Þjóðviljinn - 19.07.1989, Page 11

Þjóðviljinn - 19.07.1989, Page 11
LESANDI Stefán Jón Hafstein, dagskrárstjóri rásar 2. Mynd: Jim Smart. VIKUNNAR það að láta alla starfsmenn, hvort sem er í einkageiranum eða hin- um opinbera, bera ábyrgð á gerð- um sínum. Ekki alltaf að vera að bjarga mönnum úr klípum. Ef slík regla kæmist á heíd ég að mikið væri unnið.“ Hvaða kaffitegund notarðu? „Besta kaffi sem ég fæ kemur Einar vinur minn Steingrímsson með handa mér frá Ameríku. Það er sérmalað og brennt í sér- stökum kaffibúðum. En dags daglega drekk ég Merrild." Hvað borðarðu aldrei? „Ég er mjög spenntur fyrir öllu nýju í matargerðarlist og því fár- Hef óútskýranlegt dálæti á öndum Hvað ertu að gera núna, Stef- án? „Ég er að vinna við Dægurmálaútvarpið eins og ég hef verið að gera undanfarin tvö ár.“ Hvað varstu að gera fyrir tíu árum? „Ég á tíu ára starfsafmæli hjá útvarpinu núna. Fyrir tíu árum var ég að byrja sem fréttamaður á fréttastofu útvarpsins." Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir stór? „Ég ætlaði að ferðast mikið. Ég sigldi mikið með pabba mín- um þegar ég var lítill, og las þá margar sjóferðabækur og ferða- bækur sem hann átti og var snemma ákveðinn í því að ferð- ast. En ég hafði samt ekkert sér- stakt starf í huga í þvf sambandi. “ Hver er uppáhalds tónlistin þín? „Ég á ekki uppáhalds neitt. Bara það sem passar stað og stund, og það getur verið mjög fjölbreytt.“ Hvaða frístundagaman hef- urðu? „Ég hef eiginlega ekkert tóm- stundagaman. Það sem kemst kannski næst því er að veiða á flugu, en það er hins vegar list- grein. Jú, ég hef iíka gaman af matreiðslu og öllum nýjungum sem henni tengjast." Hvaða bók ertu að lesa núna? „Ég er að lesa nýju ljóðabók- ina hans Þorsteins frá Hamri.“ Hvað finnst þér þægilegast að lesa í rúminu? „Ég sofna alltaf strax þannig að ég les lítið í rúminu.“ Hvaða bók myndirðu taka með þér á eyðiey? „Það er náttúrlega praktískt að taka biblíuna, af því að hún er þykk og það er mikið í henni. En ég hugsa að ég myndi taka með mér íslendingasögurnar.“ Hver var uppáhalds barnabók- in þín? „Gvendur Jóns. Það var Gvendur Jóns og ég og Gvendur Jóns og félagar og allar þær bækur.“ Hvaða dýr kanntu best við? „Ég held að endur séu í mestu uppáhaldi hjá mér. Það er til fólk sem hefur eitthvert óútskýranlegt dálæti á öndum, bæði lifandi og dauðum. Ég á til dæmis sjálfur margar eftirgerðir af öndum og hef mikla ánægju af að horfa á þær. Mér finnst öndin vera það dýr sem kemst næst því að vera holdgervingur húmanisma, bæði í útliti og hegðun. Það vekur hjá mér húmanískar tilfinningar að horfa á endur.“ Hvað óttastu mest? „Var ekki einhver sem sagði „Óttist eigi“? Ég held að það sé gott.“ Hefurðu alltaf kosið sama stj ór nmálaflokkinn? „Nei.“ Hvaða stjórnmálamann langar þig mest til að skamma? „Ég hugsa aldrei um pólitík á þeim nótunum." Er eitthvað í bíó sem þú ætlar ekki að missa af? „Já, það hafa nú verið margar myndir í vetur sem ég hef ætlað að sjá. Það er nefnilega mjög góður kvikmyndagagnrýnandi á rás 2 sem er alltaf að mæla með einhverjum myndum sem maður þarf endilega að sjá. Og vegna eindreginna meðmæla gagnrýn- andans ætla ég að fara og sjá Hættuleg sambönd." Er eitthvað í sjónvarpi sem þú missir ekki af? „Nei, það er ekkert sérstakt. Ég horfði að vísu alltaf á Matador í vetur og vinnunnar vegna opna ég fyrir fréttirnar." En í útvarpi? „Ég reyni að hlusta á sjálfan mig þegar ég get.“ Hvernig myndirðu levsa efna- hagsvandann? „Ég hef eitt gott ráð, sem er ánlegri sem réttirnir eru, því spenntari verð ég. Ég held þess vegna að ég fúlsi ekki við neinum mat, en mér finnst kæst skata frekar fráhrindandi.“ Hvar myndirðu vilja búa ann- ars staðar en á Islandi? „Það er víða. ísland er ekkert ofar á blaði en önnur lönd, en sérstakt vegna þess að ég á svo marga góða vini hérna. Ég get hugsað mér að búa næstum því hvar sem er.“ Hvernig finnst þér þægilegast að ferðast? „Ánægjulegustu minningar sem ég á úr ferðalögum eru frá lestarferðum. Að hafa með mér gott nesti og rauðvínsflösku og horfa að landslagið renna hjá. Það finnst mér mjög þægilegt." Hverju myndirðu svara ef þú yrðir beðinn um að verða forsæt- isráðherra? „Ég myndi svara játandi. Það er þetta mikla sjálfstraust sem gerir það að verkum! Ég gæti kannski komið einhverju til leiðar sem gerði það að verkum að þjóðin gæti gert eitthvað gott sjálf.“ Hvernig sérðu framtíðarlandið fyrir þér? „Það kæmi mér alls ekki á óvart að við yrðum sprengd í loft upp einn daginn, en óskalandið er land þar sem margt og fjöl- breytt fólk býr í sátt og sam- lyndi.“ Hvern telur þú merkastan at- burð mannkynssögunnar? „Það er eins og með pólitíkina, ég hugsa ekki um lífið á þessum nóturn." Hvaða spurningu langar þig til að svara að lokum? „Af hverju það er ekki búið að bjarga heiminum." Af hverju er ekki búið að bjarga heiminum, Stefán? „Af því að heimurinn vill ekki láta bjarga sér.