saumakonur -
vönduð vinna - vægt verð. Upp-
lýsingar gefa Ingiríður í síma
686122, Helga í síma 685990 og
Ester í síma 83781.
Húsnæði óskast
Einstaklings- 2ja eða 3ja herbergja
íbúð óskast til leigu stax eða frá 1.
október. Er lítið heima vegna starfs-
ins, er reglusamur, öruggar mánað-
argreiðslur. Vinsamlegast hringið í
síma 651726 e. kl. 18 eða í síma
73981.
Óska eftir að kaupa
litsjónvarp, einnig „fifties" Ijósa-
stæði. Upplýsingar í síma 681936.
Kökubasar
verður haldinn sunnudaginn 4. okt-
óber í gamla hjúkrunarskólanum.
Verið velkomin.
Silver Cross barnavagn
til sölu. Upplýsingar í síma 30447.
Fæst gefins
Gömul, en fyllilega pottþétt Rafha
eldavél fæst gefins. Upplýsingar í
síma 12062.
Rúta til sölu
15 manna nýleg rúta til sölu. Sími
91-27180.
Kattavinir
Við erum ungt reglusamt par barn-
laus en með 2 litlar kisur (vanaðar).
Okkur vantar íbúð frá og með 1.
nóvember. Höfum bæði öruggar
tekjur og getum borgað um 20 þús.
kr. pr. mánuð. Núverandi leigusali
getur veitt meðmæli ef óskað er.
Upplýsingar í síma 19215 síðdegis
og á kvöldin. Bragi og Sólveig.
s.o.s.
Getur einhver hjálpað okkur með
2-3ja herbergja íbúð strax í 1 -2 ár?
Helst í Kópavogi en samt ekki skil-
yrði. Mjög góðri umgengni og skil-
vísum greiðslum heitið. Meðmæli ef
óskað er. Vinsamlegast hafið sam-
band við Nönnu í síma 84444 til kl. 5
á daginn og í síma 18249 á kvöldin.
Allegro ’78
í varahluti, fjögur 13“ vetrardekk á
felgum, gott bílútvarp. Datsun 120
Y'78 skoðaður '87, útvarp, vetrar-
dekk, ódýr, góður bíll fyrir veturinn.
Á sama stað óskast ódýr raf-
magnsritvél, skrifborð, húsgögn í
barnaherbergi o.fl. Upplýsingar í
síma 18475.
Yndislegir
hamstraungar
fást gefins. Upplýsingar í síma
687816.
Til sölu
Ættir Þingeyinga, 4 bindi, ný. Upp-
lýsingar í síma 14637.
Halló!
Bráðvantar íbúð, litla eða stóra.
Erum 2 í heimili fullorðin og barn.
Góðri umgengni og skilvísum
greiöslum heitið. Upplýsingar í
síma 50751.
Til sölu
handunnar, tússneskar tehettur og
matróskur í miklu úrvali. Póstkröfu-
þjónusta. ATH. get komið með
vörurnar t.d. á vinnustaði og
saumaklúbba ef óskað er. Upplýs-
ingar í síma 19239.
Til sölu
ungbarnaföt mest í hvítu, og ung-
barnastóll frá Mothercare á kr. 500.
Upplýsingar í síma 641141.
Til sölu
Hornsófasett, 7 manna hornsófi,
húsbóndastóll og pulla úr plussi,
sófasett 1+2+3, frekar fyrirferðar-
lítið, (sófaborð) sími 36430 á kvöld-
in helst og um helgar.
Sófasett til sölu
selst ódýrt. Upplýsingar í síma
73687.
Til sölu
vegna flutninga
„Candy" þvottavél í góðu lagi, einn-
ig sem nýtt rúm „Sulta Fast" 105
cm breitt með sökkli. Sími 37287
eftir kl. 17.
Hafnarfjörður
'+r’T Víðivellir
Fóstrur óskast til starfa á dagheimilið Víðivelli.
Upplýsingar gefur Þórelfur Jónsdóttir forstöðu-
kona, í símum 52004 og 53599.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði
Bókavörð
vantar í Blindrabókasafn íslands. Þekking á
bókum áskilin. Upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 686922.
Drögum vel úr ferð
við blindhæðir og brýr.
GÓÐAFERÐ!
UMFERÐAR
RÁD
ERLENDAR FRÉTTIR
Jassír Arafat í hópi palestínskra skæruliða. Hann vill viðræður við ísraelska áhrifamenn en margir landa hans eru
andvígir slíku.
y Palestínumenn
Agreiningur
um málamiðlun
Stjórn PLO hefur frumkvœði að viðræðum við ísraelska áhrifamenn
en ýmsir Palestínumenn telja slíkt algera goðgá
Fyrir skömmu var prófessor
nokkur af palestínsku bergi
brotinn barinn til óbóta af grím-
uklæddum mönnum á vestur-
bakka árinnar Jórdan. Engum
blandast hugur um að árásar-
mennirnir hafí verið palestínskir
og ástæða ofbeldisins sú að próf-
essorinn hafði staðið f ley nimakki
við háttsetta félaga hins hægri-
sinnaða Líkúdbandalags. At-
burðir þessir sýna svo ekki verð-
ur um villst að djúpstæður ág-
reiningur ríkir milli hinna ýmsu
fylkinga Palestínumanna um
markmið og leiðir í baráttu
þeirra fyrir sjálfsforræði á vest-
urbakkanum.
Palestínskum fréttaskýranda,
Daoud Kuttab að nafni, farast
orð á þessa leið: „Árásin á Sari
Nusseibeh hefur enn beint sjón-
um manna að þeim deilum sem
geysa milli staðfestumanna sem
hvergi vilja hvika frá kröfunni um
að Palestínuríkið verði endur-
reist og látið sem ísrael hafi aldrei
verið til og raunsæismanna er
vilja binda endi á mannvíg og
hernám vesturbakkans.“
Nusseibeh er 38 ára gamall og
prófessor við Bir Zeit háskólann
á vesturbakkanum. Hann var
barinn á háskólalóðinni að kveldi
dags fyrir skemmstu, skömmu
eftir að hann hafði átt viðræður
við Líkúdliðann Moshe Amirav
og þeir komið sér saman um til-
lögur um takmarkaða sjálfstjórn
Palestínumanna á hernumdum
svæðum.
Áreiðanlegir heimildarmenn
úr röðum Palestínumanna herma
að Nusseibeh hafi ekki sjálfur átt
frumkvæði að viðræðum þessum
heldur hafi hann hlýtt fyrirskip-
unum æðstu stjórnar Frelsissam-
taka Palestínumanna, PLO.
Prófessorinn kvað vera félagi í
Al-Fatah samtökum Jassírs Araf-
ats og handgenginn leiðtoganum.
Amirav er fulltrúi í miðstjórn
Herutflokks Yitzhak Shamirs
forsætisráðherra. Flokkur sá er
hryggjarstykkið í Líkúdfylking-
unni og ákaflega þjóðernissinn-
aður. Þegar tíðindi bárust af
leynimakki hans og Nusseibehs
varð uppi fótur og fit og gekk
Shamir fram fyrir skjöldu til að
afneita flokksbróður sínum. Sak-
aði hann Amirav um að ganga
erinda PLO sem eru hin verstu
hryðjuverkasamtök að mati Her-
utmanna.
En ýmsir ísraelskir stjórnmála-
skýrendur gruna forsætisráðherr-
ann um græsku. Einn þingmanna
Herutflokksins, Ehud Olmert,
kvað hafa verið með Amirav í
ráðum og er talið óhugsandi að
leiðtoginn hafi ekki haft grænan
grun um hvað fram fór og gefið
jafnvel grænt Ijós á könnunarvið-
ræður.
Frá því ísraelsmenn hertóku
vesturbakkann í sex daga stríðinu
fyrir sléttum tuttugu árum hafa
ýmsir íhaldssamir fyrirmenn Pal-
estínumanna á svæðinu staðið í
sambandi við yfirmenn hernáms-
liðs ísraelsmanna. Hafa viðræður
þeirra einkum snúist um lausn
hinna ýmsu hversdagslegu vand-
amála.
