Þjóðviljinn - 05.07.1989, Síða 9
FRETTIR
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir maímánuö 1989,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 3.
júlí.
Viöurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru oröin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. júlí.
Fjármálaráðuneytið
4. júlí 1989
Byggðastofnun
RAUÐARARSTlG 2S • SlMI 25133» PÓSTHÚLF 5410 • I25REYKJAVIK
Miðstöð
Byggðastofnunar
á ísafirði
Nú stendur yfir undirbúningur að stofnun mið-
stöðvar Byggðastofnunar á (safirði og stofnunin
leitar að starfsmanni til að taka að sér starf
forstöðumanns.
Miðstöð Byggðastofnunar á ísafirði er ætlað að
annast samskipti stofnunarinnar við fyrirtæki,
sveitarfélög og aðra aðila á Vestfjörðum auk
þess sem þar verður unnið að ýmsum verkefn-
um sem ná til landsins alls.
Starf forstöðumanns býður upp á möguleika til
að starfa að lausn á byggðavanda á Vestfjörð-
um með eflingu atvinnulífs og á ýmsan annan
hátt. Um er að ræða krefjandi en jafnframt gef-
andi starf á sviði sem er þjóðarbúinu afar mikil-
vægt. Uppbygging miðstöðvarinnar hvílir á
herðum forstöðumannsins og þeirra starfs-
manna sem með honum/henni veljast en
reiknað er með að starfsmenn verði 3 í upphafi.
Því er hér um að ræða afar mikilvægt starf.
Stofnunin setur ekki ákveðnar menntunarkröfur
en gerir ráð fyrir að starfsmenn hennar hafi
margs konar menntun. Launakjör eru sam-
kvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
bankamanna og bankanna.
Þeir sem hafa hug á að sækja um þetta starf eru
beðnir um að senda umsókn sína ásamt upp-
lýsingum um menntun og starfsreynslu til Guð-
mundar Malmquist, forstjóra Byggðastofnunar,
sem veitir nánari upplýsingar, fyrir 1. ágúst nk.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Þingmúli í Skriðdal einn af áningarstöðum í ferðinni.
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Austurlandi:
Um söguslóðir á Fljótsdalshéraði
laugardaginn 8. júlí 1989.
Farið verður í rútum kl. 9 frá Söluskála KHB á Egilsstöðum og ekið um
Skriðdal, Fljótsdal, Fell, Hróarstungu og austur yfir hjá Lagarfossi til baka í
Egilsstaði kl. 19. - Bílferðir verða skipulagðar frá fjörðunum eftir þátttöku.
Staldrað verður við á völdum sögustöðum, skoðaðar fornminjar á gömlum
þingstöðum, kirkjur og bæir og fræðst um umhverfið, m.a. væntanleg
skógræktarsvæði á Héraði.
Meðal leiðsögumanna verða Guðrún Kristinsdóttir minjavörður, Helgi
Hallgrímsson náttúrufræðingúr, Jón Loftsson skógarvörður, Páll Páls-
son fræðimaður frá Aðalbóli og Skarphéðinn Þórlsson líffræðingur. Far-
arstjóri: Hjörleifur Guttormsson.
Tilkynnið þátttöku sem fyrst til Ferðamlðstöðvar Austurlands, Egils-
stöðum, sfmi (97)1 20 00.
öllum heimil þátttaka. - Alþýðubandalagið - kjördæmisráð.
r Fararstjórn
Islenskur skóli
Með samstarfi sem tekist hefur
milli íslenskra aðilja og
spænskra ferðayfirvalda verður
starfræktur íslenskur ferðamála-
og fararstjóraskóli 30. október til
20. desember næsta vetur í Palma
á Mallorca. Kennd verða ýmis
undirstöðuatriði almennrar ferð-
aþjónustu svo sem farseðlaútgáfa
og hótelstörf, auk spænsku, sögu
Spánar og menningar Miðjarðar-
hafslanda, leiðsagnar ferða-
manna á Spáni og margra fleiri
greina. Náminu lýkur með
prófum.
