Þjóðviljinn - 16.03.1988, Síða 2
Erla ívarsdóttir
skvísa:
Já. Maður les bara blaðið. Það er
nú fátt einfaldara.
—SPURNINGIN—
Myndir þú treysta þér til
að fylla út tjónstilkynn-
ingu ef þú lentir í óhappi
núna?
Sveinn Árnason
rafvirki:
Ég! Nei, ætli ég myndi ekki leita til
lögreglunnar. Ég er ekki með
skýrslu í bílnum einu sinni.
Dóra Guðmundsdóttir
afgreiðslumaður:
Nei, ég þarf að læra það. Annars
vil ég bara ekki lenda í neinu tjóni.
Ósk Róbertsdóttir
skrifstofumaður:
Já, ég hugsa það.
Jón Margeirsson
skjalavörður:
Ég er nú ekki með bílpróf svo það
er ástæðulaust fyrir mig. Ef ég
þyrfti þess þá myndi ég treysta
mér fyllilega til þess.
FRÉTTIR
tsafjörður
Draumur að rætast
Byrjað á nýju íþróttahúsi í vor. Tilbúið 1992. Heildar-
kostnaður 100 milljónir. Löglegur keppnisvöllur 46x29 metrar
Ivor verður byrjað að steypa
upp fyrir nýju íþróttahúsi á Isa-
firði á Torfnesi. Það verður
15.300 rúmmetrar að stærð og
keppnisvöllurinn verður 46x29
metrar. Heildarkostnaður við
byggingu hússins er áætiaður um
100 milljónir króna og ráðgert er
að það verði tilbúið 1992.
Nýlega voru opnuð tilboð í
uppsteypu hússins og var Rör-
verk hf. á ísafirði hlutskarpast og
bauð tæpar 43 milljónir í verkið
sem var um 85,6% af áætluðum
kostnaði sem hljóðaði uppá rúm-
ar 50 milljónir króna. Með til-
komu íþróttahússins verður brot-
ið blað í sögu inniíþrótta á ísafirði
þar sem bæjarbúar hafa ekki get-
að tekið þátt í hefðbundnum
keppnisíþróttum innanhúss
vegna aðstöðuleysis. Núverandi
íþróttahús var tekið í noktun rétt
eftir síðari heimsstyrjöld og fyrir
löngu orðið allt of lítið enda er
gólfflötur þess aðeins 16 og 2/3 m
að stærð.
Að sögn Stefáns Brynjólfs-
sonar byggingarfulltrúa hjá ísa-
fjarðarbæ hefur ríkið skuldbund-
ið sig að greiða 60% af byggingar-
kostnaðinum á móti 40% af hálfu
bæjarins og þá miðað við 100
milljón króna byggingarkostnað.
Ef hann verður aftur á móti hærri
kemur sú kostnaðaraukning á
reikning bæjarsjóðs en ef hann
verður minni þá minnkar kostn-
aðarhlutdeild bæjarsjóðs sem því
nemur.
Hafsteinn Sigurðsson, íþrótta-
og æskulýðsfulltrúi sagði að þetta
nýja íþróttahús væri tímamóta-
viðburður meðal bæjarbúa og ef
allt gengi eftir áætlun yrði jafnvel
hægt að taka keppnissalinn í
noktun eftir þrjú ár eða 1991.
-grh
Norræna húsið
Tonleikar
í hádeginu
Tónlistarmennirnir Sverrir
Guðjónsson kontra-tenór og
Snorri Örn Snorrason lútuleikari
flytja erlend og innlend þjóðlög á
áttundu háskólatónleikunum sem
verða haldnir í hádeginu í dag í
Norræna húsinu.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30
en þeir Sverrir og Snorri ætla að
flytja ensk, þýsk, spönsk, og ít-
ölsk lög frá endurreisnartíma-
bilinu og einnig þrjú íslensk þjóð-
lög.
Snorri Örn Snorrason t.v. og Sverrir Guðjónsson æfa sig fyrir tónleikana í hádeginu í dag.
