Þjóðviljinn - 18.03.1989, Page 3
FRETTIR
Verkalýðsforingjar í stjórnarráðinu. Guðmundur Þ. Jónsson og Óskar Vigfús-
son slá á léttari strengi meðan Karvel Pálmason sökkvir sér niðrí umfjöllun
helgarblaðs Þjóðviljans um læknamafíuna í heilbrigðisgeiranum. Mynd Þóm.
Kjarasamningar
Alvöruviðræður
að heflast?
Ríkisstjórnin átti í gær fundi
með fulltrúum samninganefnda
Ríkisstjórnin
100 miljónir
til smábála
Ríkisstjórnin hefur heimilað
Byggðastofnun að taka erlent lán
að upphæð 100 miljónir króna til
að leysa brýnasta fjárhagsvanda
smábátaeigenda.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans munu þessar 100 miljónir
króna verða lánaðar til þeirra
smábátaeigenda sem hafa fjár-
magnað bátakaup sín allra síð-
ustu ár með 2.-3. ára skammtíma-
lánum sem hafa hækkað að mun á
sama tíma sem afli hefur minnk-
að eða staðið í stað og fiskverð lítt
hækkað.
Unnið hefur verið að gerð
lánareglna í sjávarútvegsráðu-
neytinu að undanförnu í samráði
við fjármála- og viðskiptaráðu-
neytið og er búist við að þær verði
birtar fljótlega eftir helgi. Lánin
verða gengistryggð og á sambæri-
legum kjörum og Fiskveiðasjóð-
ur veitir. -grh
ASÍ og VSÍ og síðar um daginn
funduðu samninganefndir hinna
síðarnefndu í húsakynnum Al-
þýðusambandsins. A fundum
ríkisstjórnarinnar var farið al-
mennt yfír stöðu mála án þess þó
að farið væri nákvæmlega ofan í
saumana á einstökum atriðum.
Ríkisstjórnin er enn á þeirri
skoðun að ekki sé hægt að gera
betur en að verja þann kaupmátt
sem var á fyrstu þremur mánuð-
um þessa árs og tclur kaupmátt-
artryggingu ekki koma til álita,
en þó verði að kappkosta að verja
lægstu launin.
1 húsakynnum ASÍ sátu samn-
inganefndir aðila hvor í sínu
horni og höfðu ekki enn komið
saman á sameiginlegum fundi um
kvöldmat. Búist var við fundar-
setum fram eftir kvöldi. Fulltrúar
fiskvinnslunnar fóru þó fram á að
frekari fundarhöldum yrði frest-
að þangað til þeim hefði tekist að
ræða málin nánar við Halldór Ás-
grímsson, sjávarútvegsráðherra.
Samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans er verið að ræða um
skammtímasamninga fram á
haustið. Næsti fundur ASÍ og
VSÍ verður haldinn í dag kl.
14.00.
phh
Atvinnuleysistryggingarsjóður
200 miljónir
í bótagreiðslur
100 miljónir í janúar og annað eins ífebrúar. 350
miljónir allt síðasta ár. Heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið: íathugun að heimila stjórn
Atvinnuleysistryggingasjóðs aðfella niður 16 vikna
biðtímann eftir aðstœðum
ó endanleg staðfesting liggi
ekki fyrir um greiðslu at-
vinnuleysisbóta í febrúar bendir
margt til þess að þær verði ekki
minni en í janúar en þá voru
greiddar 100 miljónir króna.
Samtals hafa því verið greiddar
200 miljónir króna í bætur fyrstu
tvo mánuði ársins en allt síðasta
ár fóru 350 miljónir króna til
greiðslu atvinnuleysisbóta.
Vegna hins langvarandi
atvinnuleysis sem verið hefur í
mörgum bæjum og þorpum víðs
vegar út um land allt vegna stað-
bundinna erfiðleika í rekstri sjá-
varútvegsfyrirtækja sem hafa
verið lokuð í lengri tíma eða
vegna gjaldþrota ýmisaa iðnfyrir-
tækja ss. á Akranesi, skipaði
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra nýverið nefnd til að bregð-
ast við ágöllum Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs. Þar er fyrst og
fremst átt við þann vanda sem
skapast hefur á mörgum stöðum
þegar fólk hefur verið atvinnu-
laust lengur en í 36 vikur en eftir
þann tíma dettur það út af bóta-
skrá næstu 16 vikurnar.
