Þjóðviljinn - 08.10.1987, Side 15
FREfTIR
Orkustofnun
Um 100 manns á félagssvæði Iðju í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum að undanförnu og langstærsti hlutinn af því fólki eru konur sem störfuðu
í fataiðnaði. t-> . • ^ *
Fataiðnaður
Kemur sér bagalega
GuðmundurP. Jónsson, Iðju: Getum líttaðhafst. Uppsagnirnar komasér illa.
Fólk missir starfsréttindi semþað hefur verið mörg ár að ávinna sér.
Yfir 100 manns sem sagthefur verið upp á árinu
etta er uggvænlegt ástand.
Hver saumastofan á fætur
annarri leggur upp laupana og
starfsfólki í fataiðnaði er sagt upp
í stórum stíl eins og gerst hefur
trekk í trekk á þessu ári. Við get-
um því miður ekki rönd við reist,
enda er í öllum tilvikum farið að
með löglegum hætti, sagði Guð-
mundur Þ. Jónsson, formaður
Iðju, félags verksmiðjufólks.
Nýlega var starfsmönnum á
saumastofu Karnabæjar sagt upp
frá og með áramótum. Áður
hafði verið tekin ákvörðun um að
leggja niður saumastofu Hag-
kaupa frá og með desember n.k.,
Dúkur hætti fyrr á árinu sinni
framleiðslu og Prjónastofa Borg-
arness og Sunna á Hvolsvelli hafa
einnig lagt upp laupana á árinu.
- Það eru rúmlega 100 manns á
okkar svæði sem sagt hefur verið
upp í fataiðnaðinum á þessu ári
og þar af eru konur í miklum
meirihluta. Það má kannski segja
að það sé huggun harmi gegn að
störf eru til fyrir þetta fólk.
En málið er ekki svona einfalt.
Mikið af þessu fólki er komið
með háan starfsaldur og hefur
unnið sér inn ýmis réttindi með
því að vinna lengi á sama vinnu-
stað, eins og lengra orlof og
veikindafrí, sem það tapar með
Þessi réttindi flytjast ekki með
fólki nema í litlum mæli á rnilli
vinnustaða, jafnvel innan sömu
atvinnugreinar, sagði Guðmund-
ur.
Rakalaust,
óþarft,
hættulegf
Félag náttúrufræðinga
bregst hart við uppsögn-
um á Orkustofnun
Félag íslenskra náttúrufræð-
inga hefur í álvktun mótmælt
uppsögnum starfsmanna á Orku-
stofnun sem óþörfum og ótíma-
bærum. „Aðhald og sparnaður
eru dyggðir" segir í lok ályktun-
arinnar „en ógrundaður og tilvilj-
anakenndur niðurskurður er
skömm og sneypa þeim sem
valda.“
Vakin er athygli á því að upp-
sagnirnar eru gerðar í samrænri
við fjárlagafrumvarp sem ekki
einungis er ósamþykkt heldur
einnig óbirt, og sagt að rakalaus
niðurskurður á stofnun með
reynslu og einstæða sérþekkingu
sé varhugaverð stjórnsýsla og
geti hæglega reynst þjóðhagslega
hættuleg.
Þá segir að röksemd unt sam-
drátt í virkjunum sé ekki hald-
bær, samdráttur hafi þegar orðið
í vatnsaflsvirkjunum og þótt nýj-
um hitaveitum hafi fækkað komi
á móti aukin þjónusta við þær
sem fyrir eru. Áð auki sé á Orku-
stofnun verið að afla grunnþekk-
ingar á orkulindum og aðstæðum
til orkunýtingar og sé slíkt starf
lítt háð virkjunarsveiflum.
Átján mönnum var sagt upp á
Orkustofnun í septemberlok og
tilkynnt að ekki verði ráðið í tíu
stöður sem losna á næsta ári.
- m
Kirkjuþing
þvi að byrja a nýjum vinnustað.
þJÓÐVILJINN
0 68 13 33
ríiMinn
V 68 18 66
0 68 63 00
Blaðburður er
í siðfræði
Siðfrœðistofnun Háskólans
og Þjóðkirkjunnar
Fyrir Kirkjuþingi liggur nú
frumvarp um Siðfræðistofn-
un Háskóla Islands og Þjóðkirkj-
unnar, flutt af Kirkjuráði. Er
stofnuninni ætlað tvennskonar
hlutverk: Að vera vettvangur
rannsókna í siðfræði og vera til
ráðuneytis um siðferðisvandamál
og verkefni, sem að steðja.
Þessu hlutverki skal stofnunin
leitast við að gegna með því að
veita starfsmönnum sínum og
öðrum fyrirgreiðslu um rann-
sóknir. Utbúa fræðsluefni um
siðfræði handa skólum. Gangast
fyrir fyrirlestrum fyrir almenning
og starfshópa svo sem hjúkrun-
arfræðinga, lækna, kennara,
blaðamenn, presta o.fl.
Ætlunin er að stjórn Siðfræð-
istofnunar skipi þrír menn: frá
heimspekistofnun, guðfræði-
stofnun og kirkjuráði. Kjörtíma-
bil þeirra sé þrjú ár. Stjórninni til
ráðuneytis verði lOmannanefnd,
tilnefnd af háskólaráði og kirkju-
ráði til helminga. Rekstur stofn-
unarinnar greiðist af ríkinu að því
marki sem fjárlög heimila en að
öðru leyti af eigin tekjum. Þjóð-
kirkjan leggur stofnuninni til
húsnæði og aðra aðstöðu.
í greinargerð er bent á að
nauðsyn aukinnar fræðslu í sið-
fræði geri víða og í vaxandi mæli
vartviðsig. Kemurþarm.a. tilný
tækni í læknisfræði, (tæknifrjóvg-
un, líffæraflutningur). Nýjar
leiðir við öflun og dreifingu upp-^
lýsinga (m.a. tölvunotkun), með-
höndlun náttúruauðlinda, (veiði-
skapur, iðnaður), umbyltingar á
sviði stjórnsýslu, viðskipta- og
atvinnulífs. Þá er og minnt á
vandamál eins og vímuefnanotk-
un, fjölskylduvandamál ýmiss
konar, umönnun barna, sjúk-
linga og gamalmenna o.fl. Þó að
Siðfræðistofnun leysi ekki þessi
vandamál þá ætti hún að gera
kleift að takast á við þau af meiri
festu og öryggi en nú. Bent er á að
stofnun sem þessi sé nauðsynleg
forsenda fyrir skipulegri siðfræði-
kennslu í skólum.
mhg
BLAÐBERAR ÓSKAST í
þJÓÐVILJINN
Nýja miðbæ
Fellsmúla
Bakkahvcrfi (Breiðholti)
Seljahverfi
Ártúnsholt
Kópavog (vestur)
Kópavog (austur)
Smáíbúðahverfi
Fossvog
Vesturbæ
Seitjarnarnes
Hafðu samband við okkur
þJómnuiNN
Siðumúla 6
0 68 13 33
og borgar sig
Hlíðar
Vettvangur
rannsókna
Fimmtudagur 8. október 1987 PJÓÐVILJINN - SIÐA 23