Þjóðviljinn - 05.07.1989, Side 12
—SPURNINGIN—
Hvað heitir Spánar-
drottning?
Kolbeinn Guðjónsson,
sjómaður
Ég veit það ekki. Þetta ferðalag
konungshjónanna er eins og
hvert annað, því skyldu þau ekki
gera víðreist eins og okkar fólk?
Linda Gunnarsdóttir,
nemi
Ég hef ekki hugmynd um það og
veit reyndar ekki heldur hvað
konungurinn heitir.
ÞlÓÐVIUINN
Mlðvikudagur 5. júlí 1989 116. tölublað 54. árgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Hér má sjá grjótfyllingar í forgrunni en flotbryggjurnar eru í baksýn. Mynd-Jim.
Guðbjörg Benediktsdóttir,
aðstoðarráðskona
Ég man það nú ekki en ég var
einmitt að lesa það í blöðunum í
morgun.
Bjarni Þór Jakobsson,
sjómaður
Ég hef ekki hugmynd um það. Ég
hef ábyggilega heyrt hennar get-
ið en ég hef ekki nafnið.
Sísí Ingadóttir,
verslunarmaður
Hún heitir Soffía og konungurinn
Juan Carlos en ég þori nú ekki að
fara með það hvaðan drottningin
er.
Hafnarfjörður
Góð aðstaða fyrir smábáta
Nýjcir flotbryggjur, dýpkanir og fyllingar gera höfnina að einnibestu smábátahöfn landsins
Um þessar mundir er unnið að
miklum endurbótum á smá-
bátahöfninni í Ilafnarfírði en
notkun smábáta hefur aukist síð-
ustu ár. Höfnin hefur verið dýp-
kuð töluvert og nýjar flotbryg-
gjur settar upp. Mun þessi hluti
hafnarinnar heita Flensborgar-
höfn enda stóð gamla Flensborg
skammt frá þessum stað.
- Við erum að koma upp einni
bestu smábátahöfn landsins í
kjölfar aukinnar smábátaútgerð-
ar síðustu ár. Nú gera um 130
bátar út frá Hafnarfirði, flestir
þeirra eru fiskibátar en einnig er
nokkuð um sportbáta, sagði Ótt-
ar Proppé forstöðumaður fjárm-
álasviðs Hafnarfjarðarhafnar í
samtali við Þjóðviljann. Óttar
sagði að framkvæmdirnar við
höfnina væru aðallega þrískiptar.
Dýpkað hefði verið í smábáta-
höfninni samfara öðrum dýpkun-
arframkvæmdum og væri nú 1,5
metra dýpi þar á stórstreymi, ný-
jum fyllingum hefði verið komið
fyrir með því að raða þar stórgrýti
og nú væri verið að reisa flotbryg-
gjur sem stækkuðu hafnarbakk-
ana til muna.
í þessum áfanga verða 53 básar
settir upp á þessum bryggjum en
gert er ráð fyrir að þeir verði alls
um 110. Þegar hefur myndast
biðlisti yfir þá sem vilja fá pláss á
bryggjunum en þó verða básarnir
varla fleiri en 53 fyrst um sinn. Þá
mun Skeljungur endurbæta að-
stöðu sína við olíuafgreiðslu á
svæðinu og til stendur að malbika
bflastæði og göngubrautir við
bryggjuna á næsta ári.
- Þessar framkvæmdir kosta
yfir 30 miljónir króna og er
bryggjusmíðin þar dýrust, eða
um 14 miljónir. 9,6 miíjónum var
eytt í dýpkunarframkvæmdir og
10-11 miljónum í fyllingar, sagði
Óttar um kostnaðinn vegna þess-
ara framkvæmda.
Að þessum framkvæmdum
loknum verður aðstaða til smá-
bátaútgerðar frá Hafnarfirði sér-
staklegagóð. Bátarnir í Firðinum
leggja upp á Fiskmarkaðnum og
hefur útgerðin gengið nokkuð vel
það sem af er árinu. í
marsmánuði var afli smábátanna
tam. um 200 tonn og eftir stækk-
un hafnarinnar er ekki við öðru
að búast en að smábátaútgerð í
Hafnarfirði fari vaxandi.
-þóm