Þjóðviljinn - 24.12.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.12.1987, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 24. desember 1987 289. tölublað 52. árgangur Smárahvammur Sambandið í braski Sambandið mun ekki nota Smárahvamminn undir eigin rekstur. Kóp- avogurferfram á lengrifrest. 15.000fermetra stórmarkaður, hótelhá- hýsi og skrifstofuhúsnæði meðal hugmynda Sambandsins íSmára- hvammslandi. Framtíðarmússík sem Kópavogskaupstaður hefur lítinn áhuga á. Sterkirpeningamenn hafa haftsamband við bæjaryfir- völd. Líklegt að Kópavogur nýti sér forkaupsréttinn Kópavogskaupstaður hefur far- ið fram á Iengri frest tii að kanna hvort bærinn muni nýta forkaupsrétt sinn á Smára- hvammslandinu, en áður hafði Sambandið farið fram á frest til áramóta. Nú bendir flest til þess að kaupstaðurinn muni nýta sér forkaupsréttinn því bæjarfulltrú- ar eru lítt hrifnir af áformum Sambandsins á landinu. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Þjóðviljans voru bæjarfulltrúum kynntar hug- myndir Sambandsins á óform- legum fundi með forystu- mönnum þess á þriðjudag. Á þeim fundi fóru bæjaryfirvöld fram á lengri frest til að ákveða hvort Kópavogur muni nýta sér forkaupsréttinn á landinu, en sá frestur á að renna út um áramót. Ákveðið var að þessir aðilar muni hittast aftur á milli jóla og nýárs og þá gefi Sambandið svar um hvort fresturinn verði lengd- ur. Á fundinum kynnti Sambandið bæjaryfirvöldum hvernig það hyggðist nýta Smárahvamms- landið í framtíðinni. Þær hug- myndir ganga út á það að Smára- hvammslandinu verði skipt í þrjá hluta. Á þeim hluta sem er næst Kópavogi á að reisa skrifstofu- byggingar í mörgum einingum og sagði heimildamaður Þjóðviljans ljóst að Sambandið ætlaði ekki að nýta þær byggingar sjálft heldur selja þær fyrirtækjum. Miðsvæðið á að nýta undir gríðarstóran stórmarkað, 15.000 fermetrar að stærð en til saman- burðar má geta þess að Mikli- garður er um 6000 fermetrar að stærð. Þann hluta sem er næst Garðabæ á að nota undir hótel- háhýsi og aðstöðu fyrir ferða- menn en á fundinum kom fram að ráðist verður síðast í þá fram- kvæmd en Sambandsmenn áætla að það taki 50 til 70 ár að full- byggja Smárahvammslandið. Hinsvegar hefur enn ekki verið tekin nein ákvörðun um hvenær Sambandið ætlar að hefja fram- kvæmdir á svæðinu. Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins, sagði við Þjóðvilj- ann í gær að Sambandið væri ekki tilbúið að ræða frumhugmyndir sínar um nýtingu landsins við fjölmiðla, hinsvegar væri ljóst að nýtingin á landinu geti orðið margskonar, bæði af Sambands- ins eigin hálfu auk þess sem einkaaðilar gætu einnig fengið aðstöðu á landinu. Áhugi bæjaryfirvalda í Kópa- vogi á að fá Sambandið í bæinn hefur minnkað mikið síðan að ljóst var að höfuðstöðvar þess verða áfram í Reykjavík. Sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans hallast flestir bæjarfulltrúar að því að bærinn nýti forkaupsrétt sinn þar sem yfirvöld telja aðal- atriði að landið byggist sem fyrst upp til að bærinn fái tekjur af að- stöðugjöldum og starfsemi á svæðinu. Áform Sambandsins hljóma hinsvegar einsog framtíð- armússík í eyrum bæjarfulltrú- anna. Þá hafa sterk fyrirtæki haft samband við Kópavog og eru til- búin til að kaupa lóðir í Smára- hvammi af Kópavogi, fyrirtæki sem vilja fara strax af stað. „Það læðist að manni sá grunur að Sambandið vilji losa sig út úr þessum kaupum,“ sagði einn bæjarfulltrúi Kópavogs við Þjóð- viljann. Því harðneitar Guðjón B. hinsvegar og segir að Sam- bandið hefði aldrei farið í þessi kaup ef það hefði ekki haft áhuga á landinu. -Sáf Samstarfshópur frioarhreyfinga stóð fyrir Þorláksmessugöngu niður Laugaveginn í 5. skipti í gær og var fjöldi manns með logandi kyndla ( göngunni. [ ávarpi frá friðarhreyfingunum segir ma. að mannkynið hafi meiri ástæðu til bjartsýni um þessi jól en oft áður vegna nýgerðs samnings stórveldanna um fækkun meðaldrægra eldflauga en þó sé ekki ástæða til að blindast af bjartsýni. „Hvert sem við lítum sjáum við sveltandi börn þriðja heimsins í skugga allsnægta Vesturlanda. Sumir landsfeður þessara barna kaupa frekar vopn en brauð," segir í ávarpinu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.