Þjóðviljinn - 24.12.1987, Side 14
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
Ályktað gegn
ísraelsmönnum
Bandarískifulltrúinn í Öryggisráðinu varfjarverandi en allir
aðrir greiddu ályktuninni atkvœði
Að bandaríska fulltrúanum
fjarvcrandi samþykkti Ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
einróma ályktun í gær þar sem
mannréttindabrot Israelsmanna
gegn Palstínumönnum á her-
numdu svæðunum eru harðlega
gagnrýnd. Einkum og sérílagi er
gagnrýninni beint gegn skotgleði
ísraelskra hermanna sem „leitt
hefur til dauða og örkumla varna-
lausra Palestínumanna.“ Fjórtán
fulltrúar greiddu ályktuninni at-
kvæði en sem fyrr segir töldu
Bandaríkjamenn ekki ástæðu til
að styggja vini sína í Jerúsalem.
Nokkur ágreiningur hafði ver-
ið um orðalag ályktunarinnar og
höfðu Bandaríkjamenn hótað að
beita neitunarvaldi gegn sam-
þykki hennar ef ísraelsstjórn yrði
fordæmd. Sem kunnugt er hafa
að minnsta kosti 22 Palestínu-
menn verið skotnir til bana á
Gazasvæðinu og vesturbakka
Jóradanár í miklum óeirðum þar
undanfarnar tvær vikur.
í ályktuninni var aðalritara
Sameinuðu þjóðanna, Javier
Perez de Cuellar, falið að fara
ofaní saumana á ástandinu á her-
teknu svæðunum og gefa síðan
Öryggisráðinu skýrslu þann
20.janúar næstkomandi. í henni
eiga að vera „tillögur um leiðir til
að tryggja Palestínumönnum ör-
yggi og vernd“ á hernámssvæð-
unum. Öryggisráðið hyggst enn-
fremur „fylgjast grannt með
gangi mála á öllum svæðum
byggðum Palestínumönnum og
öðrum aröbum sem ísraelsmenn
hertóku í stríðinu árið 1967, þar á
meðal í Jerúsalem.“ -ks.
Finnland
Koivisto
með örugga
forystu
Skoðanakannanir sem gerðar
eru meðal finnskra kjósenda
þessa dagana benda til þess að
Mauno Koivisto, núverandi for-
seti, sé næsta öruggur um endur-
kjör í forsetakosningum sem fram
fara í Finnlandi i lok janúar.
Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun, sem birtist í finnskum
blöðum á þorláksmessu, nýtur
jafnaðarmaðurinn Koivisto fylgis
55% finnskra kjósenda en það er
einu prósenti lægra hlutfall en
fyrir réttum mánuði.
Helstu andstæðingar Koivistös
eru íhaldsmaðurinn Harri Holk-
eri, sem nýtur fylgis 14% að-
spurðra, og formaður Miðflokks-
ins, Paavo Vayrynen, en hann
kemur fast á hæla hans með 13%
fylgi- þ
Bandaríkin
Hart án
reisnar
Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun í New Hampshire í
Bandaríkjunum nýtur endurreist
forsetaframboð Gary Harts ekki
þess fylgis meðal demókrata og
hið upphaflega. Forkosningar
verða í fylkinu 16. febrúar, þær
fyrstu í ríkinu og er gríðarmikil-
vægt fyrir frambjóðendur að
koma vel útúr því.
í könnuninni voru demókrat-
arnir spurðir hvort þeim þætti
trúnaður í hjónabandi mikilvæg-
ur kostur forsetaframbjóðanda
og svöruðu 72% að það þætti
þeim ekki. Fjórðungur lagði
mikið uppúr þeim málum.
Sama fólk sagðist hinsvegar lítt
trúað á Hart að 53 hundruðustu,
35% sögðust vinsamlegir fram-
bjóðandanum. Einsog kunnugt
er hætti Hart við framboð í maí
eftir að uppvíst varð um nýleg
ævintýri hans utan hjónabands,
en kastaði sér aftur í slaginn í síð-
ustu viku.
Michael Dukakis, fylkisstjóri í
Massachusetts nýtur mestrar
hylli af frambjóðendum demó-
krata samkvæmt könnuninni í
New Hampshire. Auk hans og
Harts eru í framboði Bruce
Babbitt, fylkisstjóri í Arizona,
Richard Gerhardt, fulltrúa-
deildarþingmaður frá Missouri,
Paul Simon, öldungadeildarþing-
maður frá Illinois, Albert Gore,
öldungadeildarþingmaður frá
Tennessee og svarti presturinn
Jesse Jackson. -m
Nicaragua
Árás málaliða hrundið
Ljóst er að árás Kontraliða á þrjú þorp íNicaragua var ætlað að auka hróðurþeirra í
Washington og vinnaþingmenn til stuðnings við áframhaldandi fjárstuðning
Að minnsta kosti 150 manns, 70
Kontraliðar, 30 stjórnarher-
menn og 50 almennir borgarar,
féllu í bardögum eftir árás mála-
liðanna á þrjá námabæi í Nicar-
agua, skammt frá landamærun-
um að Honduras, að sögn þar-
lendu fréttastofunnar ANN í
fyrradag.
