Þjóðviljinn - 08.10.1987, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 8. október 1987 223. tölublað 52. árgangur
Smárahvammur
Endahnútar hnýttir
GuðjónB. Ólafsson: Vil ekkert segja um málið fyrr en rétt fyrirhelgi.
Ragnar Aðalsteinsson: Menn verða sjálfir að ákveða hvaðþeir kallaþau skjöl
sem hafa gengið á milli manna. Búist við að gengið verðifrá kaupum ríkisins á
Sölvhólsgötu á næstunni
Einsog fram kom i
Þjóðviljanum í gær hefur
verið gengið frá frumdrögum að
samkomulagi milli eigenda
Smárahvammslands í Kópavogi
og SÍS. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans er búist við að gengið
verði frá endanlegri undirskrift
fyrir helgi.
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri
Sambandsins og Ragnar
Aðalsteinsson lögmaður seljenda
vildu hvorki játa þessu né neita í
gær-
„Ég vil ekkert segja um þetta
mál,“ sagði Guðjón þegar
Þjóðviljinn bar undir hann hvort
búið væri að undirrita frumdrög
að samkomulagi. í framhaldi af
því bjóst hann við að geta tjáð sig
um málið í dag eða á morgun.
Ragnar Aðalsteinsson,
hæstaréttarlögmaður fór einsog
köttur í kringum heitan graut í
hádegisfréttum Bylgjunnar í gær.
„Ég held ég geti sagt, að það sé
ekki hægt að nefna að slíkt skjal
hafi verið gert, sem hægt er að
gefa akkúrat það nafn (drög að
samkomulagi). Það hafa
hinsvegar gengið á milli í langa
hríð ýmiskonar upplýsingar,
Útvegsbankinn
Óbreytt
ástand
Kristján Ragnarsson á
fundi með viðskiptaráð-
herraígær. GuðjónB.
Ólafsson í dag
Kristján Ragnarsson mætti á
fund Jóns Sigurðssonar, við-
skiptaráðherra í gær til að ræða
Útvegsbankatilboðin. Á þeim
fundi gerðist ekkert markvert
annað en það að Jón tilkynnti
Kristjáni að hann væri ekki fall-
inn frá sölu bankans. Guðjón B.
Ólafsson er boðaður á fund ráð-
herrans í dag.
„Jón bað mig að skýra ekki frá
fundinum. Hann óskar að skýra
sjálfur frá sínum málum þegar
fímdinum með Guðjóni er lok-
ið,“ sagði Kristján í gær.
Kristján sagði að á fundinum
hefði ekkert nýtt komið fram.
„Jón er að velta fyrir sér ýmsum
möguleikum og hann tjáði mér
að hann væri ekki fallinn frá því
að selja bankann," sagði Krist-
ján.
Hvað hugmynd Jóns um að
sparisjóðirnir kæmu inn í mynd-
ina, sagðist Kristján fagna því,
hinsvegar hefði hann ekki séð
neitt svar frá sparisjóðunum.
Guðjón B. Ólafsson vildi ekki
tjá sig um málið fyrr en eftir fund
með viðskiptaráðherra í dag.
skriflegar og bréf og tilboð,
gagntilboð og gagn-gagntilboð og
svo framvegis. Hvaða nöfnum þú
átta að gefa þessum skjölum
verður þú að ákveða."
Kaup ríkisins á húsi
Sambandsins við Sölvhólsgötu
tengjast þessu máli en búist er við
að gengið verði frá þeim málum á
næstunni. Fjármálaráðherra og
viðskiptaráðherra leggja mikla
áherslu á að Sambandið rými
húsið hið fyrsta þannig að ljóst er
að SÍS liggur töluvert á að ganga
frá kaupunum á
Smárahvammslandi svo hægt
verði að hefja framkvæmdir við
nýjar aðalstöðvar strax.
Guðjón B. Ólafsson sagðist í
gær fagna þeirri ákvörðun Davíðs
Oddssonar, borgarstjóra, að
framlengja leyfi Miklagarðs til
verslunarreksturs í Holtagörðum
næstu tíu árin. Bjóst hann
fastlega við að verslunin yrði
rekin áfram á þeim stað hvað sem
Smárahvammi viðkæmi.
Kristján Pálsson bæjarstjóri Ólafsvíkur og ásteytingar-
steinninn sem hefur kostað yfir 70 milljónir, þar af 35 á
þessu ári. Mynd Sig.
