Þjóðviljinn - 15.03.1988, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 15.03.1988, Blaðsíða 15
FRÉTTIR Ekki nægir alltaf þó birta sé í lofti til að sólin nái að verma Austfirðinga því mengunin frá loðnubræðslunum angrarfólk víða á fjörðum. Þessi mynd var tekin í Neskaupstað einn blíðviðrisdaginn í síðustu viku og sést þar hvar sólin reynir að þrengja sér með geisla sína í gegnum þykkan mökkinn frá loðnubræðslunni. Fremst grillir í athafnasvæði Mána hf. og laxakvíar fyrirtækisins. Loðnufrysting Rýrt og skammvinnt Sölustjóri SH:Höfumfryst250 tonn. Sjálfhœttþar sem loðnan erfarin að leka. Sölumöguleikar á 2-3 þúsund tonnum tilJapans. Hrognafrysting hafin. Stefnt að 1650 tonnum íár á móti 9þúsund í fyrra. Verðið 25% lægra nú en þá Loðnufrysting á þessari vertíð er að mestu iokið enda er loðn- an byrjuð að hrygna. Þó verður reynt að frysta hana í bland með hængnum þar sem því verður við komið. Hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna hafa aðeins verið fryst um 250 tonn en möguleikar voru á sölu á 2-3 þúsund tonnum tii Japans. Svipaða sögu er að segja frá öðrum framleiðendum. Þykir vertíðin vera með eindæm- um rýr og skammvinn að þessu sinni. Ekki var byrjað að frysta loðnu fyrr en um síðustu mánaðamót og að sögn Helga Þórhallssonar, sölustjóra hjá SH, var ekki hægt að byrja fyrr þar sem loðnan var svo langt í burtu frá þeim stöðv- um sem ákveðið höfðu að frysta. Austfirðingarnir ákváðu snemma að frysta ekki neitt vegna þess hve verðið sem Japaninn bauð var lágt; 20-25% lægra en á síð- ustu vertíð. Vestmannaeyingar, sem hefðu að líkindum getað byrjað einna fyrstir að frysta, voru úr leik vegna yfirvofandi verkfalls Snótarkvenna sem síðar kom tH framkvæmda. Þegar loðnan var svo loksins komin að- eins nær var hún farin að leka. Þá hefur loðnan verið mjög smá. Það var ekki fyrr en um síðustu mánaðamót, þegar séð var hvert stefndi, að Japaninn tók við sér og gaf grænt ljós á frystingu, en þá var það of seint til að hægt væri að frysta eitthvað að ráði. Helgi sagði að stefnt væri að frysta því að um 400 tonn af hæng og þegar er byrjað að frysta loðn- uhrogn á fullu í Neskaupstað. Gert er ráð fyrir að hús innan SH frysti 1650 tonn af hrognum að þessu sinni, en í fyrra voru 9 þús- und tonn fryst. Samdrátturinn í ár stafar af mikilli birgðasöfnun í Japan ásamt því að verðið sem fæst fyrir hrognin eru unt 25% lægra en í fyrra. Helgi sagði það vera borðliggj- andi að vinnslustöðvarnar riðu ekki feitum hesti frá loðnufryst- ingunni í ár né þjóðarbúið í heild. Hann vildi samt ekki segja hve tapið væri mikið, en ljóst væri að það væri geysimikið. -grh „Völlurinn“ Dátar aftur í hliðin Ákveðið hefur verið að banda- rískir dátar hafi á nýjan leik hálf- an veg og vanda af hliðvörslu á Keflavíkurflugvelli frá og með næsta mánudegi. Dátarnir starfa við hlið íslenskra lögreglumanna og mun lögreglustjórinn á Kefla- víkurflugvelli hafa hönd í bagga með framkvæmdinni eins og áður, enda verður gæslan í fullu samræmi við „varnarsamning- inn“ frá 1951. Undanfarin ár hafa aðeins ís- lenskir lögreglumenn staðið vaktir í hliðunum. Með fullum aðskilnaði utanlandsflugs og um- svifa hersins sem varð í kjölfar tilkomu „Leifsstöðvar", er dát- Vinningstölurnar 12. mars 1988 Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.731.238.- 1. vinningur var kr. 2.369.330.-. Þar sem enginn fékk fyrsta vinning, færist hann yfir á fyrsta vinning í næsta útdrætti. 2. vinningur var kr. 709.280.