Kennt verður fimm stundir á
dag alla virka daga. Þar af eru
tvær kennslustundir í spænsku
fyrir byrjendur og er miðað við
að nemendur nái á þessum tíma
nægilega góðu valdi á málinu til
að geta bjargað sér á eftir.
Skólastjóri verður Örnólfur
Árnason rithöfundur sem m.a.
mun kenna spænska sögu og leið-
sögn. Halldór Þorsteinsson MA,
skólastjóri Málaskóla Halldórs,
kennir spænsku. Jónas Hvann-
berg aðstoðarhóltelstjóri á Hótel
Sögu kennir grundvallaratriði
á Spáni
hótelstarfa. Gunnar Eyjólfsson
leikari kennir framsögn og fram-
komu. Sérfræðingur frá Flug-
leiðum hf. kennir farseðlaútgáfu
og störf á flugvöllum. Sérfræð-
ingar fjalla um heilsufar, heilsu-
gæslu og mataræði o.fl. Gabriel
Ferrer hæstaréttarlögmaður
leiðbeinir um spænsk lög og rétt-
arstöðu útlendinga á Spáni.
Nánari upplýsingar um
skólann eru veittar á skrifstofu
Transa í síma 91-22525 eða hjá
Örnólfi Árnasyni í síma 91-
27514.
Doktorsnafnbót
Áverkar á ökkla og liðböndum
ann 8. maí sl. varði dr. Jón
Karlsson doktorsritgerð sína
við Læknadeild Gautaborgarhá-
skóla í Svíþjóð. Ritgerðin nefnist
„Charonic lateral instability of
the ankle joint. A clinical, radiol-
ogical and experimental study“.
Ritgerðin fjallar um áverka á
ökklalið og viðgerðir á þeim,
einkum liðbandaáverka utanvert
á ökklanum, sem er algengasti
áverki sem íþróttamenn verða
fyrir. Sýnt er fram á að nýjungar í
skurðaðgerðum gefa betri og ör-
Félag skólastjóra og yfirkenn-
ara mótmælir harðlega þeirri
ákvörðun Alþingis við gerð síð-
ustu fjárlaga að ríkisútgjöld skuli
skorin niður án þess að tillit sé
tekið til þess hver þróun útgjalda
á ýmsum sviðum hefur verið und-
anfarin ár.
Stjórnin bendir á aö í tvo ára-
tugi hefur hlutfall menntamála í
ríkisútgjöldum haldist óbreytt,
veriö milli 14 og 15 af hundraði.
Aukin útgjöld sem nema
aukningu þjóðartekna hafa öll
farið í uppbyggingu framhalds-
skóla og háskóla. Það er því
uggari langtíma árangur, en eldri
aðferðir. Nýrri aðferðir til við-
gerða eru jafnframt einfaldari en
eldri og líkur á fylgikvillum mun
minni. Talið er að þetta muni
einkum hafa áhrif fyrir íþrótta-
menn, en ökklaáverkar hafa yfir-
leitt verulega þýðingu fyrir
íþróttaiðkendur.
Dr. Jón Karlsson er fæddur
1953, sonur hjónanna Láru M.
Benediktsdóttur og Karls M.
Jónssonar frá Klettasíu í Norður-
árdal. Hann lauk stúdentsprófi
næsta ósanngjarnt að skera niður
útgjöld til menntamála í sama
mæli og til annarra þátta í ríkis-
kerfinu sem þanist hafa út síðustu
ár. Sérstaklega er það ósann-
gjarnt gagnvart grunnskólanum.
Niðurskurður þessi er í algerri
mótsögn við boðaða stefnu nú-
verandi menntamálaráðherra í
þróun í skólamálum og vandséð
hvernig hægt er að nálgast hana
þegar svona er staðið að málum.
