Þjóðviljinn - 04.04.1989, Síða 12
SPURNINGIN
Hvaða áhrif mun verk-
fall kennara hafa á þig?
Ingibjörg Jónsdóttir
nemi á þriðja ári í MR:
Það lokast skólinn og þá verður
maður að reyna að læra sjálfur.
Verst er með náttúrufræði og
svoleiðis þung fög því námsefnið
verður alveg jafn mikið þó svo að
við missum einhverjar vikur úr
kennslu.
Ingibjörg Valsdóttir
nemi í MR:
Ég hef nú mestar áhyggjur af
sumarvinnunni minni. Eg ætla til
útlanda 15. maí og vinna á veg-
um Nordjobb þannig að ég kvíði
því að verkfallið dragist á langinn.
Ingvi Kristinsson
nemi:
Það fer eftir því hvað það verður
langt.
Dögg Baldursdóttir
nýnemi í MR:
Það tefur bæði utanlandsferð og
sumarvinnu hjá mér og svo verð-
ur náttúrlega próflesturinn erfið-
Óskar Svavarsson
nemi MR:
Þetta verður bara algert rugl og
fall. Prófin verða liklega þéttuð og
svo er ekki hægt að byrja að
vinna fyrr en einhvern tímann.
þlÓÐVIUINN
Þrlðjudagur 4. apríl 1989 64. tölublað 54. árgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
eoi040
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Herœfingar í Kanada
Indíánaþjóðflokkur í hættu
Rœtt við kanadíska mannfræðinginn Peter Armitage, sem gersthefur
liðsmaður Innuindíána í baráttu þeirra gegn herumsvifum Nató á
Labrador
Hérlendis er staddur þessa dag-
ana Peter Armitage, kanadískur
mannfræðingur, og mun hann
flytja ávarp á baráttufundi Sam-
taka herstöðvaandstæðinga í
Háskóiabíói á morgun og ræða
við Steingrím Hermannsson, for-
sætisráðherra, og Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráð-
herra, um ný viðhorf í hermálum
í heiminum og innan Atlantshafs-
bandalagsins. Armitage er einn
margra Kanadamanna, sem beita
sér gegn auknum herumsvifum á
austanverðum Labradorskaga,
en kanadíski herinn hefur þar
bækistöð að Goose Bay.
Undanfarin ár hafa flugherir
Natóríkja stundað á þessu svæði
lágflugsæfingar og hafa þær upp á
síðkastið orðið mjög umfangs-
miklar. Nú eru á döfinni fyrirætl-
anir um að Atlantshafsbanda-
lagið sem slíkt taki við rekstri
stöðvarinnar og er gert ráð fyrir
að því muni fylgja auknar æfingar
af þessu tagi, auk æfinga á loftá -
rásum.Búist er við að endanleg
ákvörðun um hvort Nató taki við
Goose Bay eður ei verði tekin
seint á þessu ári eða snemma á
því næsta.
Frumbyggjar austanverðs La-
bradors eru indíánar, sem sjálfir
nefna sig Innu, en eru þekktastir
undir heitinu Montagnais-
Naskapi. Sennilegt er að norræn-
ir menn hafi hitt fyrir forfeður
þjóðflokks þessa, þegar þeir
komu fyrst til Norður-Ameríku
fyrir nærri þúsund árum. Tungu-
mál Innu er af algonkinska stofn-
inum. Þeir eru nú um 10.000 tals-
ins, voru til skamms tíma einung-
is veiði- og fiskimenn, búa nú
meirihluta ársins í smáþorpum en
eru enn nokkra mánuði árlega á
„faraldsfæti á skógum úti eða við
sjó fram við veiðar.
Niður í 30
metra hœð
Goose Bay er miðsvæðis á
búsetu- og veiðisvæði Innu og
óttast þeir að herumsvif þarna til
frambúðar hafi alvarleg áhrif á
lífsskilyrði þeirra, sem ekki eru of
góð fyrir. Armitage, sem er sér-
fróður um Innu, beitir sér fyrir
réttindum þeirra í þessu máli og
hefur viðleitni hans og annarra
bandamanna Innu fengið allveru-
legan hljómgrunn þar vestra.
