Þjóðviljinn - 17.01.1989, Qupperneq 1
/
Þriðjudagur 17. janúar 1989 11. tólublað 54. árgangur
/irnarjiug
Nýtt fé eða sameining
SteingrímurJ. Sigfússon: Leggfram tillögur íríkisstjórn ídag sem leiða
málið til lyktafljótlega. Enn mögulegtaðArnarflugfari á hausinn.
Fleiri húseignir veðsettar en DV
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra ætlar að
ieggja fram tillögur í Arnar-
flugsmálinu á ríkisstjórnarfundi í
dag. Hann segist vona að þær
leiði til þess að endanleg niður-
staða í málinu liggi fyrir næstu
daga, en embættismenn hafa um
helgina farið yfir tölur til að
kanna hvað þurfi að gera til að
Arnarflug geti ' haldið áfram
rekstri.
Að sögn Steingríms eru bara
tveir möguleikar eftir í stöðunni.
Sá fyrri er að það takist að útvega
nógu mikið fé á skömmum tíma
til að leggja í fyrirtækið, og þar
geti ríkið eitthvað komið inn í.
En hin lausnin er að koma á meiri
samrekstri Arnarflugs og Flug-
leiða eða jafnvel sameiningu.
„Menn hafa verið að reyna að
torða þriðja möguleikanum, sem
vissulega er enn fyrir hendi, og
hann er að reksturinn stöðvist,"
sagði Steingrímur í gær.
Kristinn Sigtryggsson forstjóri
Arnarflugs sagðist vona að línur
færu að skýrast í næstu viku. Allir
möguléikar væru opnir í stöð-
unni. Hann sagði fleiri húseignir
veðsettar vegna Arnarflugs en
DV-húsið og það væri ekkert
óeðlilegt við það. Félagið hefði
tekið erlent lán í fyrir einu ári og
annað fyrir tveimur árum og að
sjálfsögðu hefði þurft að leggja
fram veð fyrir þeim. Hann vildi
ekki segja hvaða húseignir þetta
væru en þær væru í eigu hluthafa
Arnarflugs.
Mikil andstaða er við samein-
ingu félaganna innan Arnarflugs
og sumir hafa sagt að með henni
Japansmarkað ur
Innyflin í
gjafapakka
Magnús Magnússon hjá SH: Viðtökurnar upp
og ofan. Matjapana á hinumýmsu sjávaraf-
urðum mjög ólíktþvísem við eigum að venjast.
Það sem fer ígúanó hérgetur verið gulls ígildi
þar og öfugt
„Þarna á fiskmarkaðnum í
Tókíó eru seldar hinar ótrúleg-
ustu flsktegundir og meira að
segja sáum við flskinnyfli pökkuð
inn í gjafapakkningar sem er selt
sem munaðarvara“, sagði Magn-
ús Magnússon starfsmaður hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
í síðustu viku sendi Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna tilrauna-
sendingu með fyrsta fragtflugi
AA-fundir
Fjölsóttir
Yfir 700 manns hafa mætt á
þrjá fyrstu sameiginlegu fundi
formanna Alþýðubandalags og
AJþýðuflokks, „Á rauðu ljósi“ á
Isaflrði, Akranesi og Selfossi um
síðustu helgi.
Ofvöxtur í bankakerfinu, sam-
eining A-flokkanna og' ríkis-
stjórnarsamstarfið hafa verið
helstu umræðuefni fundanna.
Næstu fundir A-formannanna
verða haldnir í Vestmannaeyjum
á fimmtudagskvöld og á Höfn í
Hornafirði á föstudagskvöld.
Sjá síðu 2
væri verið að færa Flugleiðum
Arnarflug á silfurfati. Steingrím-
ur sagði mikið þurfa til þess, það
væri þá verið að færa Flugleiðum
skuldir á silfurfati. Menn yrðu að
gera sér grein fyrir því að málið
væri orðið mjög stórt og miklar
ráðstafanir hefðu verið gerðar
varðandi Arnarflug áður.
