Þjóðviljinn - 16.03.1989, Page 11
I DAG
Pað er margt skrýtið í kýr-
hausnum, sagði kerlingin. Eins
og alþjóð veit, var ráðist af mikilli
heift á dagskrárþáttinn Þjóðar-
sálina, þann 21. feb.Árásaraðil-
innvar- haldiðykkurnú, enginn
annar en málgagn alþýðunnar,
Þjóðviljinn! Ekki er nóg að fólk
sem hringir í Þjóðarsálina eigi að
vera leiðindafólk sem enginn
nennir að hlusta á, heldur
heimskt og fákunnandi, jafnvel
öryrkjar og karlægt fólk! Ég vona
bara að Guð verði góður við
Guðmund Andra og geri aldrei
úr honum aumingja karlægan
karl að ég nefni nú ekki öryrkja!
Hin djúpa vanmetakennd mín,
fyrir að frábiðja mér skræka tölv-
umúsík og annað þessháttar, má
liggja hérna milli hluta. Það var
naumast að það fór fyrir hjartað á
manninum að almenningur vog-
aði sér að láta uppi sína vanþókn-
un og yfir höfuð vera nokkuð að
hafa fyrir því að gagnrýna
eitthvað sem það hefur ekki vit
á!... Annars er það á hans mæli-
kvarða þetta vit, sem meirihluti
þjóðarinnar virðist gersneyddur!
Svo við hverfum nú frá þessari
yfirgengilegu háfleygu, hátt upp
yfir sauðsvartan almúgann hafinn
menningarviðburð, og snúum
'okkur að því sem máli skiptir í
þessu sambandi, þá finnst mér
undarlegt í meira lagi ef að fólk
má ekki viðra sínar skoðanir um
eitt eða neitt án þess að vera
brennimerktur sem nöldrari,
heimóttungur. Höfundurinn
sjálfur, að þessari umdeildu ný-
list sýndi engan slíkan ruddaskap
í útvarpsþættinum. Og sýndi þar
með alþjóð að hann var ekki með
neina minnimáttarkennd
gagnvart sínum verkum. Van-
metakenndin sem kemur fram í
hroka og oflæti Guðmundar
Andra er ekki nýlistinni í neinu
formi til gagns.
Ég var ein af þeim sem hringdi í
þennan þátt. Éinn aulinn til, í
Aulaþættinum. Var mín ástæða
sú, að ég var að mótmæla einmitt
þessari áráttu margra hér á landi
að stimpla fólk fyrir að gagnrýna
það sem þeim finnst miður fara.
Ekki er það til þess að ýta undir
það, að fólk beri hönd fyrir höfuð
sér, að það fái það á sig að þeir
séu sér og öðrum til athlægis ef
þeirra skoðanir eru ekki þær
sömu og fjölmiðlamanns.
Engar leiðbeiningar
Til dæmis má nefna hér að það
fylgja engar leiðbeiningar lyfjum
í þessu Iandi. Jafnvel ekki þær
sem öðrum þjóðum er gert skylt
að láta fylgja sínum lyfjum á
tungumálum þeirra, þessu er
hent hér! Nú, af hverju haldið þið
að það sé gert? Eftir sérfræðingi
hér í útvarpi að dæma er það
vegna þess að þessar leiðbeining-
ar eru m.a. á arabísku og íslend-
ingar skilja ekki það mál! Meir að
segja Arabar sýna þegnum sínum
þá virðingu að láta upplýsingar
um lyf fylgja því! Þessar
leiðbeiningar eru lika á ensku,
þýsku, dönsku og spönsku... En
nei, ekki aldeilis fyrir íslendinga.
Þeir þurfa ekkert um það að vita
að ekki má drekka vín ofaní sum
meðöl og ekki má taka sum með-
öl saman. Þetta er hrein lífsnauð-
syn oft úti á landi.
Sérfræðingurinn ráðlagði fífl-
unum að glugga í doðrant sem
lægi fyrir í apótekum á meðan
þau biðu eftir lyfinu! Ég sé nú
fólk í anda, gamalt eða hrædda
foreldra leitandi að einhverju lyfi
í slíkri bók og skrifandi upp var-
úðarreglurnar sem gilda með
flestum lyfjum og á að vera sjálf-
sagður hluti af pakkningunni í
öllum löndum heims! Hér aftur
er fólk vænt um heimsku og að
þetta bara komi því ekkert við!
Þessum yfirgengilega hroka ráð-
andi manna verður að linna áður
en verra hlýst af. Þetta er ekkert
nema mannfyrirlitning. Þess
vegna finnst mér það vera há-
mark lýðræðis á íslandi að hafa
þennan þátt í útvarpinu og bið
fólk um að láta ekki þagga niður í
sínum mjög svo áríðandi málefn-
um og hræða sig til þagnar og
kúgunar með niðurlægjandi
stimplum. Ef þessi þáttur fer í
taugarnar á stjórnmálamönnum
og öðrum ráðamönnum, þá því
betra! Þeir þurfa að bera ábyrgð á
sínum gjörðum engu síður en
aðrir þegnar þessa lands.
