Þjóðviljinn - 07.11.1987, Blaðsíða 3
i^ÖRFRÉniR —
Hablamos Espanol
tvö er komin í verslanir, en hér er
um að ræða kennslubók til nota
við spænskukennslu sjónvarps-
ins. Það er Vaka-Helgafell sem
gefur bókina út en áður hefur for-
lagið gefið út fyrsta bindi
spænskukennslunnar. Sjónvarp-
ið hefur að undanförnu endur-
sýnt fyrri hlutann en í dag hefjast
sýningar á nýrri þáttaröð, sem
tengist seinna bindinu. Bækurnar
fást í öllum helstu bókaverslun-
um landsins.
Alþjóðlegt skákmót
hefst í dag í félagsheimilinu Stapa
íNjarðvík. Mótið er haldið í sam-
vinnu Tímaritsins Skákar, Kefla-
víkurbæjar og Njarðvíkurbæjar.
Þetta er áttunda mótið í röð al-
þjóðlegra skákmóta sem Tímarit-
ið Skák heldur í samvinnu við
sveitarfélög vítt um landið. Á
mótinu verða flestir efnilegustu
skákmenn landsins. Þar má nefna
þá Þröst Þórhallsson og Björgvin
Jónsson, sem báðir tóku þátt í
Ólafsvíkurskákmótinu. Aðrir ís-
lendingar eru þeir Davíð Ólafs-
son, Hannes Hlífar Sigurðsson,
Jóhannes Ágústsson og Sigurður
Daði Sigfússon auk stórmeistar-
anna Guðmundar Sigurjóns-
sonar og Helga Ólafssonar. Auk
þess verða fjórir erlendir skák-
menn þátttakendur. Mótinu lýk-
ur 20. nóvember.
FRETTIR
Vestmannaeyjar
Rafmagniö of dýrt
Eiríkur Bogason veitustjóri: 50.5 aurar kílóvattstundin, þar
afl5 aurar íflutningskostnað. Óviðunandi tilboðfrá RARIK
Okkur býðst að kaupa rafmagn
frá Landsvirkjun sem verður
að fara í gegnum Rafmagnsveitur
ríkisins vegna þess að flutning-
skerfið er þeirra og tilboðið
hljóðar uppá 50.5 aura á kQó-
vattstundina sem er meðalverð
reiknað á núverandi verðlagi. Af
þessum 50.5 aurum fara 15 aurar
bara í kostnað við að flytja ork-
una hingað tii Eyja frá megin-
landinu og það þykir okkur blóð-
ugt, sagði Eiríkur Bogason veitu-
stjóri í Vestmannaeyjum í samtali
við Þjóðviljann.
Um nokkurt skeið hafa staðið
yfir viðræður milli Vestmanna-
eyjabæjar við Landsvirkjun og
Rafmagnsveitur ríkisins hins veg-
ar um orkukaup til að hægt sé að
halda áfram rekstri Hitaveitu
Vestmannaeyja vegna þess að nú
sér bráðum fýrir endann á því að
geta fengið nauðsynlegan hita frá
Hraunhituninni, en þar er hitinn
að hverfa.
Að sögn Eiríks Bogasonar,
veitustjóra er nýbúið að taka í
notkun nýtt svæði í hrauninu og
verður síðasti virkjunarreiturinn
í hrauninu væntanlega tekinn í
notkun í desember næstkomandi.
Eftir það verður ekki lengur hægt
að stóla á hitann úr hrauninu.
Hugmyndir hafa verið uppi
meðal eyjarskeggja að ef ekki
semdist við Rafmagnsveitur
ríkisins um viðráðanlegt orku-
verð til Eyja væri sá möguleiki
fyrir hendi að hita vatnið til fjar-
varmaveitunnar með kolum og
sagði Eiríkur að þeir ættu kolak-
etil sem hægt er að taka í notkun
án mikils tilkostnaðar og þar fyrir
utan er verðið fyrir kolin mjög
hagstætt um þessar mundir. í dag
eru það tveir stórir orkukaupend-
ir sem notast við kol og eru það
Sementsverksmiðjan á Akranesi
og Járnblendiverksmiðjan á
Grundartanga.
„Ef til þess kemur að við verð-
um neyddir til að nota kol sem
orkugjafa yrðum við í samfloti
með þessum tveimur um kola-
kaupin," sagði Eiríkur Bogason
veitustjóri. grh
Síld
Naumt með tunnur
Það hefur enn sem komið er
engin stöð þurft að hætta
söltun vegna tunnuskorts, en eftir
því sem ég best veit, duga þær
tunnur sem til eru, fyrir daginn í
dag. En um helgina er væntanlegt
tunnuskip frá Noregi, sem mun
skipa þeim upp á Austfjörðum,
öðru hvoru megin við helgina,
sagði Kristján Jóhannesson,
birgða- og söltunarstjóri hjá Sfld-
arútvegsnefnd í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Að sögn Kristjáns er nú þegar
búið að salta síld í 141 þúsund
tunnur af 210 þúsund tunnum af
saltsfld sem samningar hafa verið
gerðir um sölu á. Er þar um að
ræða 60 þúsund tunnur af saltsíld
til Svíþjóðar og Finnlands og 150
þúsund tunnur sem Sovétmenn
hafa skuldbundið sig að kaupa
samkvæmt nýgerðum samningi
þeirra við Sfldarútvegsnefnd. Til
viðbótar þessu hafa Sovétmenn
frest til 15. nóvember næstkom-
andi til að ákveða sig hvort þeir
kaupi 50 þúsund tunnur af saltsíld
til viðbótar og yrðu þá heildar-
kaup Sovétmanna á saltsíld um
200 þúsund tunnur. grh
Frá starfsþjálfun
fatlaðra
Innritunerhafinfyrirvorönn 1988. Starfsþjálfunin
er ætluö einstaklingum sem fatlast hafa vegna
sjúkdóma eöa slysa og þarfnast endurhæfingar
til starfa eða náms. Á fyrstu önn verður kennd
íslenska, enska, verslunarreikningur, bókfærsla,
samfélagsfræöi og tölvufræði (notkun ýmissa
forrita).
