Þjóðviljinn - 05.07.1989, Síða 7
MENNING
Lífgað upp á menningarlíf Reykjavíkur með
listadögum í ágúst
Hunda-
dagar ’89
Andersen, en sýningin heitir
H. C. Andersen, manneskjan og
ævintýraskáldið, og verður flutt
þrisvar á listadögunum, tvisvar á
dönsku og einu sinni á ensku.
Ný ópera eftir Karólínu Eiríks-
dóttur verður flutt í fyrsta sinn
hér á landi, en óperan, sem heitir
Mann hef ég séð var frumflutt í
Vadstena í Svíþjóð í fyrra. Ein-
söngvararnir, íeikstjórinn og
hljómsveitarstjórinn eru allir
sænskir og tóku þátt í frumflutn-
ingi óperunnar, en um undir-
leikinn sér hátíðarhljómsveit
Hundadaga, tuttugu og fimm
ungir hljóðfæraieikarar, sem
safnað var saman að þessu tilefni.
Nýja búninga og leikmynd fyrir
óperuna gerir Messíana Tómas-
dóttir.
Átta tónleikar eru nú þegar
fyrirhugaðir á dagskrá Hunda-
daga, og verða þeir í Listasafni
Sigurjóns, í fslensku Óperunni
og í Kristskirkju. í Listasafni Sig-
Nokkrir af starfsmönnum og skipuleggjendum Hundadaga fyrir framan hluta af leikmynd Gunnars Arnar:
Sverrir Hólmarsson, Ulriqa Bengtson, Ingunn Ásdísardóttir, Gerla, Inga Bjarnason, Hákon Leifsson, Viðar
Eggertsson og Leifur Þórarinsson. Mynd - Jim Smart.
urjóns spilar jasspíanistinn Cat
Kaye ásamt tríói eigin tónsmíðar
og söngva, auk þess David Tutt,
píanóleikari verður þar með tón-
leika. I Kristskirkju verða orgel -
tónleikar Bjöms Sólbergssonar,
sem mun flytja verk eftir franska
tónskáldið og orgelleikarann Oli-
vier Messiaen.
Fimm tónleikar eru fyrirhug-
aðir í íslensku Óperunni og eru
píanótónleikar Martins Berkof-
skys þar fyrstir í röðinni. Miami
Stringquartet, sem er skipaður
þeim Sigrúnu Eðvaldsdóttur,
Cathy Robinson, Ásdísi Valdi -
mars -dóttur og Keith Robinson,
verður með tónleika um miðjan
mánuðinn, og á eftir þeim kemur
röðin að Tríó Kauniainen frá
Finnlandi, en þar er fiðluleikari
Petri Sakari, aðalstjórnandi Sin-
fóníunnar.
Manuela Wiesler, Einar Jó-
hannesson og Þorsteinn Gauti
Sigurðsson verða með íslenska
Kiarvalsstaðir
Steinn og strigi
Haukur Dór og Preben Boye sýna guði og djöfla og höggmyndir í
granít
Myndlistarmennirnir Haukur
Dór og Preben Boye sýna nú verk
sín í Vestursal og Vesturgangi
Kjarvalsstaða. Þeir Haukur og
Boye eru hingað komnir með
verk sín frá Frederiksværk í Dan-
mörku, þar sem þeir eru báðir
bæjarlistamenn, og sýnir Haukur
um 70 málverk, teikningar og
grafíkmyndir og Boye 17 granít-
skúlptúra.
Haukur Dór segir sýninguna á
Kjarvalsstöðum vera eðlilegt
framhald sýningar sem hann hélt
hér á landi fyrir ári.
- Það er svosem ósköp lítið um
þetta að segja, segir hann.
- Fyrirmyndirnar eru meira og
minna sóttar hingað til íslands, í
náttúruna og í það sem ég hef
lesið. Það má kannski segja að
þetta séu einhvers konar sálar-
lífslýsingar, þetta eru guðir og
djöflar að takast á, - slagurinn í
okkur öllum.
Nú hefur þú verið búsettur í
Danmörku undanfarin ár. Finnst
þér mikill munur á að starfa sem
myndlistarmaður þar eða hér á
landi?
- Ég er fyrst og fremst í Dan-
mörku vegna þess að ég hef enga
möguleika til að starfa eingöngu
að málverkinu hér á landi. Hefði
ég getað það hefði ég aldrei farið.
En ég er heldur ekki í neinni út-
legð. Mér líkar vel við Dani og
finnst gott að vera í Danmörku.
Preben Boye, höggmyndir þín-
ar eru sagðar vera undir áhrifum
af list frumstæðra þjóða og þá
einkum Grænlendinga...
- Það hefur margt verið skrif-
að um það, segir hann, - og það
er ég ánægður með, því ég hef
eytt löngum tíma í að garfa bæði í
grænlenskri og eins fornri nor-
rænni list.
