Þjóðviljinn - 19.09.1989, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 19. september 1989 158. tölublað 54. árgangur
Álverið t
Strandar á skilyrðum VSÍ
Sólarhringurþangað til verkfall skellur á í álverinu.
Samningsaðilar loka sig afhjá ríkissáttasemjara
Amiðnætti annað kvöld hefst
verkfall í álverinu í
Straumsvík hafi samningar ekki
tekist fyrir þann tíma. Þá tekur
við tveggja vikna aðlögunartími
sem fer í að kæla álkerin hægt og
bítandi niður og draga úr fram-
leiðslu. Samningsaðilar vörðust
allra frcgna af gangi viðræðna í
gær og hafa gert með sér sam-
komulag um að ræða ekki við
fjölmiðla.
Hvorki fulltrúar atvinnurek-
enda né fulltrúar verkafólksins
vildu gefa upp um hvað deila
þeirra stæði helst. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans er tilboð
það sem verkalýðsfélögin lögðu
fram á mánudag í síðustu viku,
ekki svo frábrugðið því tilboði
sem atvinnurekendur lögðu fram
nokkrum dögum áður. Hins veg-
ar séu atvinnurekendur með skil-
yrði fyrir samningi í sínu tilboði
sem verkalýðsfélögin geti ekki
gengið að. Þessi skilyrði ganga
ma. út á fækkun starfsmanna í
álverinu og breytingar á tilhögun
kaffitíma.
Fækkun á starfsmönnum í ál-
verinu hefur þegar hafist. Samn-
ingar við um 40 lausráðna starfs-
menn voru ekki endurnýjaðir
þann 15. september en sumir
þeirra hafa verið lausráðnir hjá
Atvinnuleysi
Enn syrtir
í álinn
Fjórum sinnum meira
í ágúst1989 en í sama
mánuði fyrir ári
Skráð atvinnuleysi í síð-
astliðnum ágústmánuði var fjór-
um sinnurn meira en það var á
sama tíma í fyrra. í mánuðinum
voru skráðir 41 þúsund atvinnu-
leysisdagar á landinu öllu, 23 þús-
und dagar hjá konum en 18 þús-
und hjá körlum. Aukningin frá
júlí er um rösklega 1500 daga að
mestu hjá körlum.
Samkvæmt frétt frá vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins kemur fram að framan-
greindur fjöldi skráðra atvinnu-
leysisdaga svarar til þess að tæp-
lega 1900 manns hafi að meðaltali
verið á atvinnuleysisskrá í ágúst
en það jafngildir 1,4% af áætluð-
um mannafla á vinnumarkaði
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnun-
ar. Hlutfall atvinnulausra hefur
því hækkað um 0,1% frá mánuð-
inum á undan.
Til samanburðar við ág-
ústmánuði 1988 voru skráðir 10
þúsund atvinnuleysisdagar og þá
var hlutfall atvinnulausra af
mannafla aðeins 0,4%.
-grh
álverinu í eitt ár og jafnvel tvö.
Þegar Þjóðviljinn ræddi þessi mál
við Jakob Möller, starfsmanna-
stjóra ísal, fyrir skömmu, sagði
hann rekstur álversins hafa verið
erfiðan í fyrra og þessar ráðstaf-
anir væru eðlileg aðlögun að
rekstrarástandinu og ekki stæði
til að draga úr framleiðslu. Fyrir-
tækið væri með heldur fleiri
starfsmenn en áætlanir gerðu ráð
fyrir. Fyrir 15. september hefðu á
bilinu 600-650 manns starfað hjá
álverinu, en eftir þann tíma yrðu
starfsmenn tæplega 600.
Sjónarmið starfsmanna eru
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, tók í gær á
móti sérstökum verðlaunum fyrir
störf í þágu friðar, sem stofnunin
Together for Peace Foundation
veitti henni. Var það Mariapia
Fanfani, formaður stofnunarinn-
ar og einn af varaformönnum al-
þjóðasambands félaga Rauða
krossins og Rauða hálfmánans
sem afhenti henni verðlaunin, og
kom hún sérstaklega til landsins
til þess.
f afhendingarræðu sinni sagði
Mariapia Fanfani, að frú Vigdísi
ólík þeim sjónarmiðum sem Jak-
ob heldur fram og segja þeir ekk-
ert veita af þeim lausráðnu starfs-
mönnum sem samningar voru
ekki endurnýjaðir við. Einn
starfsmanna sagði þessar upp-
sagnir skrýtnar í ljósi þeirrar
stefnu fyrirtækisins að draga sem
mest úr yfirvinnu starfsmanna.
