Þjóðviljinn - 04.04.1989, Side 11
UÓSVAKINN
Vorboðinn leiði
Síðastliðið miðvikudagskvöld
missti ég af myndinni Ævintýra-
maðurinn frá árinu 1952, með
Gregory Peck og einhverjum
öðrum. Á fimmtudagskvöldið
varð ég af Eurovison keppninni
sem við vinstri menn og félags-
hyggjuöflin í landinu köllum Evr-
óvisjón. Pað sama kvöld lét ég
mynd um Kristján fjórða Dana-
konung fram hjá mér fara. Föstu-
dagskvöldið urðu ýmis atvik til
þess að ég sá mér ekki fært að
horfa á myndina Týnda flugvélin
og varðandi laugardagskvöldið
skal það játað að mér var beinlín-
is fjarri skapi að horfa á gaman-
mynd með Katharine Hepburn
og svo maður tali bara púrt upp
úr pokanum: mér var gersamlega
um megn að horfa lengur en tvær
mínútur á bíómyndina sem fylgdi
og skartaði John Wayne. Samt
var hann með Davy Crockett
húfu og allt.
Kóngulóarvefurinn læsir sig
um dagskrá ríkissjónvarpsins um
þessar mundir. Fólkið sem þar
ræður ferðinni telur við hæfi að
bjóða okkur upp á amerískar
kvikmyndir með John Wayne í
aðalhlutverki. Um dagskrá
stöðvar tvö kann ég ekki að
dæma því ég á ekki apparat, en í
fljótu bragði sýnist manni þar
vera að öllu jöfnu ameríska sjón-
varpið - kannski ekki John Wa-
yne, en ameríska sjónvarpið
engu að síður, með þeirri ein-
hæfni sem það einkennir. Þvílík
eyðimörk! getur maður sem hæg-
ast hugsað, þvflíkt ástand! Ó vei!
En það er óþarfi því reyni maður
að skyggnast dýpra ög hafi
jafnvel hugsanir bandaríska
heimspekingsins Normans Vinc-
ents Peale að leiðarljósi - en eins
og kunnugt er samdi hann ritið
The power of positive thinking -
þá skilst mannig að þessi ömur-
lega dagskrá er framar öðru til
vitnis um að nú fer að vora.
Sumardagskrá stöðvanna beggja
einkennist nefnilega framar öðru
af uppgjöf ráðamanna fyrir þeirri
staðreynd að fólk nennir ekkert
að horfa á sjónvarp þegar hlýnar í
lofti og túnin grænka og fuglar
taka að tísta. Og kannski kemur
vorið bráðum - það er að minnsta
kosti farið að láta á sér kræla í
gömlum amerískum bíómyndum
og öðru andleysi dagskrárhönn-
uðanna. Við verðum bara að
vona að Guð taki meira rnark á
Páli Bergþórssyni en hann gerði
nú um síðustu helgi, þegar Páll
var búinn að spá hláku en við
fengum eina snjódembuna til yfir
okkur. Þeir hjá sjónvarpinu eru
allavega tilbúnir undir sumarið,
það votta bíómyndirnar.
Allir hressir
Það var samt ekki allt lélegt
sem sjónvarpið bauð upp á. Þátt-
ur Egils Helgasonar var eins og
fyrri þættir hans snöfurlega gerð-
ur. Hann hefur vit á að velja sér
hæfilega vítt svið sem andríkt fólk
getur síðan vaðið elginn um,
þannig að skemmtilegt er á að
horfa og sjálfur er hann ágætlega
sposkur - myndskreytingar eru
líka valdar af húmor og
kostgæfni. Þættir hans virðast
hugsaðir, en ekki er bara vaðið
áfram með eitthvað, eins og
raunin er stundum með íslenska
þætti í sjónvarpinu.