- Ég starfaði á Grænlandi í el-
lefu ár og hef kynnt mér bæði
íslenskar sögur og grænlenskar
og norrænar þjóðsögur, og hef
fundið ýmis tengsl í menningu
þessara þjóða.
Er ekki menning Grænlend-
inga eða inúíta talin tengd menn-
ingu indíána?
Haukur Dór og Preben Boye við eina af höggmyndum Boyes, guðir og
demónar takast á á bak við Hauk.
Mynd - Jim Smart.
- Jú, það er talið að svo sé, en
það er samt ýmislegt sem tengir
norræna menningu og Græn-
lenska. - Og frásagnir ís-
lendingasagnanna eru oft réttar,
þar er til að mynda sagt frá því að
víkingar hafi séð úlfa við komuna
til Grænlands. Það sagði mér líf-
fræðingur að væri ómögulegt, en
fyrir nokkrum árum fannst haus-
kúpa af úlfi á Grænlandi, svo sag-
an var rétt, þrátt fyrir allt.
Eitthvað ákveðið sem ræður
þínu efnisvali?
- Já, í granítinu er viss eilífð,
hvert einasta strik sem ég dreg í
steininn verður þar um aldur og
ævi. Ég byrjaði á að nota granít
fyrir mörgum árum og hef ein-
göngu unnið í það undanfarin
fimm ár. Granítið er varanlegt og
ég öfunda alls ekki málarann af
penslunum og striganum.
- Enn einn kosturinn við gran-
ítið er að náttúran er svo góð við
mig að leggja mér til efnið
ókeypis, og er þar að auki stund-
um búin að móta fyrir mig
steininn, svo það eina sem ég þarf
að gera er að leggja síðustu hönd
á verkið.
- Þessi verk sem ég sýni hérna
tónleika í Óperunni, og þar verða
einnig lokatónleikar Hundadaga,
en þá leikur hátíðarhljómsveitin
undir stjórn Pascal Verrot.
Besti vinur ljóðsins mun einnig
leggja sitt að mörkum á Hunda-
dögum og standa fýrir kynningu á
nýjabrumi í ljóðum, leikritun og
lifandi myndum á Hótel Borg.
Ef vel tekst til með Hundadaga
að þessu sinni er ætlunin að
standa að svipuðum uppákomum
á hverju ári, - þó með auknum
áherslum annað hvert ár. Þeir
sem að listadögunum standa
leggja áherslu á að ekki sé ætlun-
in að græða á hátíðinni og sé mið-
averð því ekki hærra en nauðsyn
krefji; á bilinu 900 til 1300 krón-
ur, og er veittur 20% afsláttur ef
keyptir eru miðar á þrjá eða fleiri
viðburði. Skrifstofa Hundadaga
er í Hlaðvarpanum, en miðasala í
Óperunni.
eru mjög lítil miðað við það sem
ég vinn til dæmis fyrir opinbera
aðila. Þau eru yfirleitt eitthvað
um tíu til fimmtán tonn á þyngd.
Og sem stendur er ég að gera sex
metra háan gosbrunn fyrir bæjar-
yfirvöld í Frederiksværk.
Hvaða fríðindi eða skyldur
fylgja því að vera bæjarlistamað-
ur í Frederiksværk?
- Það að vera bæjarlistamaður
þýðir að við fáum góðar vinnu-
stofur til afnota, endurgjalds-
laust. Það fylgja þessu engar
kvaðir, - það eina sem farið er
fram á er að maður sé starfandi
myndlistarmaður.
Hafið þið einhverja hugmynd
um hvað tekur við að þessum sýn-
ingum loknum?
- Til að byrja með vorum við
að hugsa um að setja upp skúlp-
túr einhvers staðar hér inni á
miðhálendinu, - og segja engum
hvar. En annars sýnum við næst í
Árósum, eftir það í Kaupmanna-
höfn og síðan í Frakklandi. Og ég
sýni hjá Túborg verksmiðjunum í
haust, bætir Boye við.
Sýningar þeirra Prebens Boyes
og Hauks Dórs standa til sunnu-
dagskvöldsins 9. júlí.
Miðvikudagur 5. júlí 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Skáldakvöld
á Borginni
Besti vinur ljóðsins efnir til
skáldakvölds á Hótel Borg í
kvöld kl. 21. Verða þar meðal
annars kynntar ljóðabækur sem
komið hafa út í sumar eða eru
væntanlegar með haustinu.
Þau skáld sem lesa úr verkum
sínum eru Ragnhildur Pála
Ófeigsdóttir, Kristján Þórður
Hrafnsson, Ólafur Haraldsson,
Jón Hallur Stefánsson, Gunnar
Hersveinn, Birgitta Jónsdóttir,
Steinunn Ásmundsdóttir, Jónas
Skagfjörð Þorbjarnarson, Sig-
urður Pálsson og Nína Björk
Árnadóttir. Kynnir er Hrafn
Jökulsson.
