Þjóðviljinn - 10.04.1988, Blaðsíða 18
BRIDGE
Nr. 612
KROSSGATAN
7 2— 5— V- 5~ 6? 7- T 8 °) /o )/ 7 w-
13 W >5- )L 3? 19 )S~ 18 22 13 W )(o
s 2o )(? (d b 2? 2) )S TF~ 22 2? (p lð 2. w
V )<o 22 n w (o 2? 3 )l 2 (p 7- a )S R2
w V & )Ú T~ )É )S 22 20 )S )2 32 27 /s 2k
20 )l Z°> )S V w )3 )(o 3 2? )</ 27 3? ))
27 21 (o 23 20 (s> )(p ta 2? is V 32 13 10
fS' z 30 IS 32 20 2S )9 j/ 32 7- 31 )S 2Z
18 (d V 13 H 18 2? )8 O 1- 9 )8 )S )b 3?
(p 2(o 32 )(p (o )2 V )Ð )S )8 3? Uo )/ 7
23 19- (r? )é 3? W~ H w~ T~ W 2o 27 32 )/ 2/
)# 2 ) 18 y3 )b 22 (p )8 )S )(p 33 22
/7 2 3 11 )0 )S )É JS' )(p 32 )S )/ ii 1$
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá örnefni á
Norðurlandi. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj-
ans, Síðumúla6, Reykjavík, merkt: „Krossgátanr.612“. Skilafresturer
þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
9 )3 20 2/ 2 )5 1 21 3D
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það aö vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Lausnarorðið í krossgátu nr. 609 var Guðbjörn. Dregið var úr réttum
lausnum og verðlaunin koma í hlut Erlu Ásmundsdóttur, Kringlumýri
10 Akureyri. Verðlaunin eru hljóðsnælda með leiðsöqn um leiðina
Reykjavík-Selfoss.
Verðlaun fyrir krossgátu 612
verða Vísnakver Káins,
Kristjáns N. Júlíus, hins snjalla
vesturíslenska hagyrðings.
AB gaf út.
Sterk úrslit
Sveit Flugleiða, skipuð þeim Jóni
Baldurssyni, Sigurði Sverrissyni, Val
Sigurðssyni, Aðalsteini Jörgensen og
Ragnari Magnússyni sigraði íslands-
mótið í sveitakeppni. Sveitin hlaut
146 stig af 175 mögulegum.
Sveit Pólaris, skipuð þeim Karli
Sigurhjartarsyni, Sævari Þorbjörns-
syni, Guðmundi Páli Arnarsyni, Por-
láki Jónssyni, Stefáni Guðjohnsen og
Sfmoni Símonarsyni, náði 2.sæti og
sveit Fatalands, skipuð þeim Ólafi
Lárussyni, Hermanni Lárussyni, Páli
Valdimarssyni, Magnúsi Ólafssyni og
Jakobi Kristinssyni hafnaði í 3. sæti.
Úrslitaleikur mótsins að þessu
sinni var á milli sveita Flugleiða og
Fatalands. f hálfleik hafði Fataland
12 stiga forskot (28-16). f síðari hálf-
leik tóku þeir Flugleiðamenn sér far
með einni af þotum félagsins og
stungu Fataland af (20-73). Úrslit
leiksins því 8-22 fyrir Flugleiðir og
formsatriði fyrir þá að Ijúka mótinu.
Og það gerðu þeir með sigri yfir
Sverri Kristinssyni í lokaumferðinni,
22-8. Á sama tíma voru Pólaris-menn
að vinna sig upp í 2. sætið með örugg-
um sigri yfir Fatalandi, 25-5. Og lok-
aröð sveitanna varð:
1. jv. Flugleiða Reykjavík 146
2. ív. Pólaris Reykjavík 126
3. sv. Fatalands Reykjavík 121
4. .vv. Braga Haukssonar Rvk 109
5. sv. Verðbr.m. Iðn.b. Rvk. 102
6. ,vv. Atlantik Reykjavík 87
7. sv. Sverris Kristinss. Rvk 72
8. vv. Grettis Frímannss. Ak. 70
Úrslitakeppnin tókst vel. Nokkuð
var um áhorfendur á Loftleiðum, þótt
góða veðrið um páskana hafi sett
nokkurt strik í reikninginn. Jafnhliða
úrslitakeppninni, fór fram keppni í
B-úrslitum (fyrsta keppni þeirrar teg-
undar hér á landi). 8. sveitir kepptu
og sigurvegarar urðu sveit Samvinnu-
ferða/Landsýnar (Björn Eysteinsson,
Helgi Jóhannsson, Matthías Þor-
valdsson, Ragnar Hermannsson,
Svavar Björnsson og Hrannar Er-
lingsson). Þeir hlutu 124 stig. Sveit
Sigfúsar Arnar Árnasonar hlaut einn:
ig 124 stig en tapaði á innbyrðis leik. f
3. sæti varð svo sveit Þorsteins Bergs-
sonar Fljótsdalshéraði.
