Þjóðviljinn - 16.03.1988, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 16.03.1988, Blaðsíða 7
Foreldraheimsókn á spítalann. Sigríður Þorvaldsdóttir, Gísli Halldórsson og Sigurður Skúlason. Móðirin ásamt tveimur barna sinna. Arnór Benónýsson, Þóra Friðriksdóttir og Vilborg Halldórs- dóttir. Myndir - E.ÓI. Þjóðleikhús Hugar- burður Verðlaunaleikrit eftir Sam Shepard frumsýnt annað kvöld Annað kvöld frumsýnir Þjóðleikhúsið leikritið Hugar- burð, eftir Bandaríkjamanninn Sam Shepard. Hugarburður, (A Lie of the Mind, áfrummál- inu), er að sögn höfundar ástaróður, lítil goðsögn um ástina og hlaut fyrstu verð- laun gagnrýnenda New York borgar sem besta leikrit árs- ins 1986. Hefurgagnrýnandi New York Times líkt Hugar- burði við Missisippifljótið vegna þess hvað honum fannst það vera breitt, langt og djúpt, dularfullt og óstýrilátt í senn. Sam Shepard er að öllum lík- indum þekktastur hér á landi fyrir leik sinn í kvikmyndinni Paris-Texas. Hann er 45 ára, og talinn fremsta leikskáld Banda- ríkjanna í dag. Mun frægð hans vera slík að hann er að verða að goðsagnapersónu sem leikskáld, handritahöfundur, leikstjóri, kvikmyndastjarna, tónlistarmað- ur og hrossaræktandi. Hann er Pulitzer-verðlaunahafi og hefur samið yfir 40 leikrit, auk fjölda Háskólatónleikar Lög frá endur- reisnar- tímabilinu Áttundu Háskólatónleikar á vor- misseri verða haldnir í Norræna húsinu í dag kl. 12.30-13.00. Á tónleikunum flytja Sverrir Guðjónsson kontra-tenór og Snorri Örn Snorrason lútuleikari ensk, spönsk, þýsk og ítölsk lög frá endurreisnartímabilinu. A efnisskránni eru einnig þrjú ís- lensk þjóðlög. kvikmyndahandrita. Meðal þekktari leikrita hans eru Barn í garðinum (Buried Child), The Tooth of Crime, True West og Fool for Love. Af þekktustu kvikmyndahandritum hans má nefna Zabriskie Point, Fool for Love og verðlaunakvikmyndina Paris-Texas. í Hugarburði segir frá tveimur fjölskyldum, sem tengjast í gegn- um ástir þeirra Jakes og Beth. Annars vegar er Jake, móðir hans, bróðir og systir, hinsvegar Beth, foreldrar hennar og bróðir. í upphafi leikritsins hefur Jake misþyrmt Beth svo það verður að leggja hana á sjúkrahús. Miður sín af hræðslu við það sem hann hefur gert, telur hann sér trú um að hún sé dáin og felur sig heima hjá móður sinni sem ræður sér ekki fyrir hamingju yfir að hafa fengið drenginn sinn aftur, og vonast til að halda honum þar það sem eftir er. Bróðir Beth, sem hefur komið henni á spíta- lann, tekur að sér að gæta henn- ar. Eftir að hún er útskrifuð fer hann með hana heim til foreldra þeirra og reynir að vernda hana fyrir Jake og öðrum úr hans fjöl- skyldu sem reyna að nálgast hana. Prátt fyrir viðleitni verndara þeirra Jakes og Beth verður ekki skorið á tengslin milli fjölskyldn- anna; þó að Beth sé einsog útá þekju eftir barsmíðarnar man hún ennþá eftir einhverjum sem hún elskaði mikið, og verður Jake ekki að komast að því hvort hún er í raun og veru dáin? Leikstjóri Hugarburðar er Gísli Alfreðsson, þýðandi er Úlf- ur Hjörvar, leikmynd og búning- ar eru eftir Gunnar Bjarnason, og lýsingu annast Asmundur Karlsson. Leikarar eru Hákon Waage, ArnórBenónýsson, Lilja Þórisdóttir, Sigurður Skúlason, Póra Friðriksdóttir, Vilborg Halldórsdóttir, Gísli Halldórsson og Sigríður Þorvaldsdóttir. LG Beth og verndari hennar, Lilja Þórisdóttir og Sigurður Skúlason. Miðvikudagur 16. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.