Þjóðviljinn - 19.09.1989, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 19.09.1989, Blaðsíða 7
1. deild Sviptivindar í norðurátt Fylkir vann FH ogfœrði KA þannig tidlinn enféll samt Í2. deild ásamt IBK. Þórsarar héldu sœti sínu í deildinni og undirstrikuðu þannig sigurgleði Akureyringa Eins og öllum íþróttaáhuga- mönnum ætti að vera kunn- ugt lauk hinni gífurlega spenn- andi keppni 11. deild um helgina. Úrslit mótsins mörkuðu viss tíma- mót í knattspyrnusögunni hér- lendis því nýtt nafn var ietrað á íslandsmeistarabikarinn. KA frá Akureyri bar sigur úr býtum í fyrsta sinn i 60 ára sögu félagsins og var þetta jafnframt í fyrsta sinn sem Norðlendingar vinna titilinn. Sannarlega skemmtileg tilbreyting og ekki skemmdi fyrir að liðið í öðru sæti hafði ekki heldur komist áður í kynni við toppbaráttuna í deildinni. FH-ingar voru nær því en nokkru sinni fyrr að vinna sigur á mótinu en þeir verða að sætta sig við annað sætið sem hlýtur að vera ágætur árangur hjá liði sem lék í 2. deild í fyrra. FH verður fulltrúi íslands í Evrópukeppn- inni á ári komanda ásamt bikar- meisturum Fram og vitanlega ný- krýndum íslandsmeisturum KA. Laugardagurinn sl. verður vafalaust lengi í minnum hafður þar sem fimm úrslitaleikir fóru fram á sama tíma. Þegar svo mjótt er á mununum þarf varla að fjölyrða um áhrif þess ef leikirnir hefðu ekki farið allir fram á sama tíma. Þótt vel hefði verið fylgst með öllum leikjunum beindust augu manna einkum að leik FH og Fylkis á Kaplakrika í Hafnarfirði. Úrslitin á íslandsmótinu voru nefnilega fólgin í árangri FH-inga í þessum leik, því með sigri hefði titillinn orðið þeirra, en annars ættu þrjú önnur lið njöguleika. Bæði FH og Fylkir voru nýliðar í 1. deild í sumar en örlög þeirra í deildinni fóru hvort á sinn veg- inn. En Fylki tókst hið ómögulega, að vinna FH í þessum mikilvæga leik. Árbæjarliðið átti sigurinn fyllilega skilið og sýnir það glögg- lega hve skammt er á milli þeirra efstu og neðstu í deildinni. Eftir þennan sigur Fylkis er varla hægt að finna eðlilega skýringu á því að liðið fellur í 2. deild. Liðið sýndi á laugardag að það á fylli- lega heima í 1. deild og því má segja að liðið falli með sæmd. Það var 17 ára nýliði í liði Fylk- is, Kristinn Tómasson, sem skoraði sigurmark þeirra og kæmi ekki á óvart að markið yrði valið mark ársins. Hann fékk knöttinn á lofti á vítateigi FH, sneri á ótrúlegan hátt á Olaf Jó- hannesson og skoraði af öryggi framhjá Halldóri Halldórssyni. Markið skoraði Finnur þegar um 10 mínútur voru til leiksloka en jafnt hafði verið í leikhléi 1-1. FH fékk óskabyrjun þegar Guð- mundur Valur Sigurðsson skoraði beint úr aukaspyrnu en Örn Valdimarsson jafnaði um miðjan fýrri hálfleik. Vegna þessara úrslita dugði KA jafntefli gegn ÍBK en vann engu að síður sigur, 0-2. Keflvíkingar urðu að vinna leikinn og eftir að Örn Viðar Arnarson hafði náð forystunni fyrir KA lögðu heimamenn allt kapp á að skora. í einni af sínum Hafirðu smakkað vín - latfcu þér þá AUDKEI detta í hug að keyra! I þungu sóknum misstu þeir knött- inn á vítateig KA, boltinn barst til Gauta Laxdal sem var fljótur að átta sig og sendi fram á Jón Krist- jánsson sem skyndilega var einn gegn Þorsteini Bjarnasyni