Það er líka annað sem lýtir ís-
lenska þætti gjarnan og það er
framkoma fólksins sem stjórnar
þeim. Hún er nefnilega oft til
vitnis um að það leggur sig of
mikið fram, reynir um of að geðj-
ast áhorfendum. Ég er til dæmis
sannfærður um það að Hallur
Hallsson verður nýtur fréttamað-
ur um leið og hann hættir að flíra
svona mikið og baða út höndun-
um, því hvort tveggja virðist til-
lært. Það er heldur ekkert vafa-
mál að ég mun horfa afslappaðri
á lottóið um leið og stúlkurnar
sem þar stýra vélinni hætti að
setja upp þessi óttaslegnu bros í
tíma og ótíma, þær átta sig ekki á
því að augun vitna um skelfingu
meðan munnurinn hamast við að
vera í vinnunni við að brosa. Og
úr því maður er að þessum góð-
fúslegu ábendingum: Hermann
Gunnarsson hefur margt til
brunns að bera og getur verið
mjög skemmtilegur þegar hann
gleymir því stundarkorn að tala
um hvað allt sé skemmtilegt og
gaman. Hann virðist ekki átta sig
á því að þrálátar yfirlýsingar um
að maður sé hress vitna einatt um
hið gagnstæða. Það er allt í lagi að
vera hress - fyrir alla muni - en
það að vera hress felst ekki í því
að tala um hve maður sé hress.
Það nægir ekki.
Kannski er þetta þjóðareðlið,
þörf okkar að öðrum líki við okk-
ur. Landkynningarmasið gengur
út á það. Hin eilífu bros og hlátra-
sköll af litlum tilefnum vitna um
það.
Skortur á
lítilþægni?
Það væri skemmtilegt ef ís-
lenskir sjónvarpsmenn gætu gert
þátt á borð við Matador - fram-
haldsflokk úr íslenskri sögu. En
sennilega er það borin von. Pen-
ingaleysið er eitt með öðru, en
ekki síður virðingarleysi okkar
nútímafólks fyrir fortíðinni,
skilningsleysi okkar, það hversu
við blygðumst okkar fyrir það
hvaðan við erum og hvernig. Og
kannski höfum við heldur ekki
eignast nógu „lítilþæga" kvik-
myndahöfunda. Matador er
nefnilega gert af mjög hóflegum
listrænum metnaði, það myndi
seint kallast „myndljóð“, þetta er
framar öðru yfirlætislaus alþýð-
uskemmtun. Og eitt í viðbót: hér
er landlæg meðal listamanna tor-
tryggni í garð realismans, hvort
sem um er að ræða rithöfunda,
leikhúsfólk ellegar kvikmynda-
menn. Allir treysta á fantasíuna -
ef til vill sökum þess hversu þægi-
legt skálkaskjól hún getur verið
óskýrri hugsun og hvers kyns
vaðli. En það yrði gaman ef
Matador yrði til þess að íslenskir
sjónvarpsmenn færu að hugsa
sinn gang og jafnvel láta sér detta
í hug að búa til eitthvað sem ein-
hver hefði hugsanlega gaman af -
og listamenn hér almennt færu að
hyggja að fortíðinni, ekki til að
dorga þaðan aðhlátursefni, ekki
til að sýna fólk að éta ofsalega
ógeðslega ofsalega ógeðslegan
mat, ekki til að gylla eða falsa,
heldur til að átta okkur á hver við
erum, hvaðan við komum, hvers
vegna við séum eins og við erum.
Þá gæti kannski runnið upp fyrir
okkur ljós og þá fer okkur kann-
ski að líka sæmilega við sjálf okk-
ur og hættum að spekúlera í
hvernig öðrum líkar við okkur.
Matador er fyrst og fremst yfirlætislaus alþýðuskemmtun: í aðdraganda mislukkaðs hjónabands.
þlÓDVILJINN
FYRIR50ÁRUM
Afturhaldsflokkarnir þrír hafa í
nótt lagt um 12 millj. kr. byrði á
alþýðuna. Engin trygging er
fengin fyrir að taprekstri útgerð-
arinnar sé með þessu lokið, né
að núverandi gengi verði fest.
Lögþvinguð kauplækkun hjá
öllum launþegum.
Chamberlain vildi ekki láta
stuðning Breta við Pólverja nátil
kröfunnar um Danzig og pólska
hliðið.
