Þjóðviljinn - 16.03.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 16.03.1988, Blaðsíða 13
Barnaverndarþing í sumar Böm- auður framtíðar Norræn samtök um barna- vernd (Nordisk sammenslutn- ing för barnvárd og barn- skydd) hafa starfað frá þriðja tug aldarinnar. Þriðjahvertár hefur verið haldið norrænt þing um barnavernd þarsem tekin hafaveriðtil umræðu ýmis málefni barnaverndar semeru efstábaugiá Norðurlöndunum. ísland hefur ekki verið form- legur aðili að þessu samstarfi þó svo að ýmsir aðilar frá Barna- verndarráði íslands og barna- verndarnefndum hafi sótt þessi þing öðru hverju. Á þinginu sem haldið var í Svíþjóð 1982 var þess farið á leit við fulltrúa Barna- verndarráðs íslands að vinna að því að íslendingar tækju þátt í þessu samstarfi og haldin yrði ráðstefna hér á landi. Á þinginu sem haldið var í Finnlandi 1985 flutti fulltrúi Barnaverndarráðs íslands f.h. menntamálaráðherra boð um að næsta þing yrði á ís- landi 1988. Haustið 1985 var haf- inn undirbúningur en Barna- verndarráð íslands annast undir- búning í umboði menntamála- ráðuneytisins. Undirbúningurinn hófst með því að Barnaverndar- ráð boðaði til fundar fulltrúa ým- issa félaga, félagasamtaka og op- inberra stofnana til að mynda undirbúningshóp er tilnefndi full- trúa í framkvæmdanefnd sem Barnaverndarráð síðan skipaði. Framkvæmdanefndin er nú þannig skipuð: Bragi Guðbrandsson félagsmála- stjóri í Kópavogi, fulltrúi Félags félagsmálastjóra. Guðný Guðbjörnsdóttir dósent, fulltrúi Félagsvísindadeildar. GunnarSandboltyfirm. fjölsk.d. Félmst. Rvíkur, fulltrúi Félags- málaráðs Reykjavíkur. Gyða Jóhannsdóttir skólastjóri Fóstruskóla íslands. Helga HannesdóttirVxkmr, Ung- lingageðdeild ríkisins. Jón Björnsson félagsmálastjóri, fulltrúi Fjórðungssambands Norðurlands. Margrét Margeirsdóttir deildar- stjóri, fulltrúi félagsmálaráðu- neytis. Sigríður Ingvarsdóttir héraðs- dómari, form. Barnaverndarráðs íslands. Sævar Berg Guðbergsson félags- ráðgjafi, fulltrúi Umhyggjufélags til stuðnings sjúkum börnum, form. framkv.nefndar. Pessi þing hafa verið vel sótt af þingmönnum jafnt sem sveitar- stjórnarmönnum á Norður- löndum, auk fagfólks og annarra sem starfa að málefnum barna og ungmenna og vinna fyrir barna- verndaryfirvöld. Aðalíýrirlestur þingsins ber heitið: Böm - Auður framtíðar. Sigurjón Björnsson prófessor flytur þann fyrirlestur við setn- ingu þingsins. Aðrir fyrirlestrar verða: Úrræði hins opinbera og fé- lagasamtaka fyrír börn og ung- menni. Jacob Tore Heglandptóf- esor við háskólann í Álaborg. Börn íhættu. Terje Odgren upp- eldisfræðingur og forstöðumaður fyrir þróunarstofnun barna- verndar í Noregi. Börn árið 2013. Timo Sneck fé- lagsfræðingur, rannsóknamið- stöð finnska ríkisins, deild fyrir þjóðfélags- og byggðaráætlanir. Auk þessa verða 10 málþing þar sem flutt verða erindi til and- mæla og umræðu. Af efnistökum þar má nefna: Samfélagsbreytingar og bernska - barnavernd í sögulegu ljósi. Fyrirlesari er Panu Pulma dósent í sögu Finnlands og Skandinavíu við háskólann í Helsingfors. Andmælandi er Jón Björnsson félagsmálastjóri á Akureyri. Formleg og óformleg hjálpar- úrræði — þróun og breyting í barnavernd á íslandi. Fyrirlesari er Guðrún Kristinsdóttir kennslusrióri í félagsráðgjöf við Háskóla Islands. Andmælandi er Johannes Morre Pedersen skóla- fulltrúi við Gjellerupskólann í Árósum. Fjölskyldan og forvarnarstarf. Fyrirlesari er Anders Lynge Mad- sen lögfræðingur og skrifstofu- stjóri