Þjóðviljinn - 29.12.1987, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 29.12.1987, Blaðsíða 8
Breyttir tímar kalla á í nóvember síöastliönum sat Svavar Gestsson Allsherjar- þing Sameinuöu þjóðanna í New York og sótti heim bæki- stöðvar bandaríska sjóhers- ins í Newport á Rhode Island fyrir norðan New York. Af þessutilefni átti Þjóðviljinn eftirfarandi viðtal við Svavar um stöðu alþjóðamála og af- stöðu íslands og Alþýðu- bandalagsins til mikilvægustu mála á alþjóðavettvangi. - Þetta var í annað sinn, sem ég hef sótt Allsherjarþing Sam- einuðu þjóðanna, sagði Svavar. Fyrra skiptið var 1976, og það er afar athyglisvert að fylgjast með þeirri breytingu sem hefur orðið á þessum vettvangi á rúmum ára- tug. í fyrsta lagi fjölgar aðildar- ríkjum samtakanna stöðugt: þau eru nú orðin 159, þar af tugir smáríkja, og ísland er nú komið í 65. sæti hvað varðar framlög til starfsemi Sameinuðu þjóðanna. Árið 1976 sat ég í nýlendu- nefndinni, og mörg þau lönd sem þar var fjallað um fyrir 11 árum eru nú orðnir fullgildir aðilar Sameinuðu þjóðanna. Það má hins vegar segja að þátttaka þess- ara ríkja í forystu samtakanna sé ennþá lítil. Annað sem ég varð óhjá- kvæmilega var við er það hversu Bandaríkin hafa einangrast mál- efnalega á þinginu í mörgum mál- um. Það voru tugir tillagna sem þarna voru til meðferðar, þar sem Bandaríkin voru annað hvort ein um afstöðu sína eða þá í samfloti með örfáum ríkjum eins og ísrael eða Bretlandi. Maður varð að vísu var við það 1976 að Bandaríkin voru oft einangruð, en það var afar áberandi nú hvað málflutningur bandarísku fulltrú- anna naut minnkandi virðingar og hvað minna var hlustað á þá en 1976. - H vaða málefni voru helst á dagskrá þann tíma sem þú sóttir þingið? - Ég fór út 9. nóvember og sat þingið í 3 vikur. Þau málefni sem þarna voru efst á baugi voru fyrst og fremst tillögur um afvopnun- armál, og svo málefni S-Afríku. Þá var einnig lögð fram afar at- hyglisverð. skýrsla um umhverfis- mál, sem nefnd undir forystu Gro Harlem Brundtland forsætisráð- herra Noregs hafði samið. Skýrsl- an, sem ber heitið Our Common Future - Okkar sameiginlega framtíð - er reyndar efni í sérs- taka umfjöllun, sem verður að bíða betri tíma. - Hver var nú afstaða Islensku sendinefndarinnar í þessum stóru málum? - Það var einmitt þriðja atriðið sem vakti athygli okkar íslensku fulltrúanna á þinginu að ísland hefur breytt afstöðu sinni til veigamikilla mála frá því í fyrra. Þetta vakti reyndar einnig athygli fulltrúa fjöldamargra annarra þjóða. Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra hefur breytt af- stöðu íslands til 10-12 tillagna sem liggja fyrir þinginu miðað við afstöðu þeirrar ríkisstjórnar sem hann stýrði sjálfur í fyrra. ísland gengur nú lengra í stuðningi við hvers konar afvopnunartillögur en hin Norðurlöndin í mörgum tilvikum, og það var ánægjulegt að sjá að utanríkisráðherra virð- ist nú hafa tamið sér að taka sjálfstæða afstöðu til tillagna út frá málefnum en ekki út frá hern- aðarblokkunum. Frægasta dæm- ið er tillaga Úkraínu og Tékkó- slóvakíu, sem Steingrímur studdi á grundvelli efnis tillögunnar en ekki á grundvelli þess í hvaða ríkjahópi ísland myndi lenda með afstöðu sinni. Mér fannst af- staða íslands til þessara tillagna heilbrigð og opin og í betra sam- ræmi við þá þýðu sem nú ríkir í heiminum en var á meðan Sjálf- stæðisflokkurinn fór með utan- ríkismálin. - Hvaða tillögur í afvopnunar- og friðarmálum fengu mesta um- fjöllun á þinginu? - Það var tvímælalaust tillaga Sovétríkjanna um að þingið taki til umfjöllunar og láti fram- kvæma ítarlega