I DAG
4. APRÍL
þriðjudagur í tuttugustu og fjórðu
viku vetrar, fimmtándi dagur ein-
mánaðar, 94. dagurársins. Sól
kemur upp í Reykjavík kl. 6.35 en
sest kl. 20.28. T ungl minnkandi á
fjórða kvartili.
VIÐBURÐIR
Ambrósíusmessa. Hið íslenska
prentarafélag stofnað 1897.
ÞjóðhátíðardagurSenegal. Mart-
in Luther King myrtur 1968.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavfk. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúöavikuna
31. mars-6. apríl er í Garös Apóteki og
Lyfjabúðinni Iðunni.
Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar
og annast naeturvörslu alla daga 22-9 (til
10 fridaga). Síðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík simi 1 11 66
Kópavogur...............sími 4 12 00
Seltj.nes...............simi 1 84 55
Hafnarfj................simi 5 11 66
Garðabær................simi 5 11 66
Slökkvilið og sjukrabilar:
Reykjavík...............simi 1 11 00
Kópavogur...............sími 1 11 00
Seltj.nes...............sími 1 11 00
Hafnarfj................sími 5 11 00
Garðabær................sími 5 11 00
L/EKNAR
Læknavaktfyrir Reykjavik, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er i Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir i síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gef nar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspit-
allnn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspítaians: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akurey ri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stööinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyöarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspitalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspitalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin við
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspitali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspitali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
8pitalinn:alladaga 15-16 og 18.30-19.
Sjúkrahúsið Akureyri: alla daga 15-16
og 19.19.30. Sjúkrahúsið
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alladaga 15.30-16og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf i sálfræðilegum
efnum.Sími 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opið virkadagafrá
kl. 10-14. Sími 688800.
Kvennaráðgjöf in Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
simi21500, simsvari.
Sjáif shjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarf ræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sim-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin ’78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Félag eldri borgara. Opið hús í Goðheim-
um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga
ogsunnudagakl. 14.00.
Bilanavakt (rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sif jaspellamál. Simi
21260 alla virka daga kl. 1 -5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Ópið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb-
ameirissjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögumkl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið i síma 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
Gengisskráning 3. aprfl 1989 kl.
9.15.
Sala
Bandaríkjadollar.......... 53,28000
Sterlingspund............. 89,58200
Kanadadollar.............. 44,71900
Dönsk króna............... 7,25390
Norsk króna............... 7,76220
Sænsk króna................ 8,28870
Finnsktmark............... 12,53940
Franskurfranki............ 8,36290
Belgíski,rfranki.......... 1,34720
Svissn. franki............ 32,15060
Holl. gyilini............. 25,01470
V.-þýskt mark............. 28,20610
Itölsk líra............... 0,03844
Austurr.sch................ 4,01040
Portúg. escudo............ 0,34210
Spánskur peseti............ 0,45300
Japansktyen................ 0,40280
Irsktpund................. 75,24500
KROSSGÁTA
1 2 n 4 8 I 7
■
9 10 L3 11
12 7 13 14
• 18 18 ' | | r^ l j
vý LJ 10 20
□ 22 iá □
24 • 28 '
Lárétt: 1 karldýr4andi
8daunninn9trylltaf1
eyðimörk 12 sínkan 14
átt 15 fis 17 tvístígur 19
okkur21 spíra22ham-
ingjusamt24 samtals
25kjáni
Lóðrétt: 1 skaöi 2
raddar3reika4virki5
fæðu 6 hóps 7 ella 10
smár13eðju 16höfuð
17stóra18frost-
skemmd20eldstæði
23 áköf
Lausnásiðustu
krossgátu
Lárétt: 1 kusk4slök8
kostina9óþol11óður
12kerlur14gg15
unun17skari19aur21
auð 22 Raf n 24 gras 25
andi
Lóðrétt: 1 klók 2 skor
3kollur4stóru5lið6
önug 7 kargur 10 þekk-
ur13unir16nafn17 |
sag 18 aða 20 u nd 23 AA
Þriðjudagur 4. apríl 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11