Ólafsvík
Bæjarstjórínn hættir
Bœjarstjórnarfulltrúar vilja að Kristján Pálsson hætti sem bœjarstjóri
áðuren úttekt áfjármálum bœjarinsferfram, þarsem hann tengist
þeim persónulega
Kristján Pálsson, bæjarstjóri
Ólafsvíkur hefur sagt starfi
sínu lausu, með sex mánaða upp-
sagnafresti. Ekki er þó búist við
að hann muni sitja nema mjög
lítinn hluta af uppsagnafrestinum
í starfínu, því aðrir bæjarfulltrú-
ar eru áfram um að hann hætti
sem fyrst.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans eru bæjarfulltrúar Óíafs-
víkur, fyrir utan Kristján, sam-
mála um að Kristján hætti áður
en úttekt verður gerð á fjárhags-
stöðu bæjarins en hún er talin
mjög slæm og Kristján talinn
tengjast fjárhagsstöðunni per-
sónulega.
„Ég býst við aukafundi í bæjar-
stjórn fyrir helgi þar sem þessi
mál verða rædd,“ sagði Sveinn
Þór Elínbergsson, forseti bæjar-
stjórnar. Sagðist hann búast við
að á þeim fundi kæmu fram árs-
reikningar bæjarfélagsins fýrir
árið 1986. í framhaldi af því telur
Sveinn afar mikilvægt að skoðað
Skák
Þröstur vann
Björgvin
Tefld var fjórða umferð á al-
þjóðlega skákmótinu í Ólafsvík í
dag. Eftir hana eru Þröstur Þór-
hallsson og Björgvin Jónsson ef-
stir með þrjá vinninga hvor.
Danielsen er í 2. sæti með 2Vi
vinning. Þröstur vann Björgvin
en öllum hinum skákunum lauk
með jafntefli, þar á meðal skák
þeirra Dainelsens og Karls Þor-
steins. Að sögn Torfa Stefáns-
sonar mótsstjóra eiga bæði
Þröstur og Björgvin góða mögu-
leika á að ná sér í áfanga að al-
þjóðlegum meistaratitli, en
Þröstur getur orðið alþjóðlegur
meistari á mótinu.
Sjá viðtal við
Björgvin bls. 7
sé uppgjör á fyrstu 9 mánuðum
þessa árs og að gerð verði úttekt á
fjárhagsstöðu bæjarins.
„Ég tel ekki eðlilegt að Krist-
ján sitji sem bæjarstjóri á meðan
slík úttekt fer fram.“
Einn helsti ásteytingarsteinn
þess meirihluta sem nú er sprung-
inn var fjármögnun og byggingar-
hraði félagsheimilisins, en kostn-
aður við það er nú kominn yfir 70
milljónir, þar af fóru um 35
milljónir í húsið á þessu ári.
-Sáf
VMSÍ
Kratar vilja
Jón sem
varafrnmann
Jón Karlsson, formaður
Fram á Sauðárkróki:
Framboð hefur verið
nefnt við mig. Hefekki
tekið ákvörðun.
Hrafnkell A . Jónsson,
formaður Á rvakurs á
Eskifirði: Get ekki greitt
Jóni atkvœði eftir
frammistöðu hans á
formannafundinum
Það hefur verið nefnt við mig,
en það liggur engin ákvörðun
fyrir. Eg sækist ekki eftir emb-
ættinu, en það er annað mál hvort
maður að endingu situr uppi með
embættið, sagði Jón Karlsson,
formaður verkamannafélagsins
Fram á Sauðárkróki, er hann var
inntur eftir því hvort hann byði
sig fram til varaformanns Verka-
mannasambandsins, en Alþýðu-
flokksmenn telja Jón koma helst
til greina úr þeirra röðum.
Olíklegt er að samstaða náist
um Jón sem varaformann, gefi
hann kost á sér.
- Eftir þá ádrepu sem Jón flutti
á formannafundinum og veittist
að því fólki sem hefur talað máli
fiskvinnslufólks, er ég ákveðinn
að styðja einhvern annan en Jón
Karlsson sem varaformann
Verkamannasambandsins, sagði
Hrafnkell Jónsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Árvakurs á
Eskifirði.
Jón Karlsson sagði að sér væri
vel kunnugt um að ýmsir hefðu
fyrst við á formannafundinum
vegna ummæla hans. - Ég talaði
tæpitungulaust og var hvassyrtur,
en það var hvert orð satt sem þar
kom fram, sagði Jón Karlsson.
- Kosningar hafa yfirleitt
gegnið friðsamlega fyrir sig og ég
á ekki von á öðru en að svo verði
einnig nú. Annars er ekkert
óeðlilegt við það þó menn kunni
að greina á. Við kjör varafor-
manns þarf að hyggja að mörgu
og taka tillit til ólíkra sjónarmiða,
sagði Jón. -rk
-Sáf