Þjóðviljinn - 24.12.1987, Side 17

Þjóðviljinn - 24.12.1987, Side 17
ÞATJUR UM SNORRA Örkin hans Snorra Opið mót á Hótel Örk. Snoddi var það fyrsta sem mætti auganu þegar ég renndi í hlaðið að Hótel Órk. Snoddi er snjóbíll með öllum útbúnaði, nema aukaborði. Of mikil þrengsli til að spila þar bikarleik. Það var ljóst að Snorri Sturlu- son var mættur í slaginn, enda sleppti hann aldrei úr móti. Snorri fór ekki spönn frá rassi nema í Snodda, þegar bridgemót voru haldin; - Það getur brugðið til beggja átta. Mælt af biturri reynslu. Fyrir nokkrum árum höfðu Snorri og Jakob Kristinsson skráð sig í jólamót Bridgefélags Akureyrar. Þeir lögðu upp 2 dögum fyrir mót. Voru 3 daga á leiðinni. Skömmu síðar festi Snorri kaup á snjóbílnum. Ég fann Snorra í hópi spilara úr BR í horni spilasalarins. Rúberta var í gangi. Iðjuleysi var eitur í beinum Snorra. Honum féll ekki spil úr hendi. Hjördís var makker Snorra þetta skiptið. Þau voru að æfa kerfið. - Önugir þessir keppnisstjórar ef útaf bregður um kunnáttuna. Korter fyrir mót nægði, að Snorra dómi. - Getur einhver sagt mér hvað Pontíus Pílatus var lengi að þvo sér um hendurnar? Haft eftir Snorra. Snorri og Hjördís höfðu betur í bertunni. Þau tóku út með tilþrif- um: Sp. K64 Hj. AG107 Tíg. 8654 Lau. G3 Sp D32 Sp. 1085 Hj. 8654 Hj. D9 Tíg. K Tíg. G10973 Lau. 76542 Lau. D109 Sp. AG97 Hj. K32 Tíg. AD2 Lau. AK8 Með Snorra í suður og Hjördísi norður gengu sagnir. Standard (eins konar): S 2 tíglar 2 grönd pass N 2 spaðar 6 grönd (dobl) redobl SWRLUSON (Opnunin gat þýtt fjölmargt. Svarið sýndi betra hjarta en spaða og lítil spil. 2 grönd voru einum sagnhring of seint á ferð, gáfu til kynna 24-25 punkta. Val- garð Blöndal doblaði í trausti þess að eitthvað hefði eða gæti farið úrskeiðis). Utspil lauf-7, gosi drottning og ás. Næst kom nett öryggisspila- mennska: Tígulás háfaði kóng- inn. Spaðagosi út, lagt á og tekið með kóng. Þá hjartagosi á drottn- ingu og kóng. Hjarta á ás. Spaði og níunni svínað. Tveir spaða- slagir fylgdu í kjölfarið. Næst tók Snorri á laufkóng. Þvínæst svín- aði hann hjarta-7, hann hafði náð nokkuð glöggri talningu. Þegar Snorri bað loks um hjarta-10 úr blindum í 11. slag, gafst Valgarð upp. Snorri hlaut að fá 13. slaginn á lauf-8 eða tígul-2. - Úff... heyrðist í Valla. - Lá í hel... Ég vissi... HRIKAlegt. 21 punktur til okkar, tilkynnti Snorri. - Fjórfalda eða fella niður? bauð Snorri. Lýsti síðan skilmálunum. Val- garð samþykkti á augabragði. Ég heyrði að veðmálið snerist um spil 13 í fyrstu lotu. En nú var komið að mótsbyrj- un. 1. Lota. Snorri og Hjördís sátu NS á borði 4 í 1. umferð. Fyrsta spilið var hreinn toppur til þeirra. S gef- ur. Allir á: Sp. A9 Hj. A642 Tíg. K64 Lau. G974 Sp. K6 Sp. 742 Hj. D85 Hj. G107 Tíg. G103 Tíg. A987 Lau. A10862 Lau. K53 Sp. DG10853 Hj. K93 Tíg. D52 Lau. D Á flestum borðum var opnað á 2 tíglum/spöðum (veikt) á suður- spilin. En Snorri hafði haft 89 æviár til þess að safna kjarki. Opnunin varþví 1-spaði. 2-lauf Hjördísar var krafa í úttekt. 2 grönd hjá Snorra, hækkuðu í þrjú. Eins og legan var reyndust gröndin óhnekkjandi og Snorra tókst að næla í yfirslag. Út kom hjarta-8 og austur átti slaginn á tíuna, Snorri gaf níuna í. Hjartagosi til baka á kónginn. Vestur reyndi að sýna vanþókn- un sína með því að setja drottn- inguna undir. Næst kom spaða- drottning, og vestur lagði hiklaus á. Tígull úr blindum og þegar austur fór ekki upp með ás voru 10 slagir til staðar. Einu pari tókst að skrapa saman 10 slögum í spaðageimi, eftir laufás út. í 4. setu kom spil 13 á borðið. Eftir því hafði Snorri beðið eins og barn eftir aðfangadegi. Hann þreif spil sín úr hólfinu. Enginn veitti því eftirtekt