Þjóðviljinn - 16.12.1987, Page 10
mi
IÐUNN
Bók sem
skiptir okkur máli
Mikhaíl Gorbatsjov
PERESTROTKA
NY HUGSUN, NY VON
Ein athyglisverðasta bók síðari ára á alþjóðlegum
vettvangi. Bók eftir þjóðarleiðtoga Sovétríkjanna,
Mikhaíl Gorbatsjov, þar sem hann fjallar um hinar
nýju stjórnmálahugmyndir sínar. Á ótrúlega
hreinskilinn hátt gerir hann hér grein fyrir
aðstæðum þjóðar sinnar fram á þennan dag. Með
áherslu á opinskáa umræðu meðal allra þjóða fjallar
hann um afvopnunarmál og heimsfrið.
— Hugmyndir sem geta skipt sköpum.
Pessi bók er uppgjör Höllu Linker við þá
ímynd sem skapaðist aj henni í gegnum
fjölmiðla í fjöldamörg ár. Aldrei sást annað
en yfirborðið, frœgð og velgengni. En þannig
var líf hennar aldrei í raun og veru.
Nú lítur hún til baka yfir tuttugu og átta ár
í hjónabandi með manni sem var fimmtán
árum eldri en hún og stjórnaði henni eins og
brúðu og tók allar ákvarðanir fyrir hana.
Pegar hann lést skyndilega kom að því að hún
þurfti að standa ein og óstudd í fyrsta sinn,
bjarga sér, lœra að umgangast karlmenn,
kynnast því að verða ástfangin eins og ung
stúlka . . . Sú ganga var ekki þrautalaus, en
að lokum hefur Halla náð því mavki að geta
litið björtum augum til framtíðarinnar, virt
fyrir sér fortíðina með augum áhorfandans,
hlegið og grátið — sátt við sjálfa sig.
Saga Höllu er engin harmsaga, heldur
óvenjuleg ævisaga óvenjulegrar konu, sem séð
hefur og reynt fleira en flestir Islendingar og
hefur umgengist bœði hausaveiðara og
Hollywoodleikara. Konu, sem var virt og dáð
út á við, en fékk þó ekki einu sinni að ráða
hárgreiðslu sinni sjálf. Frásögnin lætur engan
ósnortinn, en hún vekur líka ótal hlátra, því
að Halla katm flestum betur að draga fram
skoplegu hliðarnar á því sem fyrir hana hefur
borið.
MIKHAIL GORBATSJOV
íbestrojka
NYHUCSUN NYMDN
BRÆÐRABORGARSTÍG 16 - SÍMl 28555