Þjóðviljinn - 24.12.1987, Síða 11

Þjóðviljinn - 24.12.1987, Síða 11
Hvað eru tilberar? (þjóösögum Jóns Árnasonar er tilberum svo lýst að þeir hafi veriö eins konar uppvakningar sem konur gerðu sér með galdri til þess að afla sér smjörs í búið. Þeir voru gerðir úr mannsrifi, sem skyldi vefja inn í ullarlagð. Síðan átti konan að bera rifið á milli brjóstasér, og þegar hún gekktil altaris átti hún að geyma messu- vínið í munni sér og spýta því síð- an yfir tilberann á milli brjósta sér meðan á bænahaldinu stóð. Við það lifnaði tilberinn við og varð eins og uppblásinn belgur með munn á báðum endum. Síðan gat konan sent tilberann hvert sem hún vildi, og þá helst til þess að sjúga annarra manna kýr. Hopp- aði tilberinn þá upp á malir kýr- innarog náði niðurfyrirhana beggja megin til þess að sjúga spena hennar með báðum kjöftum. Þegar hann hafði sogið hverja kúna á fætur annarri og var orðinn f ullur veltist hann heim til mömmu sinnar með því að steypast á endunum og kallaði upp er heim var komið: „Fullur beli mamma!" En hún ansaði: „Láttu lossa sonur“, og spjó hann þá í strokkinn sundurlausu smjöri. Því ersundurlaustsmjör kallað tilberasmjör. Tilberar nær- ast hins vegar af því að sjúga vörtu eða spena sem vex innan- lærs á konum þessum. Tilberasmjör má þekkja af því að sé kross gjörður í það varð það að „karmolum" sem þeyttust íallaráttir. Þær kýr sem tilberar sugu urðu næstum geldar áeftir. Ef nokkur mætti tilbera eða hindraði áform hans fór hann til móður sinnar og I ilbury ofursti sýgur innanlærisspena Guðrúnar. Senan gerist í dyngju Guðrúnar, þar sem sjá má meðal annars smjörbrúsann sem Tilbury upp um kvið hennar og sprengdi skaffar í og súkkulaöið sem Guðrún framleiðir úr tilberasmjörinu. Karl Ágúst Úlfsson leikur Tilbury og Helga Bernhard Guðrúnu. hana.Ætíðurðuþærkonursem höfðu þénustu tilberanna að hafa þá við brjóst sér þá þær tóku sakramenti og spýta messuvín- inuniðurátilberann. K ristjánFranklínMagnússemAuðunáballinu.þar T ilbury og Guðrún dansa: Karl Ágúst Úlfsson og Helga Bemhard. sem hann uppgötvar hið rétta eðli Tilbury ofursta. Fimmtudagur 24. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.