könnun á því hvort ekki sé mögulegt að koma á nýju alþjóðlegu öryggiskerfi er leysi hernaðarblokkirnar af hólmi. Þessi tillaga var rædd dag eftir dag í 1. nefnd, greinilega í óvild Bandaríkjanna og margra NATO-ríkja, sem telja þetta óþarfa og bera því við að hér sé ekkert nýtt á ferðinni. Það kann í sjálfu sér að vera rétt, að hér sé ekkert nýtt á ferðinni, en sú mikla umræða sem þessar tillögur fengu sýndu hins vegar greinilega að það eru Sovétríkin sem hafa frumkvæði í þessari umræðu á meðan Bandaríkin og NATO- blokkin er í varnaraðstöðu. - Setti bœtt sambúð stórveld- anna ekki svip sinn á þingið? - Jú andrúmsloftið á milli stór- veldanna Var allt mildara, og það var einnig athyglisvert að heyra að nýr tónn var kominn í mál- flutning austantjaldsríkjanna. Þar var ekki lengur spiluð sama grammófónsplatan, alla vega var búið að snúa henni við. Það er greinilega mikið að gerast á al- þjóðavettvangi, og við getum nú séð fram á nýja tíma. Ef fram heldur sem horfir, og veruleg skref verða stigin til raunveru- legrar fækkunar kjarnorku- vopna, þá munu stórveldin hafa af því sameiginlega hagsmuni að tryggja að aðrir fækki sínum kjarnorkuvopnum og að komið verði í veg fyrir að nýir aðilar eignist slík vopn. Hringurinn getur þannig farið að snúast við: í stað stöðugrar fjölgunar og aukinnar útbreiðslu þessara vopna yrði stefnan í átt til fækkunar og útrýmingar kjarn- orkuvopna. Þannig myndu stór- veldin eignast sameiginlega hagsmuni gagnvart umheiminum í ríkara mæli en nokkurn gat órað fyrir. Þetta opnar fyrir nýjum við- horfum og nýjum möguleikum, einnig fyrir okkur sem smáþjóð, og getur haft í för með sér að við þurfum að nálgast Evrópu mar- kvissara en við höfum gert til þessa. Bæði til þess að koma í veg fyrir að annað hvort stórveldið gleypi okkur - eða þau bæði sam- an - og einnig til þess að taka þátt í því að styrkja V-Evrópu al- mennt í alþjóðlegu samhengi. - Felur þetta ekki í sér að bœði Alþýðubandalagið og ísland þurfi að endurskoða afstöðu sína tilEvr- ópubandalagsins og Atlantshafs- bandalagsins? - Jú, þetta breytir óhjákvæmi- lega stöðu okkar bæði gagnvart Evrópubandalaginu og NATO, og við þurfum að meta stöðu okk- ar innan NATO og gagnvart Evr- ópubandalaginu í ljósi þessa. Með þessu er ég ekki að segja að við eigum að taka upp þá stefnu sem ítalskir kommúnistar hafa, að styðja NATO, en við þurfum að spyrja okkur þeirrar spurningar, hvað V-Evrópuríkin eigi sameiginlegt í ljósi þess að stórveldin eiga nú sameiginlegra hagsmuna að gæta á æ fleiri svið- um. Með V-Evrópu á ég ekki bara við NATO-ríkin, heldur líka Austurríki, Sviss, Svíþjóð og Finnland. Hvað varðar Evrópubanda- lagið, þá er auðvitað ljóst, að hér er enginn áhugi á aðild með þeim skilyrðum sem Rómarsáttmálinn gerir ráð fyrir. Hins vegar blasir það líka við að EFTA stendur nú mjög veikt og er að liðast í sund- ur, eins og sést best á þeim um- ræðum sem nú eiga sér stað í Austurríki um aðild að Evrópu- bandalaginu. Sömuleiðis heyrast nú aftur raddir um það í Noregi að landið eigi að ganga í Evrópu- bandalagið, þrátt fyrir úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um árið. Þessi nýja staða kallar á það að menn reyni að endurmeta alla stöðuna, og þar þurfum við ís- lendingar og Alþýðubandalagið sérstaklega að hafa frumkvæði til þess að treysta sjálfstæði okkar og koma í veg fyrir að við klemm- umst á milli stórveldablokkanna. Ef við ætlum að halda áfram að líta á heiminn með sömu forsend- um og við höfum gert síðustu 15- 20 árin verða það bara einhverjir 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.