Þjóðviljinn - 04.04.1989, Page 1

Þjóðviljinn - 04.04.1989, Page 1
Þriðjudagur 4. apríl 1989 64. tölublað 54. órgangur Stefán Ögmundsson Ogmundsson látinn í fyrrinótt lést Stefán Ög- mundsson prentari, um iangt skeið einn af ágætustu forvígis- mönnum verklýðshreyfingar og sósíalískrar hreyfingar hér á landi. Stefán var tæplega áttræður, fæddur 22. júlí 1909. Hann lauk prentnámi 1929 og starfaði sem prentari í Reykjavík lengst af síð- an. Hann átti lengi sæti í stjórn Hins íslenska prentarafélags og var formaður þess um árabil. Varaforseti Alþýðusambands ís- lands var hann um sex ára skeið og stjórnarformaður Menningar- og fræðslusambands alþýðu í meira en áratug. Stefán var prentsmiðjustjóri í Prentsmiðju Þjóðviljans um tíu ára skeið. Hann átti lengi sæti í miðstjórn og framkvæmdanefnd Sósíalista- flokksins, skrifaði margt um verklýðsmál og önnur stjórnmál. Stefán hlaut þyngstan dóm þeirra sem- ákærðir voru fyrir andmæli gegn inngöngu íslands í Nató 1949. Þjóðviljinn sendir aðstandend- um Stefáns einlægar samúðar- kveðjur vegna fráfalls hans. Alþingi Hnakkrifist um heræfingar Lýgur herforinginn eða hefur utanríkisráðherra gefið grœnt Ijós nú þegar? Miklar umræður urðu um fyrir- hugaðar æfingar bandarísks her- liðs á alþingi í gær og utan dag- skrár. Páll Pétursson hóf um- ræðuna og lagðist gegn vopna- skakinu ásamt forsætisráðherra, Kristínu kvennalistakonu Ein- arsdóttur og Hjörleifi Guttorms- syni. Meðmæltur var hinsvegar Þorsteinn Pálsson en utanríkis- ráðherra var tvístígandi og þó hlynntur mjög. Utanríkisráðherra segist eiga eftir að ákveða hvort hann heim- ilar heræfinguna en annað segir Eric McVadon yfirmaður setu- liðsins á Miðnesheiði, allt annað! Sjá síðu 2 Glæsilegur baráttufundur. Háskólabíóvarfulltútúrdyrum ingumBandaríkjahersermótmæltharðlega. Einnig varboðuðstofnun á baráttufundi sem Samtök herstöðvaandstæðinga efndu til á sunnu- heimavarnarliðs til að stöðva yfirgang erlends hervalds í landinu. Sjá daginn. Tilefnið var að 30. mars voru liðin 40 ár frá inngöngu Islands í síðu 2 og baksíðu. Mynd: Jim Smart. Nató. Á fundinum var samþykkt álvktun þar sem fyrirhuguðum heræf- Stjórnar- og samningarnefnd- armenn BSRB áttu í gær og gærkvöldi fundi með fulltrúum samningarnefndar ríkisins þar sem lögð voru drög að kjara- samningi er gildi fram á næsta haust. Forsendur slíks samnings eru af hálfu BSRB, flöt krónu- töluhækkun, lækkun raunvaxta og verðstöðvun á samningstíma- bilinu. Auk þess er rætt um sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans nokkra hækkun á orlofs- grciðslum og úrbætur í félags- legum málefnum. Á sama tíma og opinberir starfsmenn voru komnir á skrið í samningaviðræðum í gær, fóru viðræður ASÍ og VSI í strand eftir að vinnuveitendur höfnuðu alfarið hugmyndinni um 40 daga samning. Þórarinn V. Þórarins- son sagði í gærkvöldi að slíkur samningur gerði ekki annað en að tefja fyrir gerð alvörusamn- ings til lengri tíma. Vinnu- veitendur væru enn tilbúnir að ræða gerð skammtímasamnings fram á haustið. Ásmundur Stefánsson forseti ASf sagði að sú ákvörðun foryst- usveitar atvinnurekenda að neita alfarið að leggja til verðstöðvun og vaxtalækkyn samhliða gerð samnings til 40 daga kæmi sér á