Umsjónarmaður óskar sigurvegur-
unum til hamingju með árangurinn.
24 pör munu spila um fslandsmeist-
aratitilinn.
Björgvin Víglundsson og Einar
Sigurðsson sigruðu Reykjanesmótið í
tvímenning, sem haldið var fyrir
stuttu. f 2. sæti urðu Ármann J. Lár-
usson og Helgi Víborg. 20 pör
kepptu.
Egill Sigurðsson og Brynjar Ol-
geirsson Tálknafirði sigruðu Suður-
fjarðamótið í tvímenning, sem haldið
var þar vestra fyrir páska. 16 pör tóku
þátt í mótinu.
Jóhann Þorsteinsson og Kristján
Kristjánsson sigruðu Öpið tví-
menningsmót, sem Bridgefélag
Neskaupstaðar gekkst fyrir um pásk-
ana. 28. pör tóku þátt í mótinu. For-
maður B. N. er ína Gísladóttir.
fslandsmótið í parakeppni verður
haldið í Sigtúni helgina 14.-15. maí.
Skráning hefst eftir næstu helgi.
Forvalskeppni yngri flokks, til
þátttöku í Evrópumóti yngri spilara
sem haldið verður í Búlgaríu í sumar,
verður um þessa helgi í Sigtúni. 8 pör
munu reyna með sér.
Bridgefélag Kópavogs hyggst
gangast fyrir stórmóti í endaðan maí.
Risaverðlaun verða í boði. Stefnt er
að sveitakeppnisfyrirkomulagi, með
nýju sniði og hefur ekki verið reynt
hér á landi áður. Forvitnilegir hlutir
þar á ferðinni, greinilega.
fslandsmótið í tvímenning, undan-
rásir, verða spilaðar í Gerðubergi um
næstu helgi. Skráning stendur núna
yfir hjá Bridgesambandinu. Sl.
fimmtudag voru yfir 60 pör skráð til
leiks en stefnt er að þátttöku minnst
100 para (mótið er öllum opið sem
áhuga hafa).
Úrslitin verða síðan skv. dagskrá,
helgina 30. apríl/l. maí á Loftleiðum.
Skagstrendingar gangast fyrir opnu
stórmóti í tvímenning um og eftir
næstu mánaðamót. Nánar síðar.
Hin árlega sýslutvímennings-
keppni A-Skaftafellssýslu var spiluð
um páskana. Sigurvegarar urðu þeir
Jón M. Einarsson og Gísli Jóhanns-
son. 16 pör tóku þátt í keppninni.
FJOLMIÐLAPISTILL
Osigur þröngsýninnar og Rás tvö
Ég þurfti aö skjótast austur fyrir
fjall eitt kvöldið í vikunni og
haföi Rás tvö í gangi eins og oft-
ast þegar ég er bílnum. Þetta var
að öllu leyti tíðindalaus ferð og
þegar strákarnir okkar höfðu
klúðrað síðasta leiknum við
drengina úr austri niður í jafntefli
fór ég að velta fyrir mér þeirri
fáránlegu hugmynd hægri sinn-
aðra stjórnmálamanna að ætla að
selja Rás tvö, þ.e. selja einkaað-
ilum aðgang að dreifiicerfi stöðv-
arinnar og draga að sama skapi úr
dagskrárgerð Útvarpsins.
Þessi hugmynd er í raun svo
fíflaleg að um hana þyrfti varla að
hafa nein orð. Enda hefur hún
sem betur fer fallið í afar grýttan
jarðveg, bæði í útvarpsráði, há-
borg þröngsýninnar í íslenskri
fjölmiðlun, og meira að segja á
nýafstöðnu þingi ungra sjálfstæð-
ismanna, háborg frjálshyggjunn-
ar og sérhyggjunnar í landinu.
