Þjóðviljinn - 24.12.1987, Page 8

Þjóðviljinn - 24.12.1987, Page 8
JÓLAMYNDIR KVIKMYNDAHÚSANNA Pu Yi - síðasti keisarinn. Tvímælalaust merkilegasta myndin á tjaldinu þessi jólin. Grín, háski, spenna, ástirL Dustin Hoffman og Warren Beatty taka lagiö í ísthar sem sýnd er í Stjörnubíó. Þeir félagar leika frekar mislukkaða skemmtikrafta sem lenda í ýmsum mannraunum. Þeir minna á Ríó tríó, sagði kvikmyndagagnrýnandi Stöðvar 2 í þættinum 19:19. Dennis Quaid sýnir tilþrif í Undraferðinni sem Bíóhöllin sýnir. Jóiin eru tími kræsinga fyrir bíógesti, enda jafnan safaríkari myndir á matseðlum kvikmynda- húsanna en í annan tíma. Þetta árið er engin undantekning og úr mörgu er að velja; grín, spenna, hasar, dramatík - allt eftir lyst hvers og eins. Hæst ber líklega Síðasta keisa- rann (The Last Emperor), sem sýnd er í Regnboganum, eftir ít- alska leikstjórann Bernardo Bertoluccisem m.a. gerði Síðasta tangó í París. Síðasti keisarinn greinir á ep- ískan hátt frá stórbrotnu lífs- hlaupi Pu Yi, sem þriggja ára gamall varð keisari í Kína - og reyndist sá síðasti áður en komm- únistar komust til valda. Pu Yi reyndi ýmsilegt fleira en keisara- starfið; hann stundaði hið ljúfa líf Vesturlanda, gekk erinda Jap- ana, varð fangi Rússa og síðar maóista en endaði ævi sína sem garðyrkjumaður í Peking. Það þótti tíðindum sæta þegar Bertolucci fékk leyfi til að taka myndina upp í Kína, en fyrir vik- ið er Síðasti keisarinn tekinn í stórbrotnu og trúverðugu um- hverfi. Bertolucci hafði sér til fulltingis einvalalið, til dæmis kvikmyndatökumanninn Vittor- io Storaro og leikarana Peter O’Tooleog John Lone(The Year of the Dragon). Alls koma þús- undir manna fram í myndinni, sem enginn kvikmyndaunnandi ætti að láta fram hjá sér fara. Samband íslenskra námsmanna erlendis Jólafundur SÍNE Samkvæmt lögum SÍNE skal haldajólafund í Reykjavík á ári hverju í jólavikunni. Aö þessu sinni verðurfundurinn haldinn í Stúdentakjallaranum, Félagsstofnun stúdenta, mánudag- inn 28. des. kl. 20.30. Atkvæðisrétt á jólafundi hafa allir féla^smenn SÍNE. Allar deildir SÍNE eiga að sjá til þess að a.m.k. 1 fulltrúi mæti á fundinn. A fundinum verða afgreiddir styrkir til deildanna. Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál: a) Kosning fundarstjóra og fundarritara b) Reikningsyfirlit fyrir tímabilið 1. júlí til ára- móta lagt fram. c) Skýrsla stjórnar og fulltrúa SÍNE í LÍN lögð fram. d) Fréttir úr deildum um hauststarfið. e) Tillögur um árgjöld og skiptingu þeirra. f) Tillögur um lagabreytingar. Gleðileg jól! g) Tillögur til álytkunar á vorfundum. h) Tillögur til ályktunar jólafundar af- greiddar. i) Tillaga um stjórn og endurskoðendur. j) Önnur mál. Mætum ájólafundinn og skipuleggjum starf- ið framundan. Stjórn SÍNE Ríó tríó í Stjörnubíó? Áhugamenn um bíóhlátur ættu ekki að verða sviknir af jólamynd Stjörnubíós, Isthar, eftir Elaine May. Isthar segir frá tveimur ógæfulegum fírum sem ala með sér draum um að ná langt í skemmtibransanum. Þeir eru að vísu lélegir söngvarar og semja afleit lög, eru þar að auki komnir af léttasta skeiði og vegnar þess- vegna ekki sérlega vel. Þangað til þeim er boðið að skemmta í höf- uðborg arabaríkis í