T.d. hefur Nýi lýðræðisflokkur-
inn, jafnaðarmannaflokkur Kan-
ada og þriðji stærsti stjórnmála-
flokkurinn þarlendis, krafist þess
að stjórnin banni allar lágflugsæf-
ingar Nató í Kanada. Einnig hef-
ur flokkurinn lýst sig andvígan
Peter Armitage - óvinsældir lágflugs
yfir Vestur-Evrópu stuðla að því að
það er flutt til strjálbýlla svæða eins
og Labradors. Mynd Jim Smart.
Austurhluti Labradorskaga, sem
skiptist á milli kanadísku fylkjanna
Nýfundnalands og Québec. Yfir
dökku svæðunum fara fram æfingar
á lágflugi eða þá að slíkar æfingar eru
fyrirhugaðar þar.
LABRADOR
GulfqfSt Umrcnce
OMiiea 100
r V ! NírASSINAN '
idiafer-
Gtx®eBay
QUEBEC
því að Nató fái aðstöðu að Goose
Bay.
I viðtali við Þjóðviljann sagði
Armitage að á bakvið æfingar
flugherja yfir Labrador lægi sú
fyrirætlun Atlantshafsbandalags-
ins að mæta sovéskri árás ofurefl-
is liðs og skriðdreka með flug-
árásum á varalið, samgönguleiðir
o.s.frv. langt inni á yfirráðasvæði
óvinarins. Flugvélar sem gerðu
slíkar árásir myndu fljúga mjög
lágt, eða allt niður í um 30 metra
hæð. Það segir sig sjálft að mikla
þjálfun þarf til, ef slíkar aðgerðir
eiga að framkvæmast með ein-
hverjum árangri. Að sögn Armi-
tage hafa hersérfræðingar Atl-
antshafsbandalagsins áhuga á
Austur-Labrador til þessara af-
nota sökum þess, að þeir telja að
staðhættir þar séu líkir því sem er
í Austur-Evrópu (sem er hæpið,
nema þá ef væri norðanvert í
Finnlandi og Rússlandi), en einn-
ig komi hér inn í myndina vax-
andi gremja Vestur-Þjóðverja o.
fl. Vestur-Evrópumanna út af
lágflugsæfingum yfir löndum
þeirra.
Armitage skýrði okkur frá nið-
urstöðum kanadískrar stofnunar
um heilbrigðismál o.fl. aðila, sem
rannsakað hafa líklegar afleið-
ingar heræfinga þessara yfir La-
brador. Eru niðurstöðurnar á þá
leið að æfingamar muni hafa
mjög alvarlegar afleiðingar fyrir
íbúa á svæðinu, einkum Innu.
Stöðugur hávaði af flugvélum í
lágflugi og brestir er þær fara
gegnum hljóðmúrinn muni valda
einkum börnum hræðslu og leiða
af sér sálræn vandmál. Veiðidýr,
sem em Innu mikilvæg, muni og
fælast á brott vegna hávaðans.
Þar sem sprengjuárásir verði æfð-
ar muni stórtjón hljótast af á
skógi og öðru jurtalífi og auk þess
muni aukin hemmsvif á svæðinu
raska félags- og efnahagslífi indí-
ánanna enn meira en orðið er.
20 fangelsaðir
Armitage sagði ennfremur að
Innu hefðu stofnað til víðtækra
mótmælaaðgerða gegn herstöð-
inni að Goose Bay og lágflugsæf-
ingunum. S.l. haust stóðu þær að-
gerðir yfir í þrjá mánuði sam-
fleytt og eru nú hafnar aftur. Um
20 Innu eru eins og sakir standa í
fangelsi vegna mótmælanna.
Armitage sagði að lokum að
hann og baráttufélagar hans
gerðu sér nokkrar vonir um, að
viðræðurnar um niðurskurð
hefðbundins vígbúnaðar í Vínar-
borg myndu leiða til þess, að
dregið yrði úr herumsvifum á
Austur-Labrador og hætt við að
láta Nató taka við stöðinni að
Goose Bay. Enda væri erfitt að
sjá að neitt mælti með stórfelld-
um umsvifum af því tagi, sem auk
annars hefðu alvarlegar afleið-
ingar fyrir fjölda fólks, nú á tím-
um batnandi samskipta milli risa-
veldanna.
dþ.
m