að hann leit aldrei á þau. N gefur allir á: Það varð ekki aftur snúið þótt hann mundi nú að grandið... - Grandið...? Vísifingur Vest- urs benti ásakandi á hann, fannst Snorra. f huganum sá Snorri mannspilaþyrpingu á höndum Vesturs. - 16-18, upplýsti Hjördís. Vestur passaði. Snorri dæsti. Lítum á sagnseríuna: N pass 2- hjörtu 3- hjörtu 4- spaöar S 1 -grand 2- spaöar 3- spaöar allir pass Sp. D9742 Hj. G753 Tíg. K5 Lau. D9 Sp. G Sp. K86 Hj. A1042 Hj. D96 T(g. AG1074 Tíg. D983 Lau. A74 Lau 1085 Sp. A1053 Hj. K8 Tíg. 62 Lau. KG632 Tvö pöss gengu til Snorra sem spennti greipar um kort sín. Nú var komið að því að spá í spilin. Pössin bentu til þess að hann sæti með sæmileg kort. En skiptingin? Innsæið þagði þunnu hljóði. - Eitt grand, sagði Snorri hátt og snjallt. Spilarar á næstu borðum litu upp. Snorri seildist í sagnboxið. (2-hjörtu var yfirfærsla. 3- hjörtu sýndi 5-4. 3-spaðar hjá Snorra, voru bremsuför, en Hjördís átti fyrir hækkun.) Vestur var drjúga stund að finna útspil. Loks birtist tígulás. Blindur var uppörvandi og með vaxandi von fletti hann nú sínum spilum. Æ! Auðvitað átti hann að passa og freista gæfunnar í vörn. Vestur hélt áfram með tígul. Snorri greip hálmstráið: - Trompdrottningu heimtaði Snorri. Kóngur, ás og gosi. Hann gældi við að svína næst lauf-9, en sá að sér. Trompáttan yrði stór- veldi. Lauf á drottningu. Lauf til baka á kóng og ás. Enn lauf, hjarta úr borði og spilið var í höfn þegar austur fylgdi lit. Bara taka trompin og hirða tvo laufslagi. 620. - 16-18...? Hvað áttirðu eigin- lega? Vestur var fýldur. - Humm. Ég sá nú aldrei greinilega... Síðan fylgdi óljóst muldur um elli og dapra sjón. Snorri var haukfránn. En 89 æviár eru gott fylgsni. Honum er oft trúað. - Kannski þú ættir að fá þér gleraugu, stakk austur uppá. - Til hvers? ansaði Snorri. Þau skoruðu þokkalega í fram- haldinu og voru í 9. sæti eftir lot- una. Alls spiluðu 62 pör í mótinu. Ég vissi að Snorri stefndi á 4. -5. sæti; peningaverðlaun. Ferða- vinninga, flug til útlanda, mat hann einskis virði. Flughræðsla hans var alkunn. Snorri átti að baki eina flug- ferð. Flaug vestur þegar Bridge- félag ísafjarðar hélt 25 ára af- mælismót. Ég kunni fetðasöguna orðið utanað. Með hverju árinu óx hún í meðförum Snorra. Aðeins loka- setningin fékk að halda sér: - Flaugin (!) kom niður á Flat- eyri, svo það skakkaði bara ein- um firði. Slembilukka! Það hafði hent Snorra að van- meta gengi sitt í mótum með þeim afleiðingum að hann hreppti flugferð. - Maður hefur ekki alltaf lánið með sér, sagði hann þá gjarnan. - Fljúgandi kráka fær ekki neitt en sú sem er södd situr. Haft eftir Snorra. 2. Lota Fátt bar til tíðinda. Ég sá á tölv- uútskriftinni eftir umferðina að forskrift Snorra virtist geta ræst. Hann var kominn í 6. sætið. Ég rakst næst á hann á diskó- tekinu um miðnættið. Auðvitað. Snorri hafði safnað liði og græj- um og spilamennska í gangi. Undir ærandi rokktónlist við kertaljós. Það var ekki viðlit að nálgast borðið nema dansandi. Snorri var í essinu sínu. Það spil sem mesta athygli og umtal vaktií2. lotunni varpáraðí aðra hverja munnþurrku á borð- unum. Suður gefur, NS á hættu: Sp. AK1095 Hj. A83 Tíg. A95 Lau. A3 Sp. DG332 Sp. 74 Hj. 64 Hj. K Tíg. D87 Tíg. G1064 Lau. 752 Lau. KDG964 Sp. 6 Hj.DG109752 Tíg. K32 Lau.108 Á flestum bcrðum náðist þessi góða hjartaslemma. Tveir austur spilarar fundu vörnina: Eftir laufútspil, tekið á ás var tveim efstu í spaða spilað og meiri spaða (laufi kastað heima). Báðir austurspilararnir köstuðu einnig laufi hinir rólegustu, en sagnháfi trompaði. Trompdrottningu var síðan svínað af nokkru öryggi. Tapslagur á tígul var síðan óumflýjanlegur. Eitt par náði ekki að fóta sig fyrr en í 7 hjörtum; Snorri og Hjördís, frétti ég. Andstæðingar þeirra í setunni höfðu leikið þau grátt í fyrra spilinu. Svo mót- leikur Snorra var einfaldlega að vekja í fyrstu hönd, á öfugum hættum, á 4-hjörtum! 