Þjóðviljinn - 17.12.1988, Blaðsíða 3
BÆKUR
Allt sem þeir
gerðu var
óvenjulegt
Guðbergur Bergsson:
Maðurinn er myndavél.
Smásögur.
Forlagið 1988.
í þessari bók eru sögur allt frá
árinu 1972, sumar eins og
hrokknar utan úr því efni sem
Guðbergur var þá að moða úr í
stærri verk. Fleiri eru þó tiltölu-
lega nýjar af nálinni. Og það er
eins gott að taka það strax fram
að þetta er mjög skemmtilegt
safn.
í sögu af tveim sjómönnum
heldur betur dularfullum („Hálf-
sögð saga“) segir sem svo: „Allt
sem þeir gerðu var óvenjulegt og
ruglaði fólk í ríminu“. Allar eru
sögur Guðbergs „óvenjulegar".
Það er eins og hann vilji gera til-
raun með það hve Iangt hann
kemst með sjálfan sig og lesand-
ann áður en honum ferst sem
prestinum í þeirri sögu sem áðan
var vitnað til: „Ef hann héldi
áfram vissi hann að hann vissi
ekki lengur hvað hann var að
segja“. Hann þaulræktar hug-
myndir og kreistir úr þeim safann
með mikilli útsjónarsemi. í sög-
unni „Maður sem varð fyrir
óláni“ er afbrýðisemin látin
teyma tortrygginn eiginmann út
yfir allan þjófabálk. I „Jón Karl
og konan“ rennur það smám
saman upp fyrir lesaranum,
hvemig sögukonan smíðar sér
eiginmann úr einsemd sinni enda
telur hún að veruleikinn sé „ein-
hver tegund af vissu og vilj a“. Og
svo framvegis. Stundum er úr-
vinnslan þannig að sögurnar
verða ekki barasta „óvenjulegar"
heldur geta vel „ruglað fólk í rím-
inu“. En bættur sé sáskaði,menn
geta þá fengið annað í staðinn
eins og konan sem bjó sér til Jón
Karl: hún las bók og „í sögunni
fólst eitthvað heillandi eins og
ævinlega í skáldskap sem maður
skilur aðeins til hálfs“.
Ef maður á annað borð fellst á
það að slíkur hálfskilningur sé
heillandi, þá dregur hann lesand-
ann langt til að sættast við jafnvel
mestu ólíkindalæti í Guðbergi og
persónum hans. Reyndar má það
segja um ýmsar best skrifuðu og
hnyttnustu sögur þessarar bókar,
að höfundur er hófsamari í leik
sínum en oft áður og þar með
„aðgengilegri" hverjum þeim
sem á annað borð nennir að lesa.
Nefnum til dæmis ágæta dæmi-
sögu frá stríðsárunum um dreng-
ina sem fundu hanska af amrísk-
um hermanni og gerðu árangurs-
lausar og hlálegar tilraunir til að
skila honum til hersins í nafni
þjóðlegrar reisnar. Eða þé loka-
söguna (eða sögurnar),
„Brúðan“, sem geymir furðuleg
en jafnframt merkilega þekkjan-
leg brot úr síðustu byltingunni í
Evrópu, hinni portúgölsku.
Árni Bergmann
T
1
Guðbergur Bergsson
Lífið
í kringum okkur
Bókaútgáfan FORLAGIÐ
hefur sent frá sér bókina Lifandi
heimur - Lífið í kringum okkur
eftir Marit Claridge og John
Shackell. Þetta er fræðslubók um
náttúruna í myndum og máli þar
sem börnin fá svalað forvitni
sinni og svör við spurningum um
lífið í kringum okkur.
Þessi litríka bók hefur að
geyma ómældan fróðleik um það
sem gerist í jurtaríkinu, dýrarík-
inu og daglegu lífi barnanna
sjálfra. í bókinni er yngstu kyn-
slóðinni kennt að gera einfaldar
tilraunir sem leiðir hana fyrstu
sporin í líffræði og náttúrufræði.