Reynslan hefur sýnt að skerð-
ing sem einu sinni hefur verið
framfylgt verður viðvarandi í
kerfinu og getur því haft langvar-
andi áhrif á þróun skólamála.
frá Menntaskólanum við Hamra-
hlíð 1972 og kandidatprófi frá
Læknadeild Háskóla íslands
1978. Hann hefur síðan 1981
dvalið við framhaldsnám í bækl-
unarskurðlækningum við Östra
sjúkrahúsið í Gautaborg og við
Gautaborgarháskóla. Hann
hlaut sérfræðiréttindi í bæklunar-
skurðlækningum bæði í Svíþjóð
og á íslandi 1986. Hann hefur
fyrir utan doktorsritgerð sína rit-
að fjölmargar vísindagreinar um
bæklunarskurðlækningar bæði í
íslensk og erlend læknatímarit.
Hann starfar nú sem sérfræðing-
ur við bæklunardeild Östra
sjúkrahússins í Gautaborg. Hann
hefur að auki í frístundum verið
ötull starfskraftur við íþrótta-
lækningar í Svíþjóð og hefur m.a.
verið læknir sænska knattspyrn-
ulandsliðsins síðan 1985.
Skólastjórar
Niðurskurði
mótmælt
___LESENDABRÉF
Söluskattur
Hávaðinn og gauragangurinn
út af söluskattsinnheimtunni er í
hámarki þessa dagana, þegar
fjármálaráðuneytið er að kalla
inn þennan skatt er hin ýmsu fyr-
irtæki í landinu hafa svikist um að
borga í lengri og skemmri tíma.
Menn eru með ýmisskonar vífi-
lengjur og fyrirslátt, en bæjar-
stjórar og framkvæmdamenn eru
þó á harðahlaupum þegar á að
fara að loka hjá þeim, og borga
upp í topp.
En hvemig stendur á öllu þessu
brambolti og írafári? Hvað hefur
gerst? Ekkert annað en það að
menn eiga að greiða skuldir sínar
og engar refjar. Á það vilja þessir
auðmenn ekki fallast.
Við erum engir auðmenn segja
þeir ríku, við tökum áhættuna af
að reka fyrirtæki okkar til að
halda uppi atvinnu í landinu og
við verðum að hafa hagnað af
starfi okkar, þessvegna hefur það
vafist fyrir okkur að greiða þenn-
an bölvaða söiuskatt sem alls-
staðar er að þvælast fyrir okkur
athafnamönnum á þessum ræka-
lsins tölvutímum sem menn eru
hættir að botna í, þessum apparö-
tum sem eru að reyna að koma
okkur á vonarvöl. Við viijum fá
að vera í friði, þannig getum við
best þjónað þjóðfélaginu. (Þetta
var úr samtali þeirra ríku í heita
pottinum.)
En það ríkir skeggöld og skálm-
öld í innheimtunni, og Sjón-
vörpin bæði velta sér upp úr þess-
um hasar og birta viðtöl við þrút-
in og reið andlit sem heimta rétt-
læti þegar búið er að innsigla fyr-
irtæki þeirra vegna vanskila.
Það er engu líkara en að andi
Jónasar frá Hriflu svífi hér yfir
vötnum, en Jónas var sem kunn-
ugt er dirffjöðrin í bolsastjórn-
inni frægu er var við völd í
landinu á árunum 1927-31 og var
ein besta stjórn er starfað hefur í
landinu. Jónas sprengdi mörg
graftarkýli í spillingu þeirra tíma,
enda var hann hataður af auð-
mönnum og átti að koma honum
fyrir kattarnef eins og frægt er
orðið.
Nú reynir á stjórn Steingríms
Hermannssonar að taka harða af-
stöðu í þessu söluskattsmáli og
refsa þeim sem sekir eru og hætta
að láta þessa náunga vaða í
bankakerfinu til að stofna fyrir-
tæki er fara svo á hausinn koll af
kolli og stofna svo önnur á 10 m.
eins og skýrt hefur verið frá í fjöl-
miðlum.
Ef Ólafur Ragnar og félagar
hans hafa kraft og þor til að
stöðva þennan ljóta leik í sam-
bandi við söluskattinn þá mun
birta til í stjórnmálum þjóðarinn-
ar, af þessum aðgerðum og öðr-
um er á eftir kæmu.
Með kveðju
Páll Hildiþórs
Miðvikudagur 5. júlí 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9