Þjóðviljinn - 15.03.1988, Page 9
Alþingi
Bjórinn
ekki einkamál
neytenda
Unnur Sólrún Bragadóttir varaþingmaður Austfirðinga
andmœlti sölu á sterkum bjór í jómfrúrœðu sinni
Unnur Sólrún Bragadóttir,
varamaður Hjörleifs Guttorms-
sonar, sat í fyrsta sinn á þingi um
síðastliðin mánaðamót. Föstu-
daginn 3. febrúar maelti hún fyrir
þingsályktunartillögu sinni um að
þingmönnum verði gert skylt að
starfa a.m.k. tvær vikur á ári við
aimenn framleiðslu- og þjónust-
ustörf. En daginn áður tók hún
þátt í umræðum um bjórmál og
hélt þá sína jómfrúræðu á al-
þingi.
Það var aldrei ætlun mín, að
koma með innlegg í bjórmálið
svokallaða en ég tel þó að hjá því
verði ekki komist og því örfá orð.
Ég er á móti frumvarpinu og
ætla að rökstyðja það lítillega í
þeirri von að það komi málstaðn-
um að gagni.
í fyrsta lagi þá ofbýður mér
umstangið vegna málsins á hinu
háa Alþingi. Mér finnst þessum
mikla tíma illa varið og eins og
svo margir aðrir hef ég fengið á
tilfinninguna, að það sé sannast
sagna ekkert þessu máli merki-
legra að mati fjölmiðla. Ég tel
hinu háa Alþingi skylt af afgreiða
þetta mál með hraði á hvorn veg-
inn sem svo niðurstaðan verður.
Það hvarflaði að mér, hvort
það væri með vilja gert að hafa
bjórmálið á dagskrá núna, þegar
kjaramálin eru í brennidepli,
hvort þessi umræða eigi að beina
athygli almennings og fjölmiðla
frá því sem er að gerast.
Einhverjir munu hrista höfuð-
ið og segja sem svo: Hvað er hún
nú að rugla? Kjaramálin koma
hinu háa Alþingi ekkert við, hvað
þá bjórnum. Þau eru vandamál
verkalýðshreyfingarinnar og at-
vinnurekenda. En mér er spurn,
eru ekki gengisfellingar inngrip í
kjaramál eða afnám vísitölubind-
ingar? Hvað með matarskattinn
svokallaða? Eða hefur ekki aukin
áfengisneysla áhrif á kjör alltof
margra? Eru markmið stjórn-
enda þessa lands ekki æði augljós
og stefnumarkandi í kjaramálum
þegar allar hækkanir eru frjálsar
nema launahækkanir? Og í ljósi
yfirstandandi efnahagsaðgerða,
ætli einhver hlakki ekki til að fá
bjórpeninga í ríkiskassann?
Ríkisrekinn
okurlánamarkaður
Ég ætla að taka undir ályktun
formannafundar aðildarfélaga
Alþýðusambands Austurlands,
en þar segir, með leyfi forseta:
„Aðgerðir ríkisstjórnarinnar
„Það hvarflaði að
mér hvortþað vœri
með vilja gert að
hafa bjórmálið á
dagskrá núna
þegar kjaramálin
eru í brennidepli,
hvortþessi
umrœða eigi að
beina athygli
almennings og
fjölmiðlafrá því
sem þar er að
gerast. “
hafa miðað markvisst að því að
gera hina ríku ríkari og hina fá-
tæku fátækari, stjórnlaust brask
með fjármagn hefur ofurselt hús-
byggjendur ríkisreknum okur-
lánamarkaði með þeim afleiðing-
um að raunverulegum öreigum
fjölgar með hverri vikunni sem
líður“. Tilvitnun lýkur. Þeir hjá
Alþýðusambandi Austurlands
sjá sem sagt næg önnur verkefni
É'rir hið háa Alþingi en bjórinn.
