Þjóðviljinn - 29.12.1987, Síða 14
TÓNUST
Messías og ríka fólkið
Pólýfónkórinn er þrjátíu ára.
Allir keppast við að ausa lofi á
eiganda hans og stjórnanda.
Segja menn að Ingólfur Guð-
brandsson sé merkilegur braut-
ryðjandi er gert hafi byltingu í
íslensku sönglífi. Ég tek undir
þetta. En mig langar til að bera
upp hógværa spurningu: Hefði
Ingólfur haft tök á því að reka
kórinn ef hann hefði alla ævi
þrælað sem hafnarverkamaður
fyrir smánarlaun? Nu verður sagt
að ég sé að gera lítið úr starfi
hans. En ég er ekki að gera lítið
úr neinum. Ég er aðeins að minna
á þá staðreynd, að efnalegar að-
stæður skapa að langmestu leyti
hetjur menningarinnar í þjóðfé-
laginu. Þær koma ekki úr röðum
verkalýðsins. En þetta má ekki
segja opinberlega. Allra síst á
miklum listahátíðum. Það er
þegjandi samkomulag um þá lygi
að við búum í „velferðarþjóðfé-
lagi“, þar sem allir geta notið
þeirrar menntunar er þeir óska
og gert yfirleitt allt sem hugurinn
girnist. Og yfirstéttin verður sí-
fellt frekari og ósvífnari að
tryggja forréttindi sín. Nú síðast
með söluskatti á matvælum. Allir
þurfa að borða en ríka fólkið
munar ekkert um þessa hækkun.
Það étur jafnvel enn þá meira til
að finna til máttar síns. En þetta
gerir fátæku fólki erfiðara um vik
að njóta lista og menningar.
Heimur listarinnar er greinilega
ekki talinn við þess hæfi. Lág-
launafólk á bara að vinna, éta,
sofa og ríða.
Það er reyndar skoðun mín,
sem ég sé ekki ástæðu til að þegja
yfir, að þeir menn sem raka sam-
an auði í heimi þar sem fjöl-
mennar þjóðir búa við skort og
smán, eigi að skammast sín niður
í tær og láta sem minnst á sér bera
framan í þjáningu mannkynsins.
Og má Þjóðviljinn vera stoltur af
því að enn skuli finnast menn er
halda fram þessari gamalkunnu
og alþýðlegu hugsun á síðum
blaðsins. Að rökstyðja hana hér
er of langt mál. En fróðleiksfús-
um lesendum er bent á rit Karls
nokkurs Marx er eitt sinn þótti
nokkuð áreiðanlegt vitni og
guðspjöllin er segja frá Jesú Jós-
efssyni, sem var Messías og
kenndi burgeisabreiðmennum
sinnar tíðar harða lexíu með of-
urljósum dæmisögum um allt
milli himins og jarðar. Meira að
segja um úlfalda Það komast
ekki allir í himnaríki. Sumir
verða að láta sér lynda að fara til
helvítis.
En Pólýfónkórinn flutti Messí-
j as 12. desember í Hallgríms-
1 kirkju. í efnisskrá skrifar IG
m.a.: „Sú hrifningaralda sem
Messías vakti strax í upphafi, hef-
ur síðan borist um allan hinn sið-
menntaða heim“. Hvað þýðir
þetta? Hver er hinn „siðm-
enntaði heimur“ nú á dögum? Og
hvar er þá hinn ósiðmenntaði
heimur þar sem villimennirnir
búa og baula á Messías? Ég hélt
að allur heimurinn væri orðinn
siðmenntaður. Vestræn tækni og
lífsþægindi hafa farið sigurför um
hnöttinn. Afleiðingarnar eru þær
að jörðin er að verða óbyggileg.
