Þjóðviljinn - 07.11.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 07.11.1987, Blaðsíða 5
LANDSFUNDUR ALÞYÐUBANDALAGSINS LANDSFUNDUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS LANDSFUNDUR ALÞYÐUBAND Fulltrúar beita ýmist aðferðum raunvísinda eða sálfrœði til að spá um úrslit formannskjörs- ins. Sigurlíkur reiknaðar útfrá plíseruðum pils- um og rykktum. Stjórnmála- ályktunin raun- hœfeðafrjáls- hyggjusmituð? „Þú sérð það sjálfur Svavar minn,“ gæfi Sigurdór Sigurðsson verið að segja við Svavar Gestsson en á myndinni er til umræðu setningarræða fráfarandi formanns sem birtist í Þjóðviljanum. Mynd E.ÓI. Vangaveltur fulltma Á landsfundi Alþýðubanda- lagsins í dag fæst loks úr því skorið hver taki við hlutverki for- manns og varaformanns á næsta kjörtímabili, en spenningurinn í kringum formannskjör í flokkn- um hefur sjaldan verið meiri. í Rúgbrauðsgerðinni í gær var formannskjörið enn efst í hugum manna og sátu ýmsir talnaglöggir menn við og spáðu um úrslitin. Það kemur ekki á óvart að stuðn- ingsmenn beggja frambjóðend- anna, töldu sigurinn vísan, a.m.k. opinberlega. f þessum talnaleik voru margir hausarnir tvítaldir, enda óvissuhlutfallið hátt og sá hópur stór sem kýs að halda afstöðu sinni leyndri. f talningunni var gripið til ýmissa óhefðbundinna aðferða til þess að auka á marktækni niðurstaða. Nokkrir sjónglöggir notuðu kventísku Alþýðubandalags- kvenna í þeim tilgangi. Þeir höfðu komist að því að stórhópur kvenfulltrúa gekk í hálfsíðum pilsum. f framhaldi af því uppgö- tvuðu þeir, að greina mátti stuðn- ingsmenn Ólafs Ragnars og Sig- ríðar út frá gerð pilsanna. Plíser- uð pils eða rykkt pils varð við- miðunin, en konur í stuðnings- hópi Ólafs Ragnars voru taldar ganga í plíseruðum pilsum og stuðningskonur Sigríðar í rykkt- um. Aðferðir raunvísandanna liggja ekki fyrir öllum og því gripu sumir til aðferða sálfræð- innar. „Pað er greinilegt að Sig- ríður er ekkert of sigurviss. Pað er þungt í henni,“ heyrðist ein- hver Ölafsmaðurinn segja og stuðningsmaður Sigríðar heyrðist segja við annan úr þeim hópi: „Ölafur kann að virðast kátur, en sérðu hvað hann er taugaveiklað- ur bak við grímuna". Þá heyrðust athugasemdir sem þessar frá gáfulegum manni með skegg og gleraugu: „Ég hef veitt því at- hygli að nú fyrst virðist Sigríðar- fólkið vera farið að þora að hugsa þá hugsun að Ólafur kunni að sigra í prófkjörinu. Áður komst þessi hugsun ekki að hjá þessu fólki, nema þá í villtustu mar- tröðum þess.“ Athugasemdir í svipuðum dúr heyrðust frá stuðn- ingsmönnum Sigríðar. Varaformannskjörið var ekki eins áberandi umræðuefni hjá landsfundarfulltrúum, enda óljóst fram á eftirmiðdag í gær hvort þeim yrði fjölgað með laga- breytingum. Tillaga um það að tekin yrði til afgreiðslu tillaga um lagabreytingu um fjölgun vara- formanna var felld með 24 at- kvæðum og telja margir að ef hún hefði verið afgreidd að viðstödd- um fleiri landsfundarfulltrúum en þeim sem viðstaddir voru at- kvæðagreiðsluna hefði niður- staðan orðið önnur. Fjölmargir fulltrúar af Stór-Reykjavíkur- svæðinu gátu ekki verið viðstadd- ir atkvæðagreiðsluna vegna at- vinnu sinnar. Nöfn Svanfríðar Jónasdóttur og Helga Seljan eru enn mikið nefnd þegar varaformanns- embættið ber á góma, en á bak við tjöldin eru nokkrir stuðnings- menn Ólafs Ragnars og Sigríðar að vinna að því að afla fylgis áskorun þess efnis, að formanns- frambjóðendur taki varafor- mannssætið nái þeir ekki kjöri. Aðrir eru andvígir þessari hug- mynd, og segja það farsælustu lausnina að varaformaðurinn til- vonandi sé úr sama armi og for- maðurinn. Annars muni saga átaka, síðasta kjörtímabils end- urtaka sig. Lausnin sé „samhent forysta“. Landsfundarfulltrúarnir voru sem sagt afar uppteknir af for- mannskjörinu og þótti mörgum nóg um. Töluðu sumir um að bet- ur hefði farið ef formannskjörinu hefði verið lokið af, strax á öðr- um degi fundarins, því á meðan óvissuástand ríkti væri ekkert hægt að vinna að viti að öðrum málefnum, en fyrir fundinum liggja fjölmörg mál, bæði í formi tillagna og ályktana. Meðal þeirra mála sem lands- fundurinn þarf að afgreiða er stjórnmálayfirlýsing landsfund- arins, en fyrir liggja drög að yfir- lýsingu, sem grundvölluð er á „Framtíðarsýn“ Svavars Gests- sonar. Sú yfirlýsing virðist njóta breiðs stuðnings á fundinum. Hún hefur hins vegar verið harð- lega gagnrýnd af hópi Vinstri sós- íalista á fundinum, sem segja hana frjálshyggjusmitaða. „Það borgar sig ekki að kveikja á of mörgum eldspýtum hér inni,“ sagði einn fulltrúinn þegar hann lýsti stemningunni fyrir formannskjörið. En hvað gerist að formannskjöri loknu? Má þá Plott? Sigurjón Pétursson og Úlfar Þormóðsson. Mynd E.ÓI. Ótalmörg mál bíða eftir afgreiðslu fundarins búast við því að eldfimt andrúms- loftið gufi upp í samstöðu flokks- manna á bak við nýkjörinn for- mann flokksins, eða verður úr mikið bál? Það er samdóma álit manna að klofningur komi frá- leitt til greina, í mesta lagi hætti nokkrir að starfa í flokknum. Og það kemur satt að segja dálítið á óvart hversu margir fulltrúanna á landsfundinum í gær gáfu til kynna að fólk myndi leggja mikið á sig til þess að átökin yrðu sem minnst í flokknum á komandi kjörtímabili. -K.Ól./-rk. Laugardagur 7. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.