mar- kverði. Jón renndi knettinum framhjá honum og gulltryggði sigurinn og þarmeð íslands- meistaratitilinn. Jón er því tvö- faldur meistari í ár því hann lék sama leik með handknattleiksliði Vals sl. vetur. Hitt Akureyrarliðið, Þór, vann einnig sigur á laugardag og hélt þannig sæti sínu í deildinni. Skagamenn léku á Akureyri en þeir áttu engra hagsmuna að gæta í leiknum og kann það að hafa haft áhrif á úrslit hans. Vegna si- gurs Fylkis varð Þór að vinna leikinn og það tókst með einu marki, 2-1. Sævar Árnason og Bojan Ganevski skoruðu fyrir Þór, en Sigursteinn Gíslason minnkaði muninn rétt fyrir leiks- lok. Tveir leikir fóru fram í Reykja- vík og er það mjög óvenjulegt að þeir skiptu hvað minnstu máli af leikjunum fimm. Von Framara á að verja titilinn byggðist á því að vinna stóran sigur á Víkingi sem áttu á hættu að falla. Framarar unnu hinsvegar aðeins minnsta mögulegan sigur, eða 1-0. í upp- hafi leiks leit reyndar út fyrir stór- sigur Framara því eftir að Pétur Ormslev skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu á fyrstu mín- útunum hélt liðið áfram að sækja af fullum krafti. Reykjavíkurrisarnir Valur og KR áttust við að Hlíðarenda og skipti sá leikur þegar upp var staðið heldur engu máli. KR- ingar héldu að vísu í veika von einsog Framarar en samt voru það Valsmenn sem unnu sigur, 1-0. Baldur Bragason skoraði eina mark leiksins og gerði þann- ig út um vonir KR-inga til að ná Evrópusæti. Lokastaðan 1. deild KA 18 9 7 2 29-15 34 FH 18 9 5 4 27-17 32 Fram 18 10 2 6 22-16 32 KR 18 8 5 6 28-22 29 Valur 18 8 4 6 21-15 28 lA 18 8 2 8 21-22 26 Þór 18 4 6 8 20-30 18 Víkingur ■ 18 4 5 9 24-31 17 Fylkir 18 5 2 11 18-31 17 ÍBK 18 3 6 9 18-29 15 Markahæstir HörðurMagnússon, FH 12 GuðmundurSteinssonFram 9 Kjartan Einarsson, IBK 9 2. deild Stjarnan 18 14 1 3 44-16 43 IBV 18 13 0 5 49-30 39 Víðir 18 12 2 4 30-21 38 Selfoss 18 9 1 8 23-27 28 VBK 18 6 4 8 36-32 22 Tindastóll 18 6 2 10 34-28 20 IR 18 5 5 8 22-30 20 Leiftur 17 4 5 8 13-18 17 Völsungur 18 4 2 12 23-44 14 Einherji 17 4 2 11 21-49 14 Markahæstir Eyjólfur Sverrisson, Tindast. 14 Grétar Einarsson, Víði 12 Jón Þ. Jónsson VBK 12 Tómasl.TómassonlBV 12 Árni Sveinsson. Stjörnunni 11 TÓNUSMRSKOU KÓPPNOGS Tónlistarskóli Kópavogs veröur settur miöviku- daginn 20. september kl. 17.00 í Kópavog- skirkju. Skólastjóri Bílastæðasjóður Reykjavíkur Nokkur ' „mánaðarkortsstæði” laus í KOLAPORTI og á BAKKASTÆÐI. Gjaldið er 4000 kr. í Kolaporti og 3000 kr. á Bakkastæði. Gatnamálastjóri ú FRAMKVÆMDASJÓÐUR ÍSLANDS iDL auglýsir til sölu kvikmyndahúsið REGNBOGANN að Hverfisgötu 54 í Reykjavík Upplýsingar eru veittar hjá Framkvæmdasjóði, Rauðarárstíg 25, sími 624070, og hjá Hróbjarti Jónatanssyni, hdl., Skeifunni 17, Reykjavík, sími 688733. Heildarupphæð vinn- inga16.9.var 4.939.856 1 hafði 5 rétta og fær hann kr. 2.279.694 Bónusvinninginn fengu 4 og fær hver kr. 98.565 Fyrir4tölurréttarfær hver5.113og fyrir 3 réttar tölur fær hver um sig 361 Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir útdrátt í Sjónvarpinu Þungur bíll veldur • þunglyndí ökumanns. Vejjum og höfnum hvað , nauðsynlega þarf að vera með í ferðalaginu! ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.