Einnig eru grundvallarhugtök líf-
fræðinnar útskýrð á einfaldan og
fjörlegan hátt og aftast í henni
eru orðskýringar þar sem hægt er
að fletta upp á erfiðustu orðun-
um. - En bókinni er ekki aðeins
ætlað að fræða - heldur er henni
líka ætlað að temja börnunum
virðingu fyrir öllu því sem lifir og
andar í kringum okkur.
Lifandi heimur - Lífið í kring-
um okkur er 39 bls. Bjarni Fr.
Karlsson þýddi.
PETUR
ZOPHONÍASSON
VKINGS
IÆKJARHT V
FANGINN OG DOMARINN
Þáttur af Sigurdi skurði
og Skúla sýslumanni
Ásgeir Jakobsson
Svonefnd Skurðsmál hófust
með því, að 22. des. 1891
fannst lík manns á skafli á
Klofningsdal í Önundarfirði.
Mönnum þótti ekki einleikið
um dauða mannsins og féll
grunur á Sigurð Jóhannsson,
sem kallaður var skurdur, en
hann hafði verið á ferð með
þeim látna daginn áður á
Klofningsheiði. Skúla sýslu-
manni fórst rannsókn málsins
með þeim hætti, að af hlauzt
5 ára rimma, svo nefnd Skúla-
mál, og Sigurður skurður, sak-
laus, hefur verið talinn morð-
ingi í nær 100 ár. Skurðsmál
hafa aldrei verið rannsökuð
sérstaklega eftir frumgögnum
og aðstæðum á vettvangi fyrr
en hér.
VIKIN GSLÆKJARÆTT IV
Pétur Zophoníasson
Þetta er fjórða bindið af niðja-
tali Guðríðar Eyjólfsdóttur og
Bjarna Halldórssonar hrepp-
stjóra á Víkingslæk. Pétur
Zophoníasson tók niðjatalið
saman, en aðeins hluti þess
kom út á sínum tíma. í þessu
bindi eru i-, k; og 1-liðir ættar-
innar, niðjar Ólafs og Gizurar
Bjarnasona og Kristínar Bjama-
dóttur. í þessari nýju útgáfu
Víkingslækjarættar hefur tals-
verðu verið bætt við þau drög
Péturs, sem til voru í vélriti, og
auk þess er mikill fengur að
hinum mörgu myndum, sem
fylgja niðjatalinu. í næsta bindi
kemur svo h-liður, niðjar Stefáns
Bjarnasonar.
ÞÓRÐUR KAKALI
Ásgeir Jakobsson
Þórður kakali Sighvatsson var
stórbrotin persóna, vitur
maður, viljafastur og mikill
hermaður, en um leið
mannlegur og vinsæll. Ásgeir
Jakobsson hefur hér ritað
sögu Þórðar kakala, eins
mesta foringja Sturlunga á
Sturlungaöld. Ásgeir rekur
söguna eftir þeim
sögubrotum, sem til eru
bókfest af honum hér og þar í
Sturlungusafninu, í Þórðar
sögu, í Islendinga sögu, í
Arons sögu Hjörleifssonar og
Þorgils sögu skarða og einnig í
Hákonar sögu. Gísli
Sigurðsson myndskreytti
bókina.
ANDSTÆÐUR
Sveinn frá Elivogum
Andstæður hefur að geyma
safn ljóða og vísna Sveins frá
Elivogum (1889-1945). Þessi
ljóð og vísur gefa glögga
mynd af Sveini og viðhorfum
hans til lífs, listar og sam-
ferðamanna. Sveinn var bjarg-
álna bóndi í Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslu á fyrri hluta
þessarar aldar. Hann var eitt
minnisstæðasta alþýðuskáld
þessa lands og þótti mjög
minna á Bólu-Hjálmar í kveð-
skap sínum. Báðir bjuggu þeir
við óblíð ævikjör og fóru síst
varhluta af misskilningi sam-
tíðarmanna sinna.
SKVGGSJA - BOKABÚÐ OLTVERS STEJNS SF