skrifstofu barnaverndar við danska félagsmálaráðuneytið. Andmælandi er Gunnvor And- ersson sálfræðingur við félags- málastofnunina á Málmey í Sví- þjóð. Aðstaða barna í deilum um forsjá og umgengni. Fyrirlesari er Carl Göran Svedin yfirlæknir við barna- og unglingageðdeildina í Linköping í Svíþjóð. Andmæl- andi er Aðalsteinn Sigfússon sál- fræðingur hjá Félagsmálastofnun Rey kj avíkurborgar. Börn og misnotkun foreldra á vímuefnum. Fyrirlesari er Odd- frid Lövcfe/sálfræöingur við með- ferðardeild fyrir vímuefnaneyt- endur í Þelamörk í Noregi. Andmælandi er Oskar Ploug- mand sálfræðingur, ráðgjafi í danska félagsmálaráðuneytinu. Réttur barnsins - ábyrgð for- eldra. Fyrirlesari er Steen Mog- ens Lasson sálfræðingur, for- stöðumaður við Udby meðferð- arheimilið í Danmörku. And- mælandi er Christina Fagerström félagsráðgjafi og starfsmaður Riksförbundet Rádda Barnen. Eyðni og ábyrgð barnavernd- aryfirvalda. Fyrirlesari er Karl Næs lögfræðilegur ráðgjafi hjá barnaverndarskrifstofu félags- málastofnunar Oslóborgar. Andmælandi er Ylfa Arnhof fil.kand., skrifstofustjóri við sænsku félagsmálastjórnina. Börn, ungmenni og menning. Fyrirlesari er Inga Hagström sveitarstjórnarmaður og formað- ur tómstundaráðs við félagsmála- ráð í Sandviken í Svíþjóð. Andmælandi er Raimo Valkonen uppeldisráðgjafi og forstöðu- maður upptökuheimilis fyrir fé- lagslega illa stadda drengi 10-18 ára í Tammerfors. Leitarstarf - áhættuhópar. Fyrirlesari er Kauko Kouva- lainen prófessor og yfirlæknir við barnadeild háskólasjúkrahússins í Uleaborg í Finnlandi. Andmæl- andi er Karen Hassel sálfræðing- ur frá Noregi. Loks er rétt að nefna enskan gestafyrirlesara: Jane Rowe en rannsóknir hennar á kjörum fóst- urbarna hafa vakið athygli víða um heim. Erindi hennar nefnist: Planning for permanence in childcare. Andmælandi hennar verður Gerd Hagen lektor og for- maður fyrir Norsk Barne- vernsamband. KALU OG KOBBI 'Þabbi, mig1' langar að spyrja um Allt í lagi Kalli. Hvað viltu vita? Ef maður heldur fast fyrir munninn og nefið þegar maður hnerrar... ...fer þá hnerrinn út um eyrun, eða springur á manni hausinn? Ég hélt þú Vjen það þyrftir hjálp viðls^Ptlr reikninginn éða\m^1, þori eitthvað álíka. ekki að prófa, J GARPURINN APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúða vik- una 11.-17. marseríLauga- vegs Apóteki og Holts Apó- teki. Fyrmefnda apótekið er opið um helgar og annast nætur- vörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Síðarnefnda apó- tekið er opiö á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- netnda. LÖGGAN Reykjavík.....sími 1 11 66 Kópavogur....simi4 12 00 Seltj.nes....sími61 11 66 Hatnarfj......sími 5 11 66 Garðabær......sími 5 11 66 Slökkvllið og sjúkrabilar: Reykjavík.....sími 1 11 00 Kópavogur.....sími 1 11 00 Seltj.nes.....sími 1 11 00 Hafnarfj......sími 5 11 00 Garðabær......sími 5 11 00 Heimsóknartímar: Landspft- allnn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftir samkomulagi. Fæðing- ardelld Landspítalans: 15- 16. Feðratími 19.30-20.30. Öldrunarlækningadeild Landspítalans Hátúni 10 B: Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: virka daga 16- 19.30 helgar 14-19.30 Heilsu- vemdarstöðin við Baróns- DAGBÓK stig:opinalladaga 15-16og 18.30- 19.30 Landakots- spftall: alla daga 15-16 og 18.30- 19.00 Barnadeild Landakotsspitala: 16.00- 17.00. St. Jósefsspitall Haf narfirði: alla daga 15-16 og 19-19 30 Kleppsspital- lnn:alladaga 