Þjóðviljinn - 16.03.1988, Page 9
Myndlist
Brasilísk
listakona
sýnir í
List
I Gallerí List, Skipholti 50 b,
stendur nú yfir sýning brasil-
ísku listakonunnar Neide Mol-
inari.
Neide Molinari er fædd í Rio
de Janeiro og stundaði mynd-
listarnám þar og í Bandaríkjun-
um. Hún hélt þrjár sýningar í
Fortaleza, Brasilíu og tvær í New
York árin 1985 og 1987.
Á sýningunni, sem stendur til
20. mars, eru olíumálverk frá
undanförnum árum. Gallerí List
er opið virka daga kl. 10:00-
18:00, kl. 14:00-18:00 um helgar.
LG
MENNING
Sinfónían
Fiðlukonsert eftir
Sibelius, er meðal
verka á efnisskrá
tónleika
Sinfóníunnar
annað kvöld
Sigrún Eðvaldsdóttir, einleikari.
Zygmunt Rychert, stjórnandi.
Sigrún Eðvaldsdóttir
leikur einleik
Tólftu áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands
verða í Háskólabíói annað
kvöld, kl. 20:30. Áefnis-
skránni eru þrjú verk, Orphe-
us eftir Liszt, fiðlukonsert eftir
Sibelius og sinfónía eftir Lut-
oslavsky.
Einleikari á tónleikunum er
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari.
Sigrún er rúmlega tvítug. Hún
hóf fiðlunám 5 ára, fór 11 ára í
Tónlistarskólann í Reykjavík og
lærði þar hjá Rut Ingólfsdóttur
og Guðnýju Guðmundsdóttur
þar til hún útskrifaðist 16 ára með
einleikaraprófi. Hún stundar nú
nám við The Curtis Institute of
Music í Philadelphiu, Bandaríkj-
unum og lýkur þaðan BM prófi í
vór. Sigrún hefur leikið einleik
með mörgum unglingahljóm-
sveitum, meðal annars í Svíþjóð,
og Michigan í Bandaríkjunum.
Fyrsta verkið á tónleikunum er
Orpheus eftir Franz Liszt, og því
næst verður fiðlukonsert Sibe-
liusar fluttur. Síðasta verkið á
efnisskrá tónleikanna er Sinfónía
númer 3, eftir Lutoslavsky, og er
þetta nýlegt verk eftir hann. Lut-
oslavsky sem nú stendur á sjö-
Myndlist
Guðbergur sýnir
í Gallerí Grjót
tugu, þykir eitt merkasta tón-
skáld tuttugustu aldar. Við flutn-
ing sinfóníunnar þarf að fjölga
verulega flytjendum í hljóm-
sveitinni, þannig að þeir verða nú
90.
Stjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar að þessu sinni er pól-
verjinn Zygmunt Rychert. Hann
lærði tónsmíðar og hljómsveitar-
stjórn við opinbera tónlistarhá-
skólann í Posnan, og hlaut verð-
laun í þessum greinum í pólsku
samkeppninni árið 1970. Hann
hefur stjórnað hljómsveitum
innan Póllands og utan, er stofn-
andi Baltycka filharmóníuhljóm-
sveitarinnar, og hefur hlotið
verðlaun fyrir framlag sitt í þágu
listarinnar í Póllandi.
LG
í Gallerí Grjót, Skólavörðustíg
4 a, stendur nú yfir sýning
Guðbergs Auðunssonar.
Guðbergur stundaði nám við
Kunsthaandværkerskolen í
Kaupmannahöfn 1959-1963 og
við málaradeild MHÍ 1976. Hann
sýndi á Kjarvalsstöðum 1978, í
Gallerí Baden Baden, Vestur
Þýskalandi 1980, og í Nýlistasafn-
inu á síðasta ári. Verk eftir hann
eru meðal annars í eigu Lista-
safns íslands og Listasafns Kópa-
vogs.
A sýningunni sem stendur til
27. mars, eru ný og eldri verk sem
eru öll til sölu. Gallerí Grjót er
opið virka daga kl. 12:00-18:00
og kl. 14:00-18:00 um helgar. Að-
gangur er ókeypis.
