Þjóðviljinn - 13.07.1989, Page 5
MINNING
Hið sígilda viðfangsefni bók-
menntanna er hetjan. Menn
skynja hetjuna að sjálfsögðu með
misjöfnum hætti, en það eru þó
ekki margir íslendingar sem gera
sér þá mynd af hetjunni að hún
lifi hljóðlátu hversdagslífi, því
síður að hún sé kona.
Okkur er tamt að horfa á hið
ytra borð. Menntun, staða,
auður, völd; allt það sem skrum-
skæling fjölmiðlunar dagsins
upphefur. Sjaldan er hins ís-
lenska alþýðumanns getið. Hver
er maður, hver er Guði þóknan-
legur? Er það sá sem hefur mikið
umleikis og auglýsir sjálfan sig
eða hinn sem aldrei kemst á síður
blaðanna en fórnar sér öllum
fyrir velferð annarra?
Ég var óharðnaður unglingur
þegar ég hitti Sigurbjörgu Ólafs-
dóttur fyrst. Hún hafði boðað
mig á heimili sitt einn kaldan dag
um haust til að tilkynna mér að
dóttir hennar væri barnshafandi
af mínum völdum. Þegar ég
kvaddi dyra á tröppunum í Hlíð-
argerði 4, skalf ég eins og hrísla,
bæði vegna þess að ég hafði sjald-
an til Reykjavíkur komið og stóð
ógn af þessari borg og eins vegna
hins að ég átti von á rækilegri yfir-
hellingu. Sjaldan hef ég orðið
eins undrandi og ánægður og þeg-
ar þau Sigurbjörg og Guðmundur
opnuðu arma sína og buðu mig
velkominn í sitt hús. Og þannig
hefur það verið æ síðan. Eitt stórt
hlýtt faðmlag. Aldrei styggðar-
yrði eða áfellisdómur, aðeins ást
og umhyggja fyrir börnum,
mökum og afkomendum. Hin
stóra hugsjón hjónanna var:
Hvernig getum við fórnað okkur í
þágu þeirra?
Sigurbjörg Ólafsdóttir var
fædd að Tjarnargötu 6 í Reykja-
vík, en það hús er nú horfið, 24.
júní 1914, dóttir hjónanna Guð-
bjargar Guðmundsdóttur f. 26.
júlí 1874 og Ólafs Þorvarðar-
sonarf. 8. janúar 1873. Foreldrar
Guðbjargar voru Birgitta Ólafs-
dóttir og Guðmundur Magnús-
son og bjuggu þau í Höfnum.
Ólafur var sonur Þorvarðar Jóns-
sonar í Brekkubúð á Álftanesi f.
2. maí 1826.
Sigurbjörg var yngst 10 barna
þeirra Guðbjargar og Ólafs. Eru
þau nú öll látin utan Óskar Dag-
bjartur, fyrrum brunavörður í
Reykjavík. Hann má nú sjá á
eftir síðasta systkini sínu. Lengi
má manninn reyna.
Föður sinn missti Sigurbjörg
árið 1918, þá aðeins þriggja ára
gömul. Fimm börn Guðbjargar
voru þá í ómegð. Það var mikið á
eina konu lagt á tímum atvinnu-
tregðu og fátæktar að framfleyta
þessum barnahópi, enda öryggi
ekkna og barna ekkert á þeim
tíma. En Guðbjörg barsinnkross
óbuguð, vann myrkranna á milli,
einkum við þvotta fyrirfólksins
og annan þrældóm, oftast með
yngstu dótturina sér við hlið. Það
urðu þó ýmsir til að rétta ekkj-
unni ómetanlega hjálparhönd og
fór þar fremstur í flokki Indriði
Einarsson skáld, sem m.a. lagði
Guðbjörgu til aðgangseyri
tveggja sýninga á leikritinu Ný-
ársnóttinni sem sýnd var í Iðnó
um þetta leyti.
Sigurbjörg Ólafsdóttir kynntist
því fátæktarbasli þessara ára af
eigin raun. Hennar hlutskipti í
uppvextinum var að halda í
blauta og kalda hönd þvottakon-
unnar, sem erfiðaði réttindalaus
frá morgni til kvölds, og hjálpa
síðan til eftir því sem aldur og
kraftar leyfðu. En síst var Sig-
urbjörg að sýta vinnuna, sem litið
var á sem blessun þess tíma. Hún
gekk til hennar með sitt góða
skap og þá barnslegu gleði, sem
henni var eðlislæg. Þótt ótrúlegt
Sigurbjörg Ólafsdóttir
Fœdd 24. júní 1914 - Dáin 7. júlí 1989
megi virðast leit Sigurbjörg oft
aftur til æskuáranna með
leiftrandi augnaráði og bros á
vör.
