Þjóðviljinn - 16.12.1987, Qupperneq 3
Raftœki
Munum
skammast
okkar
Félag raftœkjasala:
Aðföng fyrir fyrirtæki
gjaldlaus en 60% á
nauðsynleg heimilistœki.
Duftpúðar og sólhlífar
lcekka
Við í Félagi raftækjasaia mun-
um skammast okkar ef við
eigum að geta keypt öll tæki og
aðföng gjaldaiaust fyrir okkar
fyrirtæki eftir áramótin á meðan
verkamenn og láglaunahópar
þurfa að greiða rúmlega 60%
álögur fyrir utan söluskattinn á
nauðsynleg heimilistæki, segir
m.a. í plaggi frá Félagi raftækja-
sala til fjárhags- og viðskipta-
nefnda alþingis. Þar gagnrýnir fé-
lagið harðlega að í nýju frum-
varpi um vörugjald og toliskrá sé
tollum ekki nógu vel út jafnað á
miili vörutegunda.
Hæsti tollur á heimilistæki er á
bilinu 55-61% en vörur sem fyrir-
tæki nota mikið, s.s. reiknivélar,
ljósritunarvélar, ritvélar og
áprentuð umslög eru færðar úr
háum álögum niður í að vera
undanskildar álögum. Segir í
plagginu að miðað við heildar-
innflutning á ofangreindum vöru-
tegundum, þurfi ekki nema 10-
15% toll á þær til þess að létta
aiveg vörugjaldstekjum af raft-
ækjum.
Þá gagnrýnir Félag raftækja-
sala að á meðan verið er að
hækka álögur á heimilistækjum
þá sé allt að 80% tollur og 30%
vörugjald afnumið af glys- og
glingurvörum. í þessu sambandi
nefnir félagið m.a. ilmúðara og
duftpúða, ýmsar skrautvörur úr
gúmmí, hluti til jólahalds og
töfrabragða, legghlífar og sólh-
lífar og vörur úr þörmum, en þó
ekki silkiormaþörmum.
-K.ÓI.
FRETT1R
Alþýðubandalagið
Barátta framundan
Framkvœmdastjórn Alþýðubandalagsins: Skattaálögur á almenningþyngdar.
Verðbólga vex og hótað með gengisfellingu. Hörð og markviss barátta nauðsynleg
Það er mikilvægt til að koma í
veg fyrir þessa holskeflu að
barátta samtaka launafólks verði
skipulögð bæði af einstökum fé-
lögum og heildarsamtökum
launafólks. Hörð og markviss
barátta er nauðsyn í komandi
kjaraátökum,“ segir í samþykkt
sem framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins gerði í fyrrakvöld
en þar er andmælt fyrirhuguðum
aðgerðum ríkisstjórnarinnar í
skattamálum.
„Nýr 25% matarskattur leggst
þyngst á þá sem eyða hlutfalls-
lega mestu af launum sínum í
lífsnauðsynjar,“ segir í sam-
þykktinni. „Tekjuskattsfrum-
varp fjármálaráðherra gerir ráð
fyrir stóraukinni skattbyrði alls
þorra launafólks. Að auki æðir
verðbólgan áfram og hótað er
með gengisfellingu.“
„Ríkisstjórn Þorsteins Páls-
sonar eykur skattlagningu á
landsmenn um miljarða króna og
nema nýir skattar ríkisstjórnar-
innar 8.500 -9.000 miljónum
króna. Verulegur hluti þessara
skatta - eða 5.750 miljónir -
leggst á matvörur. Á sama tíma
og almenningur ber þannig
aukinn skattþunga sleppa fyrir-
tækin sem fyrr, þrátt fyrir stór-
felldan gróða í góðæri liðinna
ára.
Síðar í samþykktinni segir að
óhjákvæmilegt sé að launamenn
um land allt búi sig undir baráttu
gegn stjórnarstefnunni. „Al-
þýðubandalagið mun ekki liggja
á liði sínu í þeirri baráttu og hvet-
ur félaga sína til að hefja um-
ræður um nauðsyn aðgerða á
vinnustöðum, í samtökum laun-
fólks og annars staðar þar sem
færi gefst."
ÓP
Greinar fyrir SÖng. Börnin á dagheimilinu Árborg tóru í litla jólaferð í gær. Skógræktarfélag Reykjavíkur bauð
þeim og börnum af öðrum dagheimilum borgarinnar í heimsókn, sýndi þeim jólatré og gaf þeim greinar. Börnin þökkuðu
fyrir sig með jólasöngvum. Mynd: KGA.
Kvosarskipulag
Jóhanna á leikinn
Skipulagsstjórn hefur að ósk félagsmálaráðherra skilað áliti vegna
athugasemda Guðrúnar Jónsdóttur um deiliskipulag Kvosarinnar
Skipulagsstjórn hefur nú af-
greitt formlega til félags-
málaráðuneytisins svör við at-
hugasemdum Guffrúnar Jóns-
dóttur um deiliskipulag Kvosar-
innar, sagði Hermann Guffjóns-
son vita- og hafnamálastjóri, for-
maður stjórnarinnar; framhald
þessa máls er því á valdi ráð-
herra.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur Guðrún lagt til við
ráðherra að hún samþykki ekki
uppdráttinn.