Hvernig verður ástandið eft
hundrað ár með sama siðmennt-
aða áframhaldi? Skrælingjar,
eins og íslendingar kölluðu
eskimóa áður fyrr, eru taldir sá
kynstofn er lifað hefur af mestri
snilld í samræmi við náttúrulegar
aðstæður. Það er menning. Það
er lífsviska. Nú eru þeir að
drekka sig í hel. Ekki er hægt að
hugsa sér meiri ómenningu en
lífshætti er stofna öllu lífi á jörð-
unni í bráða voða og leggur
heilbrigt mannlíf í rústir.
Hvað tónverk Hándels um
Messías varðar er það vafalaust
vinsælt í kristnum ríkjum Evr-
ópu, Ameríku og Ástralíu,
jafnvel í kristnu Afríku og svo í
Japan. En áreiðanlega hefur
Messías ekki vakið neina sérs-
taka hrifningaröldu í ríkjum ara-
ba eða öðrum löndum Múham-
eðs, eða þar sem hindúismi og
búddatrú stýra hugsun þjóða í
Asíu. Að ekki sé minnst á Kína.
Þessi landskikar þar sem býr
helmingur mannkynsins teljast
sennilega ekki til hins „siðmennt-
aða heims“. Slíkar ályktanir
mætti hæglega draga af orðum IG
í söngskránni. Samt ætla ég hon-
um ekki svona hrokafulla kenn-
ingu. Hann meinar eflaust ekkert
með þessu. Hann setur þetta si
svona á pappírinn í siðfágaðri
hugsanatregðu. Orð hans þýða
svo sem ekki annað en jamm og
jæja og það held ég. Én slíkur
sljóleiki hugans er jafnvel enn
ferlegri afspurnar en forhert
fyrirlitning á menningu annarra
þjóða.
En víkjum loks að flutningi
Pólýfónkórsins á Messíasi. Ég sat
á fjórða bekk frá altari, yst til
vinstri ef gengið er inn kirkjuna.
Þar var hljómburðurinn hræði-
legur. Hljómsveitin rann að
mestu út í bassaþungan mattan
hljómamökk. Kórinn var skárri
þó erfitt væri að greina eina rödd
frá annarri. Af einsöngvurum
heyrðist sæmilega sópran og ten-
ór, illa alt og bassi. Umsögn mín
um tónleikana verður því fremur
endaslepp. Þó heyrði ég ekki
annað en kór og hljómsveit væru
harla góð og stjórnandinn næði
oft fram dramatískri kynngi og
jafnvel mystískri dulúð á við-
eigandi stöðum. Og mér heyrðist
Inga Jónína Backman og Gunnar
Guðbjörnsson syngja ljómandi
vel og virðist Gunnar vera afar
efnilegur. Ég heyrði svo ekki bet-
ur en Sigríður Elliðadóttir hafi
litla og lokaða rödd sem hún
beitir þó ágætlega og loks
heyrðist mér endilega að út-
lendingurinn, William Mackie,
væri mikill fyrir sér en titrandi og
kæfður inn í sig eins og leiðinleg-
asti bassi í heimi, landi hans John
Shirley-Quirk og má mikið vera
ef Mackie hefur ekki lært af hon-
um andköfin.
Mér leiddist þarna. Það er hart
að selja fólki tónleika dýrum
dómum sem heyrast svo ekki
nema við iilan leik. Og það er
virðingarleysi við listamennina er
leggja sig alla fram. Afhverju
berja menn höfðinu við steininn?
Afhverju halda menn ekki kon-
serta í Háskólabíói þar til tónl-
eikahúsið nýja rís af grunni?
Að lokum til umhugsunar fyrir
eldvarnaeftirlitið: Hvað myndi
gerast ef heilagur andi stigi allt í
einu niður úr lofti Hallgríms-
kirkju í leiftri guðlegrar heiftar í
miðri athöfn svo kirkjugestir
tækju skelfingu lostnir til fótanna
undan því brennandi sannleiks-
ljósi? Þá mætti segja mér að fína
fólk höfuðstaðarins myndi troða
hvert öðru óþyrmilega um tær í
þeim sprettharða útgöngumarsi.
