Þjóðviljinn - 15.03.1988, Blaðsíða 1
Heim
Samningarnir
hérað
Ríkissáttasemjari verður að kröfum um samningaviðrœður heima í héraði.
Eftir stuttan fund ríkissátta-
semjara með samninganefnd-
um verkalýðsfélaga og atvinnu-
rekenda í Karphúsinu í gær, var
afráðið að verða við kröfum um
að samningaviðræður færu fram
úti í héraði. Samninganefndir
verkalýðsfélaganna höfðu farið
þess á leit við ríkissáttasemjara
að samningsaðilar fengju að út-
kljá sín mál heima í héraði. Um
helgina ritaði Óiafur Ragnar
Grímsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, Jóhönnu Sigurðar-
dóttur félagsmálaráðherra bréf,
þar sem hann ítrekar óskir verka-
Iýðsfélaganna og bendir á þrjár
leiðir, sem tryggt geti sem jafn-
asta samningsaðstöðu aðila vinn-
umarkaðarins.
Ríkissáttasemjari tilkvaddi í
gær þá Sigurð Eiríksson, sýslu-
mann á Eskifirði og Ásgeir Pétur
Ásgeirsson, héraðsdómara á Ak-
ureyri, til að stjórna samninga-
viðræðum atvinnurekenda og Al-
þýðusambands Austurlands og
Alþýðusambands Norðurlands,
sem fram fara á Egilsstöðum og
Akureyri. Austfirðingar hafa
þegar verið boðaðir nk.
fimmtudag á samningafund.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
í samtali við Pjóðviljann í gær, að
til þess að grundvallarreglur lýðr-
æðislegs samningsréttar væru
virtar, þyrfti að vera tryggt að
samningsaðilar sætu við sama
borð hvað- varðaði samningsað-
stöðu.Ólafur bgridir á þrjár leiðir
sem gætu tryggt sem jafnasta
samningsaðstöðu.
í fyrsta lagi er nefnt að félags-
málaráðherra komi þeim tilmæl-
um á framfæri við ríkissáttasemj-
ara að viðræður fari fram heima í
héraði. í annan stað er lagt til að
ríkissáttasemjaraembættið fái
aukafjárveitingu til að greiða
þann kostnað sem verkalýðsfélög
af landsbyggðinni óhjákvæmi-
lega bera af því að sitja til samn-
ingaborðs með atvinnurekendum
í Reykjavík. í þriðja lagi bendir
Ólafur á þann möguleika að flutt
verði frumvarp til laga sem kveði
á að ríkissáttasemjara beri að
verða við óskum um að samn-
ingaviðræður fari fram úti í hér-
aði.
Hrafnkeil A. Jónsson, formað-
ur verkalýðsfélagsins Árvakurs á
Eskifirði, sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær, að það væri
réttlætismál að verkalýðsfélögin
fengju að semja á heimavelli.
- Þetta er einn anginn af kröfum
um jafnrétti milli landsbyggðar-
innar og höfuðborgarsvæðisins.
Það er ekkert réttlæti fólgið í því
að atvinnurekendur setji leik-
reglumar í samningaviðræðum,
sagði Hrafnkell.
-rk
Sjá bréf Ólafs Ragnars til
félagsmálaráðherra og
um kröfugerð Austfirð-
inga á síðu 7
Hafísinn
Nálgast land
að nýju
Siglingfyrir Langanes
varhugaverð
Siglingaleiðin fyrir Langanes
og Melrakkasléttu er orðin var-
hugaverð í myrkri vegna stakra
jaka og spanga sem rekið hafa inn.
á siglingaleiðir en ekki hefur gef-
ið í könnunarflug vegna élja-
gangs á þessum slóðum.
Að sögn Þórs Jakobssonar
veðurfræðings hafa borist fregnir
um staka jaka inn á Þistilfirði og
Bakkaflóa og suður með. Spáð er
áframhaldandi norðanátt næstu
daga og aukast þá líkurnar á að
hafísinn færist nær landi á nýjan
leik en hann hafði fjarlægst
landið að mun frá því sem var
fyrir nokkrum vikum.
í byrjun mánaðarins, þegar
síðast var farið í ískönnunarflug
var aðalísjaðarinn í um 60 sjó-
mílna fjarlægð norður af Mel-
rakkasléttu. -grh
Austfirðingar mæta til samningaviðræðna í Reykjavík í gær. Adolf Guðmundsson, frá Seyðisfirði, og Hrafnkell A.
Jónsson, Eskifirði. Mynd Sig.
Norrœnt samstarf
Snót
Æ víðtækari
stuðningur
Eining setur
löndunarbann á
Eyjabáta. Hálfmiljón í
verkfallssjóðfrá ASÍ.