Óperan
Litli
sótarinn
Sýningum fer
fækkandi
(slenska óperan sýnir nú
barnaóperuna „Litla sóta-
rann“ eftir Benjamin Britten.
Óperan hefur verið sýnd fyrir
fullu húsi frá því í janúar og fer
sýningum nú senn aðfækka.
-Óperan hefurfengiðmjög
góðar undirtektir barna og
fullorðinna, enda byggð á
þátttöku áhorfenda.
Þátttakendur í sýningunni eru
26 talsins, þar af 12 börn sem fara
með veigamikil hlutverk.
Verði aðgöngumiða er mjög í
hóf stillt, kostar miðinn um þriðj-
ung af verði miða á venjulega óp-
erusýningu. íslenska óperan hef-
ur leitað eftir fjárstuðningi frá
Reykjavíkurborg til að greiða
niður verð aðgöngumiða fyrir
börn í grunnskólum borgarinnar,
en ekki haft erindi sem erfiði
þrátt fyrir meðmæli fræðsluyfir-
valda.
Miðvikudagur 16. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Leikhús
Sá með uppsnúnu uggana
Seyðfirðingar frumflytja barnaleikrit
Nú standa yfir sýningar hjá
Leikfélagi Seyðisfjarðar á
ævintýraleik og er það frum-
flutningur hér á landi. Leikritið
heitir „Stóri klunnalegi blórinn
með uppsnúnu uggana" og er
danskt eftir Börge Hansen í
þýðingu Emils Emilssonaren
hann hefur einmitt um langt
árabil verið burðarásinn í
Leikfélagi Seyðisfjarðar.
Þetta er 26. verkefni leikfélags-
ins en það varð 30 ára á síðasta
ári. „Stóri klunnalegi blórinn
með uppsnúnu uggana“ er barna-
leikrit með söngvum. Þátttak-
endur í sýningunni eru allir böm
og unglingar. Alls taka þátt í sýn-
ingunni tæplega 80 manns. Þessi
sýning er því ein sú viðamesta
sem leikfélagið hefur ráðist í til
þessa.
Leikritið segir frá 5 krökkum
sem eru að leika sér í indíánaleik.
Þau hafa tapað teppi sem þau
höfðu hnuplað af þvottasnúru.
Þá kemur til þeirra skrítin stelpa
sem upplýsir þau um að stóri er kennt um, s.s. að nenna ekki
klunnalegi blórinn með upp- að iæra heima, blóta, pissa í bux-
snúnu uggana hafi örugglega stol- urnar o.s.frv. Og það verður úr
ið teppinu. Það sé nefnilega alltaf að þau leggja af stað í ferðalag til
hann sem geri allt það sem okkur þess að finna þennan ósvífna
blóra. Þau fara út á þjóðveginn,
gegnum skóginn, niður að sjón-
um og ofan í sjóinn. Þetta er því
mikil ævintýraferð.
Tónlistin í leikritinu er frum-
samin af þeim Aðalheiði Borg-
þórsdóttur og Kristrúnu Helgu
Björnsdóttur sem jafnframt er
stjórnandi hljómsveitarinnar.
Leikstjóri er G. Margrét Óskars-
dóttir.
Leikfélagið ætlar að taka upp
þá nýbreytni að gefa nemendum í
öllum skólum á Austfjörðum
kost á því að koma í leikferð til
Seyðisfjarðar. Og vonast það til
að fleiri fylgi því fordæmi. f því
skyni verða næstu sýningar mið-
aðar við þá daga sem heiðar og
fjallvegir eru ruddir. Á þennan
hátt hyggst Leikfélag Seyðis-
fjarðar stuðla að því að þessi
landshluti verði sjálfum sér nógur
um skemmtanir í stað þess að
sækja allt á suðvesturhornið eins
og þeir fullorðnu hafa í alltof rík-
um mæli tileinkað sér og þá hafa
börnin of oft verið afskipt.