Landnám
íslensku hljóm-
sveitarinnar
En menn eru aldeilis ekki af
baki dottnir með tónleika í Hall-
grímskirkju. íslenska hljóm-
sveitin hélt þar konsert 13. des-
ember. Nú hyggst hljómsveitin
flytja íslensk verk í vetur og hefur
kallað skáld og myndlistarmenn
til verka með tónlistarmönnum.
Svo segir í efnisskrá tónleikanna:
„Þetta er upphafið að tónleika-
röð, er kynnt verður á næstu
misserum undir heitinu „Námur“
og fjallar um tiltekin brot úr ís-
landssögunni, ýmist stóratburði
eða daglegt líf, söguhetjur eða al-
múgafólk. Ljóðskáld, tónskáld
og myndlistarmenn nema þjóðar-
arfinn líkt og málm úr jörðu og
beina sjónum að honum á öld
sterkra erlendra menningará-
hrifa. Listaverkum þeirra er ætl-
að að túlka óblíða náttúru lands-
ins, og glímu mannsins við hana
og sjálfan sig“.
Flott skal það vera. Mér skilst
að ætlunin sé að varðveita öll
handrit skálda og tónhöfunda, er
við sögu koma, í eldtraustu
bankahólfi er opnast skal með
kristilegri viðhöfn árið 2000.
Þetta er gert til þess að mikilvæg-
ar heimildir um sögulega stórvið-
burði glatist ekki eins og hvert
annað óþarfa drasl. Jafnframt er
mér sagt að hraðfrysta eigi lista-
mennina og geyma þá í ís til ársins
2000 er þeir verða afþíddir með
kristilegri kærleikshlýju, svo þeir
stígi ferskir og þíðir inn í nútíðina
sem þá verður út úr fortíðinni
sem þá verður og sæki þjóðararf-
inn hnarreistir inn í framtíðina
sem þá verður engin. Og er ekki
nema von að helvítis Parísar-
skáldin yrki um sjálfumgleði tím-
ans og séu farin að snúa út úr
sjálfum sér. Hvað hefði Mircia
Éliade lærifaðir Sigurðar Páls-
sonar sagt um þetta uppátæki?
Mig minnir að sá mæti maður telji
sögudellu vestrænna þjóða hina
verstu plágu.
En tónleikar íslensku hljóm-
sveitarinnar voru bráðskemmti-
legir. Stjórnandi var auðvitað
Guðmundur Emilsson. Fyrst lék
sveitin Októ-nóv eftir Áskel
Másson. Það er kyrrlát og falleg
tónlist. Þá var frumfluttur fiðlu-
konsert eftir ungt tónskáld sem
heitir Hilmar Þórisson. Ein-
leikari var Laufey Sigurðardóttir.
Hún spilaði vel en mér fannst
hljómsveitarparturinn skemmti-
legri en hlutverk fiðlunnar í þessu
áheyrilega verki. Eftir hlé af-
hjúpaði Gunnar Örn Gunnars-
son málverk sitt Sjáðu jökulinn
maður! Ogþað varnúsjón aðsjá.
En rúsínan í pylsuendanum atti
víst að vera frumflutningur á tón-
list Þorkels Sigurbjörnssonar við
Landnámsljóð Sigurðar Páls-
sonar. Þetta var samið sérstak-
lega fyrir Kristján Jóhannsson
sem var mættur til að syngja og
taka lagið. En áður hafði skáldið
lesið ljóðið upphátt fyrir allra
augum. í því er mikið um á-
hersluendurtekningar sem því
miður hljómuðu stundum í
eyrum mér sem endurtekningarl-
ágkúra. Líkingar í ljóðinu eru
feikna skáldlegar og óvenjulegar,
en að mínu Iitla viti ekki ávallt
smekklegar. Samt er Ijóðið ekki
laust við að véra dálítið seiðandi
og duló. í það minnsta vakti það í
huga áheyrénda einhverja
stemmningu; eins konar mynd
um landnám í ósnortnu landi í
árdaga og jafnvel grun um al-
mennari táknræna merkingu.