Norður- Afríku. Þeir félagar hitta þar undurfagurt fljóð sem er á flótta undan vondum köllum... Leikarar eru ekki af lakara tag- inu: Skemmtikraftarnir mislukk- uðu eru leiknir af þeim Dustin Hoffman og Warren Beatty, stúlkuna leikur sú gullfallega Isa- belle Adjani. Það er líka fjör í jólamynd Laugarásbíós, Stórfótur (Bigfo- ot), sem er eftir William Dear. í myndinni greinir frá samskiptum Henderson-fjölskyldunnar og ógnarstórs kafloðins flykkis sem verðurá fjallvegi þeirra Henders- ona. Stórfótur þessi verður gælu- dýr fjölskyldunnar með margvís- legum afleiðingum - fyndnum auðvitað og líka spennandi á köflum. Aðalhlutverkin leika þau John Litgow, Melinda Dillon og Don Ameche. Bíóbórgin býður uppá grín- og spennumyndina Á vaktinni (Stakeout) eftir John Badham. Þar segir frá tveimur löggum sem eiga að hafa uppi á strokufanga. Þeir vakta þessvegna hús hans heittelskuðu - með þeim afleið- ingum að önnur löggan verður ástfangin af stúlkunni. Ekki orð um það meir, en löggurnar eru hinsvegar leiknar af Richard Dreyfuss og Emilio Estevez. Ai- dan Quinn leikur glæponinn og Madeleine Stowe stúlkuna eftir- sóttu. Öll sund lokuð að tjaldabaki Hákallarnir Gene Hackman og Kevin Costner (The Untouchab- les) fara með aðalhlutverkin í jólamynd Háskólabíós, Öll sund lokuð (No Way Out) eftir Roger Donaldson. Söguþráðurinn hefst á því að sjóliðsforingi nokkur nýkominn til starfa í Pentagon fer að halda við konu varnarmálaráðherrans. Sá unir því stórilla og kálar spúsu sinni. Skuldinni er síðan skellt á uppskáldaðan sovétnjósnara í Pentagon. CIA tekur við sér - og þá kemur í Ijós að það er raun- verulegur njósnari einhversstað- ar í batteríinu... Öll sund lokuð er sannarlga þrælmögnuð og unnendur spennumynda verða ekki sviknir af henni. Það er líka spenna í Regnboga- myndinni Að tjaldabaki (The Forth Protocol) sem gerð er eftir sögu þess fræga Forsyths, sem ís- lenskir lesendur kannast mætavel við. Leyniþjónustur stórveld- anna takast á í kjölfar kjarnorku- sprengingar í óvinalandi (Banda- ríkjanna, að sjálfsögðu). Sá gamli og mistæki refur Mic- hael Caineiex með aðalhlutverk- ið. Sagan furðulega um undraferð stórkarlanna Bíóborgin er með ævintýra- jólamynd sem gerist á miðöldum. Sagan furðulega segir frá ástum þeirrar Sóleyjar og Westleys sem ógnað er af prinsinum illa innrætta, honum Humperdink. Ýmislegar skepnur, kynjaðar úr heimi ævintýra koma og við þessa sögu. Aðalhlutverkin leika þau Peter Falk, Robin Wright og Cary Elwes. Leikstjóri er Rob Reiner. Undraferðin (Inner Space) er enn ein afurð Spielbergfabrikk- unnar og flokkast sem ævintýra- og spennumynd, sem fjallar um iðnaðarnjósnir og sitthvað fleira skemmtilegt og skondið. Aðal- hlutverkin leika þau Dennis Quid, Martin Short og Meg Ryan. Leikstjóri er Joe Dante. Síðasta myndin á dagskránni er líka í Bíóhöllinni, Stórkarlar (Big Shots). Hún fjallar um unglings- pilta sem stela bfl af bflþjófum og blússa síðan suður á bóginn í föðurleit. Og hefst þá einn her- legur eltingarleikur eins og Bandaríkjamönnum einum er lagið. Þar með er upptalið það helsta af hátíðamatseðlinum þessi jólin. Verði ykkur að góðu. -hj. 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.