Þjóðviljinn - 10.04.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 10.04.1988, Blaðsíða 2
Dándimaður vikunnan , / 1 rósa- garðinum ÞAR FÓR SÍÐASTA VONIN Manni er farið að blöskra þetta háa álverð. Það er orðið svo hátt að það er ekki lengur okkar hag- ur, sagði Ragnar Halldórsson, forstjóri ísals. Morgunbla&ið. HETJA VORRA TÍMA Rakarinn Ronny lætur ástina sem slíka ekki trufla sig sérstak- lega. „Við erum hér til þess að leggja líf okkar í rúst og lenda í ástarsorg og elska rangt fólk og deyja," segir hann við Loretu, sem hann ætlar að fara að taka frá bróður sínum. Kvikmyndarýni í Morgunblaðinu. RÚSSAGRÝLAN SEMBRÁST Rússasamningarnir bjarga ekki öllu, segir Aðalsteipn Helga- son, aðstoðarforstjóri Álafoss. Morgunblaðið. ÞEIR SVENSKU KALLAEDDU FORNGA USKAR BÓKMENNTIR Ætla að breyta íslensku brota- járni yfir í sænskt stál. Fyrirsögn í Tímanum. MJÓR ER MIKILS VÍSIR Ráðhúsið hefur aðeins stækk- að um 258 fermetra. Fyrirsögn í Morgunblaðinu. HUNDRAÐASTA OG ELLEFTA MEÐ- FERÐ Á SKEPNUM Átján þúsund froskum var haldið föngnum á flugvellinum í Brussel á mánudag. Tíminn. HVAR ER ÍHEIMI HÆLI TRYGGT? Megrun getur verið fitandi. Morgunblaðið ÞAÐTELÉGVAFA- LAUST Ber Ólafur Laufdal ábyrgð á hjónabandi sem stofnað er til með trúlofun á Hótel Borg? Bréf í Velvakanda. SÍAUKINNINNF- LUTNINGURÁER- LENDU VINNUAFLI2 í húsakynnum gömlu gras- kögglaverksmiðju Stórólfsvalla- búsins skríða nú erlendir ána- maðkar, sem komu hingað til lands í febrúar sl. í þeim tilgangi að vinna lífrænan áburö úr fóðri eða ýmsum úrgangi. Tíminn. HINN ÓTTALEGI LEYNDARDÓMUR Það gengur enginn að náunganum og sþyr: Heyrðu væni, hvað hefurðu í laun? Ragnar Halldórsson, forstjóri ísal, í grein í DV. 2 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN SKAÐI SKRIFAR FRAM ÞJAÐIR STJÓRNMÁLAMENN I OLLUM FLOKKUM Ég, Skaði, hef nú mín sambönd, þótt ég láti ekki fara mikið fyrir mér hvunndags. Ég þekki til dæmis helstu stjórnmálamenn þjóðarinnar. Ólafur Baldvin Pálsson er skólabróðir minn og einu sinni vorum við saman í Kaupmannahöfn (eða var það London?) og máluðum bæinn rauðan og ekki meira um það. Nema hvað ég hitti um daginn Ólaf Baldvin Páls- son og spurði si sona hvort honum liði ekki vel í valdastólunum. Minnstu ekki á það ógrátandi, sagði hann. Þetta eru ekki valdastólar fyrir fimm aura. Og ég er satt að segja orðinn hundleiður á þessum andskotans kjós- endum. Nú, hvað ber til þess vinur? spurði ég. Þetta er svoddan pakk. Það vill að maður ráði öllu og það vill ekki að maður ráði neinu. Þeir vilja nota okkur eins og ánauðugar húsmæður, en svo halda þeir framhjá okkur með Kvennalistakonum hvenær sem færi gefst. Og ef þeir hefðu ekki þann lista þá mundu þeir halda framhjá okkur með sjálfum sér eða guð má vita hvað. Þetta lið hefur ekki skömm í lífinu. Ósköp eru að heyra þetta vinur, sagði ég. Vanþækklætið, Skaði, vanþakkklætið er svo yfir- þyrmandi. Maður er að puða í þessu frá rassblautu barnsbeini. Maður heldur ræður alveg frá því í barna- skóla, ræður og ávörp og allt mögulegt þangað til maður gæti gubbað. Maður prófar hina ýmsu flokka og kenningar. Maður er semsagt í hörkusérhæfingu. Og hvernig eru svo kjörin? Sendisveinar hjá lceland Seafood mundu ekki líta við þessu. Bankastjórarnir hlæja bara að eftirlaununum okkar. Allir eru meira eða minna æviráðnir hvort sem þeir vinna hjá ríkinu eða Eimskip, blessaður vertu, allir nema við. Við skulum þurfa að slást eins og andskotinn hver við annan um þessi fáu þingsæti ekki bara fjórða hvert ár heldur miklu oftar. Við fáum magasár og hjarta- kvilla og hausverk og allt mögulegt, börnin okkar eru ofsótt í skóla og enginn segir svo mikið sem svei þér Er það svona slæmt, sagði ég hryggur. Það er ekki bara svona slæmt, Skaði, sagði Óiafur Baldvin Pálsson, það er miklu verra. Maður má ekk- ert. Það er allt rangt sem maður gerir. Þú ert á móti Flugstöð eða með Flugstöð og það er jafn slæmt. Því ef þú ert á móti Flugstöð þá ertu íhaldssamur og smáskitlegur og vilt ekki þjóðlega reisn í flugmálum og þú vilt ekki veita byggingamönnum vinnu. En ef þú ert með Flugstöð þá tekur ekki betra við: þú ert þá með sukki og svínaríi og ábyrgðarleysi. Svona er þetta allt. Ef maður reynir að vera góður við kennara í kjaramálum þá verða allir aðrir grautfúlir og væla: þú ert ekki að hugsa um mig andskotinn þinn! Og kenn- arar sjálfir verða tortryggnir og hugsa: það býr eitthvað gruggugt undir þessu.Ef þú svo ert á móti kennurum, þá er það líka vont. Þá ertu á móti konum og öllum opinberum starfsmönnum og svo börnun- um líka. Svona gengur þetta Skaði. Allir þessir kjósendur þykjast upp yfir okkur hafnir. Þeir segja að við höfum ekki hundsvit á neinu. Svo stela þeir frá okkur pólit- ísku málunum á víxl alveg eins og þeim hentar. Þeir sjá vinstrihugmynd um að stórauka félagslega þjón- ustu og þeir segja húrra fyrir því. Þeir sjá hægrihug- mynd um að skera niður útgjöld ríkisins og lækka skatta og þeir hrópa líka húrra. Svo gengur þetta náttúrlega ekki upp og þá er það OKKUR að kenna, stjórnmálamönnunum. Ég segi það satt Skaði, ég þoli ekki svona svínarí. En Ólafur minn Baldvin, sagði ég, mér finnst það samt eitthvað svo göfugt og sjarmerandi að þið þessir fáu stjórnmálamenn skulið fórna ykkur fyrir svo marga. Það minnir mig á eitthvað, er það ekki Nýja Testamentið? Eg skal ekkert um það segja Skaði. En ég ætla að grípa til minna ráða. Og hvaða ráð eru það vinur? Ég ætla að stofna nýja hreyfingu. Ég ætla að stofna Flokk stjórnmálamanna til að berjast fyrir lífi okkar og rétti. Og hvernig á að fara að því? spurði ég. Ég ætla að tengja saman tryggðaböndum þjáða stjórnmálamenn í öllum flokkum. Takmarkið er að koma kjósendunum frá völdum og velja sér nýja í staðinn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.