Þjóðviljinn - 05.07.1989, Page 5

Þjóðviljinn - 05.07.1989, Page 5
VIÐHORF Atvinnuvegimir styrktir! Hver greíoir styrkina? Talsvert hefur verið rætt um þörf atvinnuveganna fyrir styrki. Einkum er þó horft til sjávarút- vegsins. Stofnaðir eru sjóðir til að sinna þessu styrkjahlutverki. En hvaðan kemur féð - styrktarféð? Hver borgar í þessa sjóði? Og hvað fá þeir, sem með vinnu sinni halda og hafa haldið atvinnuveg- unum gangandi? Eiga þeir ekki rétt til framlaga úr þeim sjóði, sem þeir hafa myndað með fram- lagi starfsorku sinnar? Hvernig væri að þeir fengju eitthvað af þeim hlutabréfum sem svonefndur Hlutabréfasjóð- ur fær til ráðstöfunar? Og hvernig færi ef þeir fengju lagalegan rétt viðurkenndan til þess að eiga fulltrúa í stjórnum atvinnufyrirtækjanna sem fást við framleiðslu og sölu afurða? Margir launamenn hafa auðvitað farið gálauslega með hýruna sína, sjá það líka fyrir sér, eru kannski ekki nægilega vel á Guðjón B. Baldvinsson skrifar Vœri ekki eðlilegtað oftnefndir A-flokkar hefðu hugsun ogsjón á nauðsyn þess að vinn- andi fólk fái íhlutun um stjórn atvinnufyrir- tœkjanna? verði gegn auglýsingaflóðinu. En það er samt vitað mál að alþýða manna hefur lært að reikna. Og oft hefur hún séð betur hvar þörf var að stinga við fótum, heldur en þeir sem annast forsjá atvinnu- rekstrarins. Væri ekki eðlilegt að oftnefnd- ir A-flokkar hefðu hugsun og sjón á nauðsyn þess að vinnandi fólk fái íhlutun um stjórnun at- vinnufyrirtækjanna, eða amk. fengju nokkra fræðslu um rekstur og stjórnun? Hvenær á að koma á atvinnulýðræði, á það að bíða þar til fulltrúar auðmagns og atvinnu- rekenda ná meirihluta á löggjaf- arþinginu? Námskeið hafa verið auglýst fyrir konur sem vilja fást við sjálf- stæðan atvinnurekstur. En hvers- vegna ekki fyrir konur sem vinna við framleiðsluna sem launþeg- ar? Hversvegna ekki fyrir fólkið sem heldur þjóðfélaginu uppi með vinnuframlagi sínu, og leggur að auki fram sparifé í ein- hverjum mæli? Er sjálfbirgingshátturinn og hrokinn enn við lýði, og því litið á verkafólkið sem annars flokks þegna? Hvar er áhuginn á jafnréttinu í samfélaginu? Er hann aðeins kynbundinn og þó mest með sýndarmennsku? Við erum í biðstöðu, þessar hræður sem ekki erum alveg bún- ar að gleyma hugtökum eins og samvinnu, jafnrétti, frjálslyndi, hugtökum sem virðast nú orðið aðeins geymd í blaðhausum. Við teljum það verkefni A-flokkanna miðað við orðagjálfur þeirra í stefnuskrám, að reyna að skapa umbjóðendum sínum nokkra fót- festu við j afnréttisstallinn, þá fót- festu sem fylgir stjórnun í atvinnu- og fjárhagslífi þjóðar- innar. Eiga þessar vonir að verða sér til skammar? Við spyrjum alþingismenn og ráðherra flokkanna sem vilja reikna sér fylgi alþýðunnar í landinu. Guðjón B. Baldvinsson er for- maður Sambands lífeyrisþega ríkis bæja og ritari Öldrunar- ráðs íslands. Staöa Islands í helgarblaði Þjóðviljans 30. júní er viðtal við Jón Baldvin. Þar skýrir hann afstöðu sína og flokks síns til hermála á heldur grunnfærinn hátt, en spyr síðan um afstöðu Alþýðubandalagsins, sem flokks á breytingaskeiði: „Hvenær kemur að því að hann sætti sig formlega við aðild ís- lands að NATO? Það er orðið nokkuð langt síðan ítalski Kommúnistaflokkurinn gerði þetta upp við sig. Við munum ekki eiga neina aðild að afvopn- unarmálum nema með aðild að NATO.“ Hvernig dettur nú manni í stöðu utanríkisráðherra í hug að bera saman svo ólíka hluti? ís- land er vopnlaust ríki. Staða okk- ar sem vopnlausrar smáþjóðar er framlag okkar til afvopnunar- mála. Hún er skylda okkar við málstað þeirra sem um aldir hafa með vaxandi þunga reynt að afvopnun Helgi Jónsson skrifar Staða okkarsem vopnlausrarþjóðar erfram- lag okkar til afvopnunarmála. Hún erskylda okkar við málstað þeirra sem hafa með vax- andi þunga reynt að hamla gegn vígbúnaði hamla gegn stríðum og vígbún- aði. Hún er afvopnunin sjálf. Það eru ekki valdhafar heimsins sem berjast fyrir af- vopnun. Hervald hefir um alla tíð verið þeirra tæki. Þeir láta hins- vegar undan vaxandi kröfum þjóðanna, sumir af heilum huga, aðrir nauðugir