Ég vil enn fremur minnast hér á
bréf sem mér var að berast frá
Kvenfélaginu á Breiðdalsvík, þar
sem háttvirtir þingmenn eru
hvattir til að fella bjórfrumvarpið
og beita kröftum sínum og áhrif-
um til að bæta atvinnuástand, en
þar var einmitt verið að segja upp
öllu starfsfólki frystihússins.
Nei. í stað þess að taka á þeim
alvarlegu vandamálum sem blasa
við þorra launafólks í dag, þá er
ótrúlega miklum tíma þingsins
eytt í að fjalla um leyfi eða ekki
leyfi til bjórsölu, og það ekki í
fyrsta skipti. Þetta er að verða
fast aðalstykki á hinu háa Al-
þingi.
I annan stað finnst mér ólykt af
bjórmálinu. Þar á ég við alla þá
fjársterku sem bíða í ofvæni eftir
jákvæðu svari frá hinu háa Al-
þingi og þá miklu fjárhagslegu
hagsmuni sem í húfi eru hjá
mörgum. Bjór er bara enn ein
tegund áfengis, sem mér finnst
satt að segja nóg af í samfélaginu
fyrir. Það eru nú þegar svo margir
sem eiga um sárt að binda vegna
áfengis og ekki á það bætandi. En
þegar gróðinn er annars vegar þá
er það hann sem skiptir máli fyrst
og síðast en ekki hagsmunir og
velferð fólks, það höfum við
margreynt. Einhverjir munu þá
fullyrða að þarna sem annars
staðar munum við sameina gróð-
asjónarmiðið og vilja meirihluta
þjóðarinnar. En ég veit að meiri-
hluti þjóðarinnar vill einnig svo
margt annað brýnna, heilnæmara
og jákvæðara, og tel ég að hinu
háa Alþingi beri að taka fyrst á
slíkum málum.
Önnur mikilvægari
jafnréttismál
Um jafnréttistal og tvískinn-
ung í sambandi við neyslu bjórs
hér á landi, þ.e. að sumir getinú
þegar neytt bjórs en aðrir ekki,
þá vil ég bara segja þetta: Ef mis-
réttið í samfélaginu fer svona
fyrir brjóstið á sumum háttvirtum
þingmönnum, þá ættu þeir frekar
að einbeita sér að öðru mikilvæ-
gari jafnréttismálum, t.d.
launamisréttinu í landinu, máli
sem ótrívæður meirihluti fólks
vill að tekið verði á og mundi
gjörbreyta andrúmsloftinu í
samfélaginu og lífi fjölda fólks til
betri vegar. Á hinn bóginn tel ég
að bjór sé bannaður þá eigi hann
að vera það í orðsins fyllstu merk-
ingu.
Þó nokkrir meðmælendur
bjórs rökstyðja skoðun sína
þannig að fólk eigi að geta valið,
hverjum og einum eigi að vera
frjálst að kaupa bjór ef hann vilji.
En áfengisneysla er ekki einka-
mál neytandans og við megum
ekki gleyma því að eitt helsta
hlutverk Alþingis er að setja
samfélaginu reglur og verða þing-
menn að treysta sér til þess.
Ég er líka sannfærð um að
drykkja mundi færast í yngri
aldurshópa, þ.e. að yngri börn
mundu drekka bjór. Ég er líka
sannfærð um að áfengi yrði mun
ríkari þáttur í félagslífi unglinga.
Bjórneysla er litin öðrum augum
en neysla annarra áfengistegunda
og þætti mörgum ekkert tiltöku-
mál þó unglingar sætu yfir bjór í
góðum félagsskap eða þeir sæjust
með bjórdollur á almannafæri.
Ég þekki nokkra sem eru það
sem kallað er hófdrykkjumenn
en fullyrða að ef bjórinn væri til
staðar þá mundi drykkja þeirra
tvímælalaust aukast.
