Þjóðviljinn - 16.03.1988, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 16.03.1988, Blaðsíða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 Miðvikudagur 16. mars 1988 62. tölublað 53. örgangur Sparisjóösvextir á téKKareiKninga meö hávaxtaKjörum SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF r Atvinnuleysi án atvmnu Atvinnuleysisdagar í febrúar voru skráðir rúmlega 17 þúsund og að meðaltali voru tæplega 800 manns án atvinnu í mánuðinum. Frá yfirliti um atvinnuástand frá Vinnumálaskrifstofu fé- lagsmálaráðuneytisins kemur einnig fram að skráðum atvinnu- leysisdögum hefur fækkað um 5200 frá því í janúar og atvinnu- lausum um 240. Ef hinsvegar er litið á þróunina frá því í febrúar á síðasta ári kemur fram að at- vinnuleysisdögum hefur fjölgað um 3 þúsund milli ára en það er fjölgun upp á um 21%. Þessa aukningu skráðs atvinnuleysis milli ára má að mestu rekja til stöðvunar eða samdráttar í fisk- vinnslu en einnig til samdráttar í iðnaði einkum ullariðnaði og fatagerð. tt Gámafiskur Verðfallið vemlegt Gámavinir sf. í Vestmannaeyjum: Astœðan aukið framboð héðan oggóð aflabrögð íNorðursjó. Neyðarbrauð að sendafiskinn óunninn á erlendan markað. 2-300 tonn af gámafiski frá Eyjum á viku Samkvæmt nýjustu upplýsing- um frá Englandi sýnist mér á öllu að verulegt verðfall hafi orð- ið á gámafiskinum sem héðan fór sl. fimmtudag. Ástæðan er fyrst og fremst aukið framboð bæði héðan, og þá hefur fiskast vel í Norðursjónum, sagði Jóhannes Kristinsson, hjá Gámavinum sf. í Vestmannaeyjum við Þjóðvilj- ann. Að sögn Jóhannesar hafa farið á viku hverri um 200-300 tonn af fiski frá Vestmannaeyjum í gám- um til Englands. Verðið fyrir fiskinn hefur hingað til verið ágætt en í gær bárust þær fréttir að verulegt verðfall hafi orðið á farminum sem fór í síðustu viku. Sem dæmi hefur stórþorskur hangið í 70-80 krónum kílóið en fór niður í 54-55 krónur í gær. 2 kflóa þorskur fór á 42-43. Verð á ýsu datt niður í 65 krónur kflóið en hefur haldið sér í allt að 85-90 krónum. „Það er neyðarbrauð að sjálf- sögðu að senda óunninn fisk héð- an á markaði erlendis, en á með- an ekki er hægt að vinna fiskinn hér heima vegna mannfæðar í fiskvinnslunni samfara góðum aflabrögðum er ekki annað hægt en að senda hann út. Ekki bætir það heldur stöðuna þegar yfir- vinnubann brestur á hér í Eyjum af hálfu verkalýðsfélagsins og Snótarkonur eru í verkfalli," sagði Jóhannes Kristinsson, gám- avinur í Vestmannaeyjum. Togarinn Breki setti í 14 gáma í fyrradag en hann hafði ætlað sér að landa í Hafnarfirði en varð frá að hverfa vegna löndunarbanns á Eyjabáta vegna verkfalls Snótar- kvenna. Jóhannes kvaðst ekki kvíða skorti á gámum þrátt fyrir vax- andi fiskútflutning, en taldi jafn- framt alveg loku fyrir það skotið að aðkomubátur gætu vænst þess að þeirra afli yrði settur í gáma þar eð Eyjamenn yrðu að halda vel í þá gáma sem þeir hefðu yfir að ráða vegna yfirvinnubannsins, sem mundi bitna mest á saltfiskvinnslunni, auk stöðvunar í hraðfrystingunni. -grh Úrslit kosninganna í Háskóla (slands í gær voru vonbrigði fyrir félagshyggjufólk, sem hlutu 6 menn kjörna til Stúdentaráðs á meðan Vaka náði 7. Háskólinn