Þjóðviljinn - 24.12.1987, Side 3
Leyndarskjöl
Laxness og
Nína undir
smásjánni
í nýútkomnum Helgarpósti eru
birtar upplýsingar úr leyndar-
skjölum bandaríska sendiráðsins
hér á landi þar sem fram kemur
að Halldór Laxness rithöfundur
og Nína Tryggvadóttir listakona
hafí verið undir smásjá Banda-
ríkjamanna í stjórnartíð McCart-
hys og að bandarískir sendiráðs-
menn hér á landi hafí m.a. reynt
að sanna skattsvik á nóbels-
skáldið í kjölfarið af útkomu At-
ómstöðvarinnar.
í HP kemur fram að bandarísk-
ur sendiráðsmaður hér á landi að
nafni Trimble hafi rétt áður en
Atómstöðin kom út sent skeyti til
utanríksiráðuneytisins í Was-
hington þar sem hann segist m.a.
hafa heyrt „að tónninn í bókinni
sé heiftarlega and-amerískur“.
Tilraun Bandaríkjamanna til
þess rýra mannorð Halldórs með
því að koma óorði á hann vegna
„and-amerísks“ áróðurs mis-
tókst.
Þá kemur fram að Nína
Tryggvadóttir var gerð brottræk
frá Bandaríkjunum vegna meints
and-amerísks áróðurs í barna-
bókinni Fljúgandi fiskisaga. Nína
fékk að dúsa í nokkrar vikur í
fangabúðum í Bandaríkjunum
þegar hún hundsaði skilaboð frá
bandaríska sendiráðinu á íslandi
um að hún mætti ekki snúa þang-
að eftir heimsókn á íslandi.
-K.ÓI.
Helgarpósturinn
íhugar
málshöfðun
Gegn útvarpsstjóra
vegna auglýsingabanns.
„Við höfum íhugað að höfða
opinbert mál á hendur útvarps-
stjóra vegna þess að hann bann-
aði birtingu á auglýsingu frá okk-
ur í síðustu viku. Þar ætluðum
við að auglýsa birtingu Helgar-
póstsins á leyniskýrslum um ráð-
abrugg Stefáns Jóhanns og
bandaríska sendiráðsins um að
reka komma úr embættum. En
málið er til skoðunar hjá lögfræð-
ingi okkar og við bíðum álits hans
áður en við gerum eitthvað frekar
í málinu,“ segir Helgi Már Art-
húrsson ritstjóri Helgarpóstsins í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Að sögn Helga er auglýsinga-
bannið aðeins eitt dæmi af fjöl-
mörgum, um yfirgang íhaldsafl-
anna hér á landi gegn frjálsri
skoðanamyndun þegar hún sam-
rýmist ekki þeirra eigin skoðun-
um. Sagði Helgi að þessi ráð-
stjórn íhaldsins kæmi aldrei eins
skýrt í ljós en einmitt þegar frjáls-
ir fjölmiðlar fjölluðu um íslands-
söguna í byrjun kalda stríðsins og
kæmu þar með nýjar upplýsing-
ar. „Það er löngu orðið tímabært
að láta á þetta reyna fyrir dóm-
stólurn," sagði Helgi.
Að sögn Markúsar Amar Ant-
onssonar útvarpsstjóra ákvað
hann að banna birtingu auglýs-
ingarinnar á þeim forsendum að
hún bryti í bága við auglýsingar-
eglur útvarpsins, sem settar voru
í tíð Andrésar Björnssonar 1.
nóvember 1983. Þær eru í 11 lið-
um og telur Markús að auglýsing
Helgarpóstsins brjóti í bága við 2.
lið hennar, þar sem bannað er að
auglýsa ádeilur á menn og einnig
8. gr. 2. lið þar sem auglýst er efni
blaða sem inniheldur áróður og
árásir á menn.
„Ég bar mína ákvörðun undir
nýkjörið útvarpsráð og það sam-
þykkti ákvörðun mína með öllum
greiddum atkvæðum,“ sagði
Markús Örn útvarpsstjóri.
-grh
FRÉTTIR
Hagkaup
Heróp í Kringluna
Ný-frjálshyggjublaðið Glœta íinnkaupapokann hjá viðskiptavinum Hagkaupa.
Blað gegn kommúnisma, Svíum og utanríkisráðherra. Steingrímurfœr bágtfyrir
friðarviðleitni á alþjððavettvangi. Sigurður Pálmason Hagkaupum: Ekki á okkar
vegum. Greiðasemi við útgefendur
IGlætunni, nokkurskonar
innanhússblaði í Kringlunni,
sem er nýkomin út og dreift er
„endurgjaldslaust“ til viðskipta-
vina Hagkaupa, gefur að líta ber-
orðar athugasemdir í anda ný-
frjálshyggju um ýmis stjórnmála-
leg meinvörp samtímans, - flá-
ræði kommúnista í afvopnun-
armálum, spillingu í þriðja
heiminum, sænska velferðarpóli-
tík á villigötum og andvaraleysi
Steingríms Hermannssonar
gagnvart útþenslustefnu Sovét-
ríkjanna og „daður við sovétvald-
ið“.
Steingrímur Hermannsson
utanríkisráðherra er einkum
hafður að skotspæni í blaðinu og
virðist útgefendum þess mikið í
mun að varpa rýrð á afstöðu hans
til afvopnunar. Talað er m.a. um
að Steingrímur hafi gengið erinda
Sovétríkjanna í vopnaskaki stór-
veldanna og gerst sjálfskipaður
blaðafulltrúi Gorbatsjofs.