Þess vegna segjast þeir vera á
móti bjór. Ég þekki einnig fjölda
fólks sem er æstir fylgismenn
bjórs vegna þess að með bjórnum
sjá þeir ný tækifæri til neyslu
áfengis sem félli innan siðferðis-
ramma samfélagsins. Þeim þætti
gott að fá sér bj ór í kaffitímanum,
einn þegar heim er komið að erf-
iðum vinnudegi loknum (eins
konar verðlaun), með kvöld-
matnum er jú kjörið að fá sér
einn og víst verður sjónvarps-
kvöldið huggulegra með bjór-
kollu í hönd. Þá er nú ekki dóna-
legt að hafa bjór að bjóða gest-
um, en þó væri hann líklega al-
bestur í timburmönnum. Og hver
veit nema það kæmi lítið bjór-
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Frá grunnskólum
Reykjavíkur
Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem fædd eru
á árinu 1982) fer fram í skólum borgarinnar miö-
vikudaginn 16. og fimmtudaginn 17. mars n.k. kl.
15-17 báöa dagana.
Þaö er mjög áríöandi að foreldrar láti innrita börn-
in á þessum tilgreinda tíma eigi þau aö stunda
forskólanám næsta vetur.
horn í kaffistofu hins háa Alþing- lifrarsjúkdómum svo sem lifrar-
is. Þá þyrfti ekki að stofna til op- krabbameim og skorpuhfur er
inberra veisluhalda tii að komast minni.
í veigamar. I sjálfu sér sætti ég mig við af-
Það má minna á að Alþjóða- stöðu þeirra þingmanna sem eru
heilbrigðismálastofnunin hefur fylgjandi bjórfrumvarpinu og
nýlega ráðlagt að til þess að segja að það geri ekkert til þó
minnka heildar áfengisnotkun þá áfengisneysla aukist, þeirra af-
eigi að beita áfengispólitík Is- staða byggist á rökum. En að
lendinga, þ.e. að selja áfengi á fylgja bjórfrumvarpinu og halda
fáum útsölustöðum, hafa það því fram að bjórinn muni engin
dýrt og banna bjór. Það væri svo áhrif hafa á alkóhólneyslu lands-
aldeilis kaldhæðni örlaganna ef manna ef dómgreindarskortur og
hið háa Alþingi samþykkti yfir má líkja við afneitunartímabil
okkur bjórinn á sama tíma og alkóhólista,þarsemfyrsterdreg-
forseti Alþjóðaheilbrigðisstofn- in niðurstaða og síðan búin til rök
unarinnar boðar stefnu íslend- til að undirbyggja hann.
inga í fyrirbyggjandi aðgerðum í Herra forseti. Égætla mér ekki
heilbrigðismálum. í framhaldi af að tíunda hér þau læknisfræði-
því væri fróðlegt að fá að heyra legu rök sem mæla gegn aukinni
afstöðu hæstvirts heilbrigðisráð- neyslu áfengis, eða neyslu þess
herra til bjórfrumvarpsins. yfir höfuð, en höfða til skynsemi
Að síðustu er það sannað að háttavirtra þingmanna og skora á
það er skárra að drekka í slurkum hið háa Alþingi að fella þetta
en að vera sísuplandi. Áhættan á frumvarp hið fyrsta.
Frá skólaskrifstofu
Reykjavíkur
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem
þurfa aö flytjast milli skóla fyrir næsta vetur fer
fram í Skólaskrifstofu Reykjavíkur, Tjarnargötu
12, sími 28544, miðvikudaginn 16. og
fimmtudaginn 17. mars n.k. kl. 10-15 báöa dag-
ana.
Þetta gildir um þá nemendur, sem flytjast til
Reykjavíkur eöa úr borginni, koma úr einka-
skólum eöa þurfa að skipta um skóla vegna
breytinga á búsetu innan borgarinnar.
Þaö er mjög áríðandi vegna nauðsynlegrar
skipulagningar og undirbúningsvinnu að öll börn
og unglingar sem svo er ástatt um verði skráö á
ofangreindum tíma.
Þá nemendahópa, sem flytjast í heild milli skóla,
þarf ekki að innrita.