Þjóðviljinn - 24.12.1987, Qupperneq 5
LEIKHÚS UM ÁRAMÓT
Vesalingarnir. Lilja Þórisdóttir í hlutverki konu kráarhaldarans. Aðrir á myndinni eru: Tinna Gunnlaugsdóttir, Pálmi
Gestsson, Anna Kristín Arngímsdóttir, Valgeir Skagfjörð, Ólöf Sverrisdóttir, Randver Þorláksson, Helga Jónsdóttir, Ása
Svavarsdóttir og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir. Tekið á æfingu.
Alþýðuleikhúsið
Kveðjuskál og
Einskonar Alaska
Sýningum haldið áfram eftir
áramóf vegna mikillar að-
sóknar
Alþýðuleikhúsið hefur sýnt tvo
einþáttunga eftir breska leikrita-
skáldið Harold Pinter, Kveðju-
skál og Einskonar Alaska, í
Hlaðvarpanum í vetur. Það hefur
verið ákveðið að halda sýningum
áfram vegna mikillar aðsóknar.
Fyrsta sýning verður 11. janú-
ar. Tveir leikarar í sýningunni
leita nú á önnur mið, Þröstur
Guðbjartsson hyggst leikstýra á
landsbyggðinni eftir áramót og
því mun Arnar Jónsson taka við
hlutverki Hornby læknis í Eins-
konar Alaska. Og Viðar Eggerts-
son tekur við af Þór Tulinius, en
Þór æfir nú í Sfldin er komin.
Af öðrum verkefnum Alþýðu-
leikhússins er það helst að frétta
að nokkur spennandi verk eru í
sigtinu, en húsnæði finnst ekki í
þessu sama sigti, þrátt fyrir mikla
leit. En ekki er hægt að setja upp
sýningu í Hlaðvarpanum á með-
an einþáttungarnir ganga.
Alþýðuleikhúsið hefur fullan
hug á nýta krafta sína og beinir
því þeim tilmælum til fólks að það
hafi samband við skrifstofu
leikhússins og vinsamlegast láti
vita, ef það veit um laust húsnæði
eða sem er að losna.
Alþýðuleikhúsið hefur fyrir
löngu sannað tilverurétt sinn og
benda viðtökur við einþáttung-
um Pinters ekki síst á nauðsyn
þess í leikhúslífi landsins.
ekj
Leikfélag Akureyrar
Algjört rugl
Frumsýning milli jóla og nýárs
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýnir Algjört rugl, milli jóla og
nýárs í Iðnó. Algjört rugl er
bandarískur gamanleikur eftir
Christopher Durang. Það er hæð-
in satíra á velferðarþjóðfélagið
og yfirborðsmennskuna á okkar
síðustu og bestu „tímaritatím-
um“, tímum glansmynda og
gerviþarfa, grátbrosleg lýsing á
nútímafólki sem leitar angistarf-
ullt að lífsfyllingu og ást (með
dyggri aðstoð léttgeggjaðra sál-
fræðinga), en nær ekki áttum og
fær ekki frið í stressaðri sál.
Bríet Héðinsdóttir er leik-
stjóri, en íslenska þýðingu hefur
Birgir Sigurðsson gert. Karl
Aspelund gerir leikmynd og bún-
inga og Lárus Björnsson sér um
lýsingu. Guðrún S. gísladóttir,
Kjartan Bergmundsson, Val-
gerður Dan, Harald G. Harlds,
Jakob Þór Einarsson og Þröstur
Leó Gunnarsson fara með hlu-
tverkin í leiknum.
ekj
Síldin er komin
íslenskur söngleikur í
Skemmunni
Söng- og gamanleikurinn Sfld-
in er komin eftir Krístinu og Ið-
unni Steinsdætur verður frum-
sýndur í Leikskemmu LR við
Meistaravelli. Þar segir frá lífinu í
litlum sfldarbæ eina sumarstund á
Þór H. Tulinius og Arnar Jónsson í
hlutverkum sínum í Kveðjuskál. Tekið
á æfingu.
sfldarárunum margfrægu þegar
allir kepptust við að safna silfri og
lifa hátt. í leikritinu er brugðið
upp mynd af fjölmörgum
skemmtilegum persónum, sfldar-
stúlkum, kjaftakellingum, bfl-
stjórum, bændum, leyni-
vínssölum, lögregluþjónum, sjó-
mönnum, skipstjórum, sfldark-
óngum, drykkjumönnum,
dyggðugum sveitastúlkum og
léttlyndum lausgirtum borgarpí-
um. Lýst er ástum, ærslum,
átökum, gleði og sorg í leik og
stafni. í plássinu er lífið með af-
brigðum fjörugt og óvænt ævint-
ýri á annarri hverri þúfu.