Verkalýðsfélagið Eining i Eyja-
firði hefur ákveðið að leyfa
ekki löndun fiskiskipa frá
Vestmannaeyjum á félagssvæð-
inu. Stjórn Einingar tók þessa
ákvörðun í kjölfar þess að félag-
inu barst ósk frá Snót um að fé-
lagar í Einingu ynnu ekki við að
landa afla úr Eyjabátum, meðan
á verkfalli Snótar stæði.
Verkfailssjóði Snótar bárust í
gær 500.000 krónur frá Alþýðu-
sambandinu. Á miðstjórnarfundi
ASÍ í gær var samhljóða sam-
þykkt að veita Snót fjárhags-
stuðning. Miðstjórnin skorar
jafnframt á öll aðildarfélög ASÍ
að tryggja að hvergi verði gengið
inn í störf þeirra sem í verkfalli
eru.
Á árshátíð Alþýðubanda-
lagsfélags Akureyrar á föstu-
dagskvöldið, söfnuðust 18.500
krónur í verkfallssjóð Snótar.
Þegar hefur Snót borist rúm-
lega 1,4 miiljón króna í verkfalls-
sjóð, frá stéttarfélögum, starfs-
mannahópum og einstaklingum.
Reikningsnúmer Snótar hjá
Sparisjóði Vestmannaeyja er
3811, hafi menn hug á að styðja
við bakið á fiskverkakonum í
Eyjum. —rk
Alþingi
Ovenjumargir
varamenn
16 varamenn sitja nú á aiþingi,
meira en fjórði hver hinna 63 að-
almanna er forfallaður.
Óvenju mikið hefur verið um
forföll á yfirstandandi þingi. Alls
hafa verið kallaðir inn varamenn
í 47 skiþti frá því í haust og hafa 39
menn hlaupið í skarðið fyrir þing-
mennina.
Kynjahlutföll á þingi geta
breyst með tilkomu varamanna.
Á þing voru kosnar 13 konur en
nú sitja þar 17. qj,
Norskt eldflaugaævintýii
Norrœni fjárfestingarbankinn afskrifar 320 miljón króna lán.
Norsku Kongsberg-vopnaverksmiðjurnar gjaldþrota
Ifyrirspurn Guðrúnar Helga-
dóttur á þingi Norðurlanda-
ráðs í síðustu viku kom fram að
bankinn hefur tapað sem sam-
svarar um 322 miljónum ís-
lenskra króna á viðskiptum við
Kongsberg vopnaverksmiðjurn-
ar í Noregi, en verksmiðja þessi
varð gjaldþrota á framleiðslu
eldflauga sem ekki reyndist
markaður fyrir.
Forsaga málsins er sú, sagði
Guðrún Helgadóttir í samtali við
blaðið, að Kongsberg-vopna-
verksmiðjurnar gerðu samning
við Volvo-verksmiðjurnar í Sví-
þjóð um framleiðslu á bifreiða-
hlutum, og fengu til þess lán úr
Norræna fjárfestingarbankanum
á þeim forsendum að um samnor-
rænt verkefni væri að ræða. Var
ekki farið fram á ríkisábyrgð, þar
sem Kongsberg-verksmiðjurnar
eru að mestu í ríkiseign. Síðan
gerist það að verksmiðjan tapar
miklu á eldflaugaframleiðslunni,
og var tekin til gjaldþrotaskipta.
Við þau varð Norræni fjárfesting-
arbankinn að afskrifa lán sitt til
verksmiðjunnar að upphæð 6
miljónir SDR, sem samsvarar um
322 miljónum íslenskra króna.
Þegar gjaldþrotaskiptin voru af-
staðin lagði norska ríkið hins veg-
ar fram 950 miljónir norskra
króna til þess að hægt væri að
stofna nýtt hlutafélag upp úr
gömlu verksmiðjunni.
Það kom í hlut Jóns Sigurðs-
sonar viðskiptaráðherra að svara
fyrirspurninni fyrir hönd nor-
rænu ráðherranefndarinnar, og
sagði hann að stjórn bankans
hefði ekki talið sér skylt að krefj-
ast ríkisábyrgðar í þessu tilfelli,
þar sem um ríkisfýrirtæki hafi
verið að ræða. Hins vegar væri
þetta í fyrsta skipti sem bankinn
þyrfti að afskrifa lán sín með
þessum hætti.
Guðrún Helgadóttir sagði að
fátt hefði verið um skýringar á
þessu máii frá hendi norskra
stjórnvalda, og væri því ekki ann-
að að sjá en að það hefði verið
sett á Norræna fjárfestingarbank-
ann að standa undir misheppnuð-
um tilraunum Norðmanna með
eldflaugaframleiðslu.
-ólg
Sjá viðtal við Guð-
rúnu Helgadóttur um
þing Norðurlanda-
ráðs á bls. 8