Þjóðviljinn - 15.10.1987, Side 1

Þjóðviljinn - 15.10.1987, Side 1
að eru og munu verða uppi kröfur um aukinn kaupmátt taxtakaups. Þessi spá mun því aldrei verða að raunveruleika. Forsendur fjárlagafrumvarpsins eru rangar, sagði Asmundur Stef- ánsson í samtali við Þjóðviljann í gær. í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að verðlag hækki um tæp 10% á árinu 1987 en almennar launahækkanir verði ekki nema 7%. Athygli vekur að þessar hug- myndir eru settar fram jafnhliða áætlunum um aukinn skatt á mat- væli. „Ég benti á það fyrir kosningar að það hlyti að koma til aukinnar skattlagningar nú. Valið stæði milli skattlagningar á fyrirtæki eða þess að leggja skatt á matvæli eins og nú hefur verið gert. Fjármálaráðherra og forsætis- ráðherra hafa verið beðnir að endurskoða þessar fyrirætlanir sínar sem hljóta að hafa mikil áhrif á kröfugerð samtaka launa- fólks núna. Einn megintilgangur sölu- skatts á matvæli er að undirbúa álagningu virðisaukaskatts. Að- alfyrirmyndin í þeim efnum eru Efnahagsbandalagsríkin. En um- ræða þar um samræmingu milli aðildarlandanna á virðisauka- skatti miðast við tvö mishá skatt- stig þar sem hinu lægra yrði beitt á matvæli og aðrar lífsnauðsynj- ar. íslensku kratarnir eru miklu kaþólskari en páfinn að þessu Ieyti.“ ÓP SVR Fargjöld hækka - Rekstrarvanda SVR er fyrst og síðast að rekja til niður- skurðar borgaryfirvalda á þjón- ustu SVR, sem hefur fæit fólk í stórum stO frá því að nota vagn- ana sem skyldi, sagði Guðrún Ágústsdóttir, fulltrúi Alþýðu- bandalagsins í stjórn Stræti- svagna Reykjavíkur og borgarr- áðsmaður, en meirihluti stjórnar SVR hefur farið fram á 21% hækkun fargjalda, sem meirihluti borgarráðs er meðmæltur. Nái 21% hækkun á fargjöldum SVR fram að ganga, hækkar far- gjald fullorðinna úr 28 í 35 og barna úr átta krónum í tíu. -rk Fimmtudagur 15. október 1987 229. tölublað 52. árgangur Kjarabaráttan Kaupmáttur aukist Ásmundur Stefánsson: Hugmyndir um 7% launahœkkanir í 10% verðbólgu óraunhœfar. Áform stjórnvalda hafa áhrif á kröfugerð launþega Kvótakerfið Breytingar á kerfinu Ermeirihluti ráðgjafar- nefndarinnar á því að stokka upp kvótakerfið? Á fundi ráðgjafarnefndar um fiskveiðistefnu, sem haldinn var í gær, lagði fulltrúi Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna fram stjórnarsamþykkt þar sem kostir núverandi fyrirkomulags við stjórnun fiskveiða eru dregnir í efa, þ.e. að öllum kvóta skuli vera úthlutað á fiskiskip. Fulltrúi verkamannasambandsins vill að athugað sé hvort fiskvinnslan fái allt að helmingi kvótans. Nefndin kemur aftur saman í dag. Ráðgjafarnefndin á að vera sjávarútvegsráðherra til aðstoðar við samningu frumvarps sem hann mun innan tíðar leggja fyrir þingið. Um næstu áramót renna út lög um gildandi fiskveiði- stefnu. f tillögu stjórnar S.H., sem Bjarni Thors íagði fram á nefn- darfundinum í gær, er bent á að ójafnvægi hafi skapast milli veiða og vinnslu og að taka verði fullt tillit til hagsmuna fiskvinnslu og fiskverkafólks ekki síður en út- gerðar og sjómanna. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans tók Árni Benediktsson frá Sjávarafurðadeild SÍS undir þessi sjónarmið og Matthías Bjarna- son og Skúli Alexandersson munu hafa talið að endurskoðun á fiskveiðistefnunni ætti ekki endilega að miðast við óbreytta stefnu í kvótamálum. Þröstur Ól- afsson, fulltrúi Verkamannasam- bandsins, hafði áður viðrað þær hugmyndir að kvótanum yrði skipt milli fiskvinnslu og útgerð- ar. Fulltrúar útgerðarmanna og sjómanna hafa lýst yfir andstöðu við þessi sjónarmið. Svo virðist sem meirihluti sé að verða í nefndinni fyrir miklum breytingum á kvótakerfinu. Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, sagði í gær að svo virtist sem menn væru nokkuð sammála um að viðhalda kvóta- kerfinu; hinsvegar greini menn á um hvort útgerðin ætti að sitja ein að kvótanum eða hvort fisk- vinnslan ætti að fá hlutdeild í honum. Hann tók hinsvegar ekki afstöðu til þessa máls. Ap Glaðbeittir borgarfulltrúar minnihlutans í borgarstjórn kynntu í gær tillögu til lausnar dagvistarvandanum á þremur árum. Sigrún Magnúsdóttir, Framsókn, Bjarni P. Magnússon, Alþýðuflokki, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennalista og Kristín Á. Ólafsdóttir, Sigurjón Pétursson og Guðrún Agústsdóttir, Alþýðubanda- lagi. Mynd Sig. . , Borgarstjorn Lausn á dagvistarvandanum Sameiginleg tillaga minnihlutaflokkanna um lausn dagvistarvandans. 740 milljónir til byggingar á 24 nýjum dagvistarheimilum r Isameiginlegri tillögu minni- hlutaflokkanna í borgarstjórn er gert ráð fyrir að með sameigin- legri fjármögnun ríkis, borgar og atvinnurekenda uppá 740-750 miUjónir, eða um 250 milljónir á ári, megi koma upp 42 nýjum dagheimilisdeUdum og 30 nýjum leikskóladeildum. Samkvæmt þessu er unnt að leysa á þremur árum þá þörf sem er fyrir dagvist- arrými, en tæplega 2000 börn voru á biðlistum eftir dagvistar- rými s.l. áramót. - Nái tillagan fram að ganga, gefst loksins öðrum kostur á að fá inni fyrir sín börn en þeim sem teljast til forgangshópa. Jafn- framt gerum við ráð fyrir að með stighækkandi gjaldskrá, þar sem foreldrar greiði eftir tekjum og efnahag, verði unnt að bæta laun þeirra sem vinna á þessum stofn- unum og störfin verði eftirsóttari en er í dag, sagði Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, Kvennalista, á blaðamannafundi minnihlutafl- okkanna í borgarstjórn í gær, þar sem þeir kynntu sameiginlega til- lögu til lausnar dagvistarvandan- um. - Við gerum ráð fyrir að stofnkostnaður við þessa upp- byggingu greiðist til jafns af borg, ríki og atvinnurekendum. Til þess að þetta geti náð fram að ganga þarf Alþingi að veita sveitarstjórnum lagaheimild til að leggja 5-10% álag á aðstöðu- giöld í þrjú ár, sagði Guðrún Ágústsdóttir, borgarfulltrúi Al- þýðubandalagsins. - Sjálfsagt mun meirihlutinn finna þessari tillögu flest til for- áttu og nefna að óraunhæft sé að fjölga dagvistarstofnunum þegar fólk fáist ekki til starfa á þeim. En það sam gildir reyndar einnig um borgarráðhús, sem ákveðið hefur verið að ráðast í smíði á. Þess má jafnframt geta þetta er álíka upp- hæð og hugsuð er til byggingar borgarráðhússins, sagði Sigurjón Pétursson, Alþýðubandalagi. _rk Sjá bls. 3 Kaipov sigraði Áskorandinn Karpov vann í gœr Kasparov heims- meistara með svörtu í 32 leikjum. Sáá cknkckvrinPU hfp.lpa Ólafs. /í ív 7 r> 7 7

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.