5 sekúndum seinna var Snorri orðinn sagnhafi í hjarta al- slemmu. í einhverri bók (...varla um bridge...?) stendur skrifað að eina vitræna útspilið gegn alslem- mu í lit sé tromp. Það var upphafið að láni Snorra að þessi vesturspilari átti umrædda bók. Hann spilaði út trompi. Snorri velti vöngum, kannaðist við manninn. Ef spilagyðjan HEFÐI gefið honum í trompi var eitt víst: Trompútspil hefði hann aldrei fundið. Snorri fór upp með ás. Spaðaás og spaði trompaður. Tromp á áttu. Spaðakóngur og útlitið var svart þegar austur fylgdi ekki lit, en Snorri gaf tígul í að heiman. Næst bað Snorri um laufás. Reytti síðan af sér fjölmarga trompslagi uns staðan var þessi: Sp. 10 Hj- — Tíg. A95 Lau. - Sp. D Sp,- Hj- — Hj. - Tíg. D87 Tlg. G106 Lau. - Sp,- Hj. D Tíg. K3 Lau. 10 Lau. D Vestur hafði strax fleygt laufunum með lengdarmerkingu, til þess að upplýsa stöðuna, enda sjöan ekki til stórræðanna. í reynd lagði Snorri upp á 8. slag og kvaðst fá alla slagina. Þegar trompdrottningunni er spilað í endastöðunni verður vestur að fleygja tígli. Spaðatían í blindum má þá hverfa af sviðinu og böndin berast að austri. - Ég raðaði nú tígulkónginum með hjartanu, sagði Snorri eftirá. Því trúði enginn. Líkt og fleirum spilurum gekk Snorra treglega að koma sér í háttinn. Vandi hans var að hann gat ekki fundið herbergislykilinn. Svo Snorri arkaði niður í mót- tökuna. - Má vera að ég hafi ekki feng- ið lykilinn að herberginu mínu? - Það getur hugsast, ansaði stúlkan brosandi. Snorri var efins. - Ég held þeim nú vanalega til haga. Líttu á! Snorri dró upp snjáða buddu og hvolfdi úr henni á borðið. Hótel Húsavík, Hótel Valaskjálf, Hótel Selfoss... hér er Akranes, þuldi Snorri og hrærði í lykla- hrúgunni. Snorri VAR iðinn að sækja opnu mótin. - Það eru tölvustýrðar læsing- ar hér. Stúlkan var þóttaleg. - Þú fékkst afhent gataspjald...? - Sei, sei. Snorri dró upp plast- ið. - Það hangir enginn lykill á því. Sjáðu! Snorra var fylgt til herbergis. 3. Lota - Mótslok Snorri og Hjördís náðu foryst- unni um tíma. Þegar Snorri fékk ótíðindin var hann að spila vörn- ina gegn 3 gröndum austurs: Sp. A7 Hj. 9876 Tíg. 754 Lau. G832 Sp. G4 Sp. K109832 Hj. KG1032 Hj. A Tíg. 86 Tíg. DG103 Lau. KD54 Sp. D65 Hj. D54 Tíg. AK92 Lau. 976 Lau. A10 Snorri sat í suður og valdi laufútspil. Austur fékk á tíu og spilaði spaða. Snorri fór upp með spaða og hélt áfram laufsókninni. Spaðakóngur kom næst og Hjör- dís skipti nú í tígul-7, gosi og kóngur. Snorri var í þann veginn að spila sig út á hjarta, þegar... - Þú ert bara orðinn efstur! ... heyrist að baki. Snorri sá að sér í tíma; tók á tígulás og spilaði áfram tígli. 600 gaf afleita skor. Allir í 3 eða fjór- um spöðum. 9 slagir allsstaðar. Enginn sá nokkuð athugavert. „Klippingin" í vörninni hafði þó heppnast fullkomlega. Austri er spilað inn á hjartaás (ásinn VARÐ að vera stakur). Austur hirðir spaðaslagina og fær halda slag á tíguldrottningu en suður á tvo síðustu á tígul A9. - Kannski, ef ég spila út tígli í upphafi...? Hann fékk ómælda samúð fyrir viðleitnina. Okkar lán að vera í gröndum o.s.frv. Óhnekkjandi! Það korraði í Snorra. Ekki veit ég hvort Snorri brá fleiri slíkum örvum úr mæli sín- um. Hitt er vitað að parið hafnaði í farseðlasæti í mótinu. Svo Snorra hefur bæst nýr miði í safn- ið. - Ætli það verði ekki farið að vísakorta í rúbertunni von bráð- ar? Er haft eftir Snorra. Fimmtudagur 24. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.