- og skiptist hann á 220 vinningshafa, kr. 3.224,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.652.628.- og skiptist á 6718 vinningshafa, sem fá 246 krónur hver. Tvöfaldur 1. vinningur laugardaginn 19. mars 1988. Upplýsingasími: 685111 unum heimilt að snúa aftur í hlið- in. Tæpast þarf að geta þess að umráðasvæði hersins verður lok- að öllum þeim sem ekki geta fært fyrir því sönnur að þeir eigi þang- að brýnt erindi. _rk Þriðjudagur 15. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 efélag t^far' Félagsfundur Haldinn verður áríðandi félagsfundur í Sóknar- salnum, Skipholti 50a, miðvikudaginn 16. mars n.k. kl. 17. Dagskrá: 1. Samningamálin. 2. Önnur mál. Stjórn FBM K2CN Aðalfundir félagsdeilda KRON verða sem hér segir: Dagskrá skv. félagslögum ásamt umræðum um sameiningu KRON og Kaupfélags Hafnfirðinga. 1. deild Mánudagur 21. mars kl. 20.30. Fundarstaður: Hamragarðar, Hávallagötu 24. Félagssvæði deildar 1: Seltjarnarnes, vesturbær og miðbær, vestan Snorrabrautar. Auk þess Hafnarfjörður. 2. og 3. deild Þriðjudagur 22. mars kl. 20.30. Fundarstaður: í kaffistofu Afurðasölu Sam- bandsins, Kirkjusandi. Félagssvæði 2. deildar: Hlíðarnar, Háaleitis- hverfi, Múlahverfi, Túnin og Norðurmýri. Auk þess Suðurland og Vestmannaeyjar. Félagssvæði 3. deildar: Laugarneshverfi, Kleppsholt, Heima- og Vogahverfi. Auk þess Vesturland og Vestfirðir. 6. deild Miðvikudagur 23. mars kl. 21.00. Fundarstaður: Þinghóll, Hamraborg 11, Kópa- vogi. Félagssvæði 6. deildar: Kópavogur, Garðabær og Suðurnes. 4. og 5. deiid Fimmtudagur 24. mars kl. 20.30. Fundarstaður: Kaffistofa á þriðju hæð í Kaupstað í Mjódd. félagssvæði 4. deildar: Smáíbúðahverfi, Gerðin, Fossvogur, Blesugróf, neðra Breiðholt og Selja- hverfi. Auk þess Norðurland og Austurland. Félagssvæði 5. deildar: Efra Breiðholt, Árbær, Ártúnsholt og Grafarvogur. Auk þess Mosfells- sveit og Kjalarnes. Frá menntamálaráðuneytinu Lausar stöður við grunnskóla. Umsóknarfrestur til 8. apríl. Stöður grunnskólakennara við grunnskóla Reykjavíkur. Austurlandsumdæmi: Stöður skólastjóra við grunnskólana Bakkafirði, Eiðum, Geithellnahreppi, Mýrahreppi og Hofgarði. Stöður grunnskólakennara við grunnskólana Egilsstöðum, Borgar- firði eystra, Bakkafirði, Hallormsstað, Eiðum, Reyðarfirði, Fá- skrúðsfirði, Stöðvarfirði, Breiðdalsvík, Mýrahreppi, Seyðisfirði, meðal kennslugreina hand- og myndmennt, tónmennt, íþróttir og sérkennsla, Eskifirði, meðal kennslugreina íslenska, danska, íþrótt- ir, raungreinar og tungumál, Djúpavogi, meðal kennslugreina íþrótt- ir, Höfn, meðal kennslugreina enska, íþróttir, heimilisfræði og sér- kennsla, Hrollaugsstaðaskóla, Nesjaskóla, Fellaskóla, Skjöldólfs- staðaskóla og Brúarásskóla, meðal kennslugreina líffræði, raun- greinar og handmennt. Vesturlandsumdæmi: Stöður grunnskólakennara við grunnskólana Akranesi, meðal kennslugreina tónmennt, myndmennt, sérkennsla og kennsla yngri barna, Olafsvík, meðal kennslugreina íþróttir, Stykkishólmi, meðal kennslugreina enska og danska, Hellissandi, meðal kennslugreina handmennt, Eyrarsveit, meðal kennslugreina enska, danska, ís- lenska, handmennt og raungreinar, Heiðarskóla, meðal kennslu- greina tungumál og mynd- og handmennt, Varmalandsskóla, með- al kennslugreina enska og líffræði, Laugargerðisskóla, meðal kennslugreina tungumál og Laugaskóla, meðal kennslugreina tungumál, hand- og myndmennt, iþróttir og tónmennt. Menntamálaráðuneytið

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.