Fólkið á að ráða
Það er fólkið í landinu sem
ræður! Það er fólkið í landinu
sem er ekkert hrifið af því að líf-
eyrissjóðaráðamenn eru að
braska með 60 miljarða af þeirra
fé og okra á lánum til þess fólks
sem á þessa peninga til þess að
byrja með. Áð lífeyrissjóðirnir
skuli vera að fara í mál útaf því að
fá ekki að okra nóg er til
skammar! Jafn mikið til skammar
og að gamalt fólk sem ekki á stór-
hýsi til skiptanna, ber skarðan
hlut frá borði þegar um þjónustu-
íbúðir aldraðra er að ræða. Þetta
fólk má híma aleitt og yfirgefið í
kjallaraholum borgarinnar á
meðan ráðhús og skoppara-
kringlur rísa og lífeyrissjóðirnir
þeirra velta sér í peningum í allra
handa braski. Þetta gamla fólk á
betra skilið en vera hæðst að, ef
það vogar sér að kvarta yfir sín-
um kjörum. En á meðan eru út-
hlutaðir styrkir í nýlist og þetta
fólk er kallað nöldrarar.
Dóttir mín á fiðlu. Hvernig
mundi fólki líka það ef ég, í nafni
réttlátrar samkeppni, heimtaði
að garga á þessa fiðlu í útvarp og
móðgaðist bara ef fólk tæki þetta
ekki með þökkum? Eða þá að ég
setti tvær rúllur af heimilispappír
á borð og færi með það í sjón-
varpið með mikla list, hátt yfir
alla gagnrýni hafna? Og réttlætti
þetta svo með því að ég hefði
hangið í frægum listaskóla í
Timbuktu! Nei, ég áskil mér og
öðrum rétt til gagnrýni án þess að
vera svipt ærunni fyrir! Nú, í
Rúv á faraldsfæti að kanna við-
fyrsta skipti á íslandi verður þetta
stóra fólk að bíta í það súra epli
að verða að standa fyrir sínu máli
og hlusta, ef það kærir sig um, á
almenningsálitið í landinu.
Það sem komið hefur fram í
Þjóðarsálinni er þetta: Fólk vill
ekki að ísland sé notað sem her-
hreiður, fólk vill byggja sína eigin
flugvelli. Fólk vill ekki að aðrar
þjóðir séu að skipta sér af innan-
ríkismálum landsins, nóg er nú
samt! Fólk er þreytt á einskisnýtu
t bruðli á allar hliðar. Og fólk vill
fá að lifa mannsæmandi lífi í sínu
eigi landi. Og þrýstingur almenn-
ings er sterkur, almenningur í
Bandaríkjunum stöðvaði Víet-
Nam-stríðið! Og á meðan einn
öryrki í þessu landi á ekki fyrir
mat og á meðan fólk deyr aleitt í
skúmaskotum Reykjavíkur, á
meðan aðrir dansa í kring um
gullkálfinn, á þáttur eins og Þjóð-
arsálin fullan rétt á sér. Ekki bara
það, hann er oft eina tólið sem
fólk á til, svo í því heyrist, og eiga
aðstandendur þessa þáttar allar
þakkir skilið fyrir að þora að vera
með lýðræðis- og jafnréttisþátt
sem þennan. Annað eins hefur
aldrei heyrst í þessu landi!
Áfram, Þjóðarsál!
Svana R. Guðmundsdóttir
Fjarðargötu 6
Þingeyri
Stöndum vörð
um Þjóðviljann
Vegna frétta af slæmri stöðu
Þjóðviljans og hugmyndum um
að draga saman seglin og minnka
blaðið vil ég hvetja alla velunnara
blaðsins til að standa vörð um
það.
Mér verður hugsað til hina lífs-
eigu, stríðöldu dagablaða auð-
valdsins - ævintýrablaðanna. Al-
þýðan verður að eiga voldugt
málgagn. Ef vel á að vera á blað
alþýðunnar að skipa æðsta sess
íslenskra dagblaða, því verka-
maðurinn er grundvöllur þjóðfé-
lagsins, sá sem brauðfæðir fólkið
í landinu.
Ég vil hvetja alla alþýðu þessa
blessaða lands til að taka höndum
saman um að efla málgagn sitt
Þjóðviljann og hvet einnig áskrif-
endur til að safna fleiri áskrifend-
um. Þjóðviljinn verður að vaxa
og bera ávöxt. Við þörfnumst
Þjóðviljans, málgagns sósíal-
isma, þjóðfrelsis og verkalýðs-
hreyfingar.
Einar Ingvi Magnússon
Skin og skuggar
í Skuggabjörgum skollar eiga bæli
og skuggabaldrar lifa þar í náðum,
þar okrararnir eiga tryggast hæli
með útsmognum og grimmdarlegum ráðum.
Þar fleipra menn um fjármagnskostnað mikinn
en fást ei til að minnast neitt á okrið,
sem veldur því, að sérhver þykist svikinn
í samskiptum vió aurasálarhokrið.
Þar búa menn til gildrur fyrir grannann
og grafa undan hrekkjalausum mönnum,
og ósómann þeir telja sóma sannan
og svíkja jafnt og þétt í dagsins önnum.
