Þjóðviljinn - 01.10.1987, Page 16
Aöalsími
681333
Kvöidsími
681348
Meigarsími
681663
þJÓÐVIUINN
Fimmtudagur 1. október 1987 217. tölublað 52. árgangur
Sjálfstœðisflokkur
Konur gégiTÞorvaldi
Átök umforseta sameinaðs alþingis. Salóme eða Ragnhildurgegn
orvaldur Garðar Kristjáns-
son á nú í vök að verjast fyrir
konunum í þingflokki Sjálfstæð-
ismanna, og verður gert útum
það á þingflokksfundi eftir helg-
ina hver hreppir virðingar- og
valdastöðu forseta sameinaðs al-
þingis.
Forsetinn verður Sjálfstæðis-
maður samkvæmt samkomulagi
stjórnarflokkanna og á fundi
landssamtaka kvenna í flokknum
á Akureyri fyrir skömmu var
samþykkt ályktun um að kona
yrði nú í þessari stöðu. Konurnar
tvær í þingliði flokksins, þær
Ragnhildur Helgadóttir og Sal-
óme Þorkelsdóttir, munu hafa
fullan hug á að fylgja ályktuninni
eftir, ekki síst vegna þess að
gengið var hjá konum við skipan í
ráðherrastóla.
Ragnhildur er fyrrverandi ráð-
herra og þar áður tvisvar forseti
neðri deildar, Salóme var forseti
efri deildar á síðasta kjörtímabili.
Ragnhildur Helgadóttir sagði í
samtali við Þjóðviljann í gær að
hún teldi að þingflokkurinn yrði
að fjalla um ályktun kvennasam-
takanna en vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um málið, hvorki um
áhuga á því að hún gegndi forset-
astöðunni eða um stuðning við
Salóme.
Porvaldi Garðari
Þorvaldur Garðar, forseti sam-
einaðs alþingis 1983-7, mun ætla
að halda uppi hörðum vömum.
Hann ætlar að hætta á þingi við
næstu kosningar og telur sig
sjálfkjörinn til starfans þangað
til. Þorvaldur sagði við Þjóðvilj-
ann í gær að hann hefði ekkert
um þetta að segja og vildi ekki tjá
sig um málið áður en þingflokk-
urinn tæki ákvörðun.
-m/lg
Skákþingið
Margeir efstur
Margeir Pétursson og Helgi Ólafs-
son lögðu andstæðinga sína að velli í
tólftu umferð Skákþings íslands á Ak-
ureyri I gær. Ólafur Kristjánsson
varð að láta í minni pokann fyrir
Margeir og Hannes Hlífar Stefánsson
fyrir Helga. Margeir er því enn í
fyrsta sæti með ellefu vinninga, en fast
á hæla honum kemur Helgi með tíu
vinninga.
Önnur úrslit í tólftu umferð voru
þessi: Dan Hanson lagði Áskel Örn
Kárason, Þröstur Þórhallsson vann
Gunnar Frey Rúnarsson, Sævar
Bjarnason vann Gylfa Þórhallsson,
Jón G. Viðarsson vann Þröst Árna-
son og Karl Þorsteins vann Davíð Ól-
afsson.
Eftir tólftu og næstsíðustu umferð
er Hannes Hlífar í þriðja sæti með sjö
og hálfan vinning. -rk
Þvagprufur
Jón Páll
í Hæstarétt
Mál Jóns Páls Sigmarssonar,
kraftajötuns, og íþróttasam-
bands íslands kom fyrir Hæsta-
rétt í gær, en ÍSÍ áfrýjaði á sínum
tíma úrskurði undirréttar í lyfja-
málinu svokallaða.
Upphaf þessa máls var það að
Jón Páll neitaði að mæta í lyfja-
próf hjá ÍSÍ. Það varð til þess að
ISÍ setti Jón í keppnisbann. Jón
Páll var hinsvegar félagi í
Kraftlyftingasambandinu, sem er
ekki aðili að ÍSÍ, og taldi því
íþróttasambandið ekki geta úr-
skurðað sig í keppnisbann.
Undirréttur dæmdi úrskurð ÍSÍ
ógildan vegna formgalla og áfrýj-
aði þá íþróttasambandið málinu.
Dóms Hæstaréttar er ekki að
vænta fyrr en eftir nokkrar vikur.
-Sáf
Frá Hæstarétti í gær rétt áður en
málflutningur hófst í máli ÍSl gegn
jóni Páli. Jón Páll bíður átekta
með hnúana á lofti. Mynd E.ÓI.