óvart. - Það er ekki annað að gera en taka aftur upp þráðinn þar sem við vorum, en við ótt- umst eftir þessi samtöl að at- vinnurekendur vilji láta okkur sitja í nokkrar vikur án þess að nokkuð hreyfist. Ef ekkert mjak- ast á næstunni þá eigum við ekki annars úrkosta en béita frekari þrýstingi, sagði Ásmundur. Ágreiningur hefur verið innan forystusveitar ASÍ um leiðir að nýjum samningi en eftir fundinn í gær er ljóst að samningamálin eru í sama farvegi og þegar viðræðum var frestað fyrir páska. Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari boðaði í gær forystu- menn BHMR á sinn fund og einnig fulltrúa samninganefndar ríkisins. Boðað verkfall 11 félaga háskólamanna tekur gildi á fimmtudag hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Guðlaugur sagði í gærkvöldi að hann myndi ákveða í dag hvort hann tæki formlega yfir kjaradeildu þessara aðila. -|g. Ölduselsskólamálið Mistökin að ráða Sjöfn BjarniP. Magnússon: Mistök afBirgi ísleifi ogfrœðsluráði að ráða Sjöfn ístöðuna. Borgarmálaráð Alþýðuflokksins hótar slitum á vinstrasamstarfi í borgarstjórn Borgarmálaráð Alþýðuflokks- ins samþykkti um helgina að taka ekki þátt í sameiginlegu framboði vinstriflokkanna til næstu borgarstjórnarkosninga nema menntamálaráðherra afturkalli auglýsingu á lausri skólastjórastöðu Olduselsskóla sem Sjöfn Sigurbjörnsdóttir gegnir nú. Borgarmálaráðið hef- ur þannig tekið undir þær ásak- anir Sjafnar að um pólitískar of- sóknir sé að ræða á hennar hend- ur frá menntamálaráðherra, kennararáði og stjórn foreldrafé- lags skólans. Bjarni P. Magnússon borgar- fulltrúi Alþýðuflokksins var að því spurður, hvaða hagsmuna Al- þýðuflokkurinn teldi sig vera að verja í þessu máli. Við teljum okkur vera að gæta hagsmuna allra Reykvíkinga, sagði Bjarni, og ég veit ekki betur en að skólastarf í Ölduselsskóla h^fi gengið með prýði í vetur. Það lá hins vegar fyrir í upp- hafi, þegar Sjöfn tók við starfinu, að kennarar og foreldrar vildu annan mann í starfið, og með til- liti til þeirra erfiðu aðstæðna þá teljum við að hún hefði átt að fá meiri tíma til þess að sanna sig í starfi. Ég fæ ekki séð að allt hafi verið í hers höndum innan skólans eins og sagt hefur verið. Við erum búin að kynna okkur alla þætti þessa máls, og í þessu sem öðru gildir, að sjaldan veldur einn þá tveir deila. Ef við einhvern er að sakast í þessu máli, þá er það fyrrverandi menntamálaráðherra, fræðslu- ráð og borgarstjórn, sem réðu Sjöfn í þetta starf í trássi við vilja kennara og foreldra. En meðan við búum við núgildandi lög þá á fræðsluráð að vera umsagnaraðili um ráðningu og skipan í skóla- stjórastöður, og þar sem fræðslu- ráð óskaði ekki eftir að staðan yrði auglýst, þá teljum við að lög- in hafi verið brotin. Nú ætlar foreldraráðið að funda um málið á morgun. Mun niðurstaða þess fundar hafa áhrif á afstöðu ykkar? Ég get ekkert um það sagt nú, en við munum sjálfsagt ræða hana í okkar hópi. -ólg. Sjá síðu 2 Kjarasamningar Reynt til þrautar Óformlegirfundirforystumanna BSRB ogfulltrúa ríkisins í gœrkvöld um samning út október. Alþýðusambandið: Verðum að byrja aftur upp á nýtt. Tekur ríkissáttasemjari yfir BHMR - deiluna ?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.