Ástæðan fyrir þessum maklegu
viðtökum við tillögunni um að
selja Rás tvö er sú að það þarf í
meira lagi þröngsýnan mann til
að sjá ekki hvaða gildi þessi út-
varpsrás hefur fyrir alla sem máli
skipta: útvarpið sjálft og rekstur
þess, hlustendur og ekki síst fólk-
ið í dreifbýlinu. A stórum svæð-
um eru Rás eitt og tvö einu stöðv-
arnar sem nást. ísland er erfitt
land í útvarpsdreifingu og borin
von að aðrir en Ríkisútvarpið
muni leggja í þann kostnað sem
fylgir því að koma útvarpsefni til
allra landsmanna. Einkastöðv-
arnar munu hér eftir sem hingað
til takmarka sig við þéttbýlustu
hluta landsins og láta afganginn
vera.
Auk þess hefur mér fundist á
viðtökum fólks á landsbyggðinni
að það kunni vel að meta starf-
semi Rásar tvö. Dægurmálaút-
varpinu hefur tekist að skapa út-
varp sem fólki finnst koma sér við
og það nennir að hlusta á og eiga
samskipti við. Sömu sögu má
segja af sumum öðrum dagskrár-
liðum.
En því miður er þessi mynd
ekki alhvít og fögur. Fjárhagsá-
stand Ríkisútvarpsins hefur bitn-
að á Rás tvö eins • og öðrum
deildum stofnunarinnar. Fyrir
tveimur mánuðum var lausráðnu
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
dagskrárgerðarfólki sagt upp
störfum á Rás 2 og við það rýrn-
aði dagskráin verulega. í stað lif-
andi útvarps er nú dauður tónlist-
arróbót látinn sjá um útsendingar
á kvöldin og nóttunni. Áður voru
unnir þættir á þessum tímum og
stjórnendur þeirra voru í lifandi
tengsium við fjölda hlustenda,
ekki síst á landsbyggðinni tók ég
eftir.
Þetta er miður og þyrfti að
laga, en til þess þarf að linna fjár-
svelti þessa fjölmiðils sem við
eigum öll en örfáir þröngsýnir
íhaldsmenn geta ekki unnt okkur
að njóta.
******
Því fór nú andskotans verr að
ég lá í pest alla páskahelgina.
Fyrir vikið gat ég sannreynt það
sem ég ræddi um í síðasta pistli
mínum: að páskadagskrá Sjón-
varpsins var harla góð. Ég þakka
pent fyrir mig, einkum fyrir alla
músíkina á föstudaginn langa og
þættina um Guðjón Samúelsson.
Einn þáttur þótti mér hins veg-
ar dálítið undarlegur. Þar var á
ferð ballett unninn á vegum Sjón-
varpsins og íslenska dansflokks-
ins. Sviðið í þættinum var eins og
í poppvídeói fyrir svona 3-4 árum
(á blómatímum Duran Duran).
Þá var vinsælast að taka mynd-
böndin upp í skuggalegum kjöllu-
rum eða bakgörðum þar sem allt
var fullt af hálfhrundum veggj-
um, skellóttri málningu og fólkið
í tætingslegum fötum, jafnvel
sveipað slæðum. Og svo liðaðist
reykurinn um allt.
Þá tók ég eftir því að stjórnandi
þáttarins var Björn Emilsson en
reykurinn er einmitt höfundar-
einkenni hans. Auk þess má
alltaf sjá á verkum hans að hann
hlaut sitt kvikmyndauppeldi í
auglýsingagerð. Það var reyndar
óvenju augljóst núna því tveir
leikaranna hafa verið fyrir
augunum á okkur um langt skeið
í mikið sýndum auglýsingum.
Allan tímann beið ég eftir því að
Lalli sölumaður færi að reyna að
pranga inn á mig verðbréfum eða
að stúlkan fagra úr Dilettoauglýs-
ingunni tæki upp á því að bjóða
mér í kaffi. Þetta sýnir að leikarar
þurfa að fara varlega í auglýsing-
agerðinni. Hún getur skapað
þeim ímynd sem þeir eru ekkert
of hrifnir af.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. apríl 1988