Forráðamenn Arnarflugs hafa
líka bent á að samkeppnisstaða
þeirra sé mun lakari en Flugleiða,
þar sem Flugleiðir þurfi ma. ekki
að greiða bensínskatt og hafi
einkaleyfi á flugi til Norðurlanda
og Bretlands. „Það er nokkuð til í
þessu,“ sagði Steingrímur. Petta
sýndi kannski hvað ákvörðunin
um tvö flugfélög hefði verið vara-
söm á sínum tíma og ef til vill
hefði átt að fara út í algera sam-
keppni strax í upphafi. En menn
verði þá að gera sér grein fyrir því
út í hvað þeir væru að fara. „Var
það ekki einmitt þetta sem menn
voru að forðast þegar Flugfélag
íslands og Loftleiðir voru sam-
einuð á sínum tíma?“ spurði
Steingrímur.
Samgönguráðherra sagði
margt benda til þess að ísiending-
ar yrðu að halda vel á spöðunum í
þeirri samkeppni sem framundan
væri í flugmálum og þegar væri
farin að segja til sín. Ef niður-
staðan yrði sú að hér ættu að vera
tvö flugfélög yrði að ríkja meiri
samvinna á milli félaganna en
verið hefði. Hans fyrstu tilraunir í
málinu hefðu falist í því að kanna
grundvöll fyrir tveimur félögum
og hvernig hægt væri að koma á
meiri samvinnu. En þeim hug-
myndum hefði ekki verið vel
tekið.
-hmp
Flying Tigers héðan til Japans.
Par var um að ræða tæp 600 kíló
af hinum ýmsu fisktegundum eða
alls 11. Sölumenn SH eru ný-
komnir heim og nú er verið að
vinna úr upplýsingum ferðarinn-
ar og spá í framhaldið með tilliti
til flutningskostnaðar og sölu-
verðs.
Að sögn Magnúsar er eins og
að koma í annan heim þegar
komið er á fiskmarkaðinn í Tókíó
sem er sá stærsti í heimi og selur
um miljón tonn á ári. Aðspurður
um hverjar hafi verið viðtökur
Japana við íslensku sýnishornun-
um sagði Magnús þær hafa verið
upp og ofan allt eftir fisktegund-
um en hann vildi ekki tjá sig um
hver hefði verið vinsælust né um
söluverð þeirra.
Magnús sagði að verðmætamat
Japana á sjávarafurðum vera allt
annað en í Evrópu og sagði að
sumt af því sem hér færi beint í
gúanó væri selt sem munaðarvara
þar eystra sem gulls ígildi og svo
öfugt. Magnús sagði að það leiddi
hugann að þeirri staðreynd hvort
ekki mætti gera verðmæti úr því
sem hér færi annars fyrir lítið með
því að framleiða það sérstaklega
og þá í litlum einingum fyrir
markaðinn í Japan. _grh
Þessa dagana er unnið að því að fjarlægja ónýta burðarbita úr límtré sem bera áttu uppi þak hins nýja íþróttahúss
Garðabæjar. Mynd ÞÓM.
íþróttahús Garðabœjar
Burðarbitar ónýtir
Jón Ingi Gíslason: Tefurframkvœmdir um einn til tvo mánuði. Þýsku
framleiðendurnir bótaskyldir
Við sendum nokkra bita austur
til límtrésverksmiðjunnar á
Flúðum þar sem styrkja átti þá.
Þar kom í Ijós að bitarnir voru
gallaðif. Það hafa komið hingað
fulltrúar vestur-þýsku fram-
leiðendanna og þeir hafa viður-
kennt að mistök hafi átt sér stað
við framleiðslu bitanna. Þeir taka
á sig allan kostnað sem af þessu
hlýst, sagði Jón Ingi Gíslason hjá
S.H verktökum sem annast bygg-
ingu íþróttahús fyrir Garðbæ-
inga.
Nú þessa dagana er unnið að
því að fjarlægja alla límtrésbita
sem búið var að setja upp. Þegar
er hafin framleiðsla á nýjum bit-
um, og munu þeir vera væntan-
legir til landsins í byrjun febrúar.
Jón Ingi sagði að ljóst væri að
opnun íþróttahússins myndi
dragast fram á vor vegna þessa.
En samkvæmt upphaflegum áætl-
unum meirihluta bæjarstjórnar
Garðabæjar átti þetta hús að vera
tilbúið vorið 1987.
- Pað er ekki gott að segja
hvað mikill kostnaðarauki hlýst
af þessu. Ég geri ráð fyrir að hann
hlaupi á tugum miljóna, sagði
Jón Ingi.
-sg