Þetta er ekki vont ljóð en heldur
ekki afskaplega gott. Það er
svona miðlungs. Ég segi þetta allt
með fyrirvara því ég hef aðeins
heyrt ljóðið einu sinni. Fyrir nú
utan það að ég hef mjög lítið vit á
ljóðlist og botna satt að segja
ekkert í þeim leiða óvana hjá full-
orðnu og skynsömu fólki að vera
að yrkja þetta.
Tóníist Þorkels Sigurbjörns-
sonar var fyrir neðan allar hellur.
Hún minnti mig technicoloriskt
á Grand Canyon svítu Ferde
Grofé. Það verk lýsir Ameríku
ágætlega. En slíkt tónmál á ekki
við um ísland. Útlendingur
myndi halda að þetta væri ásta-
ljóðavol eftir eitthvert síðróman-
tískt tónskáld stóru landanna.
Slíkar aðfarir við lýsingu land-
náms á íslandi eru út í hött. Það
verður að kafa dýpra; reyna að
laða fram norrænan blæ, ná þeim
anda er skapað hefur þjóð-
ína í samspfli við þetta erfiða land
í norðurhöfum. Hlustið á forleiki
Jóns Leifs ísland og Endurskin úr
norðri. Þá heyrið þið hvað ég á
við. Ég er ekki að ætlast til að
tónskáldin stæli Jón Leifs. En
þeir verða að laga músík sína að
efni þeirra ljóða sem þeir setja í
tóna. Kristján söng eins og hann
ætti lífið að leysa en tókst þó ekki
að blása lífi í þetta sæta lands-
námssull. íslensk tónskáld eru
kannski of alþjóðleg. Ekki er ó-
líklegt að ef þau litu sér nær, tæk-
ist þeim fremur að skapa alþjóð-
lega þjóðlega tónlist. Ékki þjóð-
lausa alþjóðlega tónlist. Heldur
alþjóðlega þjóðlega tónlist.
Sigurður Þór Guðjónsson.
Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra
Háaleitisbraut 11-13
108 Reykjavík
Þann 24. desember var dregið í símahappdrætti
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1987.
Vinningar komu á eftirtalin númer:
Bifreið af gerðinni Volvo
91-25772
5 bifreiðar af gerðinni Nissan Sunny
97-58912
91 -37440
91-44623
96-61440
91-16570
5 bifreiðar af gerðinni Nissan Micra GL
91-38673
96-25877
91-41296
91-18108
91-35253
Staða
framkvæmdastjóra
kerfissviðs Reiknistofu bankanna er laus til um-
sóknar.
Umsóknir um stöðuna sendist forstjóra reiknisto-
funnar fyrir 1. febrúar 1988.
Vinningsnúmer í
Happdrætti
Styrktarfélags
vangefinna 1987
1. vinningur:
Audi 100 CC-bifreið nr. 29380
2. vinningur:
Bifreið að eigin vali fyrir kr. 600 þús. nr. 53063.
3. -10. vinningur:
Bifreiðar að eigin vali hver að upphæð 325 þús.:
nr. 12157 - 31241 - 39229 - 45083 - 56718 -
81279-95490-96180
Dagheimilið Laugásborg
Okkur vantar fóstrur og áhugasamt fólk til að
vinna með okkur á Laufásborg.
Upplýsingar gefur Sigrún í símum 17219 og
10045.
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
Frá Flensborgarskóla
Flensborgarskólann vantar stundakennara á
vorönn í dönsku (12 kennslustundir), latínu (6
kennslustundir) og viðskiptagreinar (12-18
kennslustundir í dagskóla og 9 kennslustundir í
öldungadeild).
Nánari upplýsingar veitir skólameistari í síma
50560.
Skólameistari
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNÞriðjudagur 29. desember 1987