Að sögn Jóns Ingimarssonar
skrifstofustjóra í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu hefur
það komið til tals í nefndinni að
heimila stjórn Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs að fella niður 16
vikna biðtímann. Stjórn sjóðsins
myndi þá vega og meta aðstæður
hverju sinni þar sem staðbundið
og langvarandi atvinnuleysi er ss.
eins og verið hefur á Akranesi en
þar voru að meðaltali um 70
manns án atvinnu allt síðasta ár.
Jón sagði að almennt væri ekki
hægt að lengja 36 vikna bótatíma-
bilið því það gæti orðið til þess að
kerfið yrði misnotað og menn
festust á atvinnuleysisskrá frem-
ur en að verða sér úti um vinnu.
-grh
Kvennalisti
Staðfesta etur
kappi við raunsæi
Hinar raunsærri Kvennalistakvenna vilja ekki að þær hverfi á braut en
staðfestukonur vilja að orð standi. Guðrún Agnarsdóttir og Kristín
Halldórsdóttir.
Nær víst er að þær stöllur Guð-
rún Agnarsdóttir og Kristín
Halldórsdóttir hverfí af þingi
áður en kjörtímabilið þrýtur og
láti þeim Guðrúnu Halldórsdótt-
ur og Önnu Ólafsdóttur Björns-
son eftir sæti sín einsog Samtök
um kvennalista hétu kjósendum
sínum fyrir þingkjörið í hittið-
fyrra. Hinsvegar er Ijóst að það
verður ekki nú í vor og að þær
Guðrún og Kristín, sem að
margra mati eru burðarásar
þingfíokksins, yfirgefa ekki lög-
gjafarsamkomuna samtímis.
Kristín hverfur til annarra starfa
í haust en Guðrún við áramót eða
að vori á ári komanda.
Þetta kom fram í spjalli Þjóð-
viljans við Guðrúnu Halldórs-
dóttur í gær. Hún staðfesti að sitt
sýndist hverjum í hreyfingunni
um nauðsyn þess að skipta um
þingkonur nú en þó væru flestir
sammála um að það yrði of mikil
blóðtaka yrðu þær nafna hennar
og Kristín samferða af þingi. Hitt
væri svo annað mál að kjósend-
um hefði verið lofað skiptum og
orð skyldu standa. Þær Anna
væru öldungis ekki jafn „óreynd-
ar“ og gagnrýnendur vildu vera
láta, t.a.m. hefði hún sjálf sótt
þingflokksfundi síðastliðin 6 ár.
Líkasttil yrði niðurstaðan sú að
Anna settist á þing í haust en hún
sjálf um miðbik vetrar eða næsta
vor.
Einsog menn rekur minni til
hófst mikil umræða um þessa
skiptareglu Kvennalistans fyrir
síðustu kosningar. Hún var um-
deild í röðum K. kvenna sjálfra
og að auki létu ýmsir lögspeking-
ar til sín taka. Staðhæfðu þeir að
það væri ekki í anda stjórnarskrár
að ákveða fyrir kosningar að
þingmenn vikju á miðju kjör-
tímabili. Þær sátu hinsvegar við
sinn keip og vísuðu í ársgamla
landsfundarsamþykkt Kvenna-
listans; þingkonur skyldu ekki
sitja lengur á löggjafarsamkom-
unni en 6-8 ár. Þetta væru prakt-
ískar útfærslur tveggja af horn-
steinum hreyfingarinnar: vald-
dreifingar og virks lýðræðis.
Einsog kunnugt er hafa full-
trúaskipti þegar farið fram hjá K.
konum í borgarstjórn, hin ske-
legga forystukona Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir sté upp úr sessi
sínum í fyrra og eftirlét hann
Elínu G. Olafsdóttur. Margar K.
kvenna sakna Ingibjargar og telja
að umskiptin hafi verið til hins
verra, Elín sé hvergi nærri jafn
ötull og vaskur málsvari og Ingi-
björg. Þetta dró og fram helsta
galla skiptareglunnar: reyndar og
vinsælar forystukonur verða að
víkja fyrir minna (eða meira)
þekktum og næsta lítt reyndum
arftökum, hvað sem tautar og
raular.
Þjóðviljinn hefur fyrir satt að
vonbrigði með skiptin í borgar-
stjórn Reykjavíkur hafi hreyft
við fjölmörgum K. kvenna og
þær söðlað um í afstöðunni til
þess hvort skipta ætti þeim Guð-
rúnu og Kristínu út af þingi.