Umsóknir sendist fyrir 1. des. til starfsþjálfunar
fatlaðra Hátúni 10a. Einnig er forstöðumaður til
viðtals í síma 29380, þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga frá kl. 10-13.
Forstöðumaður
Krakkarnir í Hlíðaskóla sungu fullum hálsl Hann Tumi fer á fætur, við undirleik sinfóníuhljómsveitarinnar í leikfimissal
skólans í gær. Stjórnandinn Páll Pamfichler Pálsson hafði í nógu að snúast að stjórna öllu liðinu einsog sjá má á
myndinni. Krakkar úr Tónskólum aðstoðuðu sinfóníuna. Mynd Sig.
Orkustofnun
Þrjár stöður
á Veðurstofu íslands
Lítt gmndaðar uppsagnir
Steingrímur J. Sigfússon: Flausturslega að hlutunum staðið. Friðrik
Sophusson: Samdráttur hjá stofnuninni orsök uppsagnanna
eru lausar til umsóknar
1. Staða deildarstjóra við snjóflóðavarnir.
Umsækjandi þarf að hafa „Master" próf í veður-
fræði eða jarðeðlisfræði eða samsvarandi
menntun.
Eg tel að það hafi komið fram í
máli iðnaðarráðherra hversu
lítt grundaðar þessar hópupp-
sagnir hjá Orkustofnun voru og
hversu óeðlilegt það er með öllu
að gripið sé til þeirra,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon m.a. um
svar ráðherrans við fyrirspurn
hans um ástæðu fjöldauppsagna á
Orkustofnun.
Friðrik Sophusson sagði ástæð-
una þá að vegna breyttra
áherslna hefði orðið samdráttur í
virkjanaframkvæmdum og fram-
kvæmdum á vegum hitaveitna.
Þá hefði stofnuninni ekki tekist
að hasla sér völl erlendis og viss
verkefni verið flutt frá stofnun-
inni. Einnig er ljóst að verulega
mun draga úr sértekjum stofnun-
arinnar á næsta ári auk þess sem
framlag til stofnunarinnar er
skorið niður á fjárlögum. Því var
ákveðið að segja upp 18 mönnum
frá og með næstu áramótum auk
þess sem ekki er gert ráð fyrir að
ráða í ný störf sem losna á næsta
ári.
„Þó að það fréttist frá
Fjárlaga- og hagsýslustofnun eða
frá fjármálaráðuneyti að þar sé í
smíðum fjárlagafrumvarp þar
sem gert er ráð fyrir niðurskurði
til stofnunarinnar, tel ég þar ekki
ástæðu til fyrir stjórnendur og
yfirvöld sömu stofnunar að rjúka
til og fara að segja upp fólki. Ef
menn beittu þeirri vinnureglu í
hvert skipti tel ég að þær upp-
sagnir sem gripið væri til á hverju
hausti næmu þúsundum," sagði
Steingrímur J.
Steingrímur sagði uppsagnirn-
ar ekki í tengslum við neina fram-
tíðarkönnun á umfangi eða verk-
efnum stofnunarinnar. Hér væri
því flausturslega áð hlutunum
unnið.“
Albert Guðmundsson, Hjör-
leifur Guttormsson og Kristín
Einarsdóttir tóku í sama streng
og Steingrímur. Albert taldi ekki
nægilega könnuð verkefni fyrir
stofnunina erlendis. Hjörleifur
sagði að miklu væri til hætt að
hrekja burt reynt starfslið áður
en endurskoðun hefur farið fram
á stofnuninni og Kristín Einars-
dóttir sagði að hér væri óeðlilega
að uppsögnum staðið, þar sem
þær væru gerðar vegna fjárlaga-
frumvarps sem enn væri ekki
búið að samþykkja. _Sáf
2. Staða fulltrúa á skrifstofu Veðurstofunnar.
Umsækjandi þarf að hafa góða íslenskukunnáttu
og æfingu í vélritun. Kunnátta í ensku og einu
Norðurlandamáli æskileg.
3. Staða rannsóknarmanns hjá Veðurstofunni á
Keflavíkurflugvelli.
Umsækjandi þarf að hafa lokið samræmdu prófi
eðasamsvarandi menntun. Búseta í Keflavíkeða
Njarðvíkum áskilin.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist samgönguráðu-
neytinu fyrir 20. nóvember 1987.
Veðurstofa íslands
Laugardagur 7. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3