viljugir. Hvort valdhafar heimsins voga sér enn einu sinni „að varna okkur máls“0 er þeirra mál. Gerist það þarf sýnilega meiri bóg en Jón Baldvin til að standa uppréttur á grunni þjóðarsögunnar og krefj- ast réttar smáþjóðar til að lifa í friði fyrir vígbúnaði „vina“ sinna. Afstaða ítalska kommúnista- flokksins skiptir að sjálfsögðu 1) Tilvitnun í Davíð Stefánsson: Ti! Friðarráðstefnu í London 1946. engu máli í þessu sambandi. En hún er mjög skiljanleg. Ítalía er herveldi sem var m.a.s. alræmt á fyrri hluta aldarinnar. ítalir þurfa þvt' sjálfir að taka þátt í afvopnun. Afvopnun hefur verið eitt helsta baráttumál kommúnista um langt skeið (enda hafa þeir mjög orðið fyrir barðinu á hervaldi víða um heim). Það er því höfuðnauðsyn fyrir ítalska kommúnistaflokkinn að eiga aðild að viðræðum um afvopnun. Staða íslands sem vopnlausrar þjóðar er í sjálfu sér miklu öflugri stuðningur við mál- stað ítalskra kommúnista og ann- arra er krefjast afvopnunar held- ur en þó að Jón Baldvin eða aðrir færu að taka þátt í slíkum við- ræðum í anda NATO. Hvort Alþýðubandalagið sam- þykkir einhverntíma formlega aðild að NATO skiptir ekki öllu máli, en er afar ótrúlegt. And- staða gegn þátttöku Islands í hernaðarsamvinnu er til í öllum flokkum. Davíð Stefánsson orti kvæðið „Til Friðarráðstefnu í London 1946“, í heilagri reiði yfir þeirri óskammfeilni hernaðar- velda í garð íslendinga, sem Jón Baldvin virðist nú telja eðlilegt að komi til greina. Helgi Jónsson er járnsmiður og starfar á Teiknistofu Rarik. Háskinn er Ijúfur og freistandi Ekkert er skemmtilegra en sumarfrísemfer úrskeiðis með sögulegum hœtti Þegar ferðaskrifstofur auglýsa sig leggja þær náttúrlega sem mesta áherslu á að hjá þeim séu ferðalangar óhultir. Allt muni fara á hinn besta veg í hinum besta allra heima. En þegar að er gáð, þá er eins víst að í raun og veru ali hvunn- dagsferðalangurinn einmitt með sér leynda ósk um að lenda í óhappi, einhverju slysi. Það má náttúrlega ekki vera mannskætt, en nálægð háskans er ein- hvernveginn boðin velkomin í sál- artetrið. Þessi von um sálarhásar kom m.a. fram á dögunum þegar sov- éska skemmtiferðaskipið Maxím Gorkí sigldi á rekís á leið til Sval- barða með nær þúsund manns innanborðs. Og kom svo mikill leki að skipinu að vel mátti búast við því að það sykki í vota gröf eins og hvert annað Titanic áttat- íu árum fyrr. Allt fór það vel að lokum, eins og menn vita. Og farþegar og sá hluti áhafnar, sem viðleitni til að halda skipinu á floti mátti án vera, fóru í björgunarbáta og voru teknir upp af norskum skipum eða hífðir upp af ísnum í þyrlur. Rekjum það ekki lengur, en þegar farið var að spyrja far- þegana út úr um þetta ævintýri, voru þeir flestir himinlifandi. Eða eins og roskin hjón frá Berlín (flestir farþeganna voru þýskir) sögðu við blaðamenn: „Við vorum reyndar mjög glöð yfir að lenda í þessu - annað eins les maður bara um í blöðum." Semsagt: hér fer þetta tvennt saman - upplifun háskans og að komast í blöðin og vera af báðum orsökum maður með mönnum. Mörg dæmi fleiri mætti tína til í þessa veru. Fyrir þrem árum eða svo rofnaði hringvegurinn á tveim stöðum í miklum vatnavöx- tum í Skaftafellssýslum. Á Hofi í Öræfum voru um hundrað ferða- langar, flestir útlendingar, inn- lyksa í tvo-þrjá daga og var það þröng seta eins og nærri má geta og úrhellisrigning úti fyrir. En að sögn datt engum í hug að kvarta: Farþegar af Maxím Gorkí komnir í björgunarbát: svona lagað les maður bara um í blöðunum...... þetta var að sönnu ekki beinlínis lífsháski, en þó einskonar slys, sem einangraði fólk frá um- heiminum og svipti það hvunn- dagsfriði og þægindum og opnaði nýja vídd í sálinni. Ekki nema von að sá klóki blaðamaður Gúnther Wallraff hafi ætlað sér að gera tilraun með lífsháskann: hann ætlaði að aug- lýsa rándýra ævintýraferð til k- lands (upp á Vatnajökul), smala þangað þýskum auðkýfingum og forstjórum og skelfa þá síðan með enn meiri háska en þeir gátu nokkru sinni búist við.... áb Miðvikudagur 5. júli 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.