Skákmót IBM
Ferðastyririr og töfl til siguivegara
Asunnudaginn lauk fjölmenn-
asta skákmóti er haldið hefur
verið hér á landi. Keppendurnir
485 voru allir yngri en 16 ára og
hlutu 6 efstu menn í hverjum
aldursflokki verðlaun fyrir
frammitöðuna.
Tefldar voru 9 umferðir eftir
Monrad-kerfi á þremur dögum. í
flokki 13-16 ára teflu 119 og þar
sigraði Hannes Hlífar Stefáns-
son, heimsmeistari unglinga.
Hlaut hann 9 vinninga af 9 mögu-
legum. í 2. sæti varð Héðinn
Steingrímsson með 71/2 vinning
en í 3.-6. sæti voru verðlaunahaf-
ar með 7 vinninga. Verðlaun fyrir
þrjú efstu sætin voru fararstyrkur
á mót erlendis en hinir hlutu
vöruúttekt í Skákhúsinu að
launum fyrir góða frammisöðu.
í flokki 10-12 ára voru flestir
þáttakendur eða 199. Þar sigraði
Helgi Áss Grétarsson og hlaut
hann 9 vinninga. í 2. sæti varð
Magnús Örn Úlfarsson með 8
vinninga, en aðrir vinningshafa
voru allir með 7 vinninga.
í flokki skákmanna yngri en 9
ára kepptu 167. Arnar Gunnars-
son bar sigur úr bým með 81/2
vinning. í 2.-4. sæti urðuPéturÓ.
Sigurðsson, Bergsteinn Ó. Ein-
arsson og Jóel Karl Friðriksson,
allir með 71/2 vinning. í yngri
flokkunum fengu keppendur tafl
og taflborð að sigurlaunum.
Ólafur H. Ólafsson skákstjóri
mótsins, sagði að sigur efstu
manna í hverjum flokki hefði
ekki komið á óvart. Sigurvegar-
arnir í yngri flokkunum hefðu
t.d. báðir keppt fyrir íslands
hönd á Norðurlandamótinu í
skák og væru þeir efnilegir skák-
menn. Ólafur sagði að nokkuð
hefði verið um að áhugasamir
skákmenn hefðu komið utan af
landi til að taka þátt í mótinu og
meðal sigurvegara var einn Bol-
víkingur og 2 Akureyringar. mj
Kjaramál
Engar launahækkanir
Málefnanefnd Þjóðarflokksins lítur svo á að heinar launahœkkanir séu ekki til
góðs við núverandi ástand heldur þurfi að leiðrétta lánskjaravísitöluna
Málefnanefnd Þjóðarflokksins
lítur svo á að „fólk í kjara-
baráttu“ skuli ekki krefjast
launahækkana í krónum heldur
lækkunar á daglegum rekstrar-
vörum og tilkostnaði heimilanna.
Þetta kemur fram í sérstakri á-
lyktun sem nefndin hefur sent
öllum fjölmiðlum. Þar kemur
einnig fram að leiðin að þessu
markmiði sé lækkun lánskjara-
vísitölunnar. Reiknuð skuli til
baka of mikil hækkun undan-
farinna ára og lánskjör að lokum
bundin við gjaldeyrisvog Seðla-
bankans. „Þessi aðgerð hefði
tvennt í för með sér. I fyrsta lagi
mundi þetta lækka fjármagns-
kostnað atvinnuveganna og um
leið gera þeim kleift að þola
lækkun þá sem ,.nauðsynlegt“ er
að framkvæma. I öðru lagi mundi
þetta virka sem veruleg kjarabót
fyrir mikinn þorra launafólks þar
sem fj ármagnskostnaður skulda
þess yrði reiknaður af „réttri“
upphæð höfuðstóls“, segir f á-
lyktuninni.
Málefnanefndin bendir aukin
heldur á að fjármagnsaustur í
óarðbærar framkvæmdir eins og
verslunar- og þjónustuhallir
komi niður á öllum þjóðfélags-
þegnum og því væri viturlegra að
verja því til uppbyggingar og þró-
unar atvinnuveganna. _ tt
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN