Þjóðviljinn - 15.10.1987, Page 3
FRÉTTIR
jr i Afvopnununarmál
Islenskt fmmkvæði
ÓlafurRagnar Grímssonflyturþingsályktunartillögu um að íslensk stjórnvöld
boði til alþjóðlegrar ráðstefu íReykjavíkum afvopnun á norðurhöfum. Steingrimur
Hermannsson: Eigum ekki að hika við að hafafrumkvœði í afvopnunarmálum
Eg tel að við eigum ekki að hika nánar um þessa tillögu að svo
við að hafa frumkvæði í af- komnu þar sem hann hafði ekki
vopnunarmálum þegar það hent- kynnt sér hana efnislega.
ar, sagði Steingrímur Hermanns- Tillagan gerir ráð fyrir því að
son, utanríkisráðherra, um þing- ríkisstjórnin boði til ráðstefnunn-
sályktunartillögu Ólafs Ragnars ar á fyrri hluta næsta árs og verði
Grímssonar, þar sem lagt er til að fulltrúum þeirra ríkja sem hafa
íslensk stjórnvöld boði til alþjóð- kjarnorkukafbáta á norður-
legrar ráðstefnu í Reykjavík um höfum: Bandaríkjanna, Sovét-
skipulag og efnisþætti formlegra ríkjanna, Bretlands og Frakk-
samningaviðræðna um afvopnun lands boðið til ráðstefnunnar auk
á norðurhöfum. fulltra frá Norðurlöndum, þjóð-
Steingrímur vildi ekki tjá sig þingum Kanada og írlands, frá
Atlantshafsbandalagi og Varsjár-
bandalagi, auk fulltrúa annarra
ríkja í Evrópu sem lýsa áhuga á
ráðstefnunni. Þá er gert ráð fyrir
að fulltrúum framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna sé einnig
boðið.
Ráðstefnan á að fjalla um
hernaðarstarfsemi á norður-
höfum, einkum á sviði kjarnork-
uvígbúnaðar og hvernig koma
megi í veg fyrir að fækkun kjarn-
orkuvopna á meginlandi Evrópu
leiði til aukningar á norðurslóð-
um. Þá ber ráðstefnunni að fjalla
um hvernig komið verði á form-
legum viðræðum um afvopnun á
þessu svæði. Einnig á að fj alla um
leiðir til að draga úr þeim hættum
sem fiskistofnum og lífríki sjávar
stafar frá geislavirkni vegna hugs-
anlegra bilana, kjarnorkuleka og
slysa í kjarnorkukafbátum og
skipum og flugvélum sem bera
kjarnorkuvopn.
-Sáf
Kvikmyndir
Skyttumar
til Liibeck
Kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, Skytturnar, verð-
ur íslenskt framlag á norrænu
kvikmyndahátíðinni sem hefst í
Lubeck í Vestur-Þýskalandi 5.
nóvember.
Á kvikmyndahátíðinni, sem er
hin 29. í norðurþýska Hansabæn-
um, verða sýndar níu leiknar
langmyndir frá Norðurlöndunum
auk heimildarmynda og barna-
mynda, en hátíðin er að þessu
sinni helguð Astrid Lindgren,
sem verður áttræð um miðjan
mánuðinn og sýndar tólf myndir
gerðar eftir verkum hennar.
—m
Dagvistarmál
Eftirspum fullnægt
Tillaga minnihlutaflokkanna í borgarstjórn um 3 ára átak í
uppbyggingu dagvistarstofnana
Borgarfulltrúar minnihluta-
flokkanna í borgarstjórn, AI-
þýðuflokks, Alþýðubandalags,
Framsóknar og Kvennalista
leggja til að með sameiginlegu
átaki borgar, ríkisvalds og at-
vinnurekenda, verði komið upp
42 dagheimilisdeildum og 30
leikskóladeildum í Reykjavík á
næstu þremur árum. Með þvl
móti ætti að vera hægt að anna
þeirri þörf sem er á dagvistar-
rými, en um síðustu áramót biðu
hátt í 2000 börn eftir að komast
að á dagvistarstofnunum borgar-
innar.