Ljósmyndir
Yousuf
Karsh
í austurforsal Kjarvalsstaða
stendur nú yfir sýning á verkum
Yousuf Karsh, og er sýningin af-
mælissýning, sem opnuð var á
síðasta ári í tilefni að áttræðisaf-
mæli Karsh.
Yousuf Karsh er fæddur í Arm-
eníu 1908 og upplifði hörmungar
þjóðarmorðsins á Armenum.
Hann komst til Kanada fyrir til-
stilli frænda sfns, þá 16 ára gam-
all, og hóf nám í ljósmyndun hjá
John Garo í Boston.
Árið 1932 opnaði hann stofu í
Ottawa og öðlaðist þegar mikla
viðurkenningu fyrir verk sín.
Mynd hans af Winston Churchill
frá 1941 aflaði honum
heimsfrægðar og aðrar myndir
hans er víða að finna í merkum
listasöfnum, svo sem í Metropo-
litan í New York, Listasafni Fíla-
delfíu, Listasafninu í Chicago og í
alþjóðlegu Ijósmyndastöðinni í
New York.
Sýningin, sem er á vegum Ljós-
myndarafélags íslands, stendur
til 30. júlí.
Alþýðuleikhúsið, Tónlistarfé-
lag Kristskirkju og Listasafn Sig-
urjóns Ólafssonar standa fyrir
listadögum í ágústmánuði og
kenna við Hundadaga. Á þeim
þrjátíu dögum sem Hundadagar
‘89 standa verður mikið um að
vera í menningarlífi Reykjavík-
ur, sýnd leikrit, ópera og mynd-
list, haldinn fjöldi tónleika, og
kynnt nýjabrum í ljóðum, leikrit-
un og lifandi myndum. Aðstand-
endur Hundadaga segjast á þenn-
an hátt vilja lífga upp á menning-
arbrag borgarlífsins að sumarlagi
og sameina listgreinarnar; allt of
mikið sé um að þær einangrist
hver á sínum bási.
Listadagarnir hefjast með há-
tíðarmessu í Kristskirkju sunnu-
daginn 30. júlí, en verndari dag-
anna er dr. Alfreð Jolson SJ,
biskup. Seinna sama dag verða
Hundadagar formlega settir,
þegar opnuð verður sýning á and-
litsmyndum eftir Kristján Da-
víðsson í Listasafni Sigurjóns.
Um kvöldið frumsýnir Alþýðu-
leikhúsið Macbeth í íslensku
Óperunni og er leikritið í nýrri
þýðingu Sverris Hólmarssonar.
Leikstjóri er Inga Bjarnason,
leikmynd eftir Gunnar Örn, sent
þreytir frumraun sína á þeim
vettvangi, tónlistin er eftir Leif
Þórarinsson og búninga gerir
Gerla.
Danskur gestaleikur er einnig
á dagskrá Hundadaga. Er það
dagskrá leikaranna Susse Wold
og Bent Mejding um H. C.
Djassað á
Egilsstööum
Djasshátíð Egilsstaða ‘89,
verður haldin að Valaskjálf, Eg-
ilsstöðum um næstu helgi, dag-
ana 7.-9. júlí. Djassklúbbur Eg-
ilsstaða stendur fyrir hátíðinni,
sem hlotið hefur styrk frá
Menntamálaráði, Egilsstaðabæ
og fyrirtækjum á Austurlandi og í
Reykjavík.
Þeir sem fram koma á hátíðinni
eru meðal annarra Tríó Guð-
mundar Ingólfssonar ásamt Rún-
ari Georgssyni saxófónleikara,
Árni Elfar, Tómas R. Einarsson
og Friðrik Theódórsson. Auk
þeirra mæta til leiks Djassband
Hornafjarðar, Bláa blúsbandið
frá Stöðvarfirði með Garðari
Harðarsyni gítarleikara og
söngvara. Guðgeir Björnsson
blúsari frá Egilsstöðum tekur
þátt í hátíðinni, Viðar Alfreðsson
kemur norðan úr Mývatnssveit
og dixiland hljómsveit Þórarins
Óskarssonar frá Reykjavík.
Meðal söngvara verða Pálmi
Gunnarsson og Pálína Vagns-
dóttir, djassballett verður á
staðnum og þar að auki geta
menn fengið sér snúning að tón-
leikum loknum. Heiðursgestur
hátíðarinnar verður Vernharður
Linnet og kynnir básúnuleikar-
inn Friðrik Theódórsson. Þá
verður Árni Elfar með málverk-
asýningu, meðal annars með
myndum úr djasslífinu.
Málverk í
Þrastarlundi
Þessa dagana heldur Þórhallur
Filipusson sumarsýningu í Þrast-
arlundi við Sog, og er þetta þriðja
sumarið sem Þórhallur sýnir í
Þrastarlundi.
Á sýningunni, sem stendur til
16. júlí, eru olíumálverk, og
kennir þar ýmissa grasa.