Patt- staða „Eftir kosningarnar er komin pattstaða í Stúdentaráði 15 á móti 15,“ sagði Runólfur Ágústsson fé- lagi í Röskvu, er úrslitin lágu fyrir í gærkvöld. Vaka fékk 956 atkvæði og 7 menn kjörna til Stúdentaráðs en nýstofnuð samtök félagshyggju- fólks, Röskva, fengu 923 atkvæði og 6 menn kjörna. Auðu skiluðu 207. Til Háskólaráðs fengu fé- lögin sinn hvorn fulltrúann. „Þetta er versta staða sem gat komið upp og ég hef áhyggjur af því að Stúdentaráð verði óstarf- hæft, nema menn komi sér saman um einhverjar málamiðlanir,“ sagði Runólfur og bætti því við að Röskva léti ekki deigan síga þrátt fyrir þessi úrslit. Kosningaþátttaka var um 50%, sem telst nokkuð gott. Að sögn Runólfs var hún misjöfn eftir deildum og mjög slök þar sem félagshyggjufólks er helst að vænta. mj Húsnœðismálin HeiMarendurskoðun í bígerð Nefnd undir forystu Kjartans Jóhannssonar skilarfrá sér skýrslu um húsnæðismálin eftir viku. Verður lappað upp á kerfið eða nýtt kerfi búið til? Eg býst við að við munum skila frá okkur skýrslu eftir u.þ.b. viku, sagði Kjartan Jóhannsson, formaður vinnuhóps á vegum fé- lagsmálaráðuneytisins um al- menna húsnæðislánakerfið. Auk Kjartans eru fimm hag- fræðingar í hópnum og er hópn- um ætlað að gera grein fyrir reynslunni af nýja húsnæðislán- akerfinu og leggja fram hug- myndir um þróun kerfisins og sagði Kjartan að hópurinn myndi leggja fram nokkrar tillögur um leiðir til að velja úr um. „Jú, ein leið er að lappa upp á núverandi kerfi og önnur að setja sig í stellingar og búa til alveg nýtt húsnæðislánakerfi. “ Um mánuður er síðan að hóp- urinn hóf störf og sagði Kjartan að hann hefði reynt að keyra þetta starf áfram. „Mér finnst þetta vera mettími, að fara í gegnum húsnæðiskerfið og koma með tillögur um úrbætur á fimm vikum, því stjórnvöld hafa átt í basli með húsnæðiskerfið í mörg ár.“ Jóhanna Sigurðardóttir, fé- lagsmálaráðherra, sagði í umræð- um á þingi í gær, að allir þing- flokkarnir myndu fá skýrsluna í hendur, strax og störfum við hana yrði lokið og jafnframt aðil- ar vinnumarkaðarins. Jóhanna bjóst ekki við að nýtt frumvarp um húsnæðislánakerfið yrði lagt fram í vor í framhaldi af skýrslunni, þar sem of skammur tími væri til stefnu. Hún sagði að heildarendurskipulagning á hús- næðislánakerfinu væri erfið og flókin viðfangs og í því sambandi þyrfti að ná samkomulagi við marga aðila. Svavar Gestsson sagði ekkert mál að lengja þingtímann ef nauðsyn krefur til að taka á hús- næðismálunum. -Sáf Akranes Vantreysta Bæjarstjórn Akraness hefur mótmælt harðlega þeirri ákvörð- un stjórnvalda að vega enn að tekjum sveitarfélaga með því að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. í samþykkí læjarstjórnar segir m.a. að þrátt fyrir yfirlýsingu stjórnarinnar um að skila til sveitarfélaga hluta þeirrar skerð- ingar á sjóðnum sem tíðkast hef- ur, sé enn gripið til efna- hagsráðstafana á kostnað sveitarfélaganna. Þessi atlaga að Jöfnunarsjóðn- um rýri traust sveitarstjórnar- manna á ríkisvaldinu og neyði sveitarfélög til að taka upp harð- ari afstöðu gagnvart ríkinu til að gæta hagsmuna sinna. -Ig

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.