En leiðtogar PLO hafa fram að
þessu ekki séð ástæðu til að eiga
orðastað við óvininn og aðeins átt
viðræður við vinstrisinnaða full-
trúa á Knesset, ísraelsþingi, og
talsmenn andzíónískra hópa gyð-
inga.
A þessu hefur orðið breyting. I
vor áttu nokkrir yfirlýstir stuðn-
ingsmenn PLO á vesturbakkan-
um, þar á meðal Nusseibeh, fund
með Shimoni Peres, formanni
Verkamannaflokksins og utan-
ríkisráðherra ísraels. Peres og
flokkur hans hafa tekið þann pól-
inn í hæðina að fallast á „tak-
markaða sjálfstjórn“ á vestur-
bakkanum og nefna stefnu sína
„málamiðlun á hernumdum
svæðum". Palestínumennirnir er
ræddu við Peres höfðu til þess
fullt umboð frá PLO því á fundi
æðstu stofnunar samtakanna,
Þjóðarráðs Palestínumanna, í
Túnis skömmu áður hafði verið
samþykkt tillaga um að hefja við-
ræður við ísraelska stjórnmála-
leiðtoga „sem viðurkenna tilver-
urétt palestínsku þjóðarinnar”.
Fyrmefndur Kuttab hefur orð-
ið: „Margt fólk á vesturbakkan-
um áttar sig ekki ennþá á þeim
áherslubreytingum sem orðið
hafa í stefnu PLO gagnvart ísra-
elsríki og vill helst ekki eiga nein
skipti við ísraelsmenn utan vopn-
aviðskipti.
Ástæða árásarinnar á Nuss-
eibeh er sú að gamlir baráttu-
menn eru bæði hneykslaðir og
gramir yfir því að nokkur félagi
PLO skuli voga sér að eiga orð-
astað við meðlimi Líkúdbanda-
lagsins sem þeir telja holdgerving
andskotans, jafnvel þótt stjórn
samtakanna sé áfram um slíkar
viðræður.“
Yfirmaður stjórnmáladeildar
fræðslustofnunar Palestínu-
manna, Mahdi Abdul Hadi, hef-
ur eftirfarandi til málanna að
leggja: „Það þjónar hagsmunum
beggja að viðræður fari fram. Við
megum ekki láta gamlar hugsjón-
ir og drauma villa okkur sýn því
framtíð okkar og niðja okkar er í
húfi. Við verðum að finna leið út
út blindgötunni.
Þeir Palestínumenn sem alger-
lega eru andvígir öllum við-
ræðum við erkifjandann eru flest-
ir félagar í Frelsisfylkingu Palest-
ínumanna (PFLP). Þótt fylking
þessi séu formlega í PLO hefur
oft verið grunnt á því góða með
leiðtoga hennar, George Ha-
bash, og Jassír Arafat.
Það voru félagar PFLP sem
réðu af dögum borgarastjóra
vesturbakkaborgarinnar Nablus,
Palestínumanninn Zafer Al-
Masri, fyrr á þessu ári. Orsök
vígsins var sú að hann hafði verið
skipaður í embætti af hernáms-
stjórn ísraelsmanna og mátti einu
gilda þótt stjórn PLO hafi lagt
blessun sína yfir skipun hans.
Skömmu áður en ráðist var á
Nusseibeh hafði verið veist
harkalega að honum í málgagni
PFLP fyrir að eiga skipti við óvin-
inn. Þar stóð í leiðara: „Það er
ekki enn tímabært að Palestínu-
menn standi í viðræðum við ráða-
menn í ísrael. Það er alkunn
staðreynd að samskipti við fram-
ámenn í ísrael...leiða aðeins til
sundrungar og klofnings í röðum
Palestínumanna. “
Ritstjóri vikuritsins A1 Fajr,
Maher Abu Khater, telur að hin
fólskulega árás á Nusseibeh muni
aðeins tefja en ekki koma í veg
fyrir viðræður Palestínumanna
og ísraelskra ráðamanna. „Vilji
beggja er enn fyrir hendi og ég er
þeirrar skoðunar að viðræður
hefjist á ný eftir einn eða tvo
rnánuði."
- ks.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. október 1987
AV