Sigurbjörg var ung þegar hún
eignaðist sitt fyrsta barn, Inga
Bergmann Karlsson, 24. janúar
1931. Skömmu síðar kynnist hún
þeim manni sem átti eftir að
verða lífsförunautur hennar og
stoð og stytta í lífinu til hinsta
dags, Guðmundi Brynjólfssyni
þá verkamanni, en lengst af bíl-
stjóra á Þrótti. Guðmundur er
fæddur 13. ágúst 1915 í Reykja-
vík, sonur hjónanna Brynjólfs
Gíslasonar sjómanns frá
Skrautási í Hrunamannahreppi
og Guðrúnar Hannesdóttur frá
Skipum í Stokkseyrarhreppi.
Þau Guðmundur og Sigurbjörg
hófu búskap að Bergstaðastræti
17 í maí 1932. Ýmsum þótti það
óráð hjá Guðmundi að taka
svona ungur saman við sér eldri
stúlku sem auk þess átti barn
fyrir. En Guðmundur var viss í
sínu vali, enda er það álit allra
sem til Sigurbjargar þekktu að
hún hafi borið af öðrum ungum
konum sakir fegurðar og yndis-
þokka. En hamingjan er ekki
fólgin í fríðleik einum saman.
Fleira þarf til farsældar í sambúð.
Þau Guðmundur og Sigurbjörg
féllu þegar mjög vel hvort að
öðru. Hann staðfastur sem klett-
ur, áræðinn og viljasterkur, hún
rómantísk og fús af einlægni og
trúfestu að fylgja ástvini sínum á
vit hins ókunna.
Sigurbjörgu var ekki brugðið
þótt þröngt væri í búi fyrstu árin á
Bergstaðastræti 17, síðar að
Bergstaðastræti 33 og frá 1940 að
Hverfisgötu 76 b. Kröpp kjör
voru hennar líf. Að hennar dómi
var lífsnautnin ekki fólgin í gulli
og ytri gæðum heldur var spurt:
Er hægt að hafa sæmilegt í mat-
inn? Eru börnin heilbrigð og
þokkaleg til fara?
„Ó, ég hafði yndi af að dansa,“
sagði Sigurbjörg svo oft við mig
og maður sá hana fyrir sér sem
fiðrildi í faðmi Guðmundar í fjör-
ugum polka. Og eitt er víst að
þrátt fyrir fátækt áttu þau ham-
ingjuríka daga.
Óg börnin komu eitt af öðru,
níu talsins og tíu með Inga sem
Guðmundur gekk í föður stað
með ljúfu geði. Þau hjónin
bjuggu við mikið barnalán. Þó
bar á einn skugga. Son sinn Gísla
misstu þau árið 1936, en hann var
fæddur 28. ágúst 1934. Þau börn
Sigurbjargar sem nú fylgja henni
til moldar eru auk Inga sem áður
er talinn: Bryndís fædd 3. júlí
1933, Jón Vilberg fæddur 27.
september 1935, Ágúst fæddur
25. desember 1936, Guðrún
Hulda fædd 17. júní 1938, Ólöf
Guðbjörgfædd 15. október 1939,
Hrafnhildur fædd 15. janúar
1941, Birgitta Kolbrún fædd 2.
mars 1943 og Sævar Örn fæddur
20. september 1948.
Ófáar sögur foreldra og barna
bera þess vitni að ævinlega iðaði
Hverfisgata 76 b, sem nú er því
miður urðuð, af lífi og fjöri þessa
tápmikla barnahóps, þótt her-
bergin væru aðeins tvö. Veruleg
umskipti á efnahag þeirra hjóna
má rekja til ársins 1942 er Guð-
mundur eignaðist sinn fyrsta
vörubíl og gekk í Þrótt. í fram-
haldi af því urðu þau hjónin með
áræði og eljusemi ein af frumbyg-
gjum Smáíbúðahverfisins, þar
sem hver maður stóð með skóflu
og hamar að byggingu síns eigin
húss, en nágrannar hlupu síðan til
hjálpar hver með öðrum eftir því
sem kunnátta og kraftar stóðu til.
Það var því eins og að koma í höll
þegar fjölskyldan flutti í Hlíðarg-
erði 4 hvar hjónin bjuggu í vel-
sæld þar til öll börnin voru komin
til manns. Þá fluttu þau að Fells-
múla 11 og sátu þar tvö saman að
sínu til síðasta dags. Var þá afar
kært með þeim hjónum.
í Fellsmúlanum var ætíð gest-
kvæmt og gott að koma, enda
mikil rausn að fornum íslenskum
sið. Og þar á heimili sínu fékk frú
Sigurbjörg hægt andlát í svefni
aðfaranótt 7. júlí sl. Engan sem
notið hafði samvista við Sigur-
björgu síðustu vikurnar gat órað
fyrir örlögum hennar. Hún hafði
verið venju fremur ánægð og kát
og vil ég í því sambandi minnast
tveggja atburða sem vörpuðu
birtu í hennar líf. Fyrst skírnarat-
höfn í Þingvallakirkju 16. júní,
þegar dótturdóttir hennar, Guð-
björg Eva var skírð og síðan 75
ára afmælishóf hennar sjálfrar
hinn 24. júní, sem hún naut til
hlítar með afkomendum og vin-
um. Sú stund gladdi hennar góða
hjarta.
Sjálfur á ég Sigurbjörgu mikla
skuld að gjalda. Ég gat fyrr hins
fyrsta faðmlags. Frá þeirri stundu
áttum við Hrafnhildur skjólshús í
Hlíðargerðinu, og ekki aðeins
það, heldur önnuðust þau hjónin
Katrínu dóttur okkar meira og
minna fyrstu árin, þannig að hún
var jafnt þeirra sem okkar. Allt
þetta var Sigubjörgu og Guð-
mundi svo eðlilegt og sjálfsagt að
um það þurfti aldrei orð að hafa.
Ekkert skyldi til spara að leggja
sínum lið.
Sigurbjörg var yndisleg mann-
eskja. Hún var í senn barnslega
einlæg unglingsstúlka og víðsýn
veraldarkona. Það tekur sinn toll
að ala 10 börn en þrátt fyrir það
var Sigurbjörg fíngerð og fáguð
til hinstu stundar. Mér varð oft
starsýnt á fagurgerðar hendur
hennar og spurði sjálfan mig,
hversu má það vera að þessar
hendur hafi þolað þvotta, sauma
og annað harðrétti? Væri Sigur-
björg að alast upp í dag hefði
lífshlaup hennar eflaust orðið
með öðrum hætti. Hún hafði til
að mynda yndi af að ferðast hin
síðari árin. Oft kom hjá henni
uppúr þurru: „París er töfrandi,“
eða „hugsa sér fegurð svissnesku
vatnanna". Þannig lét hún sig
dreyma þótt hún yndi glöð og
ánægð við sitt.
En fyrst og síðast var hugsun
Sigurbjargar og Guðmundar hjá
börnunum og þeirra niðjum. Allt
þeirra líf hafði það að leiðarljósi
að koma þeim á legg, styðja og
styrkja eftir efnum og getu.
Sjaldan voru þau glaðari en þegar
húsið fylltist af barnabörnum og
barnabarnabörnum. Þessum
ósköpum fylgdi oft ærandi há-
vaði, en engin áhrif virtist það
hafa á húsráðendur í Fellsmúlan-
um. Mér þótti líka stundum
kyndugt að standa Sigurbjörgu
að því að kaupa jólagjafir handa
börnunum um mitt sumar. En
þar fór hin hagnýta húsmóðir sem
hugði gott til glóðarinnar að
draga nýtilegt til búsins þegar
færi gafst. Enda var marga að
gleðja.
Hver er hetja ef ekki mann-
eskja á borð við Sigurbjörgu Ól-
afsdóttur? Hún heyr sína lífsbar-
áttu í hljóði og lítur á það sem
sína helgustu skyldu að koma
stórum barnaskara til manns.
Öllu skal til kosta: heilsu,
kröftum, síðasta eyri og allri sál-
arorku að mega skapa afkomend-
um tryggara líf en hennar sjál-
frar. Lífsfylling var: Fórnin, um-
hyggjan og fyrirgefningin. En
Sigurbjörg Ólafsdóttir var ekki
aðeins hetja, heldur líka göfug og
góð kona.
Harmur okkar allra er stór. Og
mikið er nú lagt á hinn góða
dreng Guðmund Brynjólfsson að
þurfa að kveðja konu sína á þess-
um sumardegi eftir næstum sex-
tíu ára ástríka sambúð. Megi ylur
minninganna hlýja honum um
hjartarætur um ókomin ár. Við
biðjum honum Guðs blessunar í
þeirri vissu að hann eflist í þessari
raun eins og jafnan áður.
Við Hrafnhildur og dæturnar
kveðjum Sigurbjörgu ömmu með
dýpsta trega. Hún gaf okkur allt
sem hún gat. Megi hún hvfla í
Guðs friði.
Baldur Óskarsson
Hún hafði stórkostlegan per-
sónuleika að geyma. Hún var
engum öðrum lík og menn tóku
eftir henni þar sem hún fór.
Ástæðan var ekki sú að hún
reyndi að láta á sér bera heldur
var það lífsgleðin, hláturmildin
og fjörið sem vakti athygli
manna. Hún fór í gegnum lífið á
léttu nótunum. Þrátt fyrir það átti
hún sína erfiðu tíma eins og aðrir,
sínar sorgir, leyndar óskir og þrár
en lífsgleðin var samt ávallt
fremst í för, líka daginn sem hún
lést.
Þetta var hún amma mín, Sig-
urbjörg Ólafsdóttir. Konan sem
kom til dyranna eins og hún var
klædd, konan sem þorði að vera
hún sjálf. Hún var stolt, dugleg
og kjarkmikil en umfram allt
heiðarleg gagnvart sjálfri sér og
öðrum. Hún breytti samkvæmt
sannfæringu sinni og sagði það
sem henni fannst, og leyfði sér að
vera á annarri skoðun en þeirri
sem þótti hæfa hverju sinni. Rétt-
lætiskenndin var rík og hún sá
falsið þar sem það fór. Hún var
vön að segja: „Þessa manneskju
sá ég út á einni nóttu.“ Yfirleitt
hafði hún rétt fyrir sér. Og eins og
með aðrar sérstakar persónur, þá
var hún ekki allra. Hún vildi velja
sína samferðamenn sjálf. Og fyrir
það fólk var stórt rými í hjarta
hennar.
Heimilið hennar ömmu var yf-
irleitt fullt af lífi og fjöri. Hún
hafði pláss fyrir alla sem henni
þótti vænt um. Flestir sem þekktu
hana sóttust eftir samvistum við
hana og þráðu nærveru hennar.
Ég, dótturdóttir hennar, var ein
af þeim. Ég vildi helst hvergi vera
nema hjá henni ömmu minni.
Hún tók ávallt glöð á móti mér og
vísaði mér veginn, öll mín fyrstu
uppvaxtarár.
Éftirlifandi eiginmaður henn-
ar, Guðmundur Brynjólfsson -
afi minn - var og er ennþá jafn-
þýðingarmikil persóna í mínu lífi
og amma mín, og ég mun ávallt
vera þakklát fyrir hans tilvist.
Hafi ég einhvern tíma komist í
kynni við hinn hreina tón lífsins,
þá er það á þeirra heimili - í húsi
afa míns og ömmu. Nú er Sigur-
björg farin sinn veg, en minning-
in um hana mun ávallt lifa. Ef til
vill mun persóna hennar hafa enn
sterkari áhrif á mig nú og um ó-
komna framtíð heldur en á með-
an hún lifði. Ég er sífellt að gera
mér betur grein fyrir hversu eftir-
sóknarverða persónueiginleika
og mannkosti hún hafði að
geyma.
Fyrir mína hönd og allra sem
elskuðu hana.
Katrín Baldursdóttir
(Útför Sigurbjargar verður gerð
á morgun, föstudag, kl. 15 frá
Bústaðakirkju.)
Fimmtudagur 13. júlí 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Frá Bæjarskipulagi
Kópavogs
Breyting á deiliskipulagi
miðbæjarins
Tillaga að breyttu deiliskipulagi miðbæjarins í
Kópavogi (austurbakki) auglýsist hér með skv.
gr. 4.4. í skipulagsreglugerð nr. 318/1985.
Svæðið afmarkast af húsunum Hamraborg 12,
Fannborg 4 og 6 til austurs, Digranesvegi 5 til
suðurs, Hafnarfjarðarvegi til vesturs og Hamra-
borg til norðurs. Deiliskipulagsuppdráttur
ásamt skýringarmyndum verður til sýnis á Bæj-
arskipulagi Kópavogs, Fannborg 2, 3. hæð frá
kl. 9-15 alla virka daga frá 13. júlí til 11. ágúst
1989.
Athugasemdum eða ábendingum, ef einhverjar
eru, skal skila skriflega til Bæjarskipulags innan
auglýsts kynningartíma.
Bæjarskipulag Kópavogs
©ra' Hlíðar
Fossvogur
Þingholt
Árbær
Leiti
þlÓÐVIUINN
Hafið samband við afgreiðslu
Þjóðviljans í síma 681663/681333