“ ns. I DAG þJÓÐVILJINN FYRIR50ÁRUM Hitler hefur sent Franco heillaóska- skeyti í tilefni af afmæli spánsku borg- arastyrjaldarinnar. Tilkynning Máls og menningar á útgáfu bókaflokksins Arfur islendinga hefur fengið mjög góðar undirtektir og vill fjöldi manna gerast áskrifendur að bókaflokknum. 19.JULI miðvikudagur í fjórtándu viku sumars. 200. dagurársins. Sólarupp- rás í Reykjavík kl. 03.52 og sólarlag erkl. 23.13. VIÐBURÐIR Alexander Dubcek segir í sjónvarps- ræðu 1980aðTékkarviljiskapasína eigin gerð af sósíalisma. Bandalag við Sovétríkin undirstaðafyrirsjálf- stæði Tékkóslóvakíu í viðsjárverðum heimi. DAGBÓK APÓTEK Reykjavik. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúöa vikuna 14.-20. júli erí Lyfjabergi og Ingólfs Apóteki. Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Siðarnefnda apótekið er opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur...............sími 4 12 00 Seltj.nes...............sími 1 84 55 Hafnarfj................sími 5 11 66 Garðabær................sími 5 11 66 Slökkvilið og sjukrabílar: Reykjavik...............sími 1 11 00 Kópavogur...............sími 1 11 00 Seltj.nes...............sfmi 1 11 00 Hafnarfj................sími 5 11 00 Garðabær................sími 5 11 00 L4EKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnesog Kópavog er i Heilsu- verndarstöö Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, simaráðleggingar og tíma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím- svara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eöa ná ekki til hans. Landspft- alinn: Göngudeildin er opin 20-21. Slysadeild Ðorgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt8-17áLæknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Keflavik: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspítalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspftallnn: virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspitala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspítali: alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spítalinn:alladaga 15-16og 18.30-19. Vestmannaeyjum: allavirkadaga 15- 16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húslð Húsavík: alla daga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung- linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, op'ð allansólarhringinn. Sálf ræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum.Sími 687075. MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga frá kl. 8-17. Sfminner 688620. Kvennaráðgjöfin Hlaövarpanum Vestur- . götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, f immtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, sími21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrirsifjaspellum, s. 21500,símsvari. Upplýsingar um eyðni. Simi 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing ámiðvikudögumkl. 18-19, annarssím- svari. Samtök um kvennaathvarf, simi 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbia og homma á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21- 23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er 91-28539. Félag eldri borgara. Opið hús i Goðheim- um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga ogsunnudagakl. 14.00. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: s. 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sifjaspellamál. Simi 21260allavirkadaga kl. 1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 áfimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á fimmtudögumkl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 18. júlí 1989 kl. 9.15. Sala Bandaríkjadollar.......... 58,58000 Sterlingspund............. 94,02400 Kanadadollar.............. 49,19600 Dönsk króna................ 7,86840 Norskkróna................. 8,34590 Sænskkróna................. 8,97230 Finnsktmark............... 13,60430 Franskurfranki............. 9,00120 Belgískurfranki............ 1,45880 Svissn. franki............ 35,27850 Holl.gyllini.............. 27,08280 V.-þýskt mark............. 30,53670 Itölsklíra................. 0,04213 Austurr.sch................ 4,34070 Portúg. escudo............. 0,36620 Spánskurpeseti............. 0,48680 Japansktyen................ 0,41130 Irsktpund................. 81,66900 KROSSGÁTA Lárétt: 1 fák4svein6 orka7meis9sigaði12 hluta 14 fjör 15 hjör 16 eyju 19dýr20nýlega 21 hrapi Lóðrétt:2ellegar3 glata4gabb5dauði7 smáarSbyrjun 10 mælti11 lyktina 13 rölt 17gruna 18tunga 7 Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 snös,4sorg6 ógn 7 farm 9 amma 12 eigra14tóg15und16 Iúður19nauð20 nafn 21 ritar Lóðrétt: 2 nía 3 sómi 4 snar 5 róm 7 fótinn 8 reglur10maurar11 andinn 13geð 17 úði 18una Miðvikudagur 19. júlí 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.