Á fundi skipulagsstjórnar í
fyrri viku var Hermanni falið að
Kindakjöt
Slátnin innan
fulMrðisréttar
Nemur 196.644 kg eðaframleiðslu 26 meðal
sauðfjárbúa
Kindakjötsframleiðslan í haust
er innan fullvirðisréttar.
Munurinn er 197.644 kg eða
10.859,6 ærgildisafurðir. Svarar
það til kjötframleiðslu á um það
bil 26 meðal sauðfjárbúum.
Framleiðsluráði landbúnaðar-
ins hafa nú borist skýrslur frá
öllum sláturleyfishöfum um
sauðfjárslátrun í haust. Fullvirð-
isréttur er alls 11.638.631,7 kg.
Heildarkjötmagnið er 12.487.730
kg. Frá dregst: ósöluhæft kjöt,
heimtekið kjöt, slátrun vegna
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins
og slátrun riðufjár, alls 1.046.743
kg. Þannig koma til uppgjörs
vegna fullvirðisréttar 11.440.987
kg og er það sem fyrr segir
197.644 kg innan
fullvirðismarkanna.
Einhver viðbót er væntanleg
vegna slátrunar í nóvember og
desember en hún er óveruleg.
-mhg
ganga frá svörum til félags-
málaráðuneytisins ásamt Stefáni
Thors, skipulagsstjóra ríkisins.
Svör þessi eru tvíþætt; á fundin-
um var samþykkt tillaga að svari
með tveimur atkvæðum gegn
einu, en tveir sátu hjá. Jafnframt
áskildi Hermann sér rétt til að
skila séráliti fyrir 15. desember.
Svör þessi bæði eru nú komin
rétta boðleið til Jóhönnu Sigurð-
ardóttur félagsmálaráðherra, en
samþykki hennar þarf til, eigi
deiliskipulag Kvosarinnar að öðl-
ast lagagildi.
Skipulagsstjórn fundar í dag,
og sagðist Hermann eiga von á að
tekið yrði fyrir bréf sem þrír
borgarfulltrúar, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, BjarniP. Magnússon
og Sigurjón Pétursson sendu inn
á síðasta fund stjórnarinnar, en í
bréfinu gera þremenningarnir at-
hugasemdir við þá málsmeðferð
sem afgreiðsla ráðhússins hefur
hlotið.
f bréfinu segir meðal annars að
borgarstjóri hafi farið þess á leit
við skipulagsstjórn ríkisins hinn
27. október að afstöðumynd
væntanlegs ráðhúss yrði sýnd á
skipulagsuppdrætti Kvosarinnar.
„Bréf þetta var sent án vitundar
eða vilja borgarráðs eða borgar-
stjórnar. Þegar skipulagsstjórn
féllst á að gera þetta lét hún að
vilja framkvæmdastjóra borgar-
innar en ekki kjörinnar borgar-
stjórnar. Fáum við ekki séð hvað-
an skipulagsstjórn kemurheimild
til að þess að breyta á þennan hátt
uppdrætti sem samþykktur hefur
verið af löglega kjörinni sveitar-
stjórn.“ HS
Fiskur
Markaður
í Eyjum
Hefst í janúar
Við stefnum að því að halda
fyrsta uppboðið á Fiskmark-
aðnum í Vestmannaeyjum strax í
fyrstu viku janúarmánaðar á
næsta ári, í vertíðarbyrjun. Þetta
verður blandaður markaður og
geta fiskkaupcndur því bæði
keypt flskinn séðan á gólfi og ó-
séðan um borð í bátunum í gegn-
um fjarskipti, sagði Finnur Sig-
urgeirsson, framkvæmdastjóri í
Vestmannaeyjum í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Að sögn Finns er mikill áhugi í
Eyjum á fyrirhugaðri starfsemi
fiskmarkaðarins þar og eru hlut-
hafar í fyrirtækinu bæði stór og
smá fiskvinnslufyrirtæki í bæn-
um, auk útgerðarmanna og ann-
arra einstaklinga sem áhugasamir
eru um sjávarútveg. Þessa dag-
ana er verið að ganga frá húsnæði
hans og verður það um 400 fer-
metrar.
Reiknað er með að einhver
samvinna verði höfð við fjar-
skiptamarkað Suðurnesja-
manna, en ennþá hafa engar við-
ræður farið fram um það mál.
Einnig er mikill vilji fyrir því í
Eyjum að hafa samstarf við Þor-
lákshöfn, Hornafjörð og jafnvel
Vík í Mýrdal.
„Þeir bjartsýnustu segja þó að
þessð verði ekki langt að bíða að
allt landið og miðin verði einn
allsherjar markaður með fisk.
Tækninni fleygir fram og með
betri samgöngum en nú er verður
ekki langt þangað til að þetta
verður að raunveruleika,“ sagði
Finnur. grh
Bíla-happdrætti Handknatt-
leikssambands íslands
14. desember 1987 vardregið um 15 bíla í bílahappd-
rætti Handknattleikssambands íslands.
5 Suzuki Fox komu upp á eftirtalin númer:
9401 13709 70457 75462 98385
10 Suzuki Swift komu upp á eftirtalin númer:
42457 44260 53685 63614 65235
68125 85377 85568 89571 104540
Handknattleikssamband íslands þakkar stuðning þinn
og minnir á að 18. janúar nk. verður dregið um 35 bíla.
Allir eiga að sitja öruggir í bíl.
Notum bílbelti - alltaf!
ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 3
IUMFERÐAR
RÁÐ