Málið hafi hinsvegar legið í lág-
inni uns nýjasta hefti tímaritsins
Þjóðlífs kom á markað. Þar er
fjallað um væntanleg þing-
kvennaskipti einsog sjálfsagðan
hlut, rætt stuttlega við Danfríði
Skarpéðinsdóttur en ítarlega við
kandídatana Önnu Ólafsdóttur
Björnsson og Guðrúnu Halldórs-
dóttur um helstu hugðarefni
þeirra. Ekki kemur þar fram að
það orki tvímælis hvort þær taki
sæti á aiþingi, það er klappað og
klárt.
Danfríður fjallar almennt um
ágæti þess að skipta um fulltrúa á
löggjafarsamkomunni þótt kjör-
tímabil hafi ekki runnið sitt
skeið: „Meðal fylgismanna okkar
ríkti almenn ánægja með ákvörð-
unina, því á þennan hátt tryg-
gjum við að þingkonur Kvenna-
listans einangrist ekki né festist í
þessu starfi. Við viljum ekki líta á
þingsetu sem eitthvert ævistarf."
Haft er eftir Guðrúnu: „Við vor-
í BRENNIDEPLI
um búnar að lýsa því yfir að þing-
mannaskipti myndu eiga sér stað
á kjörtímabilinu og við það mun-
um við standa." Og þessi setning
er upphaf máls Önnu: „Væntan-
leg þingseta leggst vel í mig.“
Hér fer ekkert á milli mála en
Þjóðviljinn hefur heimildir fyrir
því að viðtöl þessi hafi vakið ýms-
ar kvenna af værum blundi, kon-
ur sem ekki máttu til þess hugsa
að tvær reyndustu þingkonurnar
hyrfu af löggjafarsamkomunni.
Að arftökunum ólöstuðum
myndu þeir trauðla fara í fötin
Guðrúnar Agnarsdóttur og
Kristínar Halldórsdóttur. Við
Agreiningur K. kvenna um
þingkvennaskipti verður
leystur með málamiðlun
raunsæis- og
staðfestukvenna. Guðrún
og Kristín láta af
þingmennsku á
kjörtímabilinu, önnur í
haustoghin um miðbik
næsta vetrar
þetta bætist síðan sú staðreynd að
samkvæmt skoðanakönnunum
eru vinsældir Kvennalistans í rén-
un. Af þeim sökum einnig megi
hann ekki við því að þekktustu
andlitin hverfi úr sviðsljósinu.
Þótt enn hafi ekki önnur
ákvörðun verið tekin í röðum
Kvennalista en sú að fresta
ákvörðunartöku um það hvenær
skipti fari fram er tekist á um mál
þetta í hreyfingunni nú. Ýmsar
kvennanna vilja að staðið verði
við kosningaloforðið góða án taf-
ar en aðrar vilja ekki heyra á ann-
að minnst en að þær Guðrún og
Kristín starfi á alþingi kjörtíma-
bilið á enda. Þorri K. kvenna er
þó á báðum áttum og vill fara bil
beggja, Guðrún og Kristín víkji
en ekki strax og alls ekki samtím-
is. Endanleg ákvörðun verður
hinsvegar ekki tekin fyrr en á
landsfundi hreyfingarinnar í maí-
mánuði.
Helstu andstæðingar skipta eru
að sögn K. konur á Akureyri.
Þær og skoðanasystur þeirra fyrir
sunnan bera náttúrlega ýmsu við
öðru en kvennamun. Helsta við-
kvæðið er að mikil óvissa ríki í
íslenskum stjórnmálum um þess-
ar mundir, Stefán Valgeirsson og
hans fólk í Samtökum jafnréttis
og félagshyggju sé um það bil að
segja skilið við ríkisstjórnina og
því verði brátt tvísýnt um þing-
meirihluta hennar. Mestu skipti
þó að allt sé á huldu um þróun
kjaramála, komi til mikillar ólgu
á vinnumarkaði og jafnvel alls-
herjarverkfalls séu dagar
Steingrímsstjórnar II taldir.
Togstreita þessi í röðum
Kvennalista er grein af sama
meiði og ágreiningurinn á síðast-
liðnu hausti um það hvort hreyf-
ingin ætti að flekka hreinar hend-
ur sínar með þáttöku í ríkisstjórn
eður ei. Þetta er hin sígilda tví-
drægni í röðum grasrótahreyf-
inga þar sem takast á óbilgjörn
stefnufesta hinnar einföldu og ör-
uggu veruleikasýnar og raunsæi
fólks sem metur aðstæður hverju
sinni og er reiðubúið að slá af
kröfum sínum fái einhverjar óska
þess að rætast.
ks
Laugardagur 18. mars 1989 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3