Upp nú rísi íslands þjóð í vanda
gegn okrurum og leiðu flærðardóti
og urði bráðast þessa fúlu fjanda,
þá fá þeir aldrei litið sólu móti.
En sólin skíni björt á frónið fríða
og fagurt mannlíf blómstri hér um síðir.
Megi ei lengi þurfa þess að bíða
að þroska nái landsins æskulýðir. HG
þlÓÐVILIINN
FYRIR50 ÁRUM
Friður Chamberlains. Tékkó-
slóvakía innlimuð í Þýzkaland.
Þýzki herinn veður yfir landið og
setur upp fasistiska harðstjórn.
— Ungverskur her tekur Rúthen-
íu herskildi. Stjórnir Frakklands
og Bretlands er ábyrgð tóku á
landamærumTékkóslóvakíu, í
vitorði með Hitler.
16. MARS
fimmtudagur í tuttugustu og
fyrstu viku vetrar, tuttugasti og
sjötti dagur góu, 75. dagur árs-
ins. Sól kemur upp í Reykjavík kl.
7.43 en sest kl. 19.32. Tunglvax-
andiáöðrukvartili.
VIÐBURÐIR
Gvendardagur (dáinn Guðmund-
urbiskupArason 1237). Fædd
Nína T ryggvadóttir málari 1913.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik. Helgar-og kvöldvarsla lyfj-
abúöa vikuna
10.-16. mars er í Laugarnesapótekl og
Ingólfs Apóteki.
Fyrrnef nda apótekið er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (tll
10 fridaga). Síðarnefnda apótekiö er
opiðákvöldin 18-22virkadagaogá
laugardögum 9-22 samhliöa hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur..........sími 4 12 00
Seltj.nes..........sími 1 84 55
Hafnarfj...........sími 5 11 66
Garðabær...........sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík..........simi 1 11 00
Kópavogur..........sími 1 11 00
Seltj.nes..........sími 1 11 00
Hafnarfj...........sími 5 11 00
Garðabær...........sími 5 11 00
L4EKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavfk, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er i Heilsu-
verndarstöö Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vaktvirka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspít-
allnn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöts.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt8-17áLæknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Keflavfk: Dagvakt. Upplýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspitalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspftalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspltalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin við
Barónsstíg opin alla daga 15-16og
18.30-19.30. Landakotsspftali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadelld:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspftali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spftalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19.
Sjúkrahúsið Akureyri: alla daga 15-16
og 19.19.30. Sjúkrahúsið
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allan sólarhringinn.
Sálf ræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum
efnum. Sími 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opið virkadagafrá
kl. 10-14. Sími 688800.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl .20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
Sími21500, símsvari.
Sjálf shjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, slmsvari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarf ræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, simi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Símsvari áöðrumtímum. Siminner
91-28539.
Félag eldri borgara. Opið hús i Goðheim-
um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga kl. 14.00.
Bllanavakt (rafmagns- og hitaveitu:s.
27311. Rafmag nsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sif jaspellamál. Simi
21260 alla virka daga kl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt I sima 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögumkl. 17.00-19.00.
Samtök áhugaf ólks um alnœmisvand-
ann vilja styðja við smitaða og sjúka og
aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 -
224400 alla virka daga.
GENGIÐ
Gengisskráning 15. mars 1989 kl.
9.15.
Sala
Bandaríkjadollar............ 52,64000
Sterlingspund............... 90,88600
Kanadadollar................ 44,03000
Dönsk króna.................. 7,25320
Norskkróna................... 7,77150
Sænskkróna................... 8,26110
Finnsktmark................. 12,13180
Franskurfranki............... 8,34560
Belgískur f'-anki....... 1,35090
Svissn.franki............... 33,02070
Holl.gyllini................ 25,06670
V.-þýskt mark................ 28,27370
Itölsklíra................... 0,03853
Austurr.sch................... 4,01940
Portúg. escudo................ 0,34380
Spánskurpeseti................ 0,45440
Japansktyen................... 0,40450
Irsktpund.................... 75,51500
KROSSGÁTA
I Lárétt: 1 loga, 4róa8
1 2 4 6 i 7 fastbundið9hóta11 kvittur12þrep14sýl15 peninga 17land 19 svefn21 einnig22sál 24bindi25þref Lóðrétt: 1 ragn2ljá3 myndar 4 totur 5 ellegar 6 spik 7 þátttakendur 10kjökrar13erfiða16 bylgja 17 hvíldi 18 kúga 20 morar 23 umdæmis- Istafir
•
9 16 n 11
12 - 13 □ 14 •
r~i is 1« r^ L. J Lausnásíðustu krossgátu Lárétt: 1 sýta4móka8
’H ift 1 • 19 20 aðfalls 9 rögg 11 smáa 12oflæti14mn15týra 17gufan 19rám21 agi 22auði24samt25 mana Lóðrétt: 1 skro 2 tagl 3 aðgæta 4 masir 5 ólm 6 klám7asanum 10 Öfluga13týna16arða 17gas 18fim20áin23 um
22 23 □
24
Fimmtudagur 16. mars 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11