Þjóðviljinn - 24.12.1987, Síða 6
BÆKUR
VILT ÞU GEFA
GÓÐA OG EINFALDA GJÖF?
Þetta hjartanlega plakat sem Æskulýðsfylk-
ingin gefur út kostar aðeins 300 kr., hvar sem
er á landinu.
Hafið samband við Alþýðubandalagið,
Hverfisgötu 105, sími 17500, og fáið, eða
pantið eintök.
Ath. Sendum í póstkröfu.
ÆFAB
Farmenn
Fundur um atvinnuöryggi íslenskra farmanna
verður haldinn að Borgartúni 18 mánudaginn 28.
desember og hefst kl. 14.00.
Á fundinn koma fulltrúar frá:
Sambandi íslenskra kaupskipaútgerða,
samgönguráðuneytinu og
viðskiptaráðuneytinu.
Farmenn fjölmennið á fundinn.
Skipstjórafélag íslands, Stýrimannafélag
ísiands, Vélstjórafélag íslands,
Sjómannafélag Reykjavíkur.
Ó guð vors
Meðallands
Steinunn Sigurðardóttir sendir
nú frá sér sína fjórðu Ijóðabók,
Kartöfluprinsessuna, eftir all-
nokkurt hlé, en sú síðasta, Verks-
ummerki, kom út árið 1979. f
millitíðinni hafa lesendur fengið
þá ánægju að kynnast smásögum
hennar og einni skáldsögu.
Þessi ljóðabók dregur nafn sitt
af síðasta ljóðinu í henni. Þetta er
ævintýralegur og viðfelldinn tit-
ill. Og hvað ytra útlit og lögun
varðar samsvarar Kartöfluprins-
essan sér vel. Fyrst koma sex Ijóð
undir titlinum Tvö þúsund
steinar, síðan stærsti hluti bókar-
innar og þau ljóð kallast Veðrat-
ími, þá kemur Ijóðabálkur um
bókarinnar og þau ljóð kallast
Veðratími, þá kemur ljóðabálkur
um ferðalag austur í Skaftafells-
sýslu og að lokum aftur sex ljóð.
Einsog í fyrri ljóðabókum
Steinunnar er formið fjarri því að
vera hefðbundið en á örfáum
stöðum má sjá innrím, t.d. í ljóð-
inu Heima:
...og átti þig hjá mér staðfastan
í frjósömu gólfteppi að ryksuga.
Dagur við símanrt
undir rútlugardínum.
Ég fékk skálar í aðra hönd
og hakkaði kjöt. Meðan sonur
minn ríslaði í frysti.
Innum dyrnar
flaug vindur til handa viftu.
Þau efni sem virðast Steinunni
hugleiknust eru ástin og náttúran
og hefur skemmtilegt lag á að
vefja þessu tvennu saman á ný-
stárlegan hátt, enda ekki óskylt
efni. Gott ljóð í ætt við þessa lýs-
ingu er Haustverk þar sem gang-
verk ástarmála er tekið fyrir.
Raunar eiga þær kærustur, sem
um er rætt í ljóðinu að slegnar séu
af á haustin, sér góða samsvörun í
kindum er það er ekki lakara.
Ljóð um veður eru stór hluti
bókarinnar. Þau fjalla þó ekki
einvörðungu um súld, slyddu eða
makalausa blíðu heldur fléttast
ýms önnur efni inn í: hringrás lífs-
ins, dauðinn, ástin, söknuðurinn.
Kvöldljóð í mars er t.d. einskon-
ar trúarjátning til vorsins og birt-
unnar, sbr. lokaorðin: „Ég trú á
upprisu grasanna og eilífan
sprett." Snjóflygsur er skemmti-
legt stemmningsljóð um sam-
nefndar flygsur. Áhlaup leiðir
lesandann m.a. í allan sannleik
um hvað það er sem hressir skaf-
arar raula fyrir munni sér við
vinnuna.
Myndmál Steinunnar er blæ-
brigðaríkt og sama er að segja um
málnotkun sem er frumleg og
Steinunn Sigurðardóttir
hnyttin. Um þetta vitna nokkur
dæmi:
Ég varpaði geislum
á dimman augnhimin þinn.
(Andartakið)
Þú varst ekki gœfusmiður
heldur barsmiður ólukkunnar.
(Viðskilnaður)
skuggarnir af fólkinu á snjótjaldi
(Áhlaup)
Erum við kannski
illa gerð dolla í íslenskum glugga
og sambandið einskisvert skran?
(Hvernig á að spyrja?)
Nafngiftir í bókum Steinunnar
eru alltaf jafn fyndnar og vel til
fundnar. Fyrsta ljóðið í bókinni
nefnist Burtför og einsog nafnið
gefur til kynna er fjallað um að-
skilnað og er allt á heldur drauga-
legum nótum, en samt nokkuð
notalegum sbr. viðurnefni
draugsins:
Aftur geng ég ekki, Móri rós.
Ef hins vegar það er eitthvert
innihald í sœnginni þinni
þá er efnið frá mér.
f fljótu bragði þykir mér þó
ferðabálkurinn Á suðurleið með
myndasmið og stelpu bera af
öðru góðgæti Kartöfluprinsess-
unnar. Þetta er leiðarlýsing
austur að Klaustri og dagbók um
það ferðalag. Hér komast lesend-
ur í frábæra veislu orða og mynda
og reynsla og upplifun skáldsins
af landinu vekja góð hughrif og
ánægju. Eins og oftast á þessu
landsvæði er niða þoka og dynj-
andi rigning og því tekur allt á sig
dulúðuga mynd - saga staðarins,
minningarnar, landslagið, dýrin,
presturinn, jafnvel guðsorðið
vekur nýjar og skrítnar spurning-
ar f svona veðráttu.
Þessi fjórða ljóðabók Stein-
unnar er sem sagt óaðfinnanleg
og enn betri en þær fyrri, samt
þykir mér það galli að þær skuli
hvergi nefndar, t.d. aftan á titil-
blaði. En Kartöfluprinsessan
svíkur engan.
Védís Skarphéðinsdóttir
JÓLATRÉSSKEMMTUN 1986
Félag járniðnaðarmanna
Félag bítvélavirkja
Félag blfreiðasmiða
Iðja, félag verksmiðjufólks
Nót, sveinafélag netagerðamanna
Félag blikksmiða
fyrir börn félagsmanna
og gesti þeirra, verður í
Átthagasal Hótel Sögu
annan dag jóla
kl. 14.30-17.30.
JÓLASVEINAR
KOMA í
HEIMSÓKN
Verð kr. 400.-
Miðar seldir við innganginn
FLUGMÁLASTJ ÓRN
Útboð
Flugmálastjórn óskar eftir tilboöum í 2. áfanga að
nýrri flugbraut við Egilsstaði.
Helstu magntölur:
Gröftur 100.000 rúmmetrar
Fylling 300.000 rúmmetrar
Útboðsgögn verða afhent hjá Ingólfi Arnarsyni,
umdæmisstjóra flugmálastjórnar á Egilsstaða-
flugvelli og hjá Almennu verkfræðistofunni hf.,
Fellsmúla 26, 108 Reykjavík frá og með þriðju-
deginum 29. desember n.k. gegn kr. 5000,- skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á Almennu verkfræðistofunni
hf., Fellsmúla26, Reykjavík mánudaginn 18.jan-
úar n.k. kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðend-
um sem þess óska.
Flugmálastjórn áskilur sér rétt til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.