Verðlagsráð
Afram frjálst fiskverð
HólmgeirJónsson, Sjómannasambandinu: Málamiðlun. Árni Benediktsson, VMSS: Kom
ekki á óvart. Nœstu sex vikurnar notaðar til að finna samstarfsreglur
Verðlagsráð sjávarútvegsins
samþykkti á fundi sínum í gær
að gefa verðlagningu áfram
frjálsa á almennu fiskverði frá 1.
október til og með 15. nóvember
næstkomandi.
Fram að þeim tíma verður
leitast við að finna hentugar sam-
starfsreglur við verðlagningu sjá-
varafurða, eins og segir í frétt frá
Verðlagsráði í gær.
Að undanförnu hefur mikið
verið fundað í Verðlagsráði um
fiskverðið, hvort það eigi áfram
að vera frj álst eða hvort ráðið eigi
að koma sér saman um eitthvert
lágmarksverð á fiski. Niðurstað-
an er nokkurskonar málamiðlun
milli þeirra sem áfram hafa viljað
óbreytt ástand og að frjálsu fisk-
verði verði gefinn lengri umþótt-
unartími og hinna sem hafa viljað
hverfa aftur að lágmarksverði.
Að sögn Hólmgeirs Jónssonar,
framkvæmdastjóra Sjómanna-
sambands íslands er þessi sam-
þykkt Verðlagsráðs skárri kost-
urinn af tveimur og augljóslega
um málamiðlun að ræða.
Árni Benediktsson, hjá Vinn-
umálasambandi Samvinnufélag-
anna, segir að þessi afgreiðsla
Verðlagsráðs hafi ekki komið sér
á óvart, þó svo að fiskverkendur
séu svotil sammála um það að
framkvæmd frjáls fiskverðs hafi
misheppnast í þann tíma sem það
hefur verið. Sagði Ámi að fram
að 15. nóvember yrði tíminn not-
aður til funda í Verðlagsráði til að
komast að skynsamlegum sam-
starfreglum um verðlagningu
sjávarafurða. — grh
Kúfiskur
Bamingur
„Frá því að kúfiskverksmiðjan
tók formlega til starfa í síðustu
viku hafa verið slæmar gæftir og
því höfum við lítið aflað af kú-
físki. Þá afkastar verksmiðjan
aðeins þremur tonnum á tímann
en á að afkasta fjórum,“ segir
Amór Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Bylgjunnar á Suðureyri við
Súgandafjörð í gær.
Að sögn Arnórs er aðeins veitt
og framleitt í beitu og hefur gefist
mjög vel. Sagði hann að menn
væru væntalegir að sunnan mjög
fljótlega frá Trausti h/f til að taka
út verksmiðjuna og lagfæra það
sem þarf til að hún nái fullum
áfköstum.
„Það má búast við einhverjum
bamingi til að byrja með í þessari
nýsköpun, bæði hvað varðar
veiðarnar yfir háveturinn og
einnig markaðsmálin og jafnvel
að manna skipið og verksmiðj-
una hér á Suðureyri, vegna þess
að hér er fámennt og erfitt að fá
staðarmenn í vinnu sem eru á
lausu,“ sagði Amór. - grh
Æðardúnn
Japanir biðja um dún
Fengu 5 kíló í fyrra, vilja 100 kíló nú
Eg sendi 5 kg prufusendingu af
æðardúni til Japans í fyrra og
nú biðja þeir um 100 kg. Það
bendir ótvírætt til þess að þeim
hafi líkað varan vel. - Það er Elías
Gíslason heildsali að Neðstaleiti
14 f Rcykjavík, sem svo mælir.
Elías Gíslason hefur að undan-
förnu selt æðardún til Þýskalands
og mun halda því áfram þótt hann
taki nú upp viðskipti við Japani.
Japanir hafa síðan keypt eitthvað
af íslenskum æðardúni frá Þýska-
landi en vilja nú gjarnan versla
beint við íslendinga.
Þann dún, sem Elías Gíslason
verslar með, hefur hann fengið
hreinsaðan í Flatey á Breiðafirði.
Markaðsverð á æðardúni í
Þýskalandi mun nú vera um 1000
mörk pr. kg. Telur Elías að það
muni a.m.k. ekki verða lægra í
Japan, fremur hið gagnstæða og
er bjartsýnn á þessi viðskipti. mhg