Andrúmsloftið í Karphúsinu,
þar sem fundir deiluaðila fara
fram, var blendið um miðjan dag
í gær. Fulltrúar verkafólksins
voru hinir rólegustu en tauga-
veiklunar virðist gæta í röðum
samninganefndar atvinnurek-
Finnbogadóttur hefðu verið veitt
verðlaunin fyrir hlutverk sitt sem
gestgjafa leiðtogafundarins 1986,
þegar Reagan Bandaríkjaforseti
og Gorbatsjov leiðtogi Sovétríkj-
anna hittust á íslandi, því með
þeim fundi hefði hafist nýtt tíma-
bil í samskiptum austurs og vest-
urs og friðarþróun í heiminum.
Einnig hefði Together for Peace
Foundation veitt Nancy Reagan
og Raissu Gorbatsjovu sömu
verðlaun, en þær hefðu allar
þrjár lagt sitt af mörkunum.
Verðlaunagripurinn var
málmstytta eftir ítalskan mynd-
enda. Þeim sjónarmiðum hefur
verið haldið fram að komi til
verkfalls í álverinu hafi það nei-
kvæð áhrif á uppbyggingu stór-
iðju á fslandi í framtíðinni. Þeir
starfsmenn álversins sem Þjóð-
viljinn ræddi við taka þessum
hótunum takmarkað alvarlega.
Einn sagði að í svona málum væri
ábyrgð verkafólks mikluð og haf-
in upp til skýjanna. Ef greiða ætti
laun í samræmi við ábyrgð mætti
hækka laun verkafólks í álverinu
um stærri upphæðir en nú væri
verið að ræða um.
höggvara, sem átti að tákna jörð-
ina. En einnig afhenti Mariapia
Fanfani, sem er gift Amintore
Fanfani, fyrrverandi forsætisráð-
herra Ítalíu, frú Vigdísi Finnbog-
adóttur persónulega gjöf frá sér
og manni sínum; var það stytta úr
steindu gleri sem gerð hafði verið
í Feneyjum eftir frumteikningu
Amintore Fanfanis sjálfs.
f þakkarræðu sinni sagði frú
Vigdís Finnbogadóttir, að ekkert
væri of mikið til að stuðla að friði
og auknum skilningi milli manna.
Hefði hún það að leiðarljósi að
heimurinn ætti að hlusta meira á
Ólafur H. Torfason (Ljósm Krist-
inn).
Ólafur H. Torfason
ráðinn ritstjóri
Þjóðviljans
Sem liðsmaður í vinstrihreyf-
ingu hefur maður alltaf haft
sterkar taugar til þessa blaðs og
skilið mikilvægi þess, segir
Olafur H. Torfason, sem nú um
helgina var ráðinn nýr ritstjóri
Þjóðviljans. Hann kemur til
starfa í október.
Ég hefi reynt að koma til liðs
við blaðið áður, segir Ólafur. Og
nú þegar sú staða er uppkomin að
útgáfustjórn var sammála um að
þetta væri vænlegur kostur fyrir
blaðið þá fannst mér á vissan hátt
skylda mín að bregðast við því
kalli.
Ég hygg gott til þessa starfs:
maður lítur á það sem forsendu
fyrir heilbrigðu lífi í fjölmiðla-
heimi okkar að Þjóðviljinn haldi
uppi þeirri sterku umræðu um
félags- og menningarmál sem
honum hefur oft tekist. Það er
mikilvægt á tímum skrumsins að
hlúa að þeim verðmætum sem
felast í þeirri stefnu sem blaðið
hefur fylgt. Og markmiðið hlýtur
alltaf að vera það að gera Þjóð-
viljann ómissandi fyrir alla þá
sem vilja taka þátt í vitrænni
þj óðfélagsumræðu.
Ólafur H. Torfason er
Reykvíkingur vestfirskrar ættar.
Hann stundaði nám í kvikmynda-
og fjölmiðlafræðum við
Kaupmannahafnarháskóla 1970-
1973, starfaði sem kennari í
Stykkishólmi árin 1975-1982 en
hefur jafnan starfað margt fyrir
blöð (m.a. skrifað fasta dálka í
Þjóðviljann) og gert fjölda
útvarps- og sjónvarpsþátta og
vinnur nú að gerð heimildar-
myndar fyrir Sjónvarpið um Þor-
lák helga. Hann hefur haldið átta
einkasýningar á myndverkum
sínum. Frá árinu 1986 hefur
Ólafur verið forstöðumaður
Upplýsingaþjónustu landbúnað-
arins. Eiginkona Ólafs er Signý
Pálsdóttir leikhúsfræðingur og
eiga þau þrjú böm.
áb
smáþjóðir, þær væru nauðsyn-
legur litur í vefnaði heimsins.
Mariapia Fanfani hefur starfað
að margvíslegum mannúðarmál-
um í fjörutíu ár, skipulagt hjálp-
arleiðangra og aðstoð við fólk í
neyð víða um heim. Stofnaði hún
Together for Peace Foundation í
febrúar 1988, en sú stofnun hefur
skipulagt fyrirlestra og ráðstefn-
ur til að stuðla að friði í þróunar-
löndum.
e.m.j.
-hmp
Friður
Vigdís verðlaunuð
Forseti íslands tekur á móti friðarverðlaunum