Þjóðviljinn - 04.10.1988, Qupperneq 1
Þriðjudagur 4. október 217. tölublað 53. órgangur
Fræðsluvarp hóf göngu sína i
gær. Námsgögn verða þó ekki til
fyrr en í næstu viku. Mennta-
málaráðuneytið beitti nýrri reglu
við ákvörðun um hver hlutur
nemanda í kostnaði ætti að vera,
hann verður nú helmingur í stað
þriðjungs áður.
„Skólagjöld" í íslenskukennslu
Fræðsluvarpsins verða 116% dýr-
ari en sambærilegt gjald hjá
Öldungadeild MH. Eins og íslen-
skunámið er uppbyggt er hvorki
þörf á útvarpi né sjónvarpi við
kennsluna og mætti því spyrja
hver tilgangurinn með „fjöl-
miðlakennslunni“ er.
Forráðamenn Fræðsluvarps
viðurkenna að þeir renni blint í
sjóinn með hugsanlega þátttöku,
en góð þátttaka gæti sprengt fjár-
hagsrammann. Þeir hafa hins
vegar sótt um að fjárveiting til
þeirra verði sjöfölduð á næsta ári,
án þess að kennsluskrá liggi fyrir,
né nokkur reynsla sé komin á
námið.
Val á þeim aðilum sem fengnir
eru til að sjá um kennslu í ein-
stökum greinum virðist handa-
hófskennt, enda var ekki leitað
útboða né auglýst eftir kennslu-
aðilum. Skólastjóri Málaskóla
Mímis telur kynningu Fræðslu-
varpsins á kennslunni „vera fyrir
neðan allar hellur."
Sjá síðu 2
Skák
Kasparov
á íslandi
Friður með þorra
keppenda
Á slaginu klukkan 5 í gærdag
hófst fyrsta umferð Heimsbikar-
móts Stórmeistarasambandsins,
sterkasta skákmóts sem haldið
hefur verið hérlendis.
Mesta athygli keppenda vakti
vitaskuld sjálfur heimsmeistar-
inn, hálfþrítugur Azeri af ættum
gyðinga og Armena, sjálfur
Garríj Kasparov. Hann atti kappi
við landa sinn, Arþúr Júsúpov,
stýrði svartstökkunum, tefldi
Grúnfeldsvörn og bryddaði uppá
nýjung. Allt kom þetta þó fyrir
ekki því eftir 21 leik var staðan
dauð úr öllum æðum.
Aðeins tveir skákmenn af átj-
án urðu að bíta í það súra epli að
tapa. Alexander Beljavskíj og
Margeir Pétursson tefldu
skemmtilegustu skák umferðar-
innar og lét okkar maður sig ekki
fyrr en í fulla hnefana.
Svíinn Ulf Andersson sýndi
enn hve flínkur hann er í enda-
töflum og sveið haminn utanaf
vesalings Andrej Sókólov.
Sjá síður 10 og 11
Sjávarútvegur
Þjónustunni blæöir
Skuldir sjávarútvegsfyrirtœkja viðþjónustufyrirtœki
nema um 1,5 miljarði króna. 2 afhverjumlO víxlum
lenda í vanskilum
Landbúnaðarafurðir
Óbreytt
verð
EÍdra kjötið lœkkar um
15-20%
í samræmi við verðstöðvunar-
ákvæði bráðabirgðalaga ríkis-
stjórnarinnar um efnahagsað-
gerðir verður óbreytt verð á bú-
vörum frá því sem var 1. júní sl.
Það hefur í för með sér að verð á
mjólk og mjólkurafurðum helst
óbreytt, sömuleiðis verð á
nautakjöti og hrossakjöti. Verð á
dilkakjöti af nýslátruðu verður
einnig óbreytt.
Hins vegar lækkar verð á þeim
birgðum sem þegar éru til af
dilkakjöti um 15-20%. Um er að
ræða allt að tvö þúsund tonn.
Til þessara niðurgreiðslna ver
ríkissjóður samtals 160-170 milj-
ónum króna til næstu áramóta,
en, sú upphæð er innan þeirra
marka sem ákveðin voru í að-
gerðum ríkisstjórnarinnar.
Að óbreyttu hefði búvöruverð
átt að hækka um 8-10% en vegna
verðstöðvunar og frestunar
launahækkana hækka hvorki
laun til bænda né greiðslur til slát-
urleyfishafa.
Vanskil sjávarútvegsfyrirtækja
við þjónustufyrirtæki ýmisskonar
hrannast upp og nema í dag um
1,5 miljarði króna og eru sífellt
að aukast. Lán fiskvinnslu- og út-
gerðarfyrirtækja til endurskipu-
lagningar og hagræðis í rekstri
eru gleypt af bönkum og opinber-
um sjóðum en þjónustufyrir-
Mikil uppstokkun á sér nú stað
í matvöruverslun á höfuðborgar-
svæðinu. Á sama tíma og Slát-
urfélagið hættir rekstri matvöru-
verslana eykur KRON hlutdeild
sína veruléga í versluninni og
ásamt Hagkaupum eru þessir
tveir risar með yfir helming allrar
tækin eru skilin eftir úti í kuldan-
um.
Gestur Halldórsson, forstjóri
Vélsmiðjunnar Þórs á ísafirði,
segir að 2 af hverjum 10 víxlum
lendi í vanskilum og ástandið sé
sýnu verst hjá rækjuvinnslunni.
matvöruverslunar á höfuðborg-
arsvæðinu á sinni könnu.
Þriðji stærsti aðilinn er Fjarð-
arkaup í Hafnarfirði sem er að
stækka verslun sína um helming
þessa daga.
Sjá síðu 3
Sjá síðu 5
StórmarkaÖir
Tveir risar eftir