- Nýlundan við þessa tillögu er
sú að lagt er til að atvinnurekend-
ur leggi sitt af mörkum til upp-
AB Reykjavík
Fulltmar
valdir
byggingar dagvistarstofnana,
með því að Alþingi veiti sveitar-
stjórnum heimild til að leggja 5-
10% álag á aðstöðugjald í þrjú ár
og gjaldskrá dagvistarheimila fari
stighækkandi eftir tekjum og
efnahag foreldranna, þó svo að
lágmarksgjaldið verði óbreytt,
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, Kvennalista.
- Með þessu vinnst þrennt.
Unnt verður að svara eftirspurn-
inni eftir dagvistarplássum og
forgangshópunum verður út-
rýmt, en nú eru aðeins um 5%
dagheimilisbarna í Reykjavík,
sem ekki tilheyra forgangshóp-
um. Jafnframt gæfist foreldrum
fyrst kostur á að velja á milli dag-
vistarstofnana og dagmæðrakerf-
isins. Með stighækkandi gjald-
skrá verður jafnframt tryggt
aukið fé til rekstrar og starfs-
mannahalds og gerir kleift að
bæta kjör starfsfólksins, sagði
Sigrún Magnúsdóttir, Framsókn-
arflokki.
Samkvæmt tillögu minnihluta-
fulltrúanna er gert ráð fyrir að
kostnaðurinn við þriggja ára átak
í uppbyggingu dagvistarstofnana
nemi 740-750 milljónum króna,
er deilist jafnt niður á ríki, borg
og atvinnurekendur og yrði fram-
Iag hvers þessara þriggja aðila um
80 milljónir á ári. En í ár var
framlag borgarinnar til dagvistar-
mála um 48 milljónir og ríkisins
rétt um 10 milljónir.
„Hingað til hafa atvinnurek-
endur ekki lagt fram sérstakan
skerf til uppbyggingar dagvistar-
heimila, en slflct er að okkar mati
orðið löngu tímabært. Það ætti
líka að vera þeim sérstakt
hagsmunamál þegar verulegur
skortur er á vinnuafli,“ segir í
greinargerð borgarfulltrúanna.
- Fáist heimild til að leggja
7.6% álag á aðstöðugjöld, þýðir
það einfaldlega að 22 þúsund
krónur legðust að meðaltali ofan
á aðstöðugjöld fyrirtækja, eða
um 2000 krónur á mánuði, sagði
Kristín Ólafsdóttir, Alþýðu-
bandalagi.
Þessar ungu stúlkur vita að brýn nauðsyn er að leysa úr dagvistunarvandan-
um. Þarna sýna þær að með samstilltu átaki er hægt að reisa hús þó efniviður-
inn sé einfaldur.
Um þriðjungur fulltrúa á
landsfund Alþýðubandalagsins
verður valinn í kvöld, en þá mun
Alþýðubandalagið í Reykjavík
velja fulltrúa sína.
Fulltrúar frá Reykjavík eru um
100 talsins og auk þess verða
valdir umn 100 varamenn. Fund-
urinn er að Hverfisgötu 105.
Að undanförnu hafa félög víða
um land valið fulltrúa sína en
frestur til þess er að renna út.
-Sáf
MR-ingar
Á spretli
kringum
Tjömina
Nemendur Menntaskólans í
Reykjavík, ætla að vera á
hlaupum á Tjarnarbakkanum í
Rcykjavík alla næstu helgi og
safna áheitum til styrktar íþrótta-
iðkunum við skólann.
Hlaupið byrjar á föstudag kl.
17, en þá mun Steingrímur Her-
mannsson, hefja hlaupið fyrir
framan Iðnó og taka fyrsta sprett-
inn í helgarhlaupinu.
MR-ingar taka við áheitum og
stuðningsyfirlýsingum í síma
15470, meðan á hlaupinu stend-
ur. _rk
■ . M
NAGLARNIR EVÐA GÖTUM BORGARINNAR
i Gatnamálastjóri
osarfslA