- Utgáfa þessa blaðs er ekki á
okkar vegum. Við tókum vins-
amlega í þá málaleitan að blaðinu
væri dreift í verslun okkar í
Kringlunni. Annars er það okkar
stefna að í verslunum okkar sé
ekki verið að dreifa ritum og
bæklingum, sagði Sigurður
Pálmason hjá Hagkaupum, er
hann var inntur eftir því hvort líta
bæri á efni blaðsins sem pólitíska
stefnumótun Hagkaupa.
Meðal auglýsenda og styrktar-
aðila ritsins eru, auk Hagkaupa
sem leggja til helftina af auglýs-
ingunum, eru Almenna bókafé-
lagið, Mál og menning, Hekla,
Ingólfs apótek og Osta- og
smjörsalan.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
Þjóðviljans tókst ekki að ná sam-
bandi við ábyrgðarmann Glæt-
unnar, sem er Olafur Hjaltason,
starfsmaður Hagkaupa.
- rk.
Björk Guðmundsdóttir „Pía ársins“ í Melody Maker: Mér finnst eins og það sé verið að veita Andrési önd verðlaun,
einhverjum sem ég þekki ekki. Mynd Sig.
Sykurmolarnir
Númer eitt í Melody Maker
Smáskífa Sykurmolanna, Afmœli, kjörin bestaplata ársins. Björk „pía ársins“.
Höfrungar úr eyrum, ormar undan buxum
Borgarráð/
meirihlutinn
Kaupir
syndaaflausn
Með því að framkvæma aðra
hluti en þá sem á að framkvæma
eru þeir að kaupa sér syndaaf-
lausn, sagði Sigurjón Pétursson
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins um tillögu meirihlutans í borg-
arráði í fyrradag þess efnis að
rannsókn verði gerð á vatnasviði
Tjarnarinnar.
Sigurjón sagði að vissulega
fagnaði hann rannsóknum er
varða Tjörnina og því hefði hann
samþykkt tillöguna. Hins vegar
væri hún svo til eingöngu bundin
við Vatnsmýrarsvæðið og áhrif
byggingar ráðhúss í Tjörninni
kæmi því ekki inní dæmið. Sigur-
jón lét bóka með atkvæði sínu að
hann vænti þess að samvinna yrði
höfð við umhverfisverndarráð
um framkvæmdina.
Þá var samþykkt tillaga meiri-
hlutans um að borgarstjóra yrði
falið að kynna Náttúruverndar-
ráði skipulag að byggingu ráð-
húss við Tjörnina, en Náttúru-
verndarráð hefur lýst þeirri
skoðun sinni að rannsaka þurfi
lífríki Tjarnarin nar betur áður en
miklar framkvæmdir hefjist við
Tjörnina. -K.Ól.
Smáskífa Sykurmolanna, Af-
mæli, var kjörin besta smá-
skífa ársins í hinu virta breska
tónlistartímariti Melody Maker
en það er nýútkomið. Ýmsir
merkilegir pappírar í tónlistar-
heiminum komast þar ekki með
tærnar þar sem molarnir hafa
hælana og þykir eflaust mörgum
merkilegt að frægarfólk á borð
við Prince og Madonnu tilhcyrir
þeim hópi.
Þá kaus blaðið Björku Guð-
mundsdóttur söngkonu Sykur-
molanna „Píu ársins“ (Chapess
of the year). Með dómnum fylgir
klausa sem er í þessa veru: „Með
undarlega skeljasafnið sitt, að-
laðandi, létttrufluðu brosinu og
kosmískri dillandi röddinni fékk
hún hárbroddana á Chris Ro-
berts til þess að rísa, höfrungar
spruttu út úr eyrunum á honum,
ormar skriðu undan buxum hans.
Ted Mico grét í stúkunni og
Simon Reynolds öskraði af svöl-
unum á tónleikum hennar í Town
and Country klúbbnum. Ef þú
hefur ekki náð því að hlusta á
plötuna þá eru ekki komin jól hjá
þér ennþá...“.
„Ég fatta þetta ails ekki,“ sagði
Björk um heiðurinn. „Mér finnst
eins og það sér verið að veita
Andrési önd verðlaun, einhverj-
um sem ég þekki ekki.“
Á öðrum stað í Melody Maker
er risastór mynd af Björku og í
textanum með myndinni er farið
undurfögrum orðum um Syk-
urmolanna. Þá er jafnframt í
spumingarkeppni í blaðinu vitn-
að í texta hljómsveitarinnar og
spurt hvaðan línurnar séu. Ójá.
-K.Ól.
Bœkur og plötur
Mikil söluaukning
Að venju er mikil sala í bókum
og plötum fyrir jólin og að
sögn Eyjólfs Sigurðssonar for-
manns Félags bókaútgefenda,
hefur sala bóka aukist um allt að
fjórðung frá því í fyrra.
Þá hefur orðið mikil sölu-
aukning í hljómplötum fyrir þessi
jól, sér í lagi á íslenskum plötum.
Éyjólfur Sigurðsson sagði enn-
fremur að þótt plötur væru nokk-
uð ódýrari en bækur skipti það
engu máli. Það væri bullandi sala
í bókum. _ns.
Jólatrésskemmtun
Læknafélags Reykjavíkur og Lyfjafræðingafé-
lags íslands verður í Domus Medica sunnudag-
inn 27. desember frá kl. 15-18.
Jólasveinarnir
Fiskimenn
Reykjavík
Fundur um skattamál sjómanna verður í húsi
Slysavarnafélagsins mánudaginn 28. desemb-
err og hefst kl. 17.00.
Hólmgeir Jónsson framkvæmdastjóri Sjó-
mannasambandsins kemur á fundinn.
Sjómenn fjölmennið á fundinn.
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur
Flmmtudagur 24. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3