Leikritið er að stofni til hið
sama og verk þeirra systra Sfldin
kemur, sfldin fer, sem sýnt var af
Leikfélagi Húsavíkur og fleiri
áhugaleikfélögum úti á landi sl.
vetur. Veigamiklar breytingar
hafa þó verið gerðar á texta
verksins og nú prýðir verkið ný
frumsamin tónlist Valgeirs Guð-
jónssonar, sem einnig er höfund-
ur söngtexta. Hlíf Svavarsdóttir
og Auður Bjarnadóttir stjórna
dansi og hreyfingum og einnig
verður hljómsveit valinkunnra
hljóðfæraleikara undir stjórn Jó-
hanns G. Jóhannssonar. Þórunn
Sigurðardóttir er leikstjóri og
Sigurjón Jóhannsson gerir leik-
mynd og búninga. Mikill fjöldi
leikara, alls um 22 manns, tekur
þátt í sýningunni. Frumsýning á
Sfldinni verður 10. janúar á nýja
árinu.
ely
Þjóðleikhúsið
Vesalingarnir
Frumsýning annan dag jóla
Skáldsagan Vesalingarnir hef-
ur verið færð í búning söngleiks,
eða öllu heldur nútímaóperu. En
sagan er með víðlesnustu skáld-
verkum og margar persónur
leiksins því vel þekktar: Afbrota-
maðurinn Jean Valjean sem er á
stöðugum flótta undan fortíð-
inni, lögreglumaðurinn Javert
sem stöðugt leitar hans, hin ólán-
sama Fantine og Cosette, dóttir
hennar, uppreisnarmennirnir
ungu og hörmuleg endalok
þeirra. Sagan er í senn víðfeðm
Jakob Þór Einarsson og Þröstur Leó Gunnarsson í hlutverkum sínum. Tekið á
æfingu.
1
* ■)
.
jin.
Síldin er komin. Tekið á æfingu. Á myndinni eru: AldaArnardóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Bryndís Petra Bragadóttir, Karl Ágúst Úlfsson og Hanna María
Karlsdóttir.
þjóðfélagslýsing og glæpareyfari.
Höfundum söngleiksins, Alain
Boubil og Claude-Michel Scön-
berg, sem samdi tónlistina þykir
hafa tekist að halda aðalatriðum
til skila. Og tónlistin er kapítuli
útaf fyrir sig.
Leikstjóri Vesalingana er Ben-
edikt Árnason, en íslenska þýð-
ingu hefur Böðvar Guðmunds-
son gert. Hljómsveitarstjóri er
Snæbjörn Jónsson en Agnes
Löve æfingastjóri tónlistar og
Ingibjörg Björnsdóttir dansahöf-
undur. Karl Aspelund gerir leik-
mynd og búninga, lýsing er eftir
Pál Ragnarsson en hljóðblöndun
er verk Jonathans Dean.
Um þrjátíu leikarar koma fram
í sýningunni og leikur hver um sig
mörg hlutverk en með aðalhlut-
verkin fara Egill Ólafsson, Jó-
hann Sigurðarson, Sigrún Wa-
age, Sverrir Guðjónsson, Edda
Heiðrún Backman, Sigurður Sig-
urjónsson, Aðalsteinn Bergdal
og Lilja Þórisdóttir. Uppselt er á
fyrstu sýningar Vesalinganna.
ekj
Önnur leikhús
Leikhúslíf er með þokkalegum
blóma. Fyrir utan þær sýningar
sem hér er getið, mun Leikfélag
Akureyrar frumsýna á annan dag
jóla Pilt og stúlku, leikgerð eftir
sögu Jóns Thoroddsen. Nánar
verður gerð grein fyrir sýning-
unni síðar í Þjóðviljanum. Þá
mun P-leikhúsið frumsýna 6. jan-
úar, Heimkomuna eftir Harold
Pinter, í íslensku óperunni. Sýn-
ingar verða aðeins 20 þannig að
fólki er bent á að panta sér miða í
tíma. Leikstjóri er Andrés Sigur-
vinsson, en með helstu hlutverk
fara Róbert Arnfinnsson, Hjalti
Rögnvaldsson, Ragnheiður Árn-
ardóttir og Rúrik Haraldsson.
eih-leikhúsið sem sýnt hefur
Sögu úr dýragarðinum og tvo ein-
þáttunga eftir Tjekov, mun halda
sýningum áfram eftir áramót, í
Djúpinu við Hafnarstræti.
Egg-leikhúsið frumsýnir nýtt
íslenskt verk eftir áramót og
fréttir herma að eitthvað sé á
seyði á Galdraioftinu. ekj
Fimmtudagur 24. desember 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 5