Fréttamenn ANN tóku sér ferð
á hendur til bæjanna Siunu, Ros-
itu og Bonönzu sem Kontralið-
arnir réðust á á sunnudaginn,
degi áður en viðræður fulltrúa
þeirra og stjórnvalda í Managua
áttu að hefjast í Dóminíkanska
lýðveidinu. Að sögn þeirra voru
lík fallinna árásarseggja flutt til
aðaltorga bæjanna og höfð þar til
sýnis almenningi.
Að minnsta kosti 80 manns, að
mestum hluta almennir borgarar,
særðust í orrahríðinni áður en
stjórnarherinn fékk hrakið
Kontraliða á flótta síðla á mánu-
dag.
Fréttastofan hafði það eftir yf-
irmanni bardagasveita stjórnar-
hersins við bæina þrjá, Jose
Gonzalez, að í heild hefðu um 3
þúsund málaliðar tekið þátt í at-
lögunni, ráðist á bæina ellegar
nærliggjandi búðir stjórnarhers-
ins.
Hann sagði að árásarsveitirnar
hefðu notið fulltingis bandarískra
Stjómarhermenn í Nicaragua. Hrundu vandlega skipulagðri árás Kontraliða.
njósnaflugvéla sem hefðu marg-
sinnis flogið yfir svæðið vikuna
áður en Kontraliðarnir létu til
skarar skríða.
Einn foringja málaliðanna,
Enrique nokkur Bermudez, stað-
hæfði í viðtali við útvarpsstöð
Kontraliða að þeir hefðu farið
mikla sigurför að þessu sinni.
Sínir menn hefðu sýnt og sannað
hvers þeir væru megnugir og ein-
vörðungu ráðist á „hemaðarskot-
mörk“. Hann kvað árásarmenn
hafa eyðilagt sovéskan radar-
skerm, lagt hald á mjög margar
sovéskar vélbyssur, eldflaugar og
fleiri tegundir vopna.
Gonzalez sagði það hafa verið
markmið málaliða að ná bæjun-
um þrem á sitt vald og halda þeim
í 72 klukkustundir í því augna-
miði að hafa áhrif á umfjöllun
bandarískra þingmanna um fjár-
hagsstuðning við Kontrasveitirn-
ar og viðræðurnar í Dóminík-
anska lýðveldinu.
„En þeim mistókst þetta ætlun-
arverk sitt og nú flýja þeir í
dauðans ofboði með stjórnarher-
menn á hælunum."
Talið er að foringjar Kontra-
sveitanna hafi ákveðið að vopna-
hlésviðræðurnar færu strax út um
þúfur til að sýna Bandaríkja-
mönnum fram á að þeir væru enn
sem fyrr þurfi fyrir góðan skerf af
bandarísku almannafé. Árásinni
var ætlað að hnekkja þeim orð-
rómi að þeir væru alls ófærir um
að ná nikarönsku landssvæði á
sitt vald.
-ks.
Strætisvagnar
Reykjavíkur
um jólin
Aðfangadagur
og gamlársdagur
Ekið eins og á virkum dögum til
um kl. 13.00,enfrákl. 13tilum
kl. 17 eins og á helgidögum. Þá
lýkur akstri strætisvagna.
Jóladagur 1987 og nýársdag-
ur1988
Ekið á öllum l^iðum samkvæmt
tímaáætlun helgidaga í leiða-
bók SVR að því undanskildu að
allir vagnar hefja akstur um kl.
14.00.
Annarjóladagur
Ekið eins og á sunnudegi.
Upplýsingar í símum 12700 og
82533.
Fyrstu ferðir jóladag 1987 og
nýársdag 1988 og síðustu
ferðir á aðfangadag og gaml-
ársdag.
FYRSTU FERÐIR JÓLADAG 1987 OG NÝÁRSDAG 1988 OG SÍÐUSTU FERÐIR A
AÐFANGADAG OG GAMLÁRSDAG.
Ókeypis verður í vagnana 23.-26. des. að báðum dögum meðtöldum. Fyrstu feróir Síóustu feróir Fyrstu feróir Siðusti feróir
Leió 2 frá „öldugranda kl. 14 f 0 5 16.51 frá Skeiðarv. . 13.44 17.14
Leió 3 frá Suðurströnd kl. 14.03 17.03 frá Efstaleiti• 14.10 16.40
Leió 4 frá Holtavegi kl. 14.09 16.39 frá Ægisióu 14.02 17.02
Leið 5 frá Skeljanesi kl. 13.45 16.45 frá Sunnutorgi 14.08 16.38
Leió 6 frá Lækjartorgi kl. 13.45 16.45 frá óslandi 14.05 17.05
Leió 7 frá Lækjartorgi kl. 13.55 16.55 frá óslandi 14.09 17.09
Leió 8 frá Hlemmi 'cl. 13.53 16.53
Leið 9 frá Hlemmi kl. 14.00 17.00
Leió 10 frá Hlemmi kl. 14.05 16.35 frá Selási 14.00 16.54
Leió 11 frá Hlemmi kl. 14.00 16.30 frá Skógarseli Suðurhólum 13.49 16.49
Leió 12 frá Hlemmi kl. 14.05 16.35 frá 13.56 16.5 6
Leió 13 frá Lækjartorgi kl. 14.05 16.35 frá Vesturb. 13.56 16.56
Leió 14 frá Lækjartorgi kl. 14.05 16.35 frá Skógarseli 13.56 16.56
Leió 15A frá Lækjartorgi kl. 14.08 16.08 frá Reykjafold 14.30 16.30
Leió 17 frá Lækjartorgi kl. 14.07 17.07
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 24. desember 1987