Þjóðviljinn - 16.12.1987, Blaðsíða 8
BÆKUR
KENNfTALA
ÁLAUNAMÐA
Á launamiða og öll önnur framtalsgögn vegna launa greiddra á árinu
1987 og sem senda ber til skattstjóra í janúar 1988, skal tilgreina
kennitölu, bæði launamanna og launagreiðenda í stað nafnnúmers.
Notkun nafnnúmers á þessum gögnum fellur niður.
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
Er þetta
bara
kiaftæði?
(KJAFTÆÐI (88 bls.)
Utgáfufélag framhaldsskólanna
R. 1987)
Það er uppi sjónarmið sem
segir að varlega skuli farið í að
kynna og meta nýjar bók-
menntir, ekki megi grípa fram í
fyrir hendurnar á síu sögunnar.
Hún muni hvort sem er leiða í ljós
hvað á skilið að standa upp úr.
Þetta sjónarmið er skiljanlegt
þeim sem eru víðlesnir og hafa
safnað sjóði í poka reynslunnar.
En þeir ungu og óþreyjufullu
LOUISA
MATTHÍASDÓTTIR
MYNDIR
Heillandi bók með flölmörgum myndum af verkum Louisu
Mattbíasdóttur, þar ö meðal 36 stórum litmyndum. Petta eru
olíumólverk fró síðustu órum, einföld og tœr, sem flest birta íslenska
veröld og Ijö bókinni fögœtan heildarsvip. Sigurður A. Magnússon
hefur ritað formöla um kynni sín af Louisu, en auk þess eru í bókinni
fróðlegar greinar eftir bandaríska listfrœðinga. Bókin er einstaklega
vel prentuð í japanskri prentsmiðju, sem hefursérhœftsig í gerð
listaverkabóka. Bókin er einnig fóanleg ó ensku.
Fulltverð kr. 2.850,-
Afmœlistilboð til óramóta: 1.995 kr.
Mál IMIog menning
eins
og
hafa önnur sjónarmið. Þeir þykj-
ast hafa litlu að tapa en flest að
vinna.
Þess vegna er bók
Kjaftæði gefin út.
Titill bókarinnar er hrár og allt
að því fráhrindandi. Efnið er fjöl-
breytilegt, innan þeirra marka
sem stærðin setur bókinni, og
þess vegna ómögulegt að segja að
titillinn sé bókinni trúr. Vissulega
skrifa framhaldsskólanemar
mikið og ekki allt gott en þessi
bók er staðfesting á því að ritlistin
lifir af allar þrengingar.
Það er erfitt að lýsa bók sem
þessari í heild. Hún er afar sund-
urlaus eins og vænta má en útge-
fendur hafa þó reynt að skipta
efni hennar í tvennt: ljóð og
sögur. Þessi skipting orkar samt
tvímælis því benda má á fantasíur
með sundurslitinn eða fjarver-
andi söguþráð sem álitamál er
hvert flokka skuli til ljóða eða
sagna.
Viðfangsefni bókarinnar er
einkar fjölbreytilegt. Ein sagan
er t.d. skrifuð í anda sagna gamla
testamentisins, önnur er í anda
hrollvekjusagna og endar á því að
söguhetjan steypist á höfuðið í
eins konar hakkavél („Aðeins
dró niður í vélinni, örlítið ískur
heyrðist líkt og pískur í ungri
stúlku en svo náði hún upp fullum
snúningi á ný og malaði síðan
galtóm.“), sú þriðja segir frá sál-
fræðilegum átökum elskenda.
Áfram mætti telja en þetta skal
látið nægja.
Margt af efninu verður að líta á
sem stflþrautir frekar en full-
sköpuð verk, stflþrautir sem engu
að síður er forvitnilegt að sjá og
standa sem vitnisburður um líf-
lega bókmentnasköpun fram-
haldsskólanna.
Án þess að gefa neinum góð-
látlegt viðurkenningarklapp á
öxlina, verður að segjast að í
þessari litlu bók eru höfundar
sem síðar munu trúlega kveða sér
hljóðs með eftirminnilegum
hætti. Verðlaunaljóð bókarinn-
ar, sem er eftir Steinar Guð-
mundsson, er t.d. ekkert tilvilj-
anakennt hnoð, það hefur ein-
mitt til að bera það sem gerir ljóð
að góðu ljóði. Þar kemur fram
tilhlýðileg virðing fyrir orðum og
þau fá hvert fyrir sig nægilegt
rými til að vísa í margar áttir.
Skáldinu hefur tekist að teikna
tilfinningaríka mynd í fáum drátt-
um, mynd sem lýsir ótrúlegum
fjarlægðum milli óskyldra fyrir-
bæra.
Stjörnur
Skínandi stjarna
á kolsvörtum himni.
Skýjakljúfar, leigubílar.
Það eru milljónir
allt í kring
Ijósár
í burtu
Ingi Bogi
8 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN