Þjóðviljinn - 19.07.1989, Page 1
Miðvikudagur 19. júlí 1989 124. tölublað 54. örgangur
Reykjavík
Skemmtanakóngnum bjargað
Borgarráð samþykkir kaup áBreiðvangi. Stjórnarandstaðan samþykk kaupunum en mótmœlir
vinnubrögðunum. Sigrún Magnúsdóttir: Auðvitaðákveðin björgunfyrirÓlafLaufdal.
Stórar ákvarðanir teknar utan borgarstjórnar
Borggarráð samþykkti á fundi
sínum í gær að Reykjavíkur-
borg keypti skemmtistaðinn
Breiðvang af Ólafi Laufdal, fyrir
118 miiyónir króna. Minnihlut-
inn í borgarstjórn hefur lagt fram
fjölda tillagna um stuðning við
uppbyggingarstarf fyrir unglinga
í nýrri hverfum borgarinnar, og
um unglingamiðstöð fyrir ung-
linga í miðbænum og í Breiðholti.
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfullt-
rúi Framsóknarflokks, segir það
vekja furðu sína að nú sé hægt að
snara út 118 milljónum, þegar
peningaleysi hefur verið borið við
af Sjálfstæðismönnum, þegar
þeir hafa fellt tillögur minnihlut-
ans.
Sigrún sagði það af hinu góða
að nú kæmi staður fyrir unglinga í
Breiðholti til að skemmta sér á.
En auðvitað fælist ákveðin björg-
un fyrir Ólaf Laufdal í kaupum
borgarinnar. Það væri skondið að
nú lægi þetta fé á lausu hjá borg-
inni. Sér finndist að hægt hefði
verið að veita félagasamtökum í
nýrri hverfum borgarinnar stuðn-
ing. Hún hefði það á tilfinning-
unni, að þegar kæmi að stórum
ákvörðunum fyrir hönd borgar-
innar, væru þær teknar annars-
VASK
Starfs-
fólki
fjölgað
Talsverðfjölgun þrátt
fyrir niðurskurð hjá
ríkinu
Vinna við undirbúning vegna
komu virðisaukaskattsins er í
fullum gangi hjá embætti Ríkis-
skattstjóra og að sögn Garðars
Valdimarssonar hefur starfsfólki
verið fjölgað og verður fjölgað
enn frekar næstu mánuði.
Talað er um að við hvert
gjaldstig þurfi að bæta við um 30
manns, en ekki er ljóst hversu
mikið þarf að ráða af starfsfólki í
heild. Þrátt fyrir 4% niðurskurð í
launakostnaði hjá hinu opinbera,
sagði Garðar það vera alveg klárt
að með tilkomu virðisaukaskatts-
ins þurfi fleira starfsfólk. Það hafi
verið ljóst frá upphafi, því skatt-
kerfið verður mun viðameira og
stærra í sniðum.
Það sem nú er verið að gera
vegna virðisaukaskattsins er að
undirbúa skattstofur og skatt-
stjóra og senda starfsfólk á nám-
skeið þar sem lög um virðis-
aukaskatt eru kynnt. Einnig er
verið að vinna að kynningarritum
og upplýsingabæklingum fyrir
fyrirtæki og almenning. ns.
staðar en í borgarstjórn og borg-
arráði.
Sem dæmi um mál sem borg-
arfulltrúar heyrðu fyrst af í fjöl-
miðlum, nefndi Sigrún söluna á
Granda. Borgarfulltrúar læsu aft-
ur og aftur í dagblöðum, að borg-
in hefði ákveðið eitt og annað
með fyrirvara um samþykki borg-
arráðs. Þannig væri einnig með
kaupin á Breiðvangi og mótmælti
minnihlutinn þessu með bókun,
að sögn Sigrúnar.
í fyrsta skipti sem borgarfull-
trúar heyrðu minnst á Breiðvang
sem mögulegan stað fyrir ung-
linga, var í vor þegar minnihlut-
inn bar upp tillögu um lausn á
félagsmálum unglinga í
Breiðholti. Þá varpaði Davíð
Oddsson, borgarstjóri, fram
þeirri spurningu: „Hvernig væri
bara að kaupa Breiðvang.“ Þetta
telja Sjálfstæðismenn lýðræðisleg
vinnubrögð.
Borgin greiðir Breiðvang að
hluta með þremur lóðum við Að-
alstræti og Túngötu, þar sem
Sýning á alþjóðlegri nútímalist
verður opnuð á Kjarvalsstöð-
um á laugardaginn. Er sýningin
hingað komin frá listasafni Epi-
nal f Frkklandi.þar sem forsvars-
menn hafa lagt áherslu á að safna
og fylgja eftir þeim listastefnum
sem komu fram i byrjun 7. ártug-
arins, þegar hið hefðbundna mál-
verk var að sögn komið f nokkurs
konar blindgötu.
Á sýningunni verður úrval
verka eftir listamenn sem hefur
Helmut Newton er höfundur
myndarinnar af þessum fjall-
myndarlega kvenmanni. Eftir-
töku annaðist Jim Smart.
Ólafur Laufdal hefur haft skrif-
stofuaðstöðu sína, og með niður-
fellingu á gjöldum. Þetta er metið
til 48 milljóna, en borgin greiðir
afganginn, 100 milljónir, upp á 12
borið hvað hæst í listasögunni síð-
ustu áratugi, meðal annarra
Frank Stella, Andy Warhol, Gil-
bert og George, Tony Cragg,
Donald Judd og Sigmar Polke,
svo nokkrir séu nefndir, en alls
verða verk eftir tuttugu og sjö
listamenn til sýnis.
Að sögn forráðamanna Kjar-
valsstaða hafa jafn margir merkir
listamenn aldrei áður verið sam-
an komnir innan veggja listasafns
á íslandi. Er sýningin gott yfirlit
yfir þá þróun sem átt hefur sér
stað í myndiistarsögu samtímans í
Bandaríkjunum og Evrópu og þá
sérstaklega á Ítalíu, Þýskalandi
og Frakklandi.
LG
Grœnhöfðaeyjar
Skattiieimta
til útflutnings
Forsœtisráðherra Grœnhöfðaeyja hefursýnt
áhuga á samstarfi við íslendinga á sviði stjórn-
sýslu. Steingrímur Hermannsson auð áfram-
haldandi aðstoð við fiskveiðar og áfleirisvið-
um
Forsætisráðherra Grænhöfða-
eyja hefur lýst yfír áhuga sín-
um á samstarfí við íslendinga og
aðstoð við endurskipulagningu
stjórnsýslunnar, einkum í sam-
bandi við skattheimtu og fjár-
málastjórn, sagði Steingrímur
Hermannsson eftir fund sem
hann átti við Pedro Pires forsætis-
ráðherra Grænhöfðaeyja sem er f
opinberri heimsókn hér á landi
um þessar mundir.
Steingrímur sagði að á þessum
fundi þeirra hefði hann boðið á-
framhaldandi aðstoð varðandi
fiskveiðar og jafnframt á öðrum
sviðum þar sem reysla íslendinga
gæti nýst íbúum Grænhöfðaeyja
og nefndi í því sambandi nýtingu
jarðhita og ferðaþjónustu.
Síðastliðin 10 ár hafa íslend-
ingar veitt Grænhöfðaeyjum þró-
unaraðstoð á sviði fiskveiða og
verkunar og hefur það starf
skilað verulegum árangri. Einnig
hefur verið veitt aðstoð við sölu
fiskafurða á Evrópumarkað en
það starf hefur enn sem komið er
ekki gengið eins vel.
Á Grænhöfðaeyjum búa á milli
340 til 350 þúsund manns. Þar er
þjóðarframleiðsla um 600 dollar-
ar á ári á mann en til samanburð-
ar má nefna að hérlendis er hún
um 20 þúsund dollarar á ári. Pe-
dro Pires sagði að þrátt fyrir ólík-
ar aðstæður þjóðanna gæti sam-
starf smáþjóða sem þessarra ver-
ið árangursríkt og smæð þeirra
beggja væri forsenda þess að þær
hefðu samskipti á jafnréttis-
grundvelli. iþ
Alþjóðleg nútímalist
Toppar samtímans
Yfirlitssýningyfir þróun nútímalistar á Kjar-
valsstöðum