18.30-19og 18.30- 19 Sjúkrahúsið Ak- ureyrl:alladaga 15-16og19- 19 30 Sjúkrahúslð Vestmannaeyjum: alladaga 15-16 og 19-19.30. Sjúkra- hús Akraness: alla daga 15.30- 16og 19-19 30. Sjúkrahúsið Húsavik: 15-16 og 19.30-20. LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykja- vík, Seltjarnarnes og Kópavog er í Heilsuvernd- arstöð Reykjavíkur alla virkadaga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgidögum allan sólar- hringinn. Vitjanabeiðnir. simaráöleggingar og tima- pantanir í sima 21230. Upp- lýsingar um lækna og lyfja- þjónustu eru gefnar í sim- svara 18885. Borgarspítalinn: Vaktvirka daga kl. 8-17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða náekki til hans. Slysadeild Borgarspitalans opin allan sólarhrínginn simi 696600. Dagvakt. Upplýsingar um da- gvakt lækna s. 51100. Næt- urvaktlæknas.51100 Hafnarfjörður: Heilsugæsla. Upplýsingar um dagvakt lækna s. 53722 Næturvakt læknas. 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöts. 656066, upplýs- ingar um vaktlækna s. 51100. Akureyrl: Dagvakt 8-17 á Læknamiðstöðinni s. 23222, hjáslökkviliöinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Keflavfk: Dagvakt. Upplýs- ingar s. 3360 Vestmanna- eyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. ÝMISLEGT Bilananavakt rafmagns- og hltaveitu: s. 27311 Raf- magnsveita bilanavakt s 686230. Hjálparstöð RKÍ, neyðarat- hvari fyrir unglinga Tjarnar- götu35 Sími:622266opið allansólarhringinn. Sálfræðlstöðin Ráðgjöf i sálfræðilegum efn- um. Simi 687075. MS-fólaglð Álandi 13. Opið virka daga frá kl. 10-14. Simi688800. Kvennaráðgjöfin Hlaövarp- anum Vesturgötu 3. Opin briöiudaaa kl.20-22, simi 21500, simsvari. Sjálfshjálp- arhópar þeirra sem oröið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari. Upplýslngar um ónæmistæringu Upplýsingar um ónæmistær- ingu (alnæmi) í síma 622280, milliliðalaust samband viö lækni. Frá samtökum um kvenna- athvarf, sfml 21205. Husaskjól og aðstoð fyrir kon- ur sem beittar hata verið ot- beldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin '78 Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsima Santtákanna 78 félags lesbia og homma á Islandi á mánudags- og timmtudagskvöldum kl. 21 - 23. Símsvari á öðrum timum. Síminner 91-28539. Fólagoldri borgara: Skrif- stofan Nóatúni 17, s. 28812. Félagsmiðstöðin Goðheimar Sigtúni 3, s. 24822. GENGIÐ 15. mars 1988 kl. 9.15 Sala Bandarikjadollar 39,020 Sterlingspund... 72.111 Kanadadollar.... 31,037 Dönskkróna...... 6,1241 Norskkróna...... 6,1638 Sænsk króna..... 6,5857 Finnsktmark..... 9,6898 Franskurfranki.... 6,8922 Belgískurfranki... 1,1157 Svissn.franki... 28,3837 Holl. gyllini... 20.8435 V.-þýsktmark.... 23,4136 Itölsklira..... 0,03163 Austurr. sch.... 3,3289 Portúg. escudo... 0,2853 Spánskurþeseti 0,3489 Jaþansktyen..... 0,30688 Irsktþund....... 62,641 SDR................ 53,6950 ECU-evr.mynt... 48.4843 Belgískurfr.fin. 1,1171 KROSSGATAN Lárótt: 1 fugl 4 tóþak 6 barði 7 lasleiki 9 dingul 12 heitis 14 sár 15 hvíldi 16 vondar 19 vinnusemi 20 undirförull 21 nógi Lóðrótt: 2 skaut 3 kjána 4 áhlaup 5 rölt 7 kindur 8 þol 10 heilli 11 digurri 13 önug 17mjúk18þræta Lausn á siðustu krossgátu Lárótt: 1 horf4blik6æli7 basl 9 töng 12 kalin 14 sár 15 ger 16 ætinu 19 arfa20 álma21 aðall Lóðrétt: 2 oka 3 fæla 4 biti 5 inn 7 buslar 8 skræf